Fréttablaðið - 07.04.2008, Page 64

Fréttablaðið - 07.04.2008, Page 64
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þráins Bertelssonar Í dag er mánudagurinn 7. apríl, 98. dagur ársins. 6.23 13.30 20.38 6.03 13.15 20.28 www.toyota.is ÍS L E N S K A S IA .I S T O Y 4 02 16 0 3/ 08 Toyota Kópavogi Nýbýlavegi 4 Kópavogur Sími: 570-5070 Toyota Akureyri Baldursnesi 1 Akureyri Sími: 460-4300 Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 Reykjanesbær Sími: 420-6600 Toyota Selfossi Fossnesi 14 Selfoss Sími: 480-8000 Toyota Austurlandi Miðási 2 Egilsstaðir Sími: 470-5070 RAV4 - alveg nýr heimur RAV4 er bíll sem boðar nýja tíma, nýjar áherslur, nýjar leiðir. Hann er ríkulega búinn staðalbúnaði og fæst með „Integrated Active Drive System“ sem eykur til muna öryggi og akstursánægju. Við hikum ekki við að fullyrða að þú færð meira út úr lífinu á nýjum RAV4, hvort sem er innanbæjar eða úti í náttúrunni. Straumlínulöguð yfirbygging og fjöldi tækninýjunga gera RAV4 fágaðri, fjörugri og þróaðri en nokkru sinni fyrr. Fjöldi útfærslna er í boði, þar á meðal hin íburðar- mikla RAV4 VX sem teflir saman framúrskarandi snerpu og afburðaþægindum í akstri svo að hefðbundin skilgreining á smájeppa á ekki lengur við. Og tómstundir með fjölskyldunni fá líka allt aðra merkingu. Komdu og reynsluaktu RAV4 - alveg nýr heimur. Verð frá 3.720.000 kr. Allt sem þú ætlaðir að gera í fyrra gerirðu tvisvar í vetur Trúlega er ég að ganga í gegn-um einhvers konar breytinga- skeið enn einu sinni – en þau eru orðin fleiri en hægt er að telja upp í stuttum bakþanka. Líkamlega eru þau svipuð hjá mér og flestum öðrum. Það eru hin andlegu breyt- ingaskeið sem ég er smeykur um að séu fleiri en gengur og gerist. Ég hef verið Heimdellingur og alþýðubandalagsmaður og svo framsóknarmaður, alveg þar til um morguninn þegar ég frétti að Framsóknarflokkurinn væri þeirr- ar skoðunar að Bandaríkjaher þyrfti endilega að gera innrás í Írak með tilheyrandi blóðsúthell- ingum og djöflagangi og stuðn- ingsyfirlýsingu frá Íslandi. STUNDUM er ég þeirrar skoð- unar að allir stjórnmálaflokkarnir séu nytsamlegir, jafnvel nauðsyn- legir. Stundum finnst mér sami rassinn vera undir þeim öllum og þeir mættu fara í fúlan pytt mín vegna. Nú um stundir er hin pólit- íska staða mín sú að höfuðið á mér hallast til hægri en hjartað er svo sem hálfa spönn vinstra megin við miðju. ÉG HEF VERIÐ bjartsýnn, jákvæður, trúgjarn, glaðlyndur, þunglyndur, neikvæður og svart- sýnn. Ég hef verið trúleysingi og trúaður og núna í augnablikinu er ég þeirrar skoðunar að það hafi voða lítið upp á sig að þrefa um trúmál fyrr en allir eru orðnir sammála um hvað átt er við nákvæmlega með orðinu „Guð“. Eiginlega er eina skoðun mín sem hefur aldrei breyst sú að maður eigi að vera góður við börn og dýr og þá sem eru minnimáttar. BREYTINGASKEIÐIÐ sem ég er að ganga í gegnum felst í því að mér finnst alltaf minna og minna um fleira og fleira. Ég skil til dæmis ekki að fullorðið fólk skuli leigja sér flugvél til að fljúga til Búkarest til að halda því fram að það sé til blessunar fyrir ættbálka í Afganistan að senda á þá amer- íska og evrópska stríðsmenn til að kenna þeim að vera til friðs. Þá skil ég ekki heldur hvernig nokk- ur Reykvíkingur getur haft skyn- samlega skoðun á því hvar land- svæðið Makedónía byrji og endi. Og allra síst skil ég hvernig nokk- ur lifandi manneskja, hvað þá heil þjóð, getur kært sig um að hafa stuðning frá delum á borð við Róbert Gabríel Múgabe til að kom- ast í Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna. En þetta gengur vonandi yfir. Breytingaskeið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.