Tíminn - 19.07.1981, Síða 10
Sunnudagur 19. jUIi 1981
Í.Í
10
Ef þér eigið leið um
Hvalfjörð er sjálf-
sagt að koma við i
Sölu-
skálanum
Okkar ágætu
afgreiðslumenn sjá
um að láta oliur og
bensin á bilinn og á
meðan getið þér
fengið yður hress-
ingu.
Við bjóðum:
• Samlokur
• Smurt brauð
• Nýbakaðar
Skonsur
• Kleinur
• Pönnukökur
ásamt fleira
bakkelsi.
• Gott viðmót
Nýlagað kaffi, te og
súkkulaði.
Heitar pylsur, gos-
drykkir og sælgæti.
Olíustöðin
Hvalfirði
Simi 93-5124
Áfram gakk ...
en vinstra megin
á móti akandi umferð
l\
þar sem
gangstétt
vantar.
IFEROAR
I \ wwwAwwwvvwwumifir///'
Góð orð duga skammt.
Gott fordæmi
skiptir mestu máli.
yUMFEROAR
RÁÐ
ISLENSKT MARKAÐS-
RUSK í ÚTLÖNDUM
■ Islenska poppara hefur löng-
um dreymt um að sigra erlenda
markaði og útlend hjörtu — og
ekki að furða því markaðurinn
hér er afar þröngur, leyfir i besta
falli sölu á 5000 eintökum hverrar
plötu. Enginn verður feitur á þvi.
Þetta var þö alltaf allt að koma ef
trúa má skallapoppurum. Það
eru margar sögur af draumum og
misjöfnum árangri islenskra
poppara i hörðum Utlenskum
heimi. Þó er enn reynt.
Nú í byrjun ágústmánaðar
kemur að öllu áfallalausu út
nokkuð óvenjuleg plata hjá Fálk-
anum. Það er samansafnsplata
þar sem erá ferðinni þversnið af
islenskri nýbylgjutónlist, nýrri og
gamallri — flyt jendurnir eru
Utangarðsmenn, Þeyr, Fræbbl-
arnir, Purrkur Pillnikk, Tauga-
deildin og — Megas sem syngur
hinn óborganlega „Paradisar-
fugl”.
Mestallt efnið hefur verið gefið
áður Ut á plötum, sumt er þó
mixaö uppá nýtt og eitt
Fræbbblafélagið er nýtt undir
nálinni.
Ásmundur Jónsson, poppfræð-
ingur og útgáfuráðgjafi Fálkans,
tjáði okkur að platan væri fyrst og
fremst ætluð á markað erlendis,
væri gefin út i nafni Fálkans á
Englandi i samvinnu við dreif-
ingaraðilann, „Rough Trade” —
vonandi aö svo skuggalegt nafn
gefi ekkert i skyn um eðli fyrir-
tækisins. „Rough Trade” er eitt
af mörgum „alternatfv” útgáfu-
fyrirtækjum sem upp komu i
punk-bylgjunni, það hefur m.a.
haft á snærum sinum þekktar ný-
bylgjuhljómsveitir — t.d. „Stiff
Little Finger’s”, „Pére Ubu”, og
„Cabaret Voltaire”. NU sinnir
fyrirtækið aðallega dreifingu
fyrir minni hljómplötufyrirtæki,
útgáfa hljómplatna er aukageta.
Að auki standa vonir til þess að
„Sound Distribution” i Dan-
mörku taki plötuna uppá arma
sina og dreifi henni um öll
Norðurlönd.
Svo verður hún auðvitað til sölu
hérna heima— kjöriö tækifæri til
að kynna sér ungar og ferskar
hljómsveitir.
Asmundur sagði að platan væri
einkum hugsuð sem kynning á þvi
frjóasta og nystárlegasta sem
væri að gerast i islensku rokki.
Fálkamenn byggjust ekki við
neinum meiriháttar landvinning-
um, það væri óljóst hvað platan
gerði mikla lukku á erlendum
markaði, hvort hún seldist eður
ei.
„Eini fasti punkturinn i þessu
er að platan kemurút”, sagði Ás-
mundur.
■ Megas syngur „Paradisar-
fuglinn” óborganlega á safnplöt-
unni.
Platan er ekki enn komin úr
pressun sem oft er viðkvæmt stig
hljómplötuframleiðslu. En
hulstrið er tilbúið, svo og 12 siðna
bæklingur sem fylgir með plöt-
unni. Þar fá hljómsveitirnar færi
á að kynna sig og útlista hug-
myndir sinar um lffið, tónlistina
og tilveruna. Þvi miður skrifar
Megas þó ekki um sjálfan sig.
Textarnir fylgja einnig með i
lauslegum enskum þýöingum, en
hljómsveitirnar syngja ýmist á
ensku eða islensku.
Eitthvað hefur Fálkinn annað á
prjónunum, þó enn sé langt i
sjálft jólaplötuflóðið. Þeir halda
áf ram að leggja rækt við nýbylgj-
una, láta ekki markaðsþrengslin
á sig fá. A næstunni er væntanleg
frá þeim litil plata með Fræbbl-
inum og önnur með Taugadeild-
inni. Og svo er von á stórri plötu
frá örvari Kristjánssyni, en hann
er nú ekki alveg nýbvlgia...
Einnig eru Asmundur og fleiri
með li'tið útgáfufyrirtæki uppá
eigin spýtur, sem meðal annars
gaf út plötu Purrks Pillnikk. Frá
þeim er væntanleg þriggja laga
plata Pollock-bræðranna úr
Utangarðsmönnum i félagi við
Ásgeir, trommuleikara Purrks-
ins. HUn ber nafnið „The dirty
Dan' project”.
eh.
Nýtt tónlistartímarit—„TT”
■ t siðasta Helgar-TIma gengum
við úr skugga um hvort „Lyst-
ræninginn" væri dauður eða ei.
Svar Veriíharöar Linnet rit-
formanns var afdráttarlaust nei,
Lystræninginn hefði ýmislegt á
prjónunum. Og likt og til að staö-
festa það datt inn hjá okkur á
dögum siðar „TT tónlistartima
ritíð” sem Lystræninginn er út-
gáfuaðili að og Vernharður rit-
stýrir. Aðrir i ritstjtírn eru Aagot
óskarsdóttír, Aðalsteinn Asberg
Sigurösson, Ríkharður örn Páls-
son og Sigurjtín Jtínasson.
1 ritstjórnargrein „TT” segir
m.a.: „A siðasta hausti skaut
þeirri hugmynd upp kollinum að
þau félög sem sinna rýþmiskri
tónlist hérlendis hæfu útgáfu ttín-
listartimarits. Endirinn varð sá
aö Jazzvakning, Sattog Visnavin-
ir komu ritnefnd á laggirnar og
sömdu við Lystræningjann um aö
annast Utgáfuna og nú sér fyrsta
tölublaðiö dagsins ljós og tvö önn-
ur fylgja ikjölfarið á þessu ári.”
Það eru sumsé vaxandi félög
djassara, poppara og visna-
áhugamanna sem standa að út-
gáfu þessa kærkomna menning-
arauka. Vernharður sagði að
einnig væri hugsanlegt aö
„Musica Nova”, félag ungra
tónskálda og hljómlistarmanna,
slægist i hópinn.
Tónlistartimarit hafa áður ver-
ið gefin út hér á landi og fæst orð-
ið langlif. Helst hafa þau höfðað
til afmarkaðra hópa innan tón-
listarinnar — poppara og djass-
ara. Það má e.t.v. ætla aö vegna
fjölbreytni ,,TT” verði þvi lengri
lifdaga auðið.
Meðal efnis i fyrsta tölublaði
„TT” er: Minningargrein um ný-
látinn saxafónvirtúós, Gunnar
Ormslev, eftir Jón Múla Arnason,
og er þar einkar hlýlega oghnitti
lega komist að orði. Hatrömm
grein eftir Aagot óskarsdótur um
söngvakeppni sjónvarpsins —
jákvæða lágmenningu? óvenju-
leg grein eftir Rikharö örn Páls-
son um Bítlana, ekki eins og flest
önnur skrif um þá félaga um líf-
skeiö þeirra og ólikar persónur
með viðkvæmni blendnu hugar-
TT
tónlistartímaritid
<
' t
fari, heldur um sjálfa tónlistina,
hvað liggur að baki þvi sem heyr-
istaf plötunni. Gripum niöri grein
Ríkharös: „P.S. I love you” byrj-
ar svolftið óvenjulega á B-kafla
(form BAABABAH, þar sem H er
„hali” (coda) og býöur i A uppá
einfalda en virka útfærslu á
þriggja hljóma grunnformi fá-
brotnasta poppsins (I,IV,V),
nefnilega með lækkuðu VI. og
VII. sæti...” o.sv. frv. Grein Rik-
harðs er reyndar ekki jafn tyrfin
og fræðileg og ofanskráö gefur til
kynna.
Meira efni i „TT”: Yfirlit um
starf Jazzvakningar I fimm ár
eftir Jónatan Garðarsson. Frá-
sögn Egils ólafssonar af þvi þeg-
ar popparar loks stofnuöu félag.
Margt fleira er i blaðinu forvitni-
legt, t.d. „Eyrnakonfekt”, dómar
um i^legar hljómplötur, Islensk-
ar jafnt sem erlendar.
Sniðiö á blaðinu og nafnið
reyndar líka líkist danska tónlist-
artímaritinu „MM” það er ekki
til neinna vansa — „MM” er
• ágætis blað og „TT” hefur alla
burði til að verða það lika, þrátt
fyrir nokkurn byrjendabrag nú i
upphafi.
r* i. 3 Gjafaþjónusta Lokað vegna
UL t. H' 'i ;•£ Sendum myndalista sumarleyfa frá
Póstsendum 27. júlí - 10. ágúst
■jS 1 Óiafur Gislason
Ht l! f&n*t Laugavegi 40, s. 16468 og Co h.f. Sundaborg
iii
(|i Verslunarrekstur
Akveðið hefur verið að leigja út suðurhluta biðskýlis SVR
sem komið hefur verið fyrir við Grensásstöð um 25 ferm,
til verslunarreksturs þar með talið kvöld og helgar. Hús-
næðið verður leigt i þvi ástandi sem þaö er i nú. Þeir sem
áhuga hafa sendi nöfn og heimilisföng sin til skrifstofu
Strætisvagna Reykjavikur Borgartúni 35 fyrir n.k. mán-
aðamót.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríld'kjuvegi 3 — Sími 25800
Hjúkrunar-
fræðingar
Vegna sumarleyfa óskast hjúkrunarfræð-
ingur til starfa við Heilsugæslustöðina á
Suðureyri i ágústmánuði 1981.
Upplýsingar veitir ráðuneytið.
16. júli 1981
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið