Tíminn - 19.07.1981, Page 24

Tíminn - 19.07.1981, Page 24
24 Sunnudagur 19. jdll 1981 ■ Abbie Hoffman | Ronald Biggs ■ Richard Nixon ■ Kim Philby ■ Anonymus — NN SLOPPIÐ MEÐ SKREKKINN ■ Abbie Hoffmann, ameriskur bylt- ingarseggur, er höfundur þessa ókindar- lega lista sem hár fer. Abbie var foringi „yippa-hreyfingarinnar” á 7unda ára- tugnum. Þeir voru nokkurs konar póli- tiskir trúðar sem ætluðu að vekja æskuna og hrista upp i bandarisku þjóðfélagi með ólikindalátum sinum. M.a. dreifðu þeir peningaseðlum yfir verðbréfa markað- inn i Wall Street, buðu svin fram sem for- seta og negra sem varaforseta, hótuðu að ráðast á Pentagon og sprengja þar klósettin — og ótalmargt fleira sem fólk tók ótrúlega hátiðlega á þeim tima. Abbie var einn af „Chicago sjöunni”, sem kom fyrir rétt fyrir að æsa til óeirða á flokksþingi demókrata þar i borg 1968. Nú er sagt að hann vinni sem rakari i smábæ i Kalifomiu, lögin eiga enn óupp- gerða reikninga við hann. Hér tekur hann saman tiu menn sem komust i kast við lögin eða skám sig úr á annan hátt — og komust upp með það, sluppu með skrekk- inn. B. Traven (18827—1969, 18907—1969, 1894-19697, 19017-1969). B. Traven, eins og hann kallaði sig, var mesti flóttamaður i heimi og jafnframt einhver best skrifandi verkalýðshöfundur allra tima. Hann var höfundur meira en 30 bóka, sem hann skrifaði á hlaup- um undan a.m.k. fjórum rikis- stjórnum. Hann hóf feril sinn i Þýskalandi sem leikari og anar- kisti undir nafninu Ret Marut. 1919 var hann dæmdur til dauða fyrir landráð i Munchen, en komst undan á flótta. Hann flýði til Moskvu, átti i útistööum við Stalin, flýði siðan til Frakklands. Næst varð hann sjómaður á „dauða skipum” ameriskum kaupskipum sem var sökkt til þess að hafa fé útúr trygginga- félögum. 1923 var hann i Mexikó, þar sem hann talaði máli verka- lýösfélaga. Þvi var hann lýstur ófriðhelgur óvinur rikisins af Mexikönsku stjórninni. I felum hóf hann rithöfundarferil sinn undir nafninu B. Traven. Aukin- heldur var hann eftirsóttur ljós- myndari, sem slikur kallaði hann sig Traven Torsven. Ennfremur þótti hann liðtækur fornleifafræð- ingur og var i miklu áliti sem töfralæknir hjá Chiapas indián- um. Timaritið ,,Life” bauð eitt sinn hverjum þeim sem gæti haft uppá þessum makalausa rithöf- undi 5000 dollara. Siðla á 6ta ára- tugnum kom hann úr felum, gift- ist og settist að i Mexikóborg, honum tókst að hylja allan sinn gamla frama. Nokkru áður en hann dó brenndi hann öll persónu- leg gögn sin — bækur hans eru þó arfur stoltrar frelsishetju til eftir- komendanna. Þeirra frægust er „The Treasure of the Sierra Madre”. Kim Philby (1913*) Harold Adrian Philby gekk i bresku leyniþjónustuna árið 1939. Hann þótti framúr- skarðandi njósnari og varð yfir- maður sovésku deildarinnar i sið- ari heimstyrjöld. 1949 varð hann aðal-tengill i njósnasamstarfi Bretlands og Bandarikjanna. Roosevelt, Truman og Churchill hlóðuhann lofi. Það var ekki talið fjarri að hann yrði með tið og tima höfuð bresku leyniþjónust- unnar. öllum var þó hulið að 1933 gekk Philby Rússum á hönd. Allt fram til 1951 féll enginn grunur á hann. Þá komst leyniþjónustan að þvi að tveir liðsmenn hennar, Guy BurgessogDonald Maclean, voru gagnnjósnarariþágu Rússa. Rétt áður en tókst að handsama þá komust þeir undan til Moskvu. Einhver hafði varað þá við yfir- vofandi handtöku, Philby var grunaður. 1 tiu ár reyndi leyni- þjónustan að finna sannanir fyrir þvi að Philby væri gagnnjósnari en án árangurs. Það var loks árið 1961 er Philby starfaði sem fréttaritari i Beirut að George Blake, rússneskur njósnari, stað- festi það sem menn hafði iengi grunað. Um hánótt i janúar 1963 hristi Philby ofsækjendur sina af sér þegar hann var á leið i matar- boð. Hann dulbjó sig sem araba og gekk i gegnum Sýrland og Tyrkland, alls 500 kilómetra. Honum skaut svo upp sem þjóð- hetju i Moskvu sex mánuðum siðar. Nú lifir hann i kyrrþey i Sovétrikjunum ásamt rússneskri eiginkonu. En Bretar gleyma þessum tviskjalda njósnara seint. Gilnther Wallraff (1942 -) Wallraff er lúmskasti fréttamaður i heimi. Hann hefur skrifað fjölmargar bækur og greinar i blöð, allar helgaðar málstað verkalýðsstéttarinnar. Wallraff hefurá undirförulan hátt komið upp um nasista i valda- stöðum i Þýskalandi, njósnir á vegum rikisins og ólöglega við- skiptahætti. I fjögur ár lék hann tyrkneskan verkamann, geð- sjúkling, skrifstofumann i póst- húsi, verkamann i stálbræðslu o.fl. Siöan fletti hann ofan af lélegum vinnuskilyrðum i tveimur bókum sem skóku Þýskaland. 1976 þóttist hann vera iþjónustustjórnarinnar i Bonn og komst að samkomulagi um vopnasölutil Portúgal við Spinola hershöfðingja, ihaldsnagla sem margir muna eflaust eftir. Fræg- ast er sennilega þegar Wallraff gerðist blaðamaður hjá „Bild Zeitung”, magnþrungnu sóða- blaði sem hefur lygileg áhrif á hugsunarhátt þýsku þjóðarinnar. Wallraff fletti miskunnarlaust ofanaf lygum, rangfærslum og áróðri blaðsins. Hannhefur leikið aðstoðarmann biskupsins i Bæjaralandi, snuðrara á vegum lögreglunnar, og 'framleiðanda napalms. Ósjaldan hefur hann setið inni og bækur hans hafa verið ritskoðaðar grimmt. Þessi djarfasti blaðamaöur i Evrópu heldur þó áfram krossferð sinni gegn siðleysinu. Siðast þegar fréttist til var hann i útlegð i Svi- þjóð, eöa fór huldu höfði i heima- landi sinu, enda ekki vinsæil meðal vissra hópa þar. Harry Houdini (1874—1926) Það var ekki bara þaö að Houdini kæmist upp með hlutina, hann slapp með skrekk- inn, slapp lifandi. Það var bara ekki hægtað læsa hann inni. Hann var hlekkjaður inni vatnstanki, en samt slapp hann. Fangelsi gátu ekki haldið honum og ekki heldur bankahólf. Hann var svo fimur að hann gat bundið hnút með tánum á öðrum fæti — og leyst hann. Enn eru flest brögð hans jafn leyndardómsfull og þegar hann framkvæmdi þau. Hann var sannfærður um að hann gæti jafnvel komist undan dauð- anum. Nokkrir gamlir vinir hans trúa þvi að honum hafi lánast það. Sá orðrómur hefur sveimað að Houdini sé sjónvarpsvið- gerðarmaður i New Jersey. Fransisco Villa (1877—1923) „Pancho” Villa, þjóðsagnapersóna i lifanda lífi, var fyrir siðasta hernum sem komst upp með að ráðast inn i Bandarikin. Það var 9unda mars 1916iNýju-Mexikó. Wiison forseti skipaði Pershing hershöfðingja að elta innrásarherinn inni Mexikó. Fyrir eftirleitinni var enginn annar en George Patton. En ekki náðu þeir Villa sem var alltaf skrefi á undan þeim i torfærum fjöllunum. Villa slapp oft naumlega i Mexikönsku bylt- ingunni. I júli 1923 hafði hann sest i helgan stein á búgarði sinum i Durango, þá var honum gerð fyrirsát og hann skotinn i bifreið sinni. Henri Charriere, „Papillon” (1907—1973) „Papillon” — fiðrildið var einn af fáum sem tókst að flýja frá hinni illræmdu frönsku refsinýlendu á Djöflaey. Hann var ákærður fyrir morð i Marseilles 1931, og dæmdur i lifstiðarþrælkunarvinru. Hann var sendur á yfirfullu fangaskipi til Frönsku Guynöu — þar byrjuðu fifldjarfar flóttatilraunir hans. Alltaf náðist hann þó um siöir. Eftir að hafa verið i ein- angrun i 3 ár og 9 mánuði á meginlandi S-Ameriku var hann fluttur á Djöflaey. Þaðan átti að vera útilokað að flýja. En Papillon tókst að sigla burg á tveimur pokum fullum af kókos- hnetum, auðveld bráð fyrir há- karla. Ævisaga hans varð met- sölubók 1970 og siðar var gerð stórmynd byggð á lifshlaupi hans. Að lokum náðaði franska stjórnin hann svo fyrir hinn upprunalega glæp. D.B. Cooper (1926—) Það er ekki margt vitað um þessa gangandi þjóðsögu. 1971 fór Cooper um borð i þotu i Los Angeles, meðferðis hafði hann skjalatösku sem hann sagði að innihéldi sprengju. Hann krafðist þess að fá afhenta 200.000 dollara. Þetta var fyrsta auðgunartilraun þessarar tegundar. Hann skipaði vélinni að lenda i Seattle þar sem hann tók á móti fénu og fjórum fallhlifum og leyfði farþegunum að fara. Áhöfnin flaug siðan með hann i suðurátt. Lögreglumenn gættu allra flugvalla á vestur- ströndinni. Vélin var undir stöðugu eftirliti. Hann stökk út i fallhlif einhvers staðar yfir Washingtonfylki og siðan hefur ekki fundist tangur né tetur af honum. Embættismenn segja að hann hafi farist i skóginum, en ekkert lik hefur fundist og engin ummerki. Það sem enginn veit er aö D.B. Cooþer tapaði öllum pen- ingunum i vafasömum fjárfest- ingum og er nú á atvinnuleysis- bótum i Phoeniz i Arizonafylki. Hvaðan hefur Abbie Hoffmann þetta? Ronald Biggs (1930 -) 1963 rændu Ronnie Biggs og félagar póstlest I Englandi og stungu af með metupphæð, 7.3 milljónir dollara. Siöar á árinu upplýsti Scotland Yard málið, Biggs og félagar hans voru hand- teknir og settir i fangelsi. Þó .fannst mest litið af peningunum. Biggs strauk á ótrúlegan hátt úr rammgerasta fangelsi Englands og komst á endanum til Brasiliu. Þegar Bretar vildu fá hann fram- seldan þaðan átti hann von á barni með brasiliskri konu og sem föður væntanlegs brasilsk rikisborgara var ekki hægt að senda hann úr landi. Ensk eigin- kona hans gaf honum svigrúm til að giftast innfæddu eiginkonunni. Sex Pistols reyndu að fá Biggs til liðs við sig 1978 — sem aðalsöngv- ara. Hljómplata var gefin út og Biggs fékk hlutverk i kvikmynd. Um daginn var hann svo i sviðs- ljósinu á nýjan leik — en allt fór vel að lokum, a.m.k. fyrir hann. En lifið i Brasiliu virðist ekki vera svo ljúft... Richard Milhous Nixon (1913—) Nixonfæddist 9da janúar 1913 i Yorba Linda i Kaiiforniu — og dó daginn eftir... Hann komst upp með svo mikið og svo lengi að það er ekki annað hægt en að hafa hann með i upptalningunni. Þessi 37undi forseti Bandarikjanna og áreiöanlega sá athyglisverðasti er nú að snúa aftur pólitiskt séð, hannfer um og heldur ræður bæði i Bandaríkjunum og erlendis. Vegna atburða sem áttu sér stað i stjórnartiö Nixons mun hann verða fólki i fersku minni löngu eftir aö allir aðrir forsetar á þess- ari öld eru orðnir að neðanmáls- greinum i sögunni. Anonymus - NN Auðvitað eru þeir sem komast upp með mest gersamlega óþekktir. Þeir lesa þetta og hlæja, i þeirri öruggu fullvissu að i samanburði við þá eru allir ofan- taldir viðvaningar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.