Fréttablaðið - 07.04.2008, Blaðsíða 56
28 7. apríl 2008 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Skagamaðurinn Stefán Þór Þórðarson kom aftur heim til Íslands
um helgina eftir að hafa farið í mikla fýluferð til Svíþjóðar. ÍA
hafði komist að samkomulagi við Norrköping um að lána Stefán
til félagsins út aprílmánuð en ekkert hefur orðið af því að Stefán
spilaði.
„Ég var búinn að vera úti síðan 20. mars. Þetta er búið að
vera ömurlegt. Það átti allt að vera klárt þegar ég fór út en
það reyndist ekki raunin. Málið er þannig að í reglunum
stendur að það megi skipta um félag þrisvar sinnum en
aðeins spila með tveimur félögum sem er nákvæm-
lega það sem ég er að gera. FIFA túlkar málið aftur
á móti þannig að ÍA sé tvö félög og því mætti ég
ekki leika með þeim aftur ef ég spilaði með Norr köp-
ing. Þetta skiljum við engan veginn,“ sagði Stefán en
hann segir að sænska knattspyrnusambandið hafi bent
FIFA á fordæmi fyrir slíku.
„Svíarnir bentu á að Henrik Larsson hefði farið til Man.
Utd. og komið aftur til baka. Þá fengu enska og sænska
sambandið reyndar ávítur en hvað er það? FIFA hefur
verið beðið um rökstuðning fyrir þessari túlkun en það berst bara
ekkert svar frá alþjóðasambandinu,“ sagði Stefán.
Skagamenn og sænska knattspyrnusambandið eru mjög
ósátt við að KSÍ hafi farið með málið beint til FIFA í stað þess
að afgreiða málið beint á milli sambanda.
„Við vonuðumst eftir því að KSÍ og sænska samband-
ið leystu málið sín á milli en KSÍ fór til FIFA þar sem
menn eru fæddir til þess að búa til vandamál. Í tilfelli
Larssons voru það bara samböndin sem komu sér
saman um að leysa málið á sinn hátt. Það voru
algjör mistök hjá KSÍ að fara með málið til FIFA og
við erum mjög fúlir. Í versta falli hefðu samböndin
fengið ávítur sem er bara gult spjald. Svo er annað
að ef það er glufa til að gera þetta í lögunum, af
hverju er FIFA þá ekki búið að breyta reglunum?“
sagði Stefán ósáttur en hann segir Svíana ekki hafa
gefist upp. Leysist málið síðan á næstu dögum
mun hann fara aftur utan og spila með Norrköping út
mánuðinn.
SKAGAMAÐURINN STEFÁN ÞÓR ÞÓRÐARSON: KOMINN HEIM AFTUR EFTIR FÝLUFERÐ TIL SVÍÞJÓÐAR
Algjör mistök hjá KSÍ að fara með málið til FIFA
KÖRFUBOLTI Grindavík tekur á
móti Snæfelli í kvöld í fyrsta leik
undanúrslitaeinvígis liðanna í
Iceland Express-deild karla. Snæ-
fellsliðið er örugglega ekki óska-
mótherji fyrir Grindavík því það
er annað tveggja liða sem Grinda-
vík hefur ekki náð að vinna í
vetur en hitt er lið Njarðvíkur.
Auk þess gekk Hólmurum vel
að stöðva fyrirliða Grindavík-
ur, Pál Axel Vilbergsson, sem
hefur átt frábært tímabil. Páll
Axel var með lægsta framlagið
á móti Snæfelli í vetur af öllum
tólf liðum deildarinnar en gegn
Snæfelli skilaði hann „bara“ 11,5
framlagsstigum í leik.
Páll Axel skoraði 15,0 stig í leik
(23,2 gegn hinum 11), hitti úr 37,9
prósent skota sinna (49,4 pró-
sent) og 31,6 prósent þriggja stiga
skota sinna (42,5 prósent) í tveim-
ur tapleikjum á móti Snæfelli.
Nú er að sjá hvort Páll Axel
verði búinn að finna leiðir fram
hjá Snæfellsvörninni en leikurinn
hefst klukkan 20.00 í kvöld í Röst-
inni í Grindavík. - óój
Grindavík gegn Snæfelli:
Snæfellsgrýla
hjá Grindavík
PÁLL AXEL VILBERGSSON Hefur ekki
fundið sig gegn Snæfelli.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
HANDBOLTI Hægri hornamaðurinn
Hjörtur Hinriksson yfirgefur
herbúðir Fram í sumar og heldur
í heimahagana til FH.
Hjörtur er uppalinn FH-ingur
sem gekk í raðir Fram fyrir
tveimur árum. FH vann 1.
deildina með miklum yfirburðum
í vetur og þetta gamla handbolta-
stórveldi ætlar að festa sig í sessi
meðal þeirra bestu næsta vetur.
- hbg
Hjörtur Hinriksson:
Aftur í heima-
hagana
HJÖRTUR HINRIKSSON Spilar með FH á
næstu leiktíð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FRJÁLSAR Blikinn Kári Steinn
Karlsson sló um helgina 32 ára
gamalt Íslandsmet Sigfúsar
Jónssonar úr ÍR í 10 þúsund
metra hlaupi.
Gamla metið var 30:10,0
mínútur en Kári Steinn hljóp á
29:28,05 mínútum en metið setti
hann á frjálsíþróttamóti sem
fram fór í Kaliforníu í Bandaríkj-
unum. - hbg
Kári Steinn Karlsson:
Sló 32 ára gam-
alt Íslandsmet
> Slakur dagur hjá Birgi Leifi
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson náði ekki að fylgja
eftir frábærum þriðja hring á Estorial-mótinu í Portúgal
í gær. Birgir lék á 77 höggum í gær eða sex höggum yfir
pari en hann byrjaði daginn á átta höggum undir pari.
Birgir Leifur féll um 40 sæti á lokadeginum og endaði
í 60.-66. sæti. Fyrri níu holurnar
í gær fór Birgir á 37 höggum en
slæm sjötta hola sem hann fór
á þreföldum skolla
kostaði sitt.
HANDBOLTI Ótrúlegu tímabili
GUIF lauk í gær þegar meistarar
Hammarby slógu liðið út úr
úrslitakeppninni með eins marks
sigri í oddaleik.
Hammarby leiddi 17-11 í
hálfleik en GUIF jafnaði 18-18 og
var leikurinn æsispennandi allt til
enda. GUIF fékk færi á að jafna
leikinn í lokin en síðasta skotið
var varið.
Kristján Andrésson hefur náð
ótrúlegum árangri með GUIF og
var á dögunum kosinn þjálfari
ársins í sænsku deildinni. Liðið er
skipað kornungum leikmönnum
og enginn átti von á þessum
árangri. Með liðinu leikur yngri
bróðir Kristjáns, Haukur, en hann
lék vel í gær og skoraði fjögur
mörk. - hbg
Sænski handboltinn:
GUIF úr leik
SUND Erla Dögg Haraldsdóttir úr
ÍRB fór hreint á kostum í Laugar-
dalslauginni um helgina á Íslands-
meistaramótinu í 50 metra laug.
Hún setti fjögur Íslandsmet og
náði tveimur Ólympíulágmörk-
um.
„Ég er verulega ánægð og get
ekki neitað því að árangurinn er
framar vonum,“ sagði Erla Dögg
við Fréttablaðið.
„Ég hafði stefnt á að ná Ólympíu-
lágmarki í 200 metra fjórsundi en
daginn á undan náði ég lágmark-
inu í 100 metra bringusundi. Það
var mjög óvænt og ég trúði varla
hvað hefði gerst. Hugsaði bara:
„Ég er kominn til Peking, hvað á
ég eiginlega að gera í fjórsund-
inu,“ sagði Erla Dögg hlæjandi en
hún keppti í fimm greinum og
setti Íslandsmet í fjórum þeirra.
Hún segir að tilfinningarnar
hafi borið sig yfirliði er hún áttaði
sig á því að hún væri á leið til Pek-
ing í sumar. „Tilfinningin var rosa-
lega góð og ég hreinlega grét af
gleði og brosti allan hringinn,“
sagði Erla Dögg sem fer í það
fljótlega að setja upp æfingaáætl-
un fyrir Ólympíuleikana.
„Við þurfum að skoða hvaða mót
ég eigi að fara á úti enda engin
mót hér heima. Ég verð líka að
keppa við stelpur sem synda á
svipuðum hraða og ég,“ sagði Erla
Dögg sem er að útskrifast úr skóla
í maí. „Það er allt æðislegt þessa
dagana. - hbg
Erla Dögg Haraldsdóttir stal senunni á Íslandsmeistaramótinu í 50 metra laug og tryggði sér ferð til Peking:
Grét af gleði þegar ég náði Ólympíulágmarkinu
ÓLYMPÍUFARI Erla Dögg Haraldsdóttir var eðlilega mjög kát með að hafa náð
Ólympíu lágmörkum um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI ÍR kom sér í þægilega
stöðu er liðið sigraði Keflavík á
útivelli í kvöld 87-92 í framlengd-
um æsispennandi leik í undan-
úrslitum Iceland Express deildar
karla í kvöld.
Þegar aðeins þrjár mínútur voru
liðnar af leiknum þurfti Keflavík
að taka leikhlé því staðan var orðin
2-10 fyrir ÍR. Leikhlutinn jafnað-
ist svo og leiddi Keflavík eftir
þann fyrsta, 18-16. Keflavík komst
svo fljótlega í 28-18 en ÍR-ingar
jöfnuðu leikinn 28-28 þegar annar
leikhluti var rúmlega hálfnaður.
Breiðhyltingar létu ekki þar við
sitja heldur leiddu í hálfleik 38-42
eftir virkilega skemmtilegan fyrri
hálfleik.
Þriðji leikhluti hófst einnig með
látum og skiptust liðin á að setja
niður hvert þriggja stiga skotið á
fætur öðru. ÍR-ingar voru ekkert á
því að leyfa heimamönnum og
stjórna hraðanum og áttu svör við
flestum aðgerðum heimamanna.
Liðin voru að berjast fyrir hverj-
um einasta bolta og ekkert var
gefið en þegar þrír leikhlutar voru
að baki leiddi ÍR áfram og með
tveim stigum, 61-63.
Keflavík var ekki lengi að jafna
leikinn í lokaleikhlutanum og svo
komast yfir í 73-69 þegar fimm
mínútur voru eftir af leiknum.
Hafi spennan verið mikil fram að
þessum tíma þá var hún geðbiluð á
þessum lokamínútum. Þegar tvær
mínútur voru eftir af leiknum var
staðan 77-73 fyrir Keflavík og ÍR-
ingar alls ekki búnir að játa sig
sigraða, eiginlega mjög langt frá
því. Þegar aðeins 8 sekúndur voru
eftir af leiknum var staðan 78-76
fyrir Keflavík og átti ÍR innkast
við miðlínuna. Nate Brown gerði
sér lítið fyrir og setti niður körfu
um leið og lokaflautið gall og
tryggði ÍR framlengingu.
Það var boðið upp á sömu dram-
atíkina og í venjulegum leiktíma í
framlengingunni. Keflavík byrj-
aði aðeins betur en ÍR tók við
keflinu þegar ein og hálf mínúta
var eftir af framlengingunni og
leiddi 83-85.
Þegar þrjátíu sekúndur voru
eftir af framlengingunni var stað-
an 85-87 fyrir ÍR og voru gestirnir
einnig með boltann. Keflavík náði
ekki að komast nær ÍR-ingum og
sigruðu gestirnir, lönduðu frábær-
um sigri, 87-92.
Hreggviður Magnússon leik-
maður ÍR var að vonum kátur eftir
leik en passaði sig á yfirlýsingun-
um í þetta sinn.
„Maður er auðvitað virkilega
sáttur með þennan sigur en hann
kom mér í raun ekkert á óvart. Við
erum bara með hörkulið sem getur
unnið hvaða andstæðing sem er og
við hræðumst engan. En staðan er
bara 1-0 þannig að ég sleppi yfir-
lýsingunum í bili,“ sagði Hregg-
viður kampakátur í leikslok.
Ekki fékkst viðtal við leikmenn
Keflavíkur. - höþ
Sleppi yfirlýsingum í bili
Hinn yfirlýsingaglaði ÍR-ingur, Hreggviður Magnússon, dró úr yfirlýsingagleð-
inni í gær þó svo ÍR hefði lagt Keflavík í æsispennandi og framlengdum leik í
Sláturhúsinu í Keflavík. Hreggviður segir ÍR geta unnið hvaða lið sem er.
SIGURREIFUR Ómar Sævarsson og félagar hans í ÍR fögnuðu fræknum sigri á Keflavík
í Sláturhúsinu í gær. MYND/VÍKURFRÉTTIR
KEFLAVÍK-ÍR 87-92
Stig Keflavíkur: Bobby Walker 25 (7
stoðs.), Arnar Freyr Jónsson 18, Anth-
ony Susnjara 14 (12 frák.), Magnús
Gunnarsson 9, Tommy Johnson 8,
Jón Nordal Hafsteinsson 6, Sigurður
Þorsteinsson 4, Gunnar Einarsson 3.
Stig ÍR: Tahirou Sani 19 (8 frák.),
Nate Brown 17 (11 frák.), Hreggviður
Magnússon 15 (8 frák.), Sveinbjörn
Claessen 11, Ómar Sævarsson 10,
Eiríkur Önundarson 9, Steinar Arason
9, Ólafur Jón Sigurðsson 2.