Tíminn - 19.07.1981, Page 8
8
Sunnudagur 19. júli 1981
fiiifiim
utgefandi Framsóknarf lokkurinn
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Stein-
grimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Af-
greiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarins-
son, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson.
Fréttastjóri: Páll Magnússon. Umsjónarmaður Helgar-Timans: lllugi
Jökulsson. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghild-
ur Stefánsdóttir, Egill Helgason, Friðrik Indriðason, Friða Björnsdóttir
(Heimilis-Timinn), Halldór Valdimarsson, Heiður Helgadóttir, Jónas
Guðmundsson, Jónas Guömundsson, Kristinn Hallgrimsson, Kristin
Leifsdóttir, Ragnar örn Pétursson (iþróttir). útlitsteiknun: Gunnar
Trausti Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert
Agústsson, Elin Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Próf-
arkir: Kristin Þorbjarnardóttir, María Anna Þorsteinsdóttir.
Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Síöumúla 15, Reykjavik. Sími:
86300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387, 86392. — Verð i lausa-
sölu 4.00. Áskriftargjald á mánuði: kr. 80.00— Prentun: Blaðaprent h.f.
Merkur
vitnisburður
■ Hin óeðlilegu samskipti Alusuisse og dóttur-
fyrirtækis þess, íslenska álfélagsins, sem nú hafa
loks verið dregin fram i dagsljósið, hafa enn á ný
vakið athygli á þeirri nauðsyn, sem það er íslend-
ingum að eiga meirihluta i öllum þeim atvinnu-
fyrirtækjum, sem starfrækt eru hér á landi.
Ýmsir hafa á liðnum árum lagst eindregið gegn
þvi, að íslendingar ættu meirihluta i slikum fyrir-
tækjum. En sem betur fer eru sifellt fleiri nú að
fallast á þá skoðun. Jón Sigurðsson, forstjóri fs-
lenska járnblendifélagsins, lýsti þvi t.d. yfir i við-
tali við Timann á föstudaginn, að hann hefði upp-
haflega verið þeirrar skoðunar, að fslendingar
ættu ekki að eiga meirihluta i stóriðjufyrirtækj-
um eins og t.d. járnblendifélaginu, en hann hefði
siðan skipt um skoðun og teldi nú nauðsynlegt að
við værum meirihlutaeigendur að þeim.
Þetta er merkur vitnisburður frá manni, sem
fengið hefur mikla reynslu við stjórn stóriðjufyr-
irtækis, um réttmæti þeirrar stefnu, sem fram-
sóknarmenn hafa lagt áherslu á i áratugi varð-
andi eignaraðild að stóriðjufyrirtækjum.
Reynslan af súrálsviðskiptum Alusuisse og ís-
lenska álfélagsins sýnir ljóslega, að nauðsynlegt
er fyrir íslendinga að eiga meirihluta i slikum
fyrirtækjum til þess að koma i veg fyrir, að hinn
erlendi auðhringur fari i einu og öllu eftir eigin
hagsmunum i samskiptum sinum við dótturfyrir-
tækið.
En það eru fleiri röksemdir fyrir meirihluta-
eign fslendinga i slikum fyrirtækjum, eins og
glögglega kom fram i viðtalinu við Jón, en þar
sagði hann m.a.:
,,Það, sem ég áttaði mig ekki á fyrr en ég fór að
vinna við þetta, er, að það mikilvægasta við fyrir-
tæki af þessu tagi er framlag þess til iðnþróunar
og iðnaðarfjárfestingar, það er það fjármagns-
flæði sem það getur skilað á ári hverju út i at-
vinnulifið. Þetta verða ákaflega stórar fjárhæðir
þegar fyrirtækið sjálft er komið yfir byrjunarörð-
ugleika, og það skiptir megin máli að ákvarðanir
um ráðstöfun þessa fjármagnsflæðis séu teknar
út frá islenskum hagsmunum.
Við getum bent á dæmi þar sem eru verksmiðj-
ur i Norður-Noregi, sem reknar eru af samsteypu
á þvi svæði sem hún er á, með tilliti til hagsmuna
ibúanna þar, heldur með hagsmuni samsteyp-
unnar i Osló i huga.
Hér verður þetta fjármagnsflæði ekki notað
nema i þágu þessa fyrirtækis og annarra is-
lenskra hagsmuna”.
Þessi ummæli Jóns Sigurðssonar eru enn ein
staðfesting þess, að til þess að tryggja, að stór-
iðjufyrirtæki séu rekin með islenska hagsmuni i
huga er nauðsynlegt, að þau séu i meirihlutaeign
íslendinga. Stefna verður eindregið að þvi að ís-
lendingar eignist meirihluta i Islenska álfélag-
inu. Jafnframt er augljóst mál, að ekki er hægt að
gera samninga við erlend fyrirtæki um nýja stór-
iðju hér á landi nema þvi skilyrði sé fullnægt, að
íslendingar fari þar með meirihlutavald.
—ESJ.
á vettvangi dagsins SÝSLU- MANNI Mp wmSBk ||JjF ■ ■ Æpjl
SVARAÐ eftir Jónas Hallgrímsson, bæjarstjóra "-tTw fcPBHf PjgFzZ'* jii&v :
■ 1 tilefni af frumhlaupi Friöjóns
Guörööarsonar sýslumanns i
Austur-Skaftafellssýslu, á ritvell-
inum nýlega sé ég mig tilneyddan
til andsvara og leiöréttinga, enda
ærin ástæöa til.
„Smyrill er hrein plága og ég
tel hann eitt versta vandamál,
sem hingaö hefur borist siöan
spánska veikin og svarti dauði
herjuöu hér” sagði Friöjön Guð-
rööarson sýslumaöur á Höfn i
samtali viö Timann, en sýslu-
nefnd hefur nýlega samþykkt
áskorun á viökomandi stjórnvöld
að heröa eftirlit meö ferjunni og
farþegum hennar svo komið verði
i veg fyrir innflutning ólögmæts
varnings og Utflutning náttúru-
minja, þar sem rökstuddur grun
ur sé um hvort tveggja. (Timinn
þriðjud. 30. júni 1981.)
Mér fór líkt og Njáli foröum, i
þri'gang þurfti að lesa mér þessi
stóru orð og svei, ef ekki hvarf laöi
aö mér að sýslumaður hefði
hreinlega vankastsem að sögn ku
vera eðlileg afleiöing flogasýki,
en þeim sjúkdómi mun sýslumaö-
ur aö sönnu kunnugri en undirrit-
aður.
Slik ummæli sem þessi frá
„ábyrgum embættismanni”
hljóta að vekja menn til umhugs-
unar, hvort önnur og ábyrgari
stjórnvöld láti slikt átölulaust og
ekki kemur til greina að meta
gildan aumingjalegan undanslátt
sýslumanns I Tlmanum þ.2. jUli
s.l., aö athæfiö beri að skoöa i
ljósi áhugamennsku, en ekki i
embættisnafni, þU ert nefnilega,
Friðjón, sýslumaöur allar stundir
hvort sem þér sjálfum eða okkur
hinum likar betur veða verr,
nema að þU takir það rækilega
fram, svo var ekki I þetta skipti,
enda veriö aö koma á framfæri
samþykkt sýslunefndar aö sögn
blaösins.
Viö sem teljum okkur vita betur
óskum eindregið eftir að maöur-
inn sé látinn standa viö sin stóru
orö, ella hafi hann skömm og
smán eina fyrir.
„Sýslumaður segir eftirlit vera
algjört kák. Um 200 bilar fari
þarna frá boröi og annar eins
fjöldi um borö á 2-3 timum. Þetta
renni i gegn eins og fé úr rétt og
aðeins séu teknar örfáar stikk
prufur”.
Það liggur nú við að svona
rakalausum þvættingi og hreinu
bulli væri best ósvarað, en fyrir
þá sem vilja trúa ööru en „sýslu-
mannslyginni” i Friöjóni skal
bent á þaö sem sannara reynist.
Þetta „skuggalega” skip tekur
við allra bestu aðstæöur (og þá
þurfa bilarnir allir að vera i
smærra lagi) 100-110 stk., en
sýslumaöur sér ástæöu til aö ýkja
um svo sem 100% og þaö er bara
eftir ööru i þessu dæmalausa við-
tali (aö visu kennir hann blaða-
manni hérum, en hver trúir þvi)?
Þaö sama gildir um afgreiöslu-
timann, yfirleitt tekur 4-5 tima
eöa meira aö afgreiöa og ljúka
störfum hverju sinni á annatim-
um þ.e. júli og ágúst, svo ekki
hefur maðurinn meiri sannleiks-
ást hér en annarsstaðar.
Þá er næst boriö niður I rann-
sóknarmennsku sýslumanns, þar
sem aö margra áliti er hvaö al-
varlegust fullyröingasemin. Hér
erátt viö aö þessi „sigling” bjóöi
uppá eina opnustu leið til smygls
á fikniefnum inn i þetta land.
Þetta eru svo stór orö um svo
voðalega hluti, sem fikniefnaböliö
er, aö nú vil ég hreinlega ekki
trúa, að sá góði maöur Friðjón
Guðröðarson, sem ég einu sinni
þekktihafi sagt þessa hlutisvona,
eða hafi hann sagt þá svona, þá
hljóti maöurinn aö hafa mistalað
sig eöa hreinlega meint eitthvað
annaö.
Frá byrjun siglingar þessa
skips, þetta er 7. sumarið, hafa
ekki oröiö stórvægilegar breyt-
ingar I samsetningu yfirmanna-
áhafnar og raunar má segja aö
allflestir hafi starfað lengst af.
Af kynnum minum af þessu
góða færeyska fólki verður að
segjast, að órökstuddar fullyrö-
ingar sýslumanns, sem einnig
hafa borist til Færeyja, hafa væg-
ast sagt komið mjög illa við þetta
fólk og raunar skilja þeir ekki
hvaö manninum gengur til, enda
ekki von.
Heldur þú sýslumaöur góöur,
að það yrði látiö viðgangast i
Færeyjum aö landstjórnin gerði
út „smyglaraskip” meö fikniefni
og það á sama tima og þeir visu
menn skammta brennivinið
heimafyrir. Hverskonar aðdrótt-
anir eru þetta eiginlega?
Veistu ekki einusinni maöur,
eftir allar þinar rannsóknir, aö
þegar skipiö kemur frá Dan-
mörku og Noregi á leið til Islands,
þá stoppar það i Thorshavn, allir
farþegar eru tollskoöaðir inn i
landiö og þar biöa þeir siðan með-
an skipið siglir til Skotlands. Það
er semsagt ekki einasta tollskoð-
aö á Seyöisfirði og það rækilega
aö minu áliti, heldur verða meint-
ir „Kristjaniusmyglarar” aö taka
tvöfalda áhættu vegna uppihalds i
Færeyjum og það get ég sagt þér
að auki, bæði á islensku og fær-
eysku, að þriöja og kannske ekki
lakasta eftirlitiö fer fram I skip-
inu sjálfu. Ahöfnin mundi aldrei
láta undir höfuð leggjast aö til-
kynna svo alvarlegan hlut, sem
hér um ræðir, ef uppá kæmi, svo
vel tel ég mig þekkja til á þeim
hæ
Hitt er vert aö undirstrika og
þaö meö fullum alvöruþunga, aö
tollaeftirlit til aö koma i veg fyrir
innflutning þessa mikla bölvalds
verður sjálfsagt aldrei svo full-
komiö, aö ekki megi betrumbæta,
en einhversstaðar verða menn aö
setja mörkin og tóntegundin sem
sýslumaður sendir tollayfirvöld-
um er rammfölsk, þvi áhugi toll-
gæslustjóra og hans manna, er
okkur ljós, sem til hliðar stönd-
um, enda jafnan setið i fyrirrúmi
óskir um bætta aöstööu til tolla*
eftirlits, svo fylgjast megi eins
vel meö, sem kostur er.
Fullyröingar sýslumanns um
ósótthreinsaöar veiðistangir lýsa
best þeim rannsóknaraðferðum,
sem maðurinn hefur viðhaft, og
dæma sig raunar sjálfar, að sjálf-
sögöu er allur veiðiUtbúnaöur
sótthreinsaöur.
Um næsta þáttinn, sem snýr aö
verndun náttúru landsins gæti ég
veriö sýslumanni sammála, ef
sjóndeildarhringur hans næöi
lengra en bara til Smyrils. Það
sigla nefnilega fleiri skip um At-
lantshafiö og íslendingar bera
sem betur fer gæfu til aö eiga og '
reka sin eigin skipafélög, og
sýslumaöurinn, sem ég veit aö er
áhugamaöur um umferö og um-
ferðaröryggi hlýtur að hafa séð
auglýsingar tveggja skipafélaga,
Eimskip og Hafskip um bilaflutn-
inga frá íslandi, skyldi vera leitaö
aö grjóti i þeim bilum, eða skyldu
þessi skipafélög neita að flytja út-
lenda bila að og frá landinu, þetta
hlýtur sýslumaðurinn aö hafa
rannsakað i leiðinni eöa er þaö
bara Smyrill sem plagar mann-
inn?
Svo má nú, sýslumaður góður,
heldur ekki gleyma blessuöum
flugvélunum, þær flytja eölilega
sárafátt náttúruskoöunarfólk til
landsins okkar, eöa hvaö? Fálka
og eggjaþjófar hafaliklega aldrei
verið gripnir á Keflavikurflug-
velli, eöa veistu til þess?
Til hvers skyldu nú allar þessar
bilaleigur hafa veriö stofnsettar
undanfarin ár, þær bjóöa meira
að segja uppá fjórhjóladrifsbif-
reiðar, sem aka má um fjöll og
firnindi, ætli einn og einn Utlend
ingurgætiveriöá þvælingi austur
um „svarta sanda”, á innlendu
númeri, kannske lita þeir lika við
i Lóninu annað veifiö eða jafnvel
skreppa að Skaftafelli. Nei, sýslu-
maður sér ekkert annað en vonda
steinaþjófa Ur Smyrli austur þar.
NU vilég ráöleggja sýslumanni,
aö hafa samband við kollega sinn,
þann ágæta bæjarfógeta og sýslu-
mann Sigurð Helgason, sem af
miklum áhuga hefur einsett sér
og sinum mönnum að duga vel i
þessu sem öðru, fáðu nú að sjá
allt svinariið sem tollgæslan hef-
ur fundiö undanfarið og segöu
mér svo á eftir hvernig gullið litur
út I þlnum augum.
Að visu verð ég aö játa aö hafa
barið gersemarnar augum, en
ekki kæmi mér á óvart þó þessir
örfáu hraúnmolar gerbreyttust i
sjáöldrum augna þinna, þannig
að uröin yrði að ópölum og hraun-
molar að jaspisum.
Hvað áhrærir tillögu þina um
leit I bilum fyrir brottför finnst
mér hún, sem leikmanni, ekki
koma til greina, nema um rök-
studdar grunsemdir eða ábend-
ingar sé að ræða. Fram til þessa
hefur verið talið að ferðafólk og
hér á ég við „hinn almenna
ferðamann” eigi ekki að með-
höndla á Islandi á þann hátt sem
gert er í ónefndum löndum austur
Evrópu eða Suður-Ameriku, eins
og þessi mætingar og skoöunar-
skylda löngu fyrir brottför felur I
sér. Nær væni að auka gæsluna
Uti I mörkinni, jafnframt ræki-
legri kynningu á afleiðingum
náttdrustulds og hér eiga vita-
skuld aðkomatilmjög háar sekt-
ir, ef Utaf er brugöið, flestir hugsa
jú um budduna sina þegar svo er
komiö. Og spyrja má einnig, hver
ættisvosem að koma fyrir hinum
upptæku gersemum i sinum upp-
runalegu heimkynnum og hver á
að borga fyrir svona nokkuð? Nei
hér á að gripa fyrir, áðuren i bux-
urnar er komið.
En svona I lokin Friðjón sýslu
maður, heldurðu að þér og öörum
álíka þenkjandi liði nokkuö betur
sálarlega, ef ykkur tækist nú með
þessu endemis blaðri að fá yfir-
völd til liðsinnis og krafist yrði
breyttrar viðkomuhafnar þessa
skips frá Seyðisfirði til Reykja
vikur, væntanlega yrði að leggja
skútunni alveg uppi Austurvöll,
svo tryggt væri, að allt færi nú
löglega fram, heldurðu að steina-
þjófum austur hér fækkaði við
þetta. Ég segi nei!
Ætla má að þróun næstu ára i
þessu efni, verði á þá leið, að
skipum likum Smyrli bæði fjölgi
og þau stækki, hvort sem mönn-
um likar betur eða verr. Við get-
,um ekki lokaö landinu fyrir þeirri
sjálfsögðu þróun, að við getum og
okkur ber að setja þessum gest-
um okkar, ferðafólkinu, þærregl-
ur sem eftir er tdrið og ætlast til
að skilyrðislaust sé eftir þeim
farið.
Að lokum er kannske vert að
rifja upp, að sýslumaðurinn hefur
áður og ekki alls fyrir löngu reynt
að tæta héðan frá Seyðisfirði þá
hluti, sem okkur er nokkur metn-
aður í að viðhalda hér, hvar
skyldi næst verða borið niður?
Annars fannst okkur þessi
sending hvaö ómaklegust i garð
nýlega skipaðs og áhugasams
bæjarfógeta okkar og sýslumanns
Norðmýlinga, en kannske helgar
tilgangurinn meðalið og sannast
þá hið gamalkveðna að:
Lastaranum i likar ei neitt
lætur hann ganga róginn
finni hann laufblaö fölnað eitt
þá fordæmir hann skóginn.
Jónas Hallgrimsson bæjarstjóri