Fréttablaðið - 30.11.2007, Side 84
52 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
>Plata vikunnar
Sigur Rós - Hvarf/Heim
★★★★
„Hvarf/Heim er tvöföld plata með
nýjum útgáfum af nokkrum gömlum
lögum og órafmögnuðum tónleika-
upptökum. Sérstaklega vel unninn
pakki sem er skyldueign fyrir aðdá-
endur sveitarinnar.“ TJ
> Í SPILARANUM
Bonnie „Prince” Billy - Ask Forgiveness
Ungdomskulen - Cry Baby
Hundur í óskilum - Snýr aftur
Les Savy Fav - Let‘s Stay Friends
Hjaltalín - Sleepdrunk Seasons
HJALTALÍNBONNIE “PRINCE“ BILLY
Nú eru aðeins rúmar fjórar
vikur eftir af árinu og margir
tónlistaráhugamenn farnir að
líta til baka og huga að ára-
mótauppgjörunum. Þegar
íslenska tónlistarárið 2007 er
skoðað stendur upp úr hversu
mikið hefur komið út af góðum
íslenskum plötum á árinu, hvað
þær koma úr ólíkum áttum og
hvað útgáfa þeirra dreifðist
jafnt yfir árið. 2007 jarðar 2006
auðveldlega.
2006 var kallað ár nýliðanna,
en 2007 hefur þetta allt, bæði
mjög sterkar frumsmíðar og
frábærar plötur með listamönn-
um sem hafa verið lengi að.
Árið hófst með mjög sérstakri
plötu Ólafar Arnalds, Við og
við. Ein af frumsmíðum ársins,
en þæru voru fleiri framúr-
skarandi. Plata Seabear, The
Ghost That Carried Us Away,
kom um vorið og seinna á árinu
fengum við fyrstu plötur
Valgeirs Sigurðssonar, Bloodgroup, Benny Crespo‘s Gang og
Jakobínarínu. Allt plötur sem eru langt yfir meðallagi.
Stóru nöfnin voru heldur ekkert að klikka. Gus Gus færði okkur
hina fínu Forever og Björk skilaði Voltu á vordögum. Ekki hennar
besta plata, en góð samt. Megas sendi frá sér tvær eðalplötur,
Frágang og Hold er mold. Mikið breytt múm gaf út hina margslungnu
Go Go Smear The Poison Ivy og Páll Óskar sveik ekki með sinni
fyrstu alvöruplötu í langan tíma, Allt fyrir ástina. Mugison toppaði
svo allt með sprengjunni Mugiboogie.
Eins og sjá má á ofantöldu var fjölbreytnin umtalsverð. Á árinu
komu líka nokkrar traustar rokkplötur sem rétt er að geta; önnur
plata Jan Mayen, So Much Better Than Your Normal Life, er hörku-
plata og það sama er hægt að segja um plötur Skáta og I Adapt.
Það hefur verið mikið talað um nýja tíma og kynslóðaskipti í íslensku
poppi á árinu og vissulega eru hræringar og ný nöfn að koma upp
með nýja sýn og nýjar hugmyndir. Það var augljóst á Airwaves-
hátíðinni. Flestar þessara ungu sveita hafa enn ekki sent frá sér plötu,
en forvígismenn þessarar hreyfingar og helstu hugmyndasmiðir,
Sprengjuhöllin, eiga heiðurinn af einni af skemmtilegustu plötum
ársins, Tímunum okkar. Við bíðum spennt eftir 2008...
Það er augljóst á þessari upptalningu hér að ofan, sem nota bene er
ekki tæmandi, að það verður erfiðara en oft áður að velja plötur
ársins í ár. En það eru að sjálfsögðu erfiðleikar sem við gleðjumst
yfir...
2007 – Annus Mirabilis
MEGAS
Kóngar „shoegazing“-
rokksins, My Bloody Valent-
ine, hyggja á endurkomu og
ein langþráðasta plata rokk-
sögunnar lítur væntanlega
dagsins ljós á næsta ári.
Steinþór Helgi Arnsteins-
son leit yfir feril sveitar-
innar goðsagnakenndu.
Fáar sveitir, ef einhverjar, hafa
haft eins mikil áhrif á tónlist
undan farna tvo áratugi eins og My
Bloody Valentine (MBV). Um þá
staðreynd deila fáir. Hljóðheimur
sveitarinnar var byltingar kenndur
og öll nálgun að tónlistarsköpun-
inni var undraverð, sem setti
sveitina á stall með ekki ómerkari
brautryðjendum en til dæmis The
Velvet Underground og Sonic
Youth. Fyrst og fremst var það hin
ótrúlega gítarlagskipting MBV
sem vakti athygli. Gítar ofan á
gítar ofan á gítar sem höfðu verið
brenglaðir ýmist eða breytt og
mynduðu ógurlega ómmikil til-
brigði, markaði MBV sérstöðu og
margir hafa síðan apað eftir.
Hálf milljón punda
til einskis
Sveitin snerist
aðallega í kringum
einn mann, Kevin
Shields, séní með
yfirgengilega full-
komnunaráráttu.
Fyrsta platan, Isn’t
Anything, leit dags-
ins ljós árið 1988 en
það var meistara-
verkið Loveless,
sem tók tvö ár í
framleiðslu og kom
út árið 1991, sem
gerði MBV að þeirri
goðsögn sem sveitin
er í dag.
Síðan þá hefur hins vegar að
mestu ríkt þögn kringum MBV en
sveitin fór frá hinu mikilsvirta
plötufyrirtæki Creation árið 1992
og flutti sig yfir til plötu risans
Island. Fljótlega komu upp sögu-
sagnir um að nýtt meistaraverk
væri í burðarliðnum og víst var að
Shields hafði langdvölum unnið að
nýju efni. En ekkert heyrðist og
fljótlega gáfu margir upp vonina.
Svo virtist sem fullkomnunar-
árátta Shields hefði einfaldlega
orðið sveitinni að bana. Seinna
útskýrði Shields að Island hefði
látið sveitina
fara eftir að hún
hafði eytt um
hálfri milljón
punda í upptök-
ur.
Loksins, loksins
Upp úr 2000
virtist umræð-
an um að ný
MBV-plata
væri loks á
leiðinni áger-
ast á ný.
Shields hafði
unnið með
ýmsum sveit-
um undan-
gengin ár, meðal annars Dinosaur
Jr. og Primal Scream, auk þess að
endurhljóðblanda lög fyrir hell-
ing af sveitum og sjá um tónlist í
kvikmyndinni Lost in Trans-
lation.
Þögnin var hins vegar loks rofin
í viðtali við Magnet í byrjun þessa
árs. Shields fullyrti að 100 pró-
senta líkur væru á að sveitin
myndi koma saman aftur og gera
nýja plötu, nú, ,,nema ef meðlimir
sveitarinnar myndu deyja eða
eitthvað“. Menn tóku þessum
fréttum með nokkrum fyrirvara
en eftir að sveitin staðfesti í
byrjun mánaðarins nokkra tón-
leika sem hún myndi halda á
næsta ári þóttust menn vissir um
að endurkoma MBV yrði stað-
reynd innan tíðar.
Nýtt efni í bland við gamalt
Nýlega hafði Shields þetta að segja
um nýju plötuna. ,,[Nýja platan]
mun verða þessi 96/97-hálf-
kláraða-plata kláruð og síðan safn
af dóti sem við gerðum á undan því
milli 1993 og 94, og síðan smávegis
af nýju efni.“ Fyrst leit út fyrir að
platan kæmi út á þessu ári en nýtt
efni mun þó ekki líta dagsins ljós
fyrr en snemma á næsta ári.
Billboard birti síðan í vikunni
viðtal við umboðsmann sveitar-
innar, Vinita Joshi, þar sem fullyrt
var að platan kæmi eingöngu út á
netinu, ekki ósvipað og In Rain-
bows með Radiohead. Joshi dró
hins vegar fréttirnar fljótt til baka
og fullyrti að MBV myndi aldrei
eingöngu gefa út plötu á netinu.
Joshi bætti hins vegar við að nýja
platan yrði mjög líkleg gefin út af
sveitinni sjálfri. Svo er bara að
bíða og sjá en á meðan stendur
gjörvöll tónlistarpressan á önd-
inni, svo ekki sé talað um unn endur
sveitarinnar.
Blóðug goðsögn snýr aftur
MY BLOODY VALENTINE Kóngar shoegaze-rokksins hyggja á endurkomu á næsta ári.
LOVELESS Meistaraverkið Loveless
kom út árið 1991.
Hinn tvítugi Haraldur Leví Gunn-
arsson, trommari Lödu Sport, hefur
stofnað útgáfufyrirtækið Record
Records. „Ég hef verið að vinna í
plötubúð í nokkur ár og mig langar
að gefa út tónlist líka. Ég veit hvað
útgáfufyrirtæki geta verið mikil
svín og ég ætla að gera betur. Ég
ætla ekki að ræna ungum flytjend-
um og gera samning við þá í fleiri,
fleiri ár,“ segir Haraldur Leví, sem
er engu að síður sáttur við samning
Lödu Sport við Geimstein. „Geim-
steinn er eitt af heiðarlegu fyrirtækjunum.“
Ekki leggja margir tónlistarmenn í að stofna
útgáfufyrirtæki, hvað þá jafn ungir
að árum og Haraldur. „Það er dýrt
að komast af stað á meðan maður á
engan pening. Það er erfitt að vera
svona ungur og stofna fyrirtæki en
ég ætla að láta það ganga einhvern
veginn.“
Þrátt fyrir að margir séu farnir
að gefa sjálfir út plöturnar sínar
segir Haraldur að dreifingin sé
flóknara mál. „Það gera sér ekki
allir grein fyrir því að búðirnar
eltast ekki við þessa minnstu aðila.
Það er allt í lagi að gefa út sjálfur en annað mál að
dreifa sjálfur.“ - fb
Tvítugur plötuútgefandi
HARALDUR LEVÍ GUNNARSSON Har-
aldur Leví rekur nú eigið útgáfufyrir-
tæki. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Radiohead, sem gaf fyrir skömmu út
plötuna In Rainbows, hefur boðað komu
sína á Hróarskelduhátíðina í
Danmörku næsta sumar. Var
sveitin einmitt efst á blaði í
skoðanakönnun sem gerð var á
heimasíðu hátíðarinnar um þá
flytjendur sem helst ætti að fá
fyrir næstu hátíð.
Þetta eru þriðju tónleikarnir
sem Radiohead hefur boðað árið
2008 því hún mun einnig spila á
tveimur þýskum tónlistar-
hátíðum. Sveitin spilaði
síðast á Hróarskeldu árið
1997 um svipað leyti og
meistarastykkið OK
Computer kom út.
Þess má geta að útgáfa
Radiohead á Bjarkarlag-
inu Unravel er komin á netið í endur-
hljóðblönduðu formi. Sveitin flutti lagið
fyrir skömmu í beinni útsendingu á
netinu. Hafði söngvarinn Thom
Yorke áður lýst því yfir í viðtali að
Unravel af plötunni Homogenic
væri eitt af uppáhaldslögunum
sínum. Það var Richard Jankovich,
forsprakki hljómsveitarinnar
Burnside Project, sem endurhljóð-
blandaði lagið undir nafninu Pocket.
Rödd Yorke fær að njóta sín vel
í laginu sem hefur yfir sér
sveimkenndan og fagran
blæ.
Spila á Hróarskeldu
THOM YORKE Thom Yorke og
félagar verða á Hróarskeldu á
næsta ári.