Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.04.2008, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 07.04.2008, Qupperneq 30
 7. APRÍL 2008 MÁNUDAGUR8 ● fréttablaðið ● híbýli - baðherbergi Baðherbergið á heimili sjón- varpskonunnar Ásdísar Olsen er upprunalegt og sjarme- randi. Baðherbergið, sem er uppruna- legt, er hannað af Stefáni Snæ- björnssyni sem byggði hús Ás- dísar í kringum 1970. Tækin eru blá og harla óvenjuleg. Baðið er niðurgrafið og flísalagt í hólf og gólf. „Það er svo stórt að dóttir mín og dótturdóttir, sem eru jafn gamlar, nota það fyrir sundlaug og leika sér þar tímunum saman,“ segir Ádís, sem vakið hefur at- hygli að undanförnu fyrir þátta- stjórn í Mér finnst ásamt Kol finnu Baldvinsdóttur á sjónvarpsstöð- inni ÍNN. Aðspurð segist Ásdís elska kraftmiklar sturtur. „Ég hafði meira að segja fyrir því að kaupa mér sturtuhaus í Bandaríkjunum en í honum er ekkert sparnaðar- element sem takmarkar vatns- flæðið,“ segir hún. Í baðinu eru fjórir veggfastir sturtuhausar og ein handsturta. Ásdís segist treysta mest á vatnið og notar því lítið af sápu eða aðrar snyrtivörur. „Ég nota engar sápur á börnin mín en set smáveg- is sjampó í hárið á mér. Annars kaupi ég allar mínar snyrtivörur í heilsubúðum þar sem ég kaupi í matinn. Húðin er stærsta líffæri líkamans og ég reyni sem minnst að eitra fyrir mér og mínum með utanaðkomandi efnum,“ útskýr- ir hún. Borðið undir baðvaskinum er hluti af gömlu eldhúsinnrétting- unni og sagaði Ásdís gat fyrir vaskinn. Fyrir ofan er voldugur spegill sem Ásdís keypti þegar hún var við nám í Bandaríkjunum. „Það er því ekkert mikið verið að spreða, en mér finnst þetta koma vel út,“ segir hún. Ásdís segir loks bláu skolskál- ina, sem er í sama stíl og önnur tæki á baðherberginu, einungis notaða til skemmtunar en dóttur- dóttir hennar og heimilishundur- inn Prins hafa mikið reynt að ná bununni sem kemur upp úr skál- inni. „Það eru ófáar stundirnar sem við höfum hlegið að þeim við þá iðju,“ segir Ásdís og hlær. - ve Bunur úr öllum áttum Baðið er sérlega stórt og þar fara börnin á heimilinu í sund. Ásdís Olsen með dætrum sínum þeim Brynhildi og Álfheiði og hundinum Prins. Fyrir aftan má sjá spegil sem Ásdís keypti þegar hún var við nám í Bandaríkjunum fyrir um fimmtán árum. Innréttingin, sem er úr organ pile-viði, var upphaflega í eldhúsinu. Bunurnar koma úr öllum áttum en fjórir sams konar hausar eru í baðinu. Handklæðastatíf og hengi geta sett sett framúr- stefnulegan stíl á baðher- bergið. Einföld svört stat- íf sem standa á gólfi eru stílhrein geymsla fyrir handklæði. Þau eru fram- leidd undir merkjum Arm- ani Casa. Hins vegar eru hankar hins sænska Jónas- ar Lindvall til í mörgum litum og útfærslum og setja fjörlegan svip á bað- herbergið. Hengi fyrir handklæðin Hankarnir hans Jónasar Lindvall eru eru til í hvítu, svörtu, gráu, bláu og appel sínugulu. Þessi frumlega handklæðagrind er frá Armani Casa. Þ orsteinn Guðmundsson leikari er þekktur fyrir mikinn húmor og kemur sífellt á óvart. Þessa dagana er mikið að gera hjá leikaranum þar sem hann vinn- ur nú að nýjum þætti sem ber heitið Sval- barði. Hann segir því gott að leggjast í heitt bað eftir vinnutörn, slaka á og hvíla lúin bein. Þá þykir honum afskaplega ró- andi að hlusta á vatnsrennslið í klósettinu og sturtar að eigin sögn reglulega niður í klósettinu meðan hann lætur fara vel um sig í baði. Ástæðuna segir hann einfaldlega þá að vatnsrennsli hafi róandi áhrif á fólk. Þar að auki kenni Feng Shui-fræði mönn- um að hafa rennandi vatn í til dæmis litl- um brunnum, inni á heimilum sínum. Vatns- rennslið uppfylli þá kröfu. Rennandi vatn er róandi Þorsteini finnst gott að slappa af í baði eftir vinnutörn. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Litlu hlutirnir sem við skreytum baðherbergið okkar með geta haft mikil áhrif á þann stíl og þá stemningu sem við viljum ná fram. Að skipta um spegil eða setja blóm inn á bað getur breytt miklu og með því að hafa litlu smáhlutina í stíl er hægt að koma fallegum heildar- svip á herbergið. Oft þarf ekki mikið til að breyta um stíl. Margt smátt gerir eitt stórt á baðherberginu Þessi fallega mósaíkskál fæst í The Pier í Kópavogi. Í henni er ilmkerti sem gaman er að kveikja á til að framkalla notalega stemningu inni á baðherbergi. Hún kostar 1.690 krónur og fæst í fleiri litum. Með því að hafa tannburstaglasið og sápupumpuna í stíl má breyta miklu á baðherberginu. Lítil hilla sem þessi getur einnig gert margt, hvort sem hún stendur eða hangir á vegg. Allt þetta fæst í Tekk Company. Svarta sápupumpan kostar 2.500 krónur og glasið 1.350 krónur. Gráa pumpan er á 3.700 krónur og glasið í stíl 1.950. Hillan kostar 5.250 krónur. Fallegt ilmkerti í fallegum vasa setur stílinn og stemninguna. Þetta kerti fæst í The Pier og kostar 1.490 krónur. Vasinn er úr endurunnu gleri og kostar 990 krónur. Þetta litla bretti má nota á marga vegu. Gott er að leggja blautar sápur á það þegar legið er í baðkarinu, svo má reisa það upp og nota undir lítil handklæði. Það fæst í Tekk Company og kostar 1.050 krónur. Jónas Lindvall er einn af þekktustu hönnuðum Svía. Ásdís kaupir allar sínar snyrtivörur í heilsubúðum. FRÉTTA BLA Ð IÐ /A RN ÞÓ R
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.