Tíminn - 05.07.1981, Blaðsíða 26

Tíminn - 05.07.1981, Blaðsíða 26
Sunnudagur 5. júli 1981. 26 SUMARIÐ Amerísk gróöurhús Traustir tjaldvagnar Bátar — Jeppakerrur — Weaponkerrur Upphækk'.ilep hus tyrir japanska og USA pick-up bíla Fu’.mnráttaö Hús fyrir japanska og USA pick-up bila Fullmn- réttaö Gísli Jónsson & Co. Hf. _“B41 ZAGA hjólmúgavélar fyrirliggjandi Vinnslubreidd 2,0 m og 2,5 m Hagstætt verð ÞÚR ^ ÁRMÚLA11 VERÐTILBOÐ Sjómannadagsráð óskar eftir verðtilboð- um i eftirtalda verkþætti við byggingu hjúkrunarheimilis Hrafnistu i Hafnar- firði. 1. Stálklæðningu á þak og veggi. 2. Einangrun i þak. Gagna má vitja á skrifstofu Sjómanna- dagsráðs að Hrafnistu Reykjavik alla virka daga næstu viku, nema laugardag, kl. 14.00 - 16.00. Stjórnin Iðnskólinn í Reykjavík Rennismið eða vélvirkja vanan renni- smiði vantar til stundakennslu. Upplýsingar veitir Steinn Guðmundsson deildarstjóri simi 26240 eða 38812. Italskur dans Chuck Mangione: tarantella ■ Chuck Mangione. Nafniö segir diki mikiö, en um leið og þið heyriö tónlist hans þá þekkið þiö hann. Þegar sjónvarps eða út- varpsþáttur er i undirbúningi, hvar sem er i heiminum, þá er eitt fyrsta verkiö aö vinna heppi- legt kynningarlag. Chuck Mangione hefur skaffaö þau og þaö svo hundruöum skiptir. En fyrstog fremst er hann jassisti og á undanförnum árum hefur hann rakað saman verölaunum fyrir tónlist sina og er i dag einn virt- asti starfandi jassistinn. En ekki hefur lifiö alltaf verið dans á rósum fyrir Chuck. Hann er af i'tölsku bergi brotinn, en fæddur og uppalinn i Bandarikj- unum. Hann fæddist i Rochester, New York 29. nóvember 1940. Sin fyrstu kynni af tónlist fékk hann þegarhann var settur i pianótima átta ára gamall. En hann var ekki ánægðurmeö þaö og skiptitveim- ur árum seinna yfir i trompet. Og þá vaknaöi áhugi hans fyrir al- vöru. Annað er þaölika sem hefur vafalaust haft sin áhrif á strákinn og þaö eru þeir frægu jassistar sem voru stööugir gestir hjá Mangione fjölskyldunni, en þeir voru Dizzy Gillespie, Art Blakey, Kai Winding, Jimmy Cobb, sam Jones, Junior Mance, Cannonball Adderley, Ronnie Zito og Ron Carter. AF öllum þessum fraegu tónlistarmönnum haföi þó einn afgerandi áhrif á hinn unga Chuck og þaö var Dizzy Gillespie. Chuck segir sjálfur aö hann liti á Dizzy sem föður sinn i tónlistinni. Og áfram héltnámiö. A meðan á þvi stóö stofnaöi Chuck ásamt bróður si'num Gap sina fyrstu hljómsveit „The Jazz Brothers”. HUn starfaöi til ársins 1964 og gaf út þrjár plötur á þvi timabili. Loks eftir langt og strangt nám lauk hann við BM gráöu i tónlist. Eftir þetta var honum boöið aö gerast meðlimur i hljómsveit sem hét „The Jazz Messengers” sem á þessum tima haföi á aö skipa fjölda góöra tónlistarmanna og þar á meöal Chick Corea. Jafn- framt þvi aö vera I hljómsveit kenndi Chuck tónlist I hinum ýmsu skólum og reyndi ávallt aö auka áhuga nemendanna á jassi. Stofnaöi litlar hljómsveitir meö þeim og leyföi þeim aö þreifa sig áfram. 1968 stofnaöi Chuck sinn fyrsta atvinnu kvartett. Ari seinna réö hann fimmtiu hljóm- listarmenn til aö spila tónlist sem hann hafði samiö fyrir stóra hljómsveit. Þessi konsert vakti athygli Sinfóniuhljómsveitar Rochester (heimabæjar hans) á honumog honum var boðið aö stjórna hljómsveitinni ’ árið 1970. Upp frá þessu fóru hlutirnir aö gerast meö meiri hraða og Chuck öðlaöist frægð. 1975 geröi Chuck samning við A&M hljómplötuút- gáfuna og hefur æ siðan verið hjá beim. Fyrsta platan á þvi merki hét „Cháse The Clouds Away” og tónlist af þessari plötu var notuð sem „background” viö sjón- varpsútsendingar frá Olympiu- leikunum 1976. Næsta plata hans „MainSqueese” kom út áriö 1976. Þaö sama ár vann hann einnig sin fyrstu Grammy verölaun af mörgum sem áttu eftir aö fylgja. Vinsælastaplata hans til þessa er „Feels So Good”. Hún kom út 1977,1 október. 1 febrúar var hún orðin gull og I april platinum, svo ört seldist hún. Hún er nú löngu komin yfir tvöfalda platinum sölu. „Children Of Sanchez” var næsta plata hans. Hún haföi aö geyma tónlist sem hann samdi sérstaklega fyrir kvikmynd með sama nafni. Sjötta plata Chuck Mangione hjá A&M var „live” og hét „Live At The Hollywood Bowl”. Og kom út 1979. Ef til merkilegasta verkefnið sem Chuck hefur fengið til þessa var Vetrarolympiuleikanna i Lake Placid 1980. Meöal þess sem hann samdi af þvi tilefni var lagið „Give it all you got” sem færði honum Emmy verölaun. Áttunda plata Chuck heitir „tarantella” og er hljóðritun af tónleikum sem hann hélt ásamt öðrum þekktum hljómlistar- mönnum til hjálpar fórnarlömb- um jarðskjálftanna miklu á ítaliu i fyrra. Chuck stóö fyrir tónleik- unum og fékk til Uös við sig marga af þekktustu jassleikurum Bandarikjanna. Meöal þeirra sem eru Dizzy Gillespie, Chick Corea, Steve Gadd, Kathryn Moses og Gap Mangione. Hljómleikarnir hófust kl. 21.00. Strax I upphafi var ljóstað þessir tónleikar yröu eitthvað sérstakt. Og það kom á daginn. Svo virtist sem tón- listarmennimir væru þindarlaus- ir og þeir héldu áf ram að spila og spila. Atta klukkutimum seinna lauk tónleikunum og voru þeir þá búnir aö renna i gegnum flest ef dcki öll lög Chuck Mangione og nokkra jass standarda aö auki. Hljóöritunin frá tónleikunum nær vel þvi andrúmslofti sem rikti á tónleikunum og tónlist Chuck á enga sina lika. Ef á ein- hvern hátt er hægt aö nota orð yf- ir hana þá mætti segja aö hún væri melódisk en umfram allt jass, mjúkur og áheyrilegur. —M.G. „Táp og fjör og frískir menn” Eddie, Old Bob, Dick & Gary Tenpole Tudor : ■ Satt aö segja haföi ég litið álit á þessari hljómsveit. Hélt reyndar aö þeir væru ódýr eftir- liking af Adam & the Ants og væru að reyna að sigla i kjölfar þeirra. Nú dauðskammast ég min fyrir að hafa verið svona for- dómafullurog þetta álit byggði ég aö þvi aö hafa einusinni eöa tvis- var heyrt lagið „Swords Of A Thousand Men”. Undrun min varð þvi mikil þegar ég hlustaði á alla plötuna og tók eftir þvi aö hún er bara dj.. góð. Fyrsta lag plöt- unnar og það lag sem hvaö mest er spilaö nú „Swords Of A Thous- and Men” er engan veginn dæmi- gert fyrir hljómsveitina. Þaö er að visu allt i lagi að hlusta á það einu sinni eöa tvisvar en þaö gerist leiðinlegt til lengdar. En þið þurfið engu að kviða þvi af nógu er að taka. öll þau lög sem eftir eru á plötunni eru miklu betri heldur en það fyrsta. Og yfir alla plötunna er bara eitt lýsingarorð til: Fjör. Tenpole Tudor er samansafn af yndislega vitlausum sérvitring- um og aðsögn eldhressra náunga. Hljómsveitin var stofnuð i Lon- don og telst þvi þaöan, en nokkur óvissa rikir um uppruna ein- stakra hljómsveitarmanna (Skiljanlega). Sá eini sem er nokkurn veginn á kláru er Eddie Tudor, æðsta baun. Hann vakti fyrst á sér athygli þegar hann kvikmynd „Sex Pistols” „The Great Rock’n Roll Swindle”. Stuttu eftir aö hljómsveitin samdi viö breska útgáfufyrirtækið Stiff sendi þaö þá i hljómleikaferðalag ásamt fjölda af hljómsveitum þ.á m. Any Trouble undir kjör- oröinu „Son Of Stiff Tour”. Fyrir utan Eddie Tudor, sem sér um söng.gitar og saxafón-leik eru i hljómsveitinni þeir, Bob Kingston, gitar og söngur, Dick Cripper, bassi og söngur og Gary Long, trommur og söngur. (Söng- söng og lék eigin tónsmlðar I glaðir strákar). Tónlist Tenpole Tudor á rætur sinar i pönkinu en þeir flytja þó fyrst og fremst góða og hressa popptónlist, gipandi lög sem syngja i kollinum á þér. Lög- in eru öll innanvið 3 minútur að lengd og að þeirra eigin sögn er markmið hljómsveitarinnar að koma fólki i gott skap. Ég hef sjaldan skemmt mér t.d. eins vel viö að hlusta á plötu eins og þessa. Lifleg og hress. Smitandi humor frá hljómsveit sem tekur sig ekki of alvarlega. Einn skammtur tvisvar á dag kemur skapinu i lag. —M.G.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.