Tíminn - 11.10.1981, Page 5
Sunnudagur 11. október 1981
5
■MuHi sm
■ Október-búö Kommúnistasamtakanna viö Frakkastig
er hún dregin niður af öskutunn-
unni. Svona gengur þetta fyrir sig
um hriö, allt þar til aö leiötogarn-
ir byltingarvöxnu eru keyröir á
brott i Svartri-Mariu, kannski
ásamt slæðingi af menntaskóla-
krökkum, sem hafa gert sig seka
um aö kasta einhverju haröara en
eggi-
Þess má geta aö kona sem bjó á
hanabjálka andspænis sendiráð-
inu sætti alltaf lagi að kasta ein-
hverju vökvakenndu yfir óróa-
seggina.
Hugsun
Maós formanns
KSML, Kommúnistasamtökin
marxistarnir-leninistarnir, hétu
samtök, sem lögöu sérstakan
átrúnaö á kinversku byltinguna
og hugsun Maós formanns. Enn-
fremur töldu þau aö Stalin heföi
veriö stakt góömenni sem geröi
fátt eitt aö nauösynjalausu. Aftur
á móti snerust þessir maóistar
öndveröir meö Kinverjum á móti
núverandi valdhöfum i Sovét og
heimsyfirráöastefnu þeirra,
fundu þar snertiflöt viö Matthias
Moggaritstjóra.
Kommúnistasamtökin settust
aö i húsi viö Lindargötu og áttu
umtalsveröri velgengni aö fagna.
Meö timanum má segja aö þau
hafi gerst nokkuö afhuga bylting-
um námsmanna og stúdenta. Sós-
ialismi þeirra tók aö margra sögn
á sig æöi púritanskan blæ, þau
reru á mið verkalýösins, jafnvel
þannig aö mörgum þótti jaöra viö
að KSML væru oröin mennta-
fjandsamleg.
Þegar samtökin voru oröin
sæmilega fjölmenn, e.t.v. 300
meölimir, og tæplega 100 virkir,
töldu þau sig vera orðin nógu
sterk til að setja á laggirnar
Kommúnistaflokk tslands, sem
þá haföi legiö i dvala i 40 ár. Þau
gáfu ennfremur út Stéttabarátt-
una, festu kaup á afbragös prent-
vél eftir mikinn barning og
reyndu aö koma blaöinu út viku-
lega.
Eitthvaö viröast samtökin hafa
átt erfitt meö aö standa undir
þessari miklu nafngift, þvi smátt
og smátt fór félagarnir aö tinast
burt, annaö hvort til Einingar-
samtaka kommúnista— EIK, likt
og sjömenningaklikan illræmda,
eöa hreinlega á hin ópólitisku
miö.
Oll pólitik KSML, sem og EIK,
þótti vera með nokkuö norsku yf-
irbragöi, enda höfðu margir fé-
laganna stundaö nám þarlendis
og þegiö pólitiskar linur af norsk-
um maóistum, sem kváöu hafa
verið firna sterkir, og blaöi þeirra
Klassekampen. En þó brutust
menn i gegnum Kapitalið af eigin
rammleik og drógu sina lærdóma
af þvi, einn meðlimur varö t.d. al-
ræmdur fyrir að lesa ekkert ann-
aö en Kapitaliö og svo bækurnar
um Astrik...
Síðbúið
blómaskeið EIK
Einingarsamtökin, sem i raun
má einna helst skrifa á reikning
Ara Trausta Guðmundssonar,
voru lengst af litla systir KSML/-
KFI. Fæstir gátu i raun fest hend-
ur á nokkrum ágreiningi milli
þessara samtaka, þau virtust öld-
ungis sammála um ágæti Kin-
verja og illt innræti Sovétmanna,
endurskoöunarsinna og trotski-
istanna i Fylkingunni. Menn gátu
ekki annað en ályktaö aö hér væri
um persónulegan ásteyting að
ræöa, ekki hugsjónalegan. En
Fylkingin var ótviræöur andstæö-
ingur þeirra beggja, hafði for-
gangsrétt fram yfir auövaldið
sögöu sumir. Þar var „djúpstæö-
ur” ágreiningur og er enn um
kvennabaráttu, afstöðu til stór-
velda, stóriöju, heimsbyltingar,
svo mikill ágreiningur að ekki er
nokkur vegur aö reyna að rekja
hann hér. En þó virtist manni oft
eins og hann snerist um persónu
leiötoganna tveggja, Trotskis og
Stalins, þ.e. einfaldlega keisarans
skegg.
Meö mikilli þrautseigju uxu
Einingarsamtökin um leið og
fylgi hinna vinstri hópanna rén-
aði. Þau gleyptu i sig félagana úr
KFI, einn af öörum, gáfu út
Verkalýðsblaöiö, og virtust dafna
ágætlega um 1978-’79, þegar hinir
hóparnir voru eins og á grafar-
barminum.
Burt með sítt hár
og svarta poka
Innan samtaka maóista rikti
nokkuö sem aldrei náði fótfestu
innan Fylkingarinnar, sem alltaf
haföi tilhneigingar til stjórnleys-
is, var samansett af misleitum
trotskiistum og slangri af sentr-
istum — þ.e. þeim, sem ekki að-
hylltust neinn spámann fremur
öörum, voru býsna veikir fyrir
Alþýöubandalaginu, trúöu á
möguleika þróunar fyrir austan,
hinum réttnefndu stofukommum
og endurskoöunarsinnum aö sögn
maóista. Hjá maóistum rikti
nefnilega flokksagi i einhverri
mynd eöa tilburöir i þá átt. Viö-
mælandi minn einn sem fyrrum
var i KFI sagöi mér aö til þess
heföi veriö mælst af honum af
flokksbræörum aö hann léti
skerða nokkuö sitt hár sitt, vegna
þess aö þaö væri þyrnir i augum
verkalýösins, þar sem smáborg-
araleg viöhorf væru enn allsráö-
andi. Maóistar drógu nokkuö
skýrar linur aö þvi er manni
fannst milli góös og ills á flestum
sviðum, i listum, menningu og
mannlifi. Og þaö var ætlast til
þess aö flokksmenn heiöruöu
þessar linur, sem aö visu voru
undirorpnar breytingum og lenin-
iskri sjálfsgagnrýni.
Viömælandinn tjáöi mér einnig
aö félögum hafi veriö meinaö, aö
viölagöri áminningu á flokks-
fundi, aö ganga um meö svarta
poka (þeir voru svartir i þá tiö) úr
áfengisversluninni á almanna-
færi. Einnig var þaö litiö horn-
auga ef flokksmenn gerðust óhóf-
lega drukknir á viðavangi.
Flokksandinn var alltsvo æriö
púritanskur, a.m.k. útáviö.
Rauð æska
Nefndir eru til sögunnar tveir
ákafir kommúnistar úr KFI, sem
voru þekktir fyrir aö boöa oröiö á
nokkuð hránalegan hátt, likt og
krossfarar fyrritlma. Þar fór
ekki mikið fyrir uppbyggilegu
niöurrifi eöa lúmskum heilaþvotti
með rökum sem fóru I hring, eins
og hjá hinum miklu mælsku-
mönnum trotskiista, Pétri Tyrf-
ingssyni og Birni Arnórssyni.
Þessir ágætu kommúnistar geng-
ust mikiö upp i þvi aö vera verka-
menn og þótti annars konar fólk
hafa harla litiö til málanna aö
leggja. Þannig áttu þeir þaö til aö
stilla menntskælingum og ööru
hentistefnufólki upp viö veggi aö
næturlagi þar sem ekkert var til
bjargar og hvisla rámt:
„Hver er afstaða þin til verka-
lýðs og auövalds?”
Eftirleikurinn var siöan I sam-
ræmi viö gefiö svar...
Eitt sinn reyndi yngsta kyn-
slóöin i öllum vinstri hópunum ab
stofna meö sér samfylkingu til aö
vinna aö framgangi sósialismans
meöal æskunnar, eins konar ung-
herjahreyfingu sem átti aö ganga
undir nafninu „Rauö æska”. A
fyrsta undirbúningsfundi kom til
haröra átaka milli Fylkingar-
sinnaðra og maósinnaðra. Sagan
segir aö eftir aö eftir mikinn
handagang hafi hver og einn
„trotti” fengið salibunu út um
glugga eöa dyr og maóistar setið
einir aö þvi aö upplýsa æskuna.
Lengi vel á eftir sló i brýnu milli
þessara fylkinga fyrir utan öldur-
hús, en til hliðar stóöu illar tungur
og hvisluöu þvi aö nú sætu for-
ingjarnir ábyggilega saman i
besta yfirlæti að drykkju — þver-
pólitiskri drykkju.
Stormasöm sambúð
öll sambúö vinstri hópanna á
blómaskeiöinu var eftir þessu.
Fyrsta mai hvert ár þóttust öll
samtökin hafa hvatt hin til aö
mynda samfylkingu um svokall-
aöar lágmarkskröfur, en alltaf
strönduöu samræöurnar á þvi
Hálfgerð pattstaða
— Hjálmtýr Heiðdal
■ Hjálmtýr Heiödal auglýsinga-
teiknari var hér áður fyrr eitt
hinna kunnuglegu andlita sem
seldi blöðin góöu fyrir utan Ey-
mundson eða rikið. Einhverja
spurnir höfðum viö af þvi að
Hjálmtýr sem var býsna virkur
hér áður fyrr, heföi dregið sig i
hlé og ræktaöi nú sinn eigin garð.
Við bárum þetta undir Hjálmtý.
„Já, það er rétt, ég var i þessu
öllu — KSML, KFI og EIK”
Ertu hættur?
„Það er bara ekkert að gerast i
þessum málum núna. En það má
segja að ég sé mitt á milli, ég er
ekki alveg hættur, en ég starfa
engan veginn af jafn miklum
krafti og áður. Svo er um flesta,
þeir hafa minnkað viö sig.”
Ertu þá genginn kerfinu á
hönd?
„Ja, þegar fólk ler að koma sér
upp fjölskyldu, byggja og basla
innan kerfisins er varla mikið
svigrúm fyrir svona hluti. Það
var mest skólafólk sem stóð að
þessum samtökum, sem nú er bú-
ið i skóla og fariö að liía fjöl-
skyldulifi.”
Hafa þessir vinstri hópar, t.d.
EIK lognast út af?
„Ég get ekki sagt um það.
Þetta fólk er ennþá i nokkrum
tengslum við hvort annað, það
eru ekki nema örl'áir sem hafa
lyst fratiáfortiðsi'na.En likasttil
hefur fólki ekki þótt þetta puð
leiða til mikils. Svo má auðvitað
kenna þessari almennu pólitisku
deyfð um, það er orðið erfitt að fá
fólk til að mæta á fundi. Þessi
samtök blómstruðu upp úr and-
heimsvaldasinnaðri baráttu, t.d.
Vietnam-striðinu, en nú er erfitt
að smala meira en ljórum á fund
til að ræða alþjóðamál, og lýsa
stuðningi sinum við baráttu
þriðja heimsins, Afganistan og
Kampútseu. Það virðiist ekki
smuga að fá fólk, hvað sem veld-
ur.
Menn virðast hafa nóg á sinni
könnuviðaðskrimta, enda er það
i samræmi við tiðarandann og
lifskjörin. En ég held að þeir séu
ekki margir sem hafa gengið til
liðs við stóru flokkana. Sumir
hafa reynt að beita sér i ýmsum
samtökum, t.d. Albert Einarsson
i félagi foreldra og kennara i
Kópavogi, Guðmundur Sæmunds-
son i verkalýðsfélögum á Akur-
eyri og Nanna kona hans i
kvennaframboðinu þar. Margt af
þessu fólki heldur enn sambandi
við gömlu samtökin. En kjarninn
sem heldur þessu gangandi er
minni en hann var, en hann er
til.”
Ertu búin að missa trúna á
kommúnismann, Hjálmtýr?
„Ég get ekki sagt það. Ég gekk
aðallega i þessi samtök af áhuga
á alþjóðamálum og hef lært ýmis-
legtsiðan þá. Manni hættir til að
reysta dáldið blint á þá aðila sem
maður studdi, t.d. Vietnama,
maður tók einhvern veginn allt
sem gefið sem þaðan kom. Siðan
taka þeir upp á þvi að ráðast inn i
annað land, ganga þvert á allt
sem maður hélt um þá. Vonbrigð-
in valda þvi að maður verður
gagnrýnni á hlutina, m.a.s. þann-
ig að sumir hverjir setjast á rass-
in og skipta sér ekki framar á
pólitik.
Allir þessir vinstri hópar áttu
upptök sin I öldu sem fór um allan
heim, Mai-byltingunni, andófinu
gegn Vietnamstriðinu, menning-
arbyltingunni i Kina. Siðan kem-
ur bakslagið — Vietnamar svikja
það sem þeir voru i hugum fólks,
það er flett ofan af menningar-
byltingunni Og i ljós kemur að i
skjóli hennar döfnuðu ýmiss kon-
ar öfgar. Og á sinn hátt var starf-
ið hérna heima kannski lika jafn
öfgafullt.
T.d. tóku máoistasamtökin hér
nokkuö stift upp það sem Komin-
tern gamla stóð fyrir, voru eilif- 1
lega aö ver ja Komintern. NU fer
alls staðar fram mikið endurmat
á Stalins-timanum og þessi sam-
tök verða að taka mið af þvi eins
og önnur. Það gæti kannski orðið
til þess að menn færu að aðlaga
veruleikann að kenningunni, en
aðlögðuð frekar kenninguna að
veruleikanum.
En hvað mér sjálíum viðkemur
eru enn til staðar sömu grund-
vallarhugmyndirnar um sósial-
ismann, vandinn er bara að finna
þeim farveg.”
En heldurðu að slikir hópar á
vinstri kanti eigi einhverj framtiö
fyrir sér?
„Mér finnst heldur eríitt að
segja til um það. Nú er það svo
með flokkakeríið i dag að utan við
það stendur stór hópur vinstri
manna sem hvorki getur haslað
sérvöll i Alþýöubandalagi eða Al-
þýðuflokki. En meöal þessa hóps
rikir hálfgerð pattstaða. Fólk nær
saman á öðrum vettvangi i and-
heimsvaldasinnaðri baráttu,
starfi aö verkalýðsmálum al-
mennt o.íl.”
Heldurðu að sé hugsanlegt að
Fylkinginog maóistar nái saman
i náinni framtið?
„Þær eru nú svolitið farnar að
missa glansinn þessar eilifu
fræðikytrur milli trotta og maó-
ista,sem einkenndu alla fundi um
tima. Menn voru vægast sagt
heldur kreddufastir, maóistar
gátu t.d. ekki litið Rósu Luxem-
burg réttu auga, einfaldlega
vegna þess að hún hafði einhverju
sinni deilt við Lenin. Svo fóru
menn að glugga i rit hennar og
sáu að þar var ýmislegt mark-
vert. Eins var það með kreddu-
ganginn i Fylkingunni út af
Troski og Sovétrikjunum. En það
gæti alveg hugsast að þessir hóp-
ar gætu náð saman i framtiö-
inni.”
Annars er það svo með okkar
stefnu að við teljum okkur geta
náð að starfa með flestum aðilum
um einstaka málaflokka. Þannig
getum við t.d. barist með Vil-
mundi fyrir lýðræði innan verka-
lýöshreyfingarinnar, með Sjálf-
stæöisflokknum gegn innrásinni i
Afganistan.”
hver hefði i raun haft frumkvæö-
iö, veriö fyrstur eins og þaö heitir
á barnamáli. Svo einatt uröu
göngurnar tvær eöa jafnvel þrjár
aftan i rækjubleikri göngu full-
trúaráðsins og eru vist enn.
Ennfremur neyddust hóparnir
til að starfa undir einu þaki i
Samtökum herstöövaandstæð-
inga. Þaö er sagt aö lengi vel hafi
öll fundarhöld á þeim bæ siglt i
strand vegna þess aö menn uröu
ekki sammála um hver heföi ver-
iö verri, Trotski eöa Stalin, eöa
hverjir væru verstir — Bandarik-
in, Sovétrikin eöa Kinverjar.
Ég gleymi vist aö nefna til agn-
arlitil samtök, klúbb sem aö sögn
taldi vart meira en einn tug fé-
laga og. nefndist KSML (b),
Kommúnistasamtökin marxist-
anna leninistanna byltingarsinn-
anna. Þessi sérsinna hópur átti
óöul sin i byltingunni á Akureyri
og varö vist ekki langíifur. Hermt
er aö nú hafi urn fimmtungur
samtakanna gengiö til liös viö Al-
baniuvinafélagiö, en sumir munu
vist álita Albanlu einu von heims-
byltingarinnar.
Fylkingin starfar enn i bakhús-
inu viö Laugaveginn og gefur
endrum og eins út málgagn sitt
Neista. Kommúnistaflokkurinn
og Einingarsamtökin eru runnin
saman I eitt og heita nú einfald-
lega Kommúnistasamtökia Þau
reka eilitla bókabúð viö Frakka-
stig, sem heitir svo mikiö sem
Október-búöin I höfuöiö á nafntog-
aöri byltingu I Rússiá sem flestir
eru búnir aö afneita. Ennfremur
standa þau aö útgáfu „Verkalýös-
blaösins-Stéttabaráttunnar” um
hugsun Maós, Lenins og Marx,
u.þ.b. mánaðarlega.