Fréttablaðið - 30.11.2007, Side 86
54 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Marianne Sigurðardóttir tók þátt í sínu
fyrsta móti í hreysti eða fitness í vor. Þar
gerði hún sér lítið fyrir og varð Íslands-
meistari í unglingaflokki. Marianne, sem
er átján ára gömul, keppir næstu tvo daga
á heimsmeistaramóti unglinga sem hefst í
Búdapest í Ungverjalandi í dag. „Mótið
hefst í dag, föstudag, og stendur fram á
sunnudag,“ segir Marianne. „Undirbún-
ingurinn hefur gengið ágætlega og þetta
lítur bara vel út. Ég æfði tvisvar á dag í
september og október þar sem ég
brenndi á morgnana og fór að lyfta eftir
skóla. Í nóvember minnkaði ég aðeins
æfingarnar og síðustu vikuna fyrir mót
æfi ég bara einu sinni á dag sex daga
vikunnar.“ Hún segir erfiðast að hafa
stjórn á mataræðinu. „Fólk hefur líka
sérstaklega gaman af því að segja mér
hvað þetta og hitt sé gott þegar ég mæti í
veislur,“ segir hún og hlær. „Ég borða mest
af fiski, kjúklingi, kartöflum, hrísgrjónum
og grænmeti. Fjölskyldan borðar yfirleitt
það sama og ég í kvöldmat og það eru allir
að grennast á heimilinu. Fólk kvartar sáran
yfir því að það sé aldrei neitt til þegar það
kemur í heimsókn!“
Marianne segist enga hugmynd hafa um
hvar hún standi í samanburði við aðra
keppendur á mótinu. „Ég veit ekki neitt og
renni algjörlega blint í sjóinn. Þetta verður
bara spennandi.“ Eftir mótið ætlar hún að
sleppa fram af sér beislinu. „Ég er búin að
skrifa niður langan lista yfir allt sem mig
langar að borða,“ segir hún og hlær. - sók
Keppir á heimsmeistaramóti í hreysti
Á LEIÐ TIL BÚDAPEST Marianne Sigurðar-
dóttir er Íslandsmeistari unglinga í hreysti.
Hún keppir á heimsmeistaramóti í Ung-
verjalandi sem hefst í dag.
Sögur um að þriðja barn föllnu
poppprinsessunnar Britney
Spears sé væntanlegt ganga nú
fjöllum hærra, en heimildum ber
ekki saman um trúverðugleika
orðrómsins.
The Post segir Britney hafa sent
tölvupóst á vini sína fyrir tveimur
vikum sem í stóð að hún væri
komin mánuð á leið og faðir barns-
ins væri upptökustjórinn J.R.
Rotem. Nokkru seinna hafi hún
sent annan tölvupóst með sónar-
myndum af fóstrinu. Tímaritið In
Touch Weekly segir síðan J.R.
Rotem hafa staðfest fréttirnar.
The Sun vitnar þó í Britney
sjálfa um að ekkert sé til í orðr-
ómnum og hún hafi í hyggju að
kæra In Touch Weekly fyrir rang-
ar staðhæfingar. Britney á einnig
að hafa sent Ryan Seacrest, fyrr-
verandi kynni úr American Idol,
smáskilaboð um að sögurnar væru
hreinn uppspuni. En Seacrest
stjórnar í dag vinsælum útvarps-
þætti í Bandaríkjunum.
Ef marka má tímaritið Star er
þungun Britney ekki ólíkleg þar
sem hún sé með kynlíf á heilanum.
Heimildarmaður blaðsins segir að
á heimili söngkonunnar sé harð-
læst herbergi, stútfullt af kynlífs-
leikföngum á borð við titrara,
svipur og handjárn. Þar geymi
Britney einnig erótískt búninga-
safn þar sem finna má meðal ann-
ars einkenniskjóla þjónustustúlku
og kaþólskrar skólastúlku.
Vafasöm þungun
Britney Spears
BRITNEY SPEARS Ólétt eður ei? Þegar
stórt er spurt?
Hljómsveitin Sniglabandið spilar
á Græna hattinum á Akureyri 6.
desember ásamt sjö manna „stoð“-
hljómsveit. Sveitina skipa fjórir
blásarar og Ásgeir Óskarsson á
ásláttarhljóðfæri, auk þess sem
félagarnir Gunnar Ólason og Sigur-
jón Brink verða í bakröddum.
Verður tónleikunum útvarpað
beint á Rás 2.
„Við ætlum að spila plötuna og
taka svolítið af næstu plötu,“ segir
Diddi bassaleikari, en Snigla-
bandið gaf nýverið út plötuna
Vestur. Næsta plata er að stórum
hluta tilbúin og var hún samin í
sumar í þáttum Sniglabandsins á
Rás 2.“ - fb
Sniglar vel studdir
SNIGLABANDIÐ Hljómsveitin Snigla-
bandið spilar á Akureyri 6. desember.
> VISSIR ÞÚ?
...að leikarinn Jamie Foxx,
sem vann óskarsverðlaun
fyrir hlutverk sitt í Ray,
var skírður Eric Marlon
Bishop en breytti nafn-
inu þegar hann hóf
uppistand sitt.
Stjörnurnar í Hollywood
vekja ekki síður eftirtekt
fyrir útlit sitt og kynþokka
en hæfileika. Vinsælt þykir
að titla eina þokkafyllri en
aðra, en álitsgjöfum ber þó
ekki alltaf saman.
Karlatímaritið FHM birtir árlega
lista yfir hundrað kynþokka-
fyllstu konur heims og í ár trónir
leikkonan Jessica Alba á toppn-
um. Óskarsverðlaunahafinn
Charlize Theron kemst hins
vegar aðeins í 32. sæti listans en
getur huggað sig við að tímaritið
Esquire titlar hana kynþokka-
fyllstu konu veraldar. Á lista
FHM situr leikkonan Angelina
Jolie í áttunda sæti en The Sun
telur hana þó allra kynþokka-
fyllstu mömmuna.
Söngkonan Britney Spears
situr í fimmta sæti listans yfir
heitustu mömmurnar en hún er
einmitt líka í fimmta sæti á lista
tímaritsins Maxim yfir síst kyn-
þokkafyllstu konurnar. Vafasam-
ur sigurvegari þess hóps er
stjarna Sex and the City-þátt-
anna, Sarah Jessica Parker. Á
listann kemst einnig Grey´s Ana-
tomy-leikkonan Sandra Oh en
þrátt fyrir lítinn kynþokka henn-
ar þykir tímaritinu In Style
Grey´s Anatomy-þættirnir skarta
kynþokkafyllsta leikhópnum.
Patrick Dempsey þykir auk þess
kynþokkafyllsti karlleikarinn í
sjónvarpi en skákar ekki Matt
Damon þegar út fyrir imbakass-
ann er komið þó að annað sætið
verði að teljast ágætis árangur.
Ekki kemur á óvart að leikara-
parið Angelina Jolie og Brad Pitt
þyki kynþokkafyllsta tvíeykið á
lista In Style, og David Beckham
kynþokkafyllsti íþróttamaður-
inn. Tímaritið útnefnir Justin
Timberlake kynþokkafyllsta tón-
listarmanninn, en á lista People
nær söngvarinn hins vegar ekki
upp fyrir fjórtánda sætið. Af
fyndnu strákunum þykja Ashton
Kutcher og Vince Vaughn bera af
í kynþokka en þeir komast hins
vegar hvergi að þegar dæmt er
eftir útliti. - eá
Kynþokki stjarnanna
ANGELINA JOLIE Flottasta mamman
og tilheyrir einnig kynþokkafyllsta
stjörnuparinu.
PATRICK DEMPSEY Í kyn-
þokkafyllsta leikhópnum
og öðru sæti yfir kynþokka-
fyllstu karlana.
CHARLIZE THER-
ON Kynþokka-
fyllsta kona
veraldar að mati
Esquire en í 34.
sæti hjá FHM.
SARAH
JESSICA
PARKER
Maxim
segir hana
skorta
kynþokka.