Fréttablaðið - 07.04.2008, Page 52
24 7. apríl 2008 MÁNUDAGUR
folk@frettabladid.is
> TÍSKA OG BÍÓ
Rihönnu hefur gengið
allt í haginn á síðustu
misserum. Nú vill
hún bæta enn frekar
við sig og senda frá sér
tískulínu, eins og önnur
hver Hollywood-stjarna virð-
ist gera þessa dagana. Þar að
auki sagði söngkonan nýlega
í viðtali að hún hefði áhuga á
að reyna fyrir sér í kvikmynda-
bransanum, sem er ekki heldur
óþekkt í henni Hollywood.
Veðbankar fara nú mikinn í spekúleringum um
hver verði ofan á í baráttunni um toppsætið í
Eurovision í ár. Þeir eru þó mun fleiri sem spá í
spilin fyrir átökin í Belgrad í maí, og samtök
áhugamanna um Söngvakeppni evrópsku sjón-
varpsstöðvanna í álfunni keppast nú við að halda
skoðanakannanir hjá sínum liðsmönnum.
Alls státa 24 lönd í Evrópu af samtökum sem
teljast til OGAE – Organisation Générale des
Amateurs de l’Eurovision, en Ísland er ekki í
þeirra hópi. Samtökin í hverju landi fyrir sig munu
standa fyrir könnun meðal liðsmanna, sem gefa
lögum ársins einkunn samkvæmt Eurovision-
kerfinu. Hingað til eru það bara Spánn og Belgía
sem hafa sent frá sér niðurstöður úr könnunum, og
samkvæmt þeim verður það sænska söngkonan
Charlotte Perelli sem fer með sigur af hólmi í
Belgrad, en hún vann einnig árið 1998 þegar hún
skaut Selmu okkar svo naumlega ref fyrir rass. Á
hæla hennar fylgir Paolo Meneguzzi fyrir Sviss og
í þriðja sæti er Sirusho frá Armeníu.
Ísland vermir sem stendur ellefta sætið, með
þau fjögur stig sem við fengum í kosningu
Spánverja. Samkvæmt esctoday.com var Euro-
bandið ekki heldur langt frá því að fá stig frá
belgísku aðdáendunum og því allsendis ekki öll
von úti enn um hylli leikmanna í Evrópu.
Áhugamenn spá Svíþjóð sigri
CHARLOTTE PERELLI Áhugamönnum um Eurovision í
Evrópu þykir líklegt að hún fari með sigur af hólmi í annað
sinn í ár.
NORDICPHOTOS/GETTY
Hljómsveitirnar B. Sig og Mood
spila á Organ á fimmtudagskvöld.
Þessar tvær hljómsveitir eiga það
sameiginlegt að njóta sín
sérstaklega vel á tónleikum þar
sem stemning og nálægð við
áheyrendur er aðalatriði. Nokkur
samhljómur er í nálgun sveitanna
á tónlist sinni en segja má að
kraftur og einlægni séu aðals-
merki beggja.
B. Sig gaf út plötuna Good
Morning Mr. Evening á síðasta ári
sem fékk góða dóma. Mood var
lengi vel leiðandi í hinni hógværu
íslensku blússenu og spilaði þá
mest hefbundinn blús eftir gömlu
meistarana. Hljómsveitin hefur
undanfarið einbeitt sér að eigin
tónlist sem er meira í ætt við
rokk. Tónleikarnir hefjast
klukkan 21.00 og kostar 1.000 kr
inn.
Nálægð við
áheyrendur
B. SIG Bjarki Sigurðsson er forsprakki
hljómsveitarinnar B. Sig.
Leikararnir Ving Rhames
og Bruce Willis, sem
léku saman í Pulp
Fiction, leiða hesta sína
saman á ný í
vísindatryllinum
The Surrogates.
Tökur á myndinni,
sem er byggð á
myndasögu,
hefjast síðar í
mánuðinum.
Myndin gerist í
samfélagi þar sem
mannfólk lifir
áhættulausu lífi
með aðstoð
vélmenna sem eru
fullkomnar
útgáfur af því
sjálfu. Rhames
leikur náunga
sem er ósáttur
við vélmennin
og hefur upp- reisn gegn
þeim. Willis fer aftur á móti með
hlutverk lögreglu sem rannsakar
morð sem framin hafa verið.
Leika saman
í vísindatrylli
VING RHAMES Leikarinn Ving Rhames
leikur á móti Bruce Willis í The Surr-
ogates.
Leikaraparið Jörundur
Ragnarsson og Dóra Jó-
hannsdóttir bregða sér í
hlutverk hjóna í sýningu
Þjóðleikhússins á verkinu
Þeim ljóta, eftir Marius von
Mayenburg. Það er hvorki
í fyrsta né síðasta skiptið
sem þau leika saman.
„Þetta gengur bara eins og í
sögu,“ svarar Dóra Jóhannsdótt-
ir, spurð um samstarf hennar og
Jörundar í Þeim ljóta sem frum-
sýndur var á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins á laugardag.
Hún og Jörundur eru enda þaul-
reynd í því að vinna saman. „Við
vorum náttúrulega bekkjarfé-
lagar í leiklistarskólanum, og
lékum saman í Næturvaktinni
líka, svo við þekkjum þetta
alveg,“ útskýrir Jörundur.
Í Næturvaktinni féll það einnig í
þeirra hlut að leika kærustupar,
en það samband fór þó reyndar
ekki svo farsællega að enda í
hjónabandi, eins og aðdáendur
sjónvarpsþáttanna muna eflaust.
Sambandið í Þeim ljóta gengur
ekki heldur alveg snurðulaust
fyrir sig, því eins og Dóra bendir
á leikur hún bæði eiginkonu Jör-
unds og sjötíu og þriggja ára
gamalt viðhald hans. Þar að auki
mætti segja að skortur á fegurð
hrjái sambandið, enda fjallar
leikritið um mann sem er mein-
að að fara á ráðstefnu á vegum
fyrirtækis síns sakir ljótleika.
„Hann hefur sem sagt gengið í
gegnum allt lífið án þess að vita
það að hann sé forljótur,“ útskýr-
ir Dóra, og Jörundur bætir við,
„Hann þarf þá að grípa til
örþrifaráða sem breyta honum
og lífi hans mikið.“ Ástandið er
svo slæmt að „konan hans horfir
bara í vinstra augað á honum til
að byrja með,“ að sögn Dóru.
Spurð hvort þau leiti ekki djúpt í
eigin reynslubrunn hvað það
varðar skellir parið upp úr. „Ég
vona ekki,“ svarar Jörundur, og
Dóra er ekki síður fljót að svara:
„Ég þori að horfa í bæði.“
Frekara samstarfs þeirra er ekki
langt að bíða, því Ég og vinir
mínir, leikhópur sem þau Jör-
undur og Dóra hafa stofnað
ásamt einmitt vinum sínum,
hyggst setja á svið dansleikhús-
verk í lok árs. „Við fáum styrk
frá menntamálaráðuneytinu til
að setja þetta upp í Hafnarfjarð-
arleikhúsinu. Þetta er góð blanda
af dönsurum, performerum og
tónlistarmönnum sem ætla að
setja upp spunaverk,“ útskýrir
Dóra. Auk hennar og Jörundar
skipa hópinn leikaraparið Frið-
rik Friðiksson og Álfrún Helga
Örnólfsdóttir, Gísli Galdur Þor-
geirsson tónlistarmaður, Mar-
grét Bjarnadóttir dansari og
Friðgeir Einarsson, nemi í fræð-
um og framkvæmd við leiklist-
ardeild Listaháskólans.
sunna@frettabladid.is
Þaulreynd í paraleik
PAR Í LÍFI OG LEIK Parið Jörundur Ragnarsson og Dóra Jóhannsdóttir hafa leikið
ansi misheppnað kærustupar í Næturvaktinni og spreyta sig bæði á hjónabandi og
framhjáhaldi í Þeim ljóta, sem er frumsýndur í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Úti var nístingskuldi og fólk var
nokkuð lengi að smala sér inn á
Nasa þetta ágæta kvöld. Skakka-
manage hóf leikinn en sveitin hefur
líklegast aldrei verið eins þétt og nú
um stundir. Sveitin byrjaði á þrem-
ur nýjum lögum sem verður líkleg-
ast að finna á væntanlegri breið-
skífu. Lögin virkuðu örlítið þyngri
og á margan hátt ekki eins lág-
stemmd og það sem áður hefur
heyrst frá Skakkamanage. Gaman
verður að fylgjast með framhald-
inu.
Low-liðar hikuðu lítið við hlutina
og voru fljótir upp á svið eftir að
Skakkamanage hafði lokið við að
kynda undir áhorfendum. Sviðs-
mynd var eins mínímalísk og hugs-
ast getur og tónaði ágætlega við
tónlistina sem seinna fékk að
hljóma. Sveitin labbaði hógvær inn
á sviðið og aðalmaðurinn, Alan
Sparhawk, kastaði kveðju til áhorf-
enda frá Duluth í Minnesota, heima-
bæ Low (og Bobs Dylan).
En þá komum við að sígildu
vandamáli varðandi lágstemmda
tónlist og Nasa en þetta tvennt virð-
ist einfaldlega ekki geta farið
saman. Hávær kliður skapaðist á
löngum köflum og áhorfendurnir
sjálfir létu óstýrilega. Fólk virkaði
óþreyjufullt og veitti lögunum, sem
flest voru af nýjustu plötu sveitar-
innar, Drums and Guns, litla athygli
og virtist mun frekar komið á Nasa
til endurvekja fornar minningar
eldri platna. Auðveldara hefði verið
að framkalla slíkt heima með kerta-
ljósum og rólegheitum en Low var
hingað komin á allt öðrum forsend-
um.
Ekki verður tekið af Low að hún
skilaði sinni dagskrá feikivel. Alan
var óaðfinnanlegur í flutningi
sínum og fór oft og tíðum hamför-
um á gítarnum. Betri helmingurinn,
Mimi Parkar, var síðan sjarmerandi
með sína ótrúlegu rödd fyrir aftan
eina sneriltrommu og eina gólf-
trommu sem framkallaði oft ótrú-
lega fallega og djúpa tóna.
Low sannaði að hún er framúr-
skarandi sveit sem maður ber
ómælda virðingu fyrir. Þetta kvöld
gerði hún margt rétt en réði hins
vegar á margan hátt ekki við
aðstæður.
Steinþór Helgi Arnsteinsson
Hin eilífa barátta
TÓNLEIKAR
Low
Nasa 4. apríl
★★★
Fínir tónleikar með goðsagnkenndri
hljómsveit en upplifunin hefði mátt
vera sterkari.
46 DAGAR TIL STEFNU