Fréttablaðið - 07.04.2008, Blaðsíða 4
4 7. apríl 2008 MÁNUDAGUR
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
8°
9°
5°
8°
8°
9°
8°
5°
4°
10°
23°
19°
6°
8°
22°
8°
28°
14°
2
4Á MORGUN
8-13 m/s á Vestfjörðum
annars mun hægari
-1
MIÐVIKUDAGUR
A- og NA-10-20 m/s,
hvassast á Vestfjörðum
4
3
3
1
2
3
3
3
4
4
-1
9
9
6
6
1
1
1
5
3
5
5
-1
1
0
1
33
3
MILT Í DAG SVO
KÓLNAR HELDUR
Ef maður reynir að
átta sig á þróun
hitans í vikunni þá
er þokkalega milt
á landinu í dag
en síðan kólnar
nokkuð á morgun.
Síðan kemur lægð
upp að landinu á
miðvikudag með
hlýnandi veðri.
En á fi mmtudag
kólnar eindregið
og horfur á frosti
á föstudag og um
næstu helgi.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
JANFRÉTTISMÁL Unglingar sem nota
netið mikið eru líklegri til að hafa
íhaldssamari viðhorf til jafnrétt-
ismála en aðrir.
Þetta kemur fram í nýrri
rannsókn Þórodds Bjarnasonar,
prófessors við Háskólann á
Akureyri, og Andreu S. Hjálms-
dóttur, doktorsnema í félagsfræði
við University of British Col-
umbia, sem birtist í nýjasta
tölublaði alþjóðlega vísindatíma-
ritsins Sex Roles.
Athyglisvert þykir að unglingar
sem alist höfðu upp hjá einstæðu
foreldri eða heimavinnandi föður
voru líklegri til að styðja
jafnrétti í heimilisstörfum en
unglingar frá efnameiri heimilum
eða af erlendum uppruna. - þo
Unglingar og jafnréttismál:
Börn einstæðra
jafnréttissinnuð
BRUNI Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins var um ellefuleytið í
gærmorgun kallað að fjölbýlishúsi
í Ugluhólum 10 í Breiðholti. Logaði
þá eldur í þvottaherbergi í kjallara
hússins.
Greiðlega gekk að slökkva
eldinn og reykræsta húsið en
töluverðar skemmdir urðu vegna
reyks. Engum varð þó meint af.
Grunur leikur á að kviknað hafi í
út frá þurrkara í þvottahúsinu. - ovd
Kviknaði í út frá þurrkara:
Eldur í kjallara
fjölbýlishúss
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu handtók sjö
menn í Árbæjarhverfi í Reykja-
vík í gær vegna slagsmála.
Barst lögreglunni tilkynning
um slagsmálin en þegar hún kom
á staðinn neituðu mennirnir að
gefa upplýsingar um málið.
Mennirnir, sem eru af erlendum
uppruna, sögðust hvorki tala
íslensku né ensku en þegar
enginn þeirra gat framvísað
persónuskilríkjum ákvað lögregla
að handtaka þá og flytja á
lögreglustöð. Voru þeir þar
yfirheyrðir með aðstoð túlks og
sleppt að því loknu. Málið telst
upplýst. - ovd
Sjö menn handteknir:
Slagsmál í
Árbæjarhverfi
VESTMANNAEYJAR Jarðvegsvinna
vegna byggingar vatnsútflutn-
ingsverksmiðju í Vestmannaeyj-
um hófst í gærmorgun.
Í fyrsta áfanga verður byggt
500 fermetra hús en síðar er gert
ráð fyrir 2000 fermetra viðbygg-
ingu. Verður mest allt efni í húsið
flutt inn í einingum og sett saman
á staðnum. Er gert ráð fyrir að
allt efni í húsið verði komið til
Eyja í júní og að starfsemi í
verksmiðjunni hefjist í júlí. - ovd
Vatnsútflutningsverksmiðja:
Framkvæmdir
hafnar í Eyjum
FRÁ VESTMANNAEYJUM Byrjað var að
grafa fyrir grunni fyrirhugaðrar verk-
smiðju í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
BANDARÍKIN, AP Kvikmyndaleikar-
inn Charlton Heston lést á heimili
sínu í Los Angeles á laugardags-
kvöld 84 ára að aldri. Dánarorsök
er ókunn. Heston var þekktast-
ur fyrir leik sinn í kvikmyndinni
Ben Húr, en einnig gerði hann
hlutverkum Móses og Jóhannes-
ar skírara góð skil í öðrum kvik-
myndum sem gerðar voru eftir
biblíusögum. Heston var einnig
vel kunnur fyrir leik sinn í kvik-
myndinni Apaplánetan. Hann
var einnig áberandi baráttumað-
ur fyrir byssueign og gegndi
formennsku félags bandarískra
byssueiganda, NRA, frá árinu
1998 til 2003. - vþ
Stórleikari fellur frá:
Charlton Hest-
on látinn
SEM MÓSES Charlton Heston sést hér í
einu af sínum þekktustu kvikmyndahlut-
verkum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MENNING Uppi eru áform um að
koma á laggirnar safni um Stein
Steinarr á Nauteyri, skammt frá
æskustöðvum skáldsins sem eru í
Skjaldfannardal í Ísafjarðardjúpi.
„Okkur hefur borist erindi frá
áhugamönnum um slíkt safn þar
sem þeir falast eftir eignarhlut
sveitarfélagsins í félagsheimilinu á
Nauteyri til að nota undir þetta safn
og sveitarstjórn hefur tekið jákvætt
í það,“ segir Ásdís Leifsdóttir, sveit-
arstjóri Strandabyggðar.
„Okkur er umhugað um að það
geti opnað að einhverju leyti í ár á
aldarafmæli skáldsins,“ bætir hún
við. Líklegt má telja að áhugamenn-
irnir verði síðan að leita til Ásdísar
sveitarstjór sem sjálf lumar á verð-
mæti frá skáldinu.
„Það má geta þess svona til gam-
ans að þegar ég var fyrir margt
löngu að handleika ljóðabók Steins
sem afi minn, Hannes Stephensen,
hafði átt féll úr henni snepill með
stöku og á hann var letrað að senni-
lega væri þetta síðasta vísan sem
Steinn orti.“
Sveitarstjóranum vafðist ekki
tunga um tönn þegar hún var spurð
hvort hún myndi stökuna:
Lítinn hlaut ég yndisarð
á akri mennta og lista
en sáðfall mér í svefni varð
á sumardaginn fyrsta.
- jse
Áform sveitarstjórnar um að opna safn á Nauteyri:
Opna safn Steins við Djúp
STEINN STEINARR Í ár verða hundrað ár
liðin frá fæðingu hans.
ÞJÓÐLENDUR „Við áttum ekki von á
þessu eftir yfirlýsingar fjármála-
ráðherra á aðalfundi okkar og erum
ákaflega óánægð með þessar kröf-
ur,“ segir Örn Bergsson formaður
Landssamtaka landeigenda. Sam-
tökin sendu frá sér tilkynningu í
gær þar sem þau gagnrýna nýjustu
þjóðlendukröfur ríkisins á Norður-
landi sem birtar voru 28. mars síð-
astliðinn.
Svæðið sem um ræðir nær frá
Fnjóská í austri að Blöndu í vestri.
Landeigendum þykir of langt seilst
inn á þinglýstar
jarðir og segja
gagnaöflun rík-
isins ábótavant.
Þar vísa þeir til
orða Árna M.
Mathiesen fjár-
málaráðherra, á
aðalfundi sam-
takanna í febrú-
ar síðastliðnum,
þar sem hann
boðaði breytt vinnubrögð af hálfu
ríkisins í þjóðlendumálum. Nú telja
landeigendur að boðskapur ráð-
herrans hafi ekki skilað sér til mál-
flytjenda ríkisvaldsins eða fái þar
engan hljómgrunn.
„Hann talaði um að farið yrði
hægar í sakirnar og málin rannsök-
uð betur áður en kröfur yrðu lagðar
fram. Okkar lögmenn hafa farið
yfir þessar kröfur og sjá ekki á
þeim að gagnasöfnunin sé ítarlegri
en áður,“ segir Örn og bendir á að
fræðimenn hafi einnig sagt gagna-
öflun ábótavant. Þannig hafi ekki
verið farið í gegnum nema brot af
þeim skjölum sem varðveitt eru á
Árnastofnun og varða þjóðlendur.
Árni M. Mathiesen vísar því á
bug að yfirlýsingar hans síðan í
febrúar séu marklausar. Hann segir
að önnur vinnubrögð hafi verið við-
höfð við kröfugerðina nú en áður og
að komið hafi verið til móts við vilja
landeigenda. Þannig sé svæðið mun
minna en upphaflega var áætlað og
gagnaöflun hafi hafist fyrr en ella.
„Í málum sem þessum koma allt-
af upp deilumál. Fólk þarf hins
vegar að átta sig á því að úr þeim
fæst ekki skorið nema ríkið geri
kröfu fyrir óbyggðanefnd. Ef engin
krafa liggur fyrir er aldrei úrskurð-
að í álitamálunum,“ segir Árni.
Örn segir að vissulega sé krafan
mildari en til að mynda á svoköll-
uðu svæði 6 í Þingeyjarsýslu. „Þetta
er örlítið mildara en ekki nærri nóg
til að við getum sætt okkur við það,“
segir Örn. thorgunnur@frettabladid.is
Telja yfirlýsingar
ráðherra marklausar
Stjórn Landssamtaka landeigenda telur nýjar þjóðlendukröfur ríkisins á
Norðurlandi ekki í samræmi við fyrri yfirlýsingar fjármálaráðherra. Ráðherra
vísar því á bug og segir að komið hafi verið til móts við kröfur landeigenda.
ÁRNI M.
MATHIESEN
Hofsjökull
Afmörkun svæðis
Aðalkrafa ríkisins
um þjóðlendumörk
ÞJÓÐLENDUKRÖFUR FYRIR SVÆÐI 7
Akureyri
Skagafjörður Eyjafjörður
GENGIÐ 04.04.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
150,3984
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
74,21 74,57
148,44 149,16
116,70 117,36
15,644 15,736
14,599 14,685
12,453 12,525
0,7251 0,7293
121,45 122,17
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR