Fréttablaðið - 30.11.2007, Qupperneq 98
66 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
KÖRFUBOLTI Kvennalið KR hefur
vakið mikla athygli það sem af er í
Iceland Express-deild kvenna en
Vesturbæjarstúlkur eru sem
stendur í 3. sæti deildarinnar og
hafa aðeins tapað tveimur leikjum
og þeim báðum naumlega, gegn
Haukum og Keflavík á útivelli.
KR-ingar hafa unnið alla fjóra
heimaleiki sína og þegar tapleik-
irnir tveir eru skoðaðir sést að
þeir gátu vel fallið þeirra megin.
KR tapaði með þremur stigum á
móti Haukum í fyrsta leik þegar
liðið spilaði án hins frábæra
bandaríska leikmanns síns Mon-
ique Martin (37,7 stig í leik) og
tapaði síðan með þremur stigum á
móti toppliði Keflavíkur á útivelli
í jöfnum og spennandi leik.
KR-liðið er frábært frákastalið
og það hefur skilað nýliðunum
langt í vetur en KR-liðið hefur
tekið 60,2 prósent frákasta í þeirra
leikjum. Þetta er rúmum sjö pró-
sentum hærra hlutfall en hjá
Haukum sem eru í 2. sætinu.
KR-liðið hefur tekið 57,9 fráköst
að meðaltali í leik á móti aðeins
38,3 hjá mótherjum liðsins. KR-
liðið hefur tekið 76,2 prósent frá-
kasta undir sinni körfu og hefur
einnig náð í 44,3 prósent frákasta í
boði í sókninni.
KR-liðið hefur unnið fráköstin í
öllum átta leikjum sínum og tóku
minnst 53,7 prósent frákasta í
fyrsta leiknum á móti Íslands- og
bikarmeisturum Hauka.
KR-liðið á líka þrjá leikmenn
inni á topp tíu listanum í fráköst-
um. Monique Martin er efst í
deildinni með 18,7 fráköst að með-
altali en Sigrún Ámundadóttir er í
3. sæti og efst íslenskra leikmanna
með 13,0 fráköst í leik. Hildur Sig-
urðardóttir er síðan í 8. sætinu og
efst bakvarða með 10,6 fráköst að
meðaltali í leik.
Helga Einarsdóttir (6,4 frák. á
21,6 mín.) og Sigurbjörg Þorsteins-
dóttir (4,2 frák. á 16,5 mín.) eru
einnig báðar að taka yfir 10 frá köst
á hverjar 40 mínútur sem þær
spila. - óój
HLUTFALL FRÁKASTA:
1. KR 60,2%
2. Haukar 52,9%
3. Grindavík 52,3%
4. Keflavík 49,9%
5. Hamar 46,0%
6. Valur 43,8%
7. Fjölnir 43,5%
LEIKIR KR OG HLUTFALL
FRÁKASTA
71-74 tap fyrir Haukum 53,7%
84-60 sigur á Hamri 63,2%
90-71 sigur á Fjölni 70,1%
93-57 sigur á Val 64,1%
66-69 tap fyrir Keflavík 56,5%
83-75 sigur á Grindavík 58,7%
88-81 sigur á Haukum 56,3%
72-64 sigur á Hamri 64,2%
Nýliðarnir úr Vesturbænum hafa unnið sex af síðustu sjö leikjum sínum í Iceland Express-deild kvenna:
KR með yfirburði í fráköstum í deildinni
TAKA FLEST FRÁKÖST Hildur Sigurðar-
dóttir og félagar hennar í KR eru lang-
besta frákastaliðið. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
N1-deild karla í handbolta:
Stjarnan-Haukar 25-28 (12-11)
Mörk Stjörnunnar (skot): Ólafur Víðir Ólafsson
8/3 (12/3), Björgvin Hólmgeirsson 6 (15), Heimir
Örn Árnason 5/1 (10/1), Gunnar Ingi Jóhannsson
2 (5), Volodymir Kysil 2 (2), Ragnar Helgason 1
(3), Björn Friðriksson 1 (1).
Varin skot: Hlynur Morthens 15/1 (31/4, 48%),
Roland Valur Eradze 5 (17/2, 29%).
Hraðaupphlaup: 3 (Björgvin, Gunnar, Ólafur).
Fiskuð víti: 4 (Björn 2, Ragnar, Ólafur).
Utan vallar: 6 mín.
Mörk Hauka (skot): Andri Stefan 6 (10), Kári
Kristjánsson 5 (5), Jón Karl Björnsson 5/5
(6/6), Arnar Jón Agnarsson 4 (14), Gunnar Berg
Viktorsson 3 (6), Þröstur Þráinsson 2 (3), Gísli
Jón Þórisson 1 (2), Freyr Brynjarsson 1 (3),
Sigurbergur Sveinsson 1 (6).
Varin skot: Magnús Sigmundsson 12 (32/2,
38%), Gísli Guðmundsson 4 (12/4, 33%).
Hraðaupphlaup: 4 (Andri 2, Kári, Þröstur)
Fiskuð víti: 6 (Kári 3, Sigurbergur 2, Freyr).
Utan vallar: 6 mín.
Afturelding-F ram 23-25
Mörk Aftureldingar (skot): Hilmar Stefánsson
5/3 (7/3), Hrafn Ingvarsson 5 (9), Magnús
Einarsson 4 (6), Davíð Ágústsson 3 (3), Reynir
Árnason 3 (6), Jóhann Jóhannsson 2 (3), Daníel
Jónsson 1 (5).
Varin skot: Davíð Hlíðdal Svansson 25/1 (50/3,
50%).
Hraðaupphlaup: 4 (Magnús 2, Davíð, Reynir).
Fiskuð víti: 3 (Magnús 2, Hrafn).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Fram (skot): Hjörtur Hinriksson 6 (8), Hall
dór Sigfússon 5/3 (7/3), Rúnar Kárason 4 (6),
Stefán Baldvin Stefánsson 3 (7), Filip Kliszczyk 3
(10), Jóhann Gunnar Einarsson 2 (7/1), Enar Ingi
Hrafnsson 1 (2), Haraldur Þorvarðsson 1 (3).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 13 (36/3,
36%), Magnús Gunnar Erlendsson 1 (1) 100%.
Hraðaupphlaup: 5 (Hjörtur, Haraldur, Jóhann,
Stefán).
Fiskuð víti: 4 (Einar Ingi 3, Stefán).
Utan vallar: 2 mínútur.
STAÐAN Í DEILDINNI
Haukar 12 8 3 1 340-291 19
HK 10 7 1 2 274-243 15
Fram 11 7 1 3 312-283 15
Stjarnan 11 6 1 4 328-299 13
Valur 9 4 2 3 231-217 10
Akureyri 11 2 2 7 287-307 6
Afturelding 11 2 2 7 273-289 6
ÍBV 11 1 0 10 274-390 2
ÚRSLITIN Í GÆR
BADMINTON Systkinin Magnús Ingi
og Tinna Helgabörn komust ekki í
gegnum undankeppnina á
Alþjóðlega badmintonmótinu
Yonex Welsh International 2007
sem fer fram í Cardiff.
Magnús Ingi og Tinna eru samt
ekki hætt keppni því þau taka
saman þátt í tvenndarleik á þessu
móti og þar byrja þau í aðal-
keppninni. - óój
Alþjóðlegt mót í Wales:
Bæði úr leik
FÓTBOLTI Íslendingaliðin unnu sína
leiki í UEFA-bikarnum í gær og
bæði Ólafur Örn Bjarnason og
Ólafur Ingi Skúlason komu sínum
liðum í 1-0.
Brann vann 2-1 sigur á Dinamo
Zagreb þar sem Ólafur Örn
Bjarnason skoraði fyrsta mark
leiksins úr vítaspyrnu á 45.
mínútur. Ólafur Ingi Skúlason
skoraði fyrsta mark Helsingborg
í 3-0 sigri á Austria Vín en markið
kom á 47. mínútu. Grétar Rafn
Steinsson lék síðan allan leikinn
með AZ sem vann 1-0 sigur á
Larissa.
Tottenham lenti 0-2 undir á
heimavelli á móti danska liðin
AaB en Dimitar Berbatov, Steed
Malbranque og Darren Bent
skoruðu allir í seinni hálfleik og
tryggðu Spurs sigurinn. - óój
Evróukeppni félagsliða:
Báðir Ólafarnir
á skotskónum
MARKI FAGNAÐ Ólafur Ingi Skúlason
kom sínu liði Helsingborg í 1-0.
NORDICPHOTOS/AFP
HANDBOLTI Það eru engin ný sann-
indi í íslenskum handbolta að vörn
vinni leiki og það sannaðist enn á
ný í Garðabænum í gær. Þá spil-
uðu Haukar góðan varnarleik
gegn Stjörnunni í síðari hálfleik
og það skilaði liðinu sanngjörnum
sigri, 25-28. Varnarleikur Stjörn-
unnar á sama tíma var í molum og
ljóst að liðið saknar lykilmanna í
vörninni sárlega. Haukar eru eftir
leikinn með sex stigum meira en
Stjarnan í deildinni.
Fyrri hálfleikur í Mýrinni í gær
fer nú ekki í sögubækurnar fyrir
fallegan handbolta. Sóknarleikur
beggja liða var ákaflega slakur og
í raun neyðarlegur á köflum. Í
raun voru engir leikmenn að spila
neitt sérstaklega vel fyrir utan
markverði liðanna – Hlyn og
Magnús – sem báðir vörðu ágæt-
lega á köflum.
Blessunarlega var leikurinn þó
jafn allan hálfleikinn. Liðin skipt-
ust á að halda forystunni og aldrei
munaði meira en tveim mörkum á
liðunum. Heimamenn fóru þó með
eins marks forskot inn í hálfleik-
inn, 12-11.
Síðari hálfleikur var talsvert
mikið betri. Haukar mættu mun
grimmari til leiks og þéttu varnar-
leikinn til muna, sem varð þess
valdandi að liðið náði þriggja
marka forskoti í fyrsta skipti í
leiknum, 14-17.
Stjarnan setti þá Roland í mark-
ið fyrir Hlyn, sem hafði staðið sig
vel, en það reyndist ekki góð
ákvörðun. Roland varði nokkra
bolta í upphafi og síðan ekki sög-
una meir. Gunnar Berg Viktorsson
kom á óvart með því að skora ágæt
mörk á meðan Haukar héldu alltaf
frumkvæðinu. Stjarnan náði mest
að minnka muninn í eitt mark en
Haukarnir höfðu þægilega þriggja
marka forystu undir lokin og lönd-
uðu verðskulduðum sigri.
„Við erum í einhverri niður-
sveiflu þessa dagana. Haukarnir
vildu sigurinn meira en við og áttu
sigurinn skilinn,“ sagði niðurlútur
þjálfari Stjörnunnar, Kristján
Halldórsson. „Við erum óöruggir,
höfum ekki alveg trú á því sem við
erum að gera og það endurspegl-
ast í leik liðsins. Við höfum misst
sjálfstraustið og þurfum að finna
það aftur.”
Kári Kristjánsson átti mjög
fínan leik inni á línu Hauka sem og
í vörninni. Hann var eðli málsins
samkvæmt talsvert hressari en
Kristján í leikslok.
„Stjörnuna vantar besta varnar-
mann deildarinnar sem er Patrek-
ur Jóhannesson og það munar líka
um Jón Heiðar í vörninni hjá þeim.
Svo fannst mér líka vera andleysi
í þeirra leik. Við byrjuðum hægt
en það kom bullandi gredda í
okkur í síðari hálfleik og við
klárum þetta mjög sannfærandi
að því mér fannst,“ sagði Kári
brosmildur en hann var lengi frá
og er að koma sterkur til baka
eftir meiðslin.
„Þetta var erfiður tími í meiðsl-
unum og það vantar enn upp á
úthaldið hjá mér. Mér fannst vörn-
in góð hjá okkur í dag og er á því
að við séum með bestu 6/0 vörnina
á landinu í dag.“ - hbg / - tom
Vörnin skilaði Haukaliðinu sigri
Haukar gerðu góða ferð í Garðabæinn í gær þar sem þeir lögðu Stjörnuna, 25-28, í toppslag N1-deildar-
innar. Góður varnarleikur Hauka í seinni hálfleik lagði grunninn að sigrinum.
VEL TEKIÐ Á ÞVÍ Heimir Örn Árnason og félagar í Stjörnunni komust lítið áleiðis gegn sterkri vörn Haukanna í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
HANDBOLTI Fram vann Aftur-
eldingu 23-25 í elleftu umferð N1-
deildar karla í handbolta að
Varmá í gærkvöldi, en fyrir leik-
inn var búist við öruggum sigri
Fram.
Gestirnir í Fram byrjuðu leik-
inn betur, en heimamenn í Aftur-
eldingu voru samt ekki langt
undan til að byrja með og eftir
stundarfjórðung var staðan 5-6
Fram í vil. Þá kom hins vegar
slæmur kafli hjá Aftureldingu og
Fram skoraði fimm mörk í röð og
breytti stöðunni í 5-11. Framarar
voru svo komnir í með helmings
mun, 7-14, áður en Afturelding
náði að laga stöðuna aðeins í lok
hálfleiksins, en staðan var 10-15
þegar fyrri hálfleik var lokið.
Heimamenn komu gríðarlega
grimmir til leiks í síðari hálfleik
og söxuðu jafn og þétt á forskot
gestanna og þegar seinni hálfleik-
ur var rétt rúmlega hálfnaður var
munurinn kominn niður í eitt
mark, 19-20.
Það ætlaði svo allt um koll að
keyra að Varmá þegar Aftureld-
ing jafnaði leikinn, 21-21, í fyrsta
skipti síðan í upphafi leiks. Aftur-
elding fékk svo kjörið tækifæri
til að komast yfir en náði ekki að
nýta það og Fram skoraði tvö í
röð. Afturelding náði svo að
minnka muninn í eitt mark, 23-24,
þegar tæpar tvær mínútur voru
eftir og spennan var gríðarleg.
Það voru hins vegar Framarar
sem áttu lokaorðið að þessu sinni
og lokatölur urðu 23-25. Ferenc
Buday, þjálfari Fram, var
ánægður með sigur sinna manna.
„Auðvitað hefðum við átt að vera
búnir að gera út um leikinn miklu
fyrr, miðað við hvernig fyrri hálf-
leikurinn spilaðist. En ég er samt
sáttur með sigurinn og stigin og
ég hrósa Aftureldingu fyrir fínan
leik og áhorfendunum fyrir góða
stemmningu,“ sagði Buday.
Bjarki Sigurðsson, þjálfari
Aftur eldingar, var vonsvikinn í
leikslok. „Því miður hafðist þetta
ekki, en við sýndum það og sönn-
uðum að við getum vel barist og
mér fannst við eiga skilið að fá
annað stigið. Það var margt mjög
jákvætt í leik okkar miðað við síð-
asta leik til dæmis og við verðum
bara að halda áfram og reyna að
draga lærdóm af þessu,“ sagði
Bjarki. - óþ
Afturelding veitti Fram harða keppni í N1-deild karla í handbolta í gærkvöldi:
Framarar mörðu sigur í Mosfellsbæ
VANN GÖMLU FÉLAGANA
Einar Ingi Hrafnsson skoraði eitt
mark gegn gömlu félögunum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR