Fréttablaðið - 12.03.2008, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 12.03.2008, Qupperneq 19
MARKAÐURINN 11MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2008 S K O Ð U N Björgólfur Thor Björgólfsson er núna í sæti 307 á lista Forbes yfir ríkustu menn heims. Hann hefur sjálfur lýst ferli sínum í nokkrum viðtölum og þar kemur fram að hann hafi nán- ast byrjað með tvær hendur tómar en sé nú einn ríkasti Íslendingurinn. Velgengni hans í fjárfestingum hefur verið mikil undanfarin ár og virðist hann hafa tekið réttar ákvarðanir á réttum tíma. Björgólfur Thor er fæddur árið 1967 og er sonur Björgólfs Guðmundssonar og Þóru Hallgrímsson. Faðir hans var framkvæmda- stjóri Gosan, sem framleiddi gosdrykki í vélum sem voru í gömlu Sanitas-verksmiðjunum. Árið 1993 var Gosan-verksmiðjan flutt í heilu lagi til Rússlands og sá Björgólfur Thor meðal ann- arra um flutninginn. Björgólfur Thor skipu- lagði markaðsstarf þar ytra og var árið 1994 ráðinn framkvæmdastjóri. Síðar eignuðust þeir feðgar ásamt Magnúsi Þorsteinssyni meiri- hluta í verksmiðjunni í Pétursborg. Samkvæmt bók Pálma Jónas sonar um ís- lenska milljarðamæringa var verksmiðjan ytra seld til Pepsi árið 1997. Í janúar sama ár höfðu sömu aðilar opnað nýja gosdrykkjaverksmiðju í Pétursborg sem framleiddi gos og áfenga gos- drykki. Síðar þróaðist framleiðslan í bjórverk- smiðju sem náði sterkri stöðu á Rússlands- markaði. Utan um eignarhaldið var svo Bravo Holding stofnað sem selt var til Heineken árið 2002. Lagði það grunninn að auðæfum feðganna og Magnúsar Þorsteinssonar. Um svipað leyti keyptu félagarnir ráðandi hlut í Landsbanka Íslands þegar bankinn var einkavæddur í nafni Samson. Samhliða hefur Björgólfur verið umfangsmikill í umbreyting- arfjárfestingum í gegnum félag sitt Novator. Hagnaðist hann gríðarlega við sölu á búlg- arska landssímanum BTC og EI Bank. Þá hefur hann fjárfest í nokkrum símafyrirtækjum, meðal annars í Póllandi, Finnlandi, Tékklandi og Grikklandi. Hann er stór eigandi í Straumi- Burðarási og gerði yfirtökutilboð í lyfjafyrir- tækið Actavis á síðasta ári. Þessar fjárfestingar hafa skapað Björgólfi Thor mikinn auð sem fleytir honum langt upp Forbes-listann. Eftir að hafa byrjað nánast með tvær hendur tómar árið 1993 eru eignir hans metar á um 3,5 milljarða dala samkvæmt Forbes. BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON Hann kallar sig umbreytingarfjárfesti, sem fjárfestir í fyrirtækjum, breytir rekstr- inum og selur síðar með hagnaði. S A G A N Á B A K V I Ð . . . B J Ö R G Ó L F T H O R B J Ö R G Ó L F S S O N Með tvær hendur tómar í Rússlandi

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.