Tíminn - 03.04.1981, Blaðsíða 16

Tíminn - 03.04.1981, Blaðsíða 16
 <C| abriel <Qe Simi: 33700 , n/ HÖGGDEYFAR T*| Á NÖTTU OG DEGI ER .VAKA A VEGI —> j W GSVarahlutir s/rÆsio y Nútíma búskapur þarfnast BAUER haugsugu Guöbjörn Guðjónsson heildverslun, Kornagaröi 5 Simi 85677 Föstudagur 3. apríl 1981 Ilttekt á tjóni gróðurhúsabænda vegna kuldakallans lokið: Tjón gróðurhúsabænda nemur 1628 þús. kr. FRI — Nú er orðiö ljóst aö tjón gróöurhúsabænda I Árnessýslu vegna kuldakaflans I vetur nemur um 1628 þús. kr. (162 gamlar millj.) en úttekt á tjón- inu lauk nýlega og hafa mats- menn skilaö af sér niðurstöðum til viðkomandi hreppa. Sigurður Pálsson sveitarstjóri i Hverageröi sagöi i samtali viö Timann aö Biskupstungna- hreppur heföi orðið verst úti, en þar nam ttónið 975 þús. kr. Þar á eftir kom svo Hveragerði, en tjóniö þar nam 357 þús. kr. Af einstökum fyrirtækjum þá varö Garöyrkjustöð Björns og Þráins verst úti i Hveragerði og nam tjónið hjá þeim um 73 þús. kr, en þar á eftir kom garö- yrkjustöð dvalarheimilisins As meö 46 þús. kr. tjón. Tjóniö er aöallega á gleri og plasti en Siguröur nefndi auk þess sem dæmi aö einn aöili heföi oröiö fyrir 29 þús. kr„ tjóni á gróðri. W - W ^wÍbÍbi HÍ W ‘Wi /JIIBUa I Jt/8 Ai { . p Pl!»» Pi PH |i§ Pil nesingar ríkastir? ^ Reyk Einbýlishúsin þar 20% stærri en úti á landi Heldurðu að það sé kveikjulokið? Hesturinn sá arna viröist taka Wrkan þatl i viögerö jeppans og Ijósmvndari okkar A. l.ieber- man gat ekki alveg svarið fyrir þaö aö hann hefði ekki heyrt hann spyrja: ..Helduröu aö þaö sé kveikjulokiö?" HEI — Eigendur einbýlishúsa á Reykjavíkursvæöinu og á Reykjanesi búa aö jafnaði i um 20% stærri húsum en i öörum landshlutum, aö þvi er fram kem- ur i nýjustu FMR-fréttum. Aftur á móti kemur i ljós, aö dæmiö snýst viö varöandi f jölbýlishúsai- búöir, sem eru aö meöaltali stærri úti á landi. Meðalstærð einbýlishúsa i Reykjavik er 172 fermetrar og 175 i Reykjaneskjördæmi. A Vestur- Norður- og Austurlandi er meðal- stærö einbýlishúsa nánast sú sama eða frá 145 — 148 fermetr- ar. Hús eru lang minnst á Suður- landi eða 131 fermetri að meðal- tali. Tekið er fram, að þar sem þetta y firlit tekur aðeins til þeirra fasteigna er metnar hafa verið með samræmdu tölvumati, nær það yfir nær allar ibúðir i Reykjavik, en hinsvegar aðallega ný og nýleg hús úti á landi. Virðist þetta geta aukið raunverulegan stærðarmun ennþá meir, þar sem gömlu húsin eru yfirleitt minni og myndu þá minnka meðalstærð húsa úti á landi. Ibúðir i fjölbýlishúsum eru hinsvegar minnstar i Reykjavik, 82 fermetrar. En stærstar á Vesturlandi og Vestfjörðum 101 fermetrar að meðaltali. Tekið er fram að varðandi fjölbýlishúsin er aðeins átt við stærð ibúðanna sjálfra, en sameign ekki talin með. Ovenjuleg mistök lögfræðings og réttarins AM — Nú liggur það fyrir að orsaka þess að manni þeim, sem á fyrra ári var dæmdur i 18 mánaða fangelsi fyrir kyn- ferðisafbrot, skyldi ekki vera birtur dómur hans fyrr en sl. mánudag, er að leita i mistök- um sem urðu bæði hjá verj- anda hans og Sakadómi. Verjandanum var ætlað að birta manninum dóminn, en náði ekki til hans einhverra hluta vegna og mun hann þá hafa „gefist upp” við leitina. Vegna enn einna mistaka mun málið svo hafa dottið upp fyrir um hrið hjá Sakadómi. Afar sjaldan mun það þó gerast að svo óhönduglega tekst til, en I þessu dæmi bætt- ist það við að brotamaðurinn hélt ótrauður uppteknum hætti. Rannsóknarlögreglunni hefði þó verið innan handar að fá að vita um dóminn er fyrri kæran um nauögun barst fyrir viku, en þá var manninum sleppt. Er við ræddum við Baldur Möller, ráðuneytisstjóra, sagði hann að dómsmálaráðu- neytið, sem framfylgja átti dóminum, hefði þuft aö fá málið i hendur á þvi stigi, að búið hefði verið að birta ákærða dóminn og enn að taka afstöðu til áfrýjunar eða áfrýjunar ekki. Fyrr kæmi ekki til kasta fullnustudeildar þess. Rollsinn er enn óseldur AM -— Nú hafa 22 þúsund manns séð bilasýninguna „Auto ’81” að Bildshöfða. Sýn- ingin var opnuð sl. föstudag og mun henni ljúka nk. sunnu- dagskvöld. Orn Guðmundsson, starfs- maður Bilgreinasambandsins, sagði okkur i gær að menn vonuðust til að um 40-50 þús- und manns mundu koma að sjá sýnitjguna og að straumur- inn yröi mestur nú næstu helgi, ená laugardag verður sýningin opin frá kl. 13-22 og frá kl. 10-22 á sunnudag. Ekki er vitaö til að fengist hafi kaupendur að Rolls Royce bilunum, sem sýndir eru á sýningunni, né umboðsmenn fyrir þá. Transtar Cummins 290 og 350 hö 22,5 t. heildarþyngd 4 INTERNATIONAL _ vörubílar á útisvædinu. S-SERI Gerð F-2674 Cummins 290 hö «= 23 t. heildarþyngd AUGLYSINGASTOFA SAMBANDSINS Véladeild Sambandsins Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900 ©

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.