Fréttablaðið - 12.03.2008, Qupperneq 6
MARKAÐURINN 12. MARS 2008 MIÐVIKUDAGUR6
F R É T T A S K Ý R I N G
B
andaríski auðkýfingurinn
Warren Buffett var í síðustu
viku krýndu auðugasti maður
heims, samkvæmt útreikning-
um bandaríska viðskiptatíma-
ritsins Forbes. Þetta er nokkur nýlunda
enda hefur milljarðamæringurinn Bill
Gates, annar stofnenda og stjórnarfor-
maður bandaríska tölvurisans Micro soft,
vermt sætið síðastliðin þrettán ár á meðan
Buffett og mexíkóski auðmaðurinn Carlos
Slim Helú hafa skipst á öðru og þriðja
sæti upp á síðkastið.
Eignir Gates liggja að mestu í hluta-
bréfum í Microsoft. Gengi þeirra hefur
fallið um fimmtán prósent eftir að fyrir-
tækið lagði fram tilboð í netleitarrisann
Yahoo og skýrir það sætaskiptin að mestu.
Auður Buffetts og Slims Helú hefur á
sama tíma vaxið hratt. Mexíkóinn fjár-
festir grimmt í fjarskiptafyrirtækjum í
Mið- og Suður-Ameríku en öldungurinn
Buffett í trygginga- og fjármálaþjónustu-
fyrirtækjum. Auður Buffetts er að mestu
festur í fjárfestingarfélaginu Berkshire
Hathaway, sem vex að því er virðist enda-
laust.
JÓN ÁSGEIR OG KRAKKINN Á FACEBOOK
Listi Forbes nær einungis yfir þá sem
skráðir eru fyrir einum milljarði Banda-
ríkjadala eða meira. Það jafngildir 68,6
milljörðum íslenskra króna miðað við
gengi dals á móti krónu á mánudag. Af
skiljanlegum ástæðum ná afar fáir Íslend-
ingar inn á hann en nokkrir standa í dyra-
gættinni.
Feðgarnir Björgólfur Thor og Björgólf-
ur Guðmundsson, ríkustu menn landsins,
ná inn á hann þrátt fyrir að nokkrar af
stærstu skráðu eignum þeirra hafi lækk-
að í verði. Björgólfur Thor situr í 307.
sæti listans en faðir hans í 1.014 sæti.
Athygli vekur að Jón Ásgeir Jóhann-
esson, stjórnar formaður Baugs Group,
er ekki á lista Forbes þótt áætlaðar
eignir hans nemi um 100 milljörðum
króna hið minnsta. Séu eignir hans lagð-
ar saman við eigur eiginkonu hans, Ingi-
bjargar Pálmadóttur, liggja þær senni-
lega í kringum 140 milljarðana í íslensk-
um krónum talið. Það jafngildir tæpum
tveimur milljörðum Bandaríkjadala. Sé
einungis tekið tillit til þeirra eigna sem
skráðar eru á Jón Ásgeir einan ætti hann
að lenda í sæti með sjö hundruð auðug-
ust einstaklingum í heimi. Í þeim hópi
er Mark Zuckerberg, stofnandi og for-
stjóri samfélagsvefsins Facebook. Hann
er 23 ára tvíburi, verður 24 ára í maí, og
yngsti milljarðamæringurinn á lista For-
bes. Eignir hans eru sagðar nema 100
milljörðum íslenskra króna. Á móti er
Jón Ásgeir nýorðinn fertugur – á afmæli
27. janúar og því vatnsberi.
NÆR KONULAUSIR Í ELDRI KANTINUM
Þriðjungur hundrað auðugustu einstakl-
inga í heimi á lista Forbes (32) eru Banda-
ríkjamenn. Á eftir koma nítján Rússar, tíu
Indverjar, sex Þjóðverjar og fimm Frakk-
ar. Tuttugu og átta milljarðarmæringar
koma frá sautján öðrum löndum um allan
heim. Ekkert þeirra er þó í Afríku.
Meðalaldur tíu ríkustu manna heims er
65,5 ár. Auðugasti maður listans er því
talsvert yfir meðaltalinu. Buffett er 77
ára – fagnar 78 ára afmælinu í enda ágúst.
Hann á hins vegar langt í aldursforsetann
á lista Forbes, bandaríska kartöflukóng-
inn John Simplot, sem varð 99 ára í byrj-
un janúar. Sá yngsti er sem fyrr stofn-
andi Facebook. Gúrúbræðurnir Sergey
Brin, 35 ára, og Larry Page, 34 ára, stofn-
endur netleitarrisans Google, eru hins
vegar yngstu auðkýfingarnir á topp 100.
Þeir verma sæti 32 og 33. Brin er skráður
fyrir 100 milljónum dala meira en starfs-
bróðir hans.
Engar konur eru í hópi tíu efnamestu
einstaklinga í heimi á lista Forbes. Ekki
er þær aðsópsmiklar þegar neðar dregur
á listann. Sú sem trónir efst á lista kvenna
er hin franska Liliane Bettencourt, dóttir
Eugenes Schüller, stofnanda snyrtivöru-
risans L’Oreal. Auður hennar nemur 22,9
milljörðum Bandaríkjadala og vermir hún
sautjánda sætið. Næstar á eftir henni
koma dætur, afkomendur og nánustu ætt-
ingjar Sam Waltons, stofnanda Wal-Mart,
stærstu verslanakeðju í heimi.
Ef frá er skilin ekkja námakóngsins
Andronico Luksic frá Chile – aldur hennar
er hvergi gefinn upp – eru 71,2 ár meðal-
aldur þeirra átta kvenna sem ná inn á lista
yfir 100 auðugustu einstaklinga í heimi.
Þrjár þeirra eru á níræðisaldri en fyrr-
nefndir afkomendur Waltons eru beggja
vegna fimmtugs.
Öldungurinn kippti „unglingnum“ úr efsta sæti
Bandaríska fjármálatímaritið Forbes krýndi öldunginn Warren Buffett auðugasta einstakling heims í síðustu viku og velti hann
spilafélaga sínum, yfirnerðinum Bill Gates, úr toppsætinu. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson rýndi í listann yfir hundrað ríkustu mann-
eskjur í heimi og komst að því að meðalaldurinn er hár og konurnar afar fáar.
Warren Buffett fæddist í borginni Omaha
í Nebraskaríki 30. ágúst árið 1930 og
hefur alið allan sinn aldur í heimabæn-
um. Buffett verður þessu samkvæmt 78
ára á þessu ári. Eins og fram kemur ann-
ars staðar á síðunni er hann síður en svo
í eldri kantinum í hópi ríkustu manna
heims.
Buffett er tvígiftur. Fyrri eiginkona
hans lést fyrir fjórum árum en þau höfðu
verið gift frá árinu 1952. Þau höfðu hins
vegar ekki búið saman frá því seint á átt-
unda áratug síðustu aldar en eiga saman
tvo syni og eina dóttur. Buffett giftist ást-
konu sinni að eiginkonunni genginni fyrir
tveimur árum.
Vegur Buffetts hófst fyrir alvöru árið
1962 þegar fjárfestingarfélag hans hóf að
kaupa bréf í bandaríska textílfyrirtæk-
inu Berkshire Hathaway. Markmiðið var
það sama og í dag – að kaupa bréf í fyrir-
tækjum sem Buffett taldi undir markaðs-
virði og ættu mikið undir sér. Síðan skyldi
halda þeim eins lengi og hægt væri. Hann
tók við forstjórastólnum átta árum síðar
og hefur setið þar alla tíð.
Öldungurinn hefur hins vegar sagt
kaupin þau verstu sem hann hafi gert.
Ekki tókst að snúa rekstrinum við og
breytti Buffett því fyrirtækinu smám
saman í fjárfestingarfélag undir sama
nafni. Hann hefur nú um nokkurra mán-
aða skeið leitað eftirmanns síns.
Þótt Buffett hafi löngum þótt aðhalds-
samur í fjármálum – hann hefur búið í
sama húsinu í rúma hálfa öld og með til-
tölulega lágar tekjur miðað við aðra for-
stjóra – hefur hann þótt afar gjafmildur
þegar kemur að góðgerðarmálum. Sem
dæmi ákvað hann um mitt ár 2006 að
gefa góðgerðar- og félagasamtökum 80
prósenta hlutafjáreignar sinnar í Berk-
shire Hathaway á næstu árum. Stærstur
hluti gjafarinnar rennur til sjóðs sem Bill
Gates og eiginkona hans reka. Sjóðurinn
berst gegn sjúkdómum og vinnur að auk-
inni menntun í þróunarríkjunum.
RÍKASTI MAÐUR HEIMS Warren Buffett, sem
verður 78 ára á árinu, hefur um nokkurra mán-
aða skeið leitað eftirmanns síns í forstjórastólinn.
MARKAÐURINN/AFP
Mynd af milljarðamæringi
T Í U R Í K U S T U *
Eignir*
Sæti** Nafn 2007 2006
1. (2) Warren Buffett 62 52
2. (3) Carlos Slim Helú 60 49
3. (1) Bill Gates 58 56
4. (5) Lakshmi Mittal 45 32
5. (14) Mukesh Ambani 43 20,1
6. (18) Anil Ambani 42 18,2
7. (4) Ingvar Kamprad 31 33
8. (62) KP Singh 30 10
9. (40) Oleg Deripaska 28 13,3
10. (15) Karl Albrecht 27 20
* Heimild: Forbes eignir í milljörðum dala
** Sæti á síðasta ári í sviga