Fréttablaðið - 30.11.2007, Side 93
FÖSTUDAGUR 30. nóvember 2007 61
Óttar M. Norðfjörð, höfundur
spennusögunnar Hnífur Abra-
hams, er sem kunnugt er
búsettur í Barcelona en kom
heim til Íslands til þess að fagna
útgáfu bókar sinnar með veislu í
Máli og menningu á Laugavegi.
Óttar hefur nægt tilefni til þess
að fagna enda var bókin mest
selda skáldsagan í Máli og menn-
ingu fyrir skemmstu og situr
ofarlega á öðrum metsölulistum.
Auk þess hefur útgáfufyrirtæki
Óttars, Sögur, gert samning við
framleiðslufyrirtækið Zik Zak
um kvikmyndaréttinn að bók-
inni.
Margt var um manninn í
veislunni en sígaunadjassbandið
Hrafnaspark skemmti þar gest-
um og gangandi. Auk þess árit-
aði Óttar bókina af miklum móð
en þeir sem keyptu eintak fengu
í kaupbæti teiknimyndasöguna
Jón Ásgeir og afmælisveislan
sem Óttar gaf út síðastliðið vor
og annað bindið í ævisögu Hann-
esar Hólmsteins Gissurarsonar,
Hólmsteinn – Holaðu mig dropi,
holaðu mig. - sók
Útgáfu Hnífs Abrahams fagnað
MÆTTU Á SVÆÐIÐ Vinirnir Brynjar Freyr
og Kristinn Snær létu sjá sig.
GLÆSILEGIR GESTIR Þær Hrafnhildur
Halldórsdóttir, Anna Margrét Marinós-
dóttir og Hulda Pétursdóttir mættu í
veisluna til að samgleðjast Óttari.
ÓTTAR KOMINN HEIM Óttar M. Norðfjörð kom heim frá Barcelona til að fagna útgáfu
spennusögu sinnar, Hnífur Abrahams. Hér er skáldið ásamt Guðmundi Thoroddsen.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
Ástralir ráku upp stór augu
þegar Kryddpían Victoria Beck-
ham sást valsa um stræti Sydney
því enginn hafði heyrt af því að
hún væri væntanleg þangað, auk
þess sem hún var ekki umkringd
þeim herskara ljósmyndara og
lífvarða sem fylgir henni alla
jafna hvert fótmál. Eiginmaður
hennar David Beckham og synir
hennar þrír voru fjarri góðu
gamni. Þetta reyndist þó allt eiga
sér eðlilegar skýringar því þarna
var á ferðinni tvífari stjörnunn-
ar sem heitir Camilla Shadbolt.
Sú var fengin til þess að koma í
heimsókn þvert yfir heiminn í
tilefni af opnun nýrrar slúður-
síðu sem fengið hefur heitið The
Fix. Eins og sjá má á meðfylgj-
andi mynd er Camilla nákvæm-
lega eins og Victoria Beckham
enda hefur hún verið í fullu
starfi við að þykjast vera
Victoria í sex ár og þénar á því
fúlgur fjár.
Tvífari Victoriu
mætti til Ástralíu
HEIMA HJÁ SÉR Victoria var í Los Angeles
þegar Camilla þóttist vera hún í Ástralíu.
ALVEG EINS Camilla Shadbolt er alveg
eins og frú Beckham.
Hótelerfinginn Paris
Hilton hefur látið
hafa það eftir sér að
sig langi í barn
til þess að það
geti leikið sér við
væntanlegt barn
vinkonu sinnar,
Nicole Richie,
en Nicole á von
á sér í janúar.
„Ég og Nicole
höfum leikið okkur saman síðan
við vorum tveggja ára. Ég á ekki
kærasta núna en mig langar mikið
til þess að stofna fjölskyldu. Ég
samgleðst Nicole og Joel Madden
innilega.“
Móðir rapparans Usher, Jonnetta
Patton, hefur sagt að nýr sonar-
sonur hennar sé gjöf Guðs til
Ushers og konu hans fyrir hátíð-
arnar. „Ég er ótrúlega ánægð
og hamingjusöm yfir fæðingu
sonarsonar míns,
Usher Raymond V,“
segir Jonnetta en
drengurinn fæddist
á mánudag. „Hann
er fallegur, ómetan-
legur, heilbrigður og
mikil blessun. Þetta
verða ótrúleg jól hjá
okkur öllum.“
Úrslitaþáttur hins vinsæla sjón-
varpsþáttar Dancing with the
Stars var sýndur í Bandaríkjunum
á þriðjudag. Kryddpían Mel B.
var komin í úrslitin en tapaði fyrir
ökuþórnum Helio Castroneves
og félaga hans. Margir eru ósáttir
við úrslitin, meðal annars Geri
Halliwell sem lýsti
því yfir á heimasíðu
Kryddpíanna. „Ég
varð fyrir mjög
miklum vonbrigð-
um. Hún hefði átt
að vinna. En við
erum allar svo
stoltar – Mel, þú
ert sigurvegari í
okkar augum!“
Sá orðrómur er kominn
á kreik í Hollywood að
Lindsay Lohan undirbúi
nú útgáfu þriðju plötu
sinnar. Sagan segir að
platan eigi að heita
„Nobody´s Angel“ og
að hún sé eingöngu
að fara að gefa plöt-
una út vegna þess að
henni beri skylda til þess
samkvæmt samningi
sínum við Universal.
Það fyrirtæki gaf einnig
út aðra plötu söng- og
leikkonunnar sem
hét „Another Insider
Insisted“.
FRÉTTIR AF FÓLKI