Tíminn - 19.07.1981, Qupperneq 12
Sunnudagur 19. júli 1981
12
bergmál
■ Það er allt vitlaust í
Bretlandi þessa dagana#
þær fréttir hafa væntan-
lega ekki farið framhjá
neinum. Unglingar, sumir
nauðrakaðir með haka-
kross, eru úti á götunum og
brjóta rúður og ráðast á
lögregluna, lýsa frati á allt
heila klabbið. Þeir eru í
vígahug og takist ekki að
koma á friði er aldrei að
vita hvar þetta endar: í
meiri háttar blóðsúthell-
ingum, bardögum, upp-
reisn. Það er auðvelt að
skella skuldinni á ofstop-
ann í unglingum eða litinn
á negrunum en auðvitað
eru ástæðurnar aðrar og
erfiðari viðfangs. Bretland
var einu sinni heimsveldi
en hefur nú glatað öllu
nema ærunni — „af hverju
gerist svona hjá siðaðri og
vel menntaðri þjóð?" — og
hvaða ástæða er til að ætla
annað en endir þess verði
sem flestra annarra
heimsvelda: sem sé hrun.
Bretlandi hefur farið
hnignandi í áratugi en ein-
hvern veginn alltaf tekist
að halda i síðastu leifarnar
af sjálfsvirðingunni sem
heimsveldi. Kannski verða
þessir atburðir til að svipta
þá blekkingunni?
Motto: I miss the four-
teen-eighteen war
(Clash)
Þaö mun vera á stjórnarárum
Játvarðar sjöunda eftir lát Vik-
toríu snemma á þessari öld sem
mai-gir Bretar telja heimsveldi
sitthafa risið hæst. bá var góður
hluti landakortsins i breskum
skólastofum og öðrum rauður:
litur breska ljónsins. Þeir áttu
Ástralíu, Kanada, stóran hluta
Afríku, lendur i Asiu, Indlandi.
Þeiráttustærsta flota heims með
„óhræddum” sinum, þeir áttu
öflugan her, þeir áttu öflugan iðn-
að. og verslun stóð með blóma og
menningarli'f þóttigott. Þeirlituá
sig sem verndara fremur en kúg-
ara, þeir vissu jú hvernig best
væri aö hafa hlutina svo hvi ekki
að leyfa þeim að ráða þvi.
En bak við þessa fallegu mynd
var annar og ófegurri veruleiki.
Bretar voru nefnilega þá þegar
farnir að dragast aftur úr, sér i
lagi I iðnaði þar sem Þjóðverjar
höfðu tekið forystu strax um
miðja ni'tjándu öld. Þjóðverjar
voru líka að byggja upp flota sem
gæti ógnað Bretum á hafinu, þeir
ætluöu að leggja undir sig Ev-
rópu. Fyrri heimsstyrjöldin hófst
auðvitaö út af þeirri spennu sem
þessi keppni skapaöi milli stór-
velda — auðvitað ekki einungis
milli Breta og Þjóðverja heldur
tóku allir þátt — og aö henni lok-
inni gátu Bretar hrósaö happi.
Þaö var ekki betur séð en þeir
héldu sinu og gott betur: hættu-
legur keppinautur var fyrir bi og
Frökkum haföi blætt út. En
glöggskyggn augu sáu að heims-
veldiö vará fallanda fæti: London
bridge is falling down, falling
down, falling down, ha? Bretland
reyndist máttlaust, ekki sist á
hugsjónasviðinu, þegar fasisminn
reis ög þaö var það gjaldþrot sem
leiddi til þess að sumir bestu
synirEnglandshölluðu sérfrá þvi
og til kommúnisma — sem hafði,
þegarnánarvaraðgáö, ekkert að
bjóöa.
Hetjuskapurinn dugði
skammt
Bretarstóðu sig aö visu eins og
Móðuharðindi af
mannavöldum
— og draugagangur á Vísi
hetjur i siðari heimsstyrjöldinni,
það er satt og rétt, en sá hetju-
skapur dugöi þeim skammt að
striðslokum. Bretar vissu það
meira að segja sjálfir og felldu
Churchill i kosningum áður en
striðinu var að fullu lokið — nú
þurfti að snúa sér að öðrum við-
fangsefnum. Og þeir reyndust
ekki sem þjóð færir um að valda
þeim viðfangsefnum.
I fyrsta lagi var það aö heims-
veldi þeirra byggðist að mestu
upp á nýlendum en ekki gæðum
og verðleikum landsins sjálfs.
Það fór hugur um heiminn eftir
að seinni heimsstyrjöld lauk og
þjóðir sem enginn hafði látið sér
detta i' hug að kynnu að tala
heimtuðu allt i einusjálfstæði. Og
það var máski þegar Bretar
misstu þessar nýlendur sinar sem
afturábak staða þeirra i fram-
þróun frá fyrri öld fór fyrst að
hefna sin fyrir alvöru.
Litum á Þjóðverja. beir voru
sigraðir, smáðir,i lok heimsstyrj-
aldarinnar en hefur á fáum einum
áratugum tekist að hafa sig upp i
að verða eitt mesta iðnveldi
heims — og þar af leiðandi
áhrifameira i þessum nútima-
heimi þar sem þögul vopn tala
einatt hærri en hin hávaðasömu.
Bretar voru illa settir þá en miklu
betur en þýskarar — þeir eru nú á
niðurleið. Er þaö bara sisona
þróunin? — þegar einn fer upp
fer annar niöur. Eða hvar mis-
tókst Bretum? Þeim hefur sýni-
lea ekki nægt að vera eia siðað-
asta og best menntaða þjóð i
heimi en þá er á það að lita: 4
hvenær hefur það nægt nokkurri
þjóð?
» »
* •
Ævintýramenn og Mq^-
grét &
Hvar sem mistök þeirra liggja
þá er þaö staöreynd að Bretar
voru að leggja upp laupana. Og
það sem kannski var verst fyrir
þá: þeirgátu alls ekki sættsig viö
aö vera orðinn litli bróðir I sam-
félagi Sovétmanna og Banda-
rikjanna og á iðnaðar- og velmeg-
unarsviði langt fyrir aftan fjölda
minni og litilsigldari þjóöa. Þeir
righéldu sér i heimsveldisdraum-
inn — þeir söknuðu f jórtán átján
striðsins, báru höfuðið hátt en
höfðu bara ekkert tilefni til.
Og svo er það auðvitað mæta
vel ljóst að það er ekki beinlinis
gott fyrir þjóð sem þarf á öllu sinu
að halda að fá yfir sig manneskju
einsog hana Margréti Thatchers,
manneskju sem treystir á ævin-
týramennsku manna á borö við
Milton Friedmann sjónvarps-
stjörnu til að kippa öllum hlutum i
lag. Náttúrlega er fjarri lagi aö
halda þvi fram að Margrét That-
cher eigi alla sök á þvi sem nú
gerist á strætum Lundúna og ótal
annarra breskra borga. Nei,
þetta er bara afleiðing langvar-
andi þróunar sem Margrét hefur
að visu flýtt geysilega fyrir. At-
vinnuleysið er ekki einhllt skýr-
ing, auðvitað, en veldur miklu og
það hefur aukist svo mikið i tið
Margrétar að þaö hlaut að koma
aö þvi að uppúr syöi. Eða hvað á
unga fólkið að gera, annað en að
fara út á götu og brjóta, eyileggja
fyrst þaðerekki glæsileg sýn sem
við þvi blasir. Unga fólkið hefur
ekki neina ástæðu til að
„lita framtiöina björtum augum”
einsog það heitir og þá er ekki
verra að segja sig úr samfélaginu
og kenna svo bara löggunni um
allt saman — hún hafi veriö svo
ósköp vond og slæm. Nú er það
fjarri mér að halda uppi vörnum
fyrir lögreglu nokkurs
lands — þar veljast gjarnan til
starfa hinir litt geöslegri menn
hvers þjóðfélags einsog menn
vita — en mig langar bara að
vekja þó ekki sé nema ofurlitla
athygli á því hversu fáránlegt*er
að skella skuldinni á einn aöila
eða i mesta lagi tvo i þessu málíj
Það skiptir okkur nefnilega máli.
,Ég erekki aö segja að við megum
eiga von á að hallærisplanið geri
byltingu, ráðist I stjórnaráðið og
grýti Gunnar Thór en við eigum
svo margt sameiginlegt með þjóð
einsog Bretum aö okkur er ekki
nema sjálfsagt að fylgjast vel og
gaumgæfilega með þvi sem þar
fer fram.
Dómgreindarleysið!!
Og aftur til Bretlands: það er
nú meira dómgreindarleysið sem
Margrét Thatchet hefur sýnt eftir
að þessar óeirðir brutust út. Hún
hefur sýnt sig algerlega óhæfa að
stýra þjóð i vanda enda hefur hún
aldrei verið orðlögð fyrir að hafa
skilning á fólki, þvert á móti, og
kannski si'st sinni eigin þjóð. Hvað
gerirMargrét Thatcher þegar at-
vinnuleysingjarnir fara út á götu,
þegar örvænting hefur harkið
fjöldann allan af unglingum sem
annars væru i köflóttum kjólum
og stuttbuxum i faðm hreyfinga
einsog National Front, þegar ára-
lör.g niðurlæging og kúgun rekur
hina „lituöu” til að brjóta glerið
hjá næsta kaupmanni? Hvað
gerir hún þá” Jú, hún fer i út-
varpið og segir foreldrum að
passa börninsinbetur, leyfa þeim
ekki að vera seint úti á kvöldin,
slá á puttana á þeim ef þau koma
heim og segja „Heil Hitler”. Og
svo þegar það einhverra hluta
vegna ekki dugar þá fer hún aftur
iútvarpið og hótar her og gúmmi-
kúlum og sprautubúlum og öllu
mögulegu og ómögulegu. Þetta er
sem sé leiðin til aö kveða niður
óeirðir sem eiga sér mjög djúpar
og alvarlegar þjóðfélagslegar
rætur. Saka unglingana um
græðgi!
Og úr þvi' ég er byrjaður að
fjalla um þetta mál: má ég þá
lýsa fyrirlitningu minni á leiðara
sem birtist i gamla blaðinu
minu — þaö er að segja
Viý — siðastliðinn miðvikudag.
Þar skrifar leiðarahöfundur sem
er ef að lfkum lætur sjálfur rit-
stjórinn Ellert B. Schram um það
sern ,hann kallar I fyrirsögn
„Skrilslætin i Bretlandi”. Ellert
kemst að þeirri niðurstöðu að or-
sök'öeiröanna sé þrátt fyrir allt
aðeÍQs ein: nefnilega að það sé
„litað” fólk I Bretlandi. Rasis-
minn sem skin út úr þessari grein
epjtmeiryyi ég hélt aö væri hægt
nu*til dagf. JÞ,vi rasismi er þaö þó
svo leiðaráhöfundurinn látist
vera lfberal og segi eitttivaö á þá
leið að aðalvandinn sé að ólikir
kynþættirséu illa til þessfallnirað
búa saman. Sem sé: þeirsem eru
ólikirá litinn, þeir eru öðruvisi að
upplagi og hugsun og siðast en
ekki sist gáfnafari. Negrar eru til
dæmis alveg örugglega minni
menn en við, eða finnst þér það
ekki, Ellert? Svona innst inni? Og
það er vitnað i Enoch Powell:
Hæhæ, hann haföi þá þrátt fyrir
allt rétt fyrir sér. Vondir eru
negrarnir!
Hvaóa hvatir liggja að
baki?
Það erskrýtið að nokkur maður
skuli láta útúr sér hluti eins og þá
sem vaöa uppi i leiðara Visis
þennan tiltekna miðvikudag, sér i
lagi vegna þess að allar frétta-
skýringar sem birst hafa hér á
landi um óróann á Bretlandi eru
sammála um að orsakanna sé sist
að leita i' sambúð hvitra/-
svartra/brúnna/gulra og hvaða
lita sem finnast á Bretlandi.
Nema þá að þvi leyti að nokkrir
hinna „lituðu” finna sér
skiljanlega hvöt til að gera upp-
reisn gegn niðurlægingu sem þeir
hafa þurft að sæta ég veit ekki
hvað lengi og gripa tækifærið
þegar uppúr sýöur af öðrum
ástæðum. Það eru ekki svartir
menn eða „litaöir” sem eiga sök
á óeirðunum — heldur sú þróun
sem átt hefur sér stað i þessu
gamla heimsveldi undanfarna
áratugi, og nú siöast heldur betur
hörmuleg efnahagsstefna og al-
mainkreppa sem riðiðhefur yfir.
Hvað veldur þá að menn finna
sig knúna til að setjast niður við
ritvél og skrifa leiðara einsog
þennan? Bara hreinn og beinn
rasismi? Áfram Viggó Oddsspn
og kompani'? *
Æ, viö þurfum á svo allt öðru aö
halda en þessu kjaftæði... «
Illugi Jökulsson,
blaðamaður, skrifar