Fréttablaðið - 07.04.2008, Blaðsíða 47
NUDAGUR 7. apríl 2008 19
STEINUNN
VALDÍS ÓSKARS-
DÓTTIR BORG-
ARFULLTRÚI ER
FJÖRUTÍU OG
ÞRIGGJA ÁRA Í
DAG.
ANDREA
JÓNSDÓTTIR
ÚTVARPSKONA
ER FIMMTÍU OG
NÍU ÁRA Í DAG.
ARNGRÍMUR
JÓHANNSSON
FLUGSTJÓRI ER
SEXTÍU OG ÁTTA
ÁRA Í DAG.
„Ég veit nú ekki einu sinni hvað það þýðir eða hvaðan
nafnið mitt er upprunnið,“ segir Randver Þorláksson sem
heitir eftir afa sínum Randveri Hallsyni.
„Ver þýðir sjór held ég og einhver sagði mér einhvern-
tíman að nafnið þýddi sækonungur. Afi minn átti ættir að
rekja til Austfjarða svo hugsanlega kemur þetta þaðan.“
Randver segist ánægður með nafnið sitt í dag en hafi
ekki verið eins hrifinn af því þegar hann var strákur. „Ég var
uppnefndur ýmsum nöfnum. Oft kallaður Randi og gam-
all félagi minn kallaði mig Rana, ég var ekkert sérstak-
lega sáttur við það. Sumir kunningjar mínir segja Dveri svo
það eru ýmsar útgáfur til. Mér finnst best að láta kalla mig
Randver því ég heiti það nú.“
NAFNIÐ MITT RANDVER ÞORLÁKSSON
Ekkert sáttur við upp-
nefnin dveri og rani
Rauði Kross Íslands færði á dög-
unum, kvennasviðið Landspítala
góða gjöf. Þetta er nýjasta gerð
fæðingarrúms með rafdrifnum
stýringum. Með fjölgun fæðinga á
Landspítalanum var ljóst að aukin
þörf var á endurnýjun á fæðingar-
rúmum. Þessi gjöf kemur sér því
mjög vel. Kvennadeild Reykja-
víkurdeildar Rauða kross Íslands
hefur áður séð fæðingardeild
kvennasviðs á Landspítala fyrir
fæðingarrúmum og þannig reynst
henni traustur bakhjarl. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu frá
kvennasviði Landspítala.
Rúm frá Rauða krossi
GÓÐ GJÖF Starfsfólk Landspítala tók við nýjum fæðingarrúmum frá Kvennadeild
Rauða Kross Íslands í Reykjavík.
Dagur Andri Friðgeirsson varð
á dögunum unglingameistari
Reykjavíkur í skák. Dagur Andri
sem er 13 ára, tefldi við Hall-
gerði H. Þorsteinsdóttur 15 ára í
einvígi um unglingameistaratitil-
inn.
Þau voru jöfn í efsta sæti á
Unglingameistaramóti Reykja-
víkur sem fór fram á dögunum.
Einvígið fór fram í Skákhöllinni
skömmu fyrir helgi. Fyrst voru
tefldar tvær skákir með fimmtán
mínútna umhugsunartíma. Það er
sami tími og á mótinu. Viðureign-
inni lauk með sigri beggja með
hvítu og voru þau því enn jöfn.
Var þá umhugsunartíminn styttur
í tíu mínútur og náði Dagur Andri
að knýja fram sigur í báðum skák-
unum og ljúka þar með einvíg-
inu með 3-1 sigri. Dagur Andri er
fæddur í janúar 1995 og er sterk-
asti skákmaður landsins í sínum
aldursflokki. Verðlaun voru af-
hent af mótsstjóranum Óttari
Felix Haukssyni formanni Tafl-
félags Reykjavíkur.
Unglingameistari
Reykjavíkur í skák
STERKUR SKÁKMAÐUR Dagur Andri Frið-
geirsson tók við verðlaunum eftir einvígi
við Hallgerði H. Þorsteinsdóttur. Teflt var
í Skákhöll Reykjavíkur.
Kvennasögusafnið leitar
eftir nöfnum stúlkna sem
voru á myndum er fylgdu
Teofani-sígarettum á ár-
unum 1929 og 1930. Safn-
ið á allmargar ómerkt-
ar myndir og biður les-
endur Fréttablaðsins um
aðstoð. Ef einhver ber
kennsl á stúlkurnar á
myndunum er hann beð-
inn að hafa samband við
Kvennasögusafnið í síma
525-5779 eða í tölvupósti
á netfangið
audurs@bok.hi.is
Þekkir einhver þessar stúlkur?
AFMÆLI