Tíminn - 11.10.1981, Síða 15

Tíminn - 11.10.1981, Síða 15
’ib ,» V . V ?t 751 j'/.i' 'i • i , f rrrri ( Sunnudagur 11. október 1981 * * * 15 unglingasldan húsinu og glömruðum á pianóið. — Svona hvolpur, þið hefðuð hreinlega getað farist. — Það heföi áreiðanlega flýtt fyrir byltingunni. — Hvaða byltingu?... Maðurinn leit út eins og þetta berstripaða orð væri svolitið óþægilegt. — Barnabyltingunni. Maðurinn starði aulalega á Tómas. Hann hló taugaóstyrk- ur. Það var eitthvað við þessa augljósu fyrirlitningu drengs- ins, sem gerði hann hræddan. Drengurinn hélt áfram að stara. Svo fór maðurinn aftur að hlægja. — Hvaða röfl er eiginlega i þér, flissaði hann hæðnislega... Hann gat nú alls ekki tekið svona lagað alvarlega. Barna- bylting, þvílikt bull... — Hún er nauðsynleg. — Nauðsynleg? — Annars fer þjóðfélagið norður og niður.” Sannleikurinn Þessi bók er með þeim magn- aðri sem ég hef lesið. Hún er svo tæpitungulaus og beinskeytt að það hlýtur að teljast skiljanlegt að hún færi i taugarnar á við- kvæmum sálum. Samt er bara verið að segja sannleikann. Flestir þeiratburðir sem lýst er i bókinni gætu eins gerst hjá okkur. Höfundur sýnir fram a rót- leysið og einsemdina hjá ung- lingum i nútima þjóðfélagi. Þeireru látnir afskiptalausir og þeim er enginn áhugi sýndur. Til að vega upp á móti þessu brynja þeir sig með ofbeldis- gri’mu, töffaralátum og slags- málum. En innst inni eru þeir samtsvo viðkvæmir, en það má ekki nokkur maður sjá. Persónusköpun höfundar er mjög góð, hann er að skrifa um venjulega unglinga og venjulegt fólk. Pétur, kúgaður, svivirtur og niðurlægður, breytist úr „venjulegum” strák, i töff „týpu” með þykkan skráp. Tómas, sem enginn sýnir minnstu ræktarsemi, elur með sérdrauma um betra þjöðfélag, en verður samt að taka þátt í leiknum, slást, drekka, reykja, stela og þarfram eftir götunum. Sama má segja um Jörgen og alla hina. Það eru ekki þeir sem eru svona vondir, þjóðfélagið og foreldrarnir hafa brugðist. Að lokum langar mig aðeins að geta þýðingar Guðlaugs Ara- sonar. HUn er mjög vel úr garði gerð, undantekningalitiö á góðu máli (eftir þvi sem efni standa til) og atburðarásin öll verður sérstaklega lifandi. Ég enda þennan pistil með tilvitnun i eftirmála Guðlaugs „Þótt Tvi- bytnanfjalli um lifunglinga, er bókin ekki síöur við hæfi fullorð- inna.’ ’ — Hrafn Jökulsson skrifar um bökmenntir D, ellegar 1, 2, 3, 4 og á hver möguleiki við vissa styttu, þar næst er talið hve margir hafa krossað við hvern möguleika. 1 þessu tilfelli varð postulinið fyrir valinu og var mikiö um dýrðir. Menn uröu ekki siöur kátir og upp með sér þegar það spurðist aö þessi atburður hefði vakið heimsathygli. Með virðulegri og háalvar- legri athöfn var postulins- styttan sett i geymslu en þar er hún allajafna geymd nema hvað hún er öðruhverju tekin og sýnd almenningi við hátið- leg tækifæri. Og þannig geng- ur það þangaö til ný stytta er valin.. Þess skal að lokum getið að þessi stytta er enn til og geymd. En um það er þagað að hún er „made in Hong Kong”. — Snorri Freyr Hilmarsson skrifar Arndis Baldursdóttir Jóhann Magnússon Stundum horft ansi mikið... — Unglingasíðan talar við fatlaða krakka Eins og öllum ætti að vera kunnugt stendur nú yfir ár fatl aðra. Þar af leiðir að þau mál 1 hafa mjög verið i deigiunni og miklar umræður farið fram um aðstöðu þessa minnihlutahóps. Ekki er ætlunin að brjóta það til mergjar^hins vegar fór unglinga- si.ðan á stúfana og ræddi við nokkra fatlaða unglinga i Hiiða- skóla, eu þar eru bæði fatlaðir og aðrir saman i bekkjum. Greinilegt er, að þessi hópur á fremur undir högg að sækja, þótt það horfi ef til vill til betri vegar. Það er svo aftur spurning hvort fólk almennt gerir sér grein fyrir þvi, hvernig það er að vera fatl- aður og þurfa ætið aðstoðar við og geta ekki gert hluti sem flestum finnst sjálfsagðir. Eins og áður er á drepið eru i Hlíðaskóla bæði ófötluð og fötluð börn, og mun þaö vera eini skól- inn sem þannig er skipulagður. 1 bæklingi sem gefinn var út á veg- um skólans er greint frá tildrög- um að stofnun „sérdeildarinnar”, sem annast málefni fötluðu krakkanna. Þar segir meðal annars: „Það varfyrsthaustið 1974 með stofnun sérdeildar Hlíðaskóla, að hreyfihömluðum nemendum af öllu landinu var gefinn kostur á að stunda nám i almennum skóla samfara sérkennslu og þjálfun vegna hreyfihömlunar”... „Markmiðið með stofnun deildar- innar var, að likamlega fötluð börn blönduðust öðrum nemend- um skólans i hinum einstöku deildum, námslega og félagslega, eftir getu og möguleikum hvers og eins, en jafnframt skyldi veitt sérkennsla eftir þvi sem þurfa þætti svo og þjálfun vegna lfkam- legrar fótlunar.” Samkvæmt þvi sem starfsmaður við deildina sagði, þá hefur þetta fyrirkomu- lag gengið mjög velog engin stór vandamál komið upp. Ennfremur að sambekkingar fötluðu krakk- anna væru þeim mikil hjálpar- hella og tæku þá sem fullkomna félaga. Bjarga mér sjálf Unglingasiðan ræddi við fjóra unglinga sem eru fatlaðir og stunda nám i’ Hliðaskóla. Fyrst var spjallað við Arndisi Baldursdóttur, 13 ára. — Ertu búin að vera lengi i skólanum? „Já, éger búin að vera hér iein 7 ár og likar vel, kennararnir eru mjög góðir.” — Gætirðu sagt eitthvað frá þinum fjölskylduhögum? „Ég bý náttúrlega hjá fjöl- skyldunni. Svo á ég tvö systkini annað er eldra, hitt yngra.” — Hefur þú verið fötluð lengi? „Alveg frá fæðingu, annars gengur mér yfirleitt vel að bjarga mér sjálf, það þarf alla vega eng- inn að hjálpa.” — Hefurðu ákveðið hvað þú ætl- ar að leggja fyrir þig? „Nei, ég hef nú ekkert ákveðið það. Hins vegar langar mig aö halda áfram að læra.” — Hvað er þér mest áhuga- mál? „Þau eru svo mörg ... en þó skólinn allra mest.” „Keppti á móti i Englandi” Jóhann Magnússon er 15 ára. Hann er fyrst spurður hvernig honum falli við skólann. „Mér finnst gaman i skólan- um” — Og kennararnir? „Þeir eru góðir, já, já.” — Hver eru þin aðaláhugamál? „Iþróttir. Ég fór i sumar til Englands og keppti i kúluvarpi, kringlu og spjótkasti. Jú, mér gekk bara vel.” — Með hvaða liði heldur þú? „Ég held með tslandi,” segir hann og hlær, „en þú?” — Ha, jú, ég styð tsland auð- vitað. En segðu mér, hefur þú verið i einhverjum öðrum skól- um? „Já, ég hef verið i bæði Landa- kotsskóla og Reykjadalsskóla.” — Finnst þér vera munur á skólunum? „Ja, það er mikill munur, — þessi er betri.” — Hefur þú verið fatlaður lengi? „Ég lenti i slysi þegar ég var sex ára. Ég lá lengi á sjúkrahúsi, eina fimm mánuöi.. samt kemst ég nú minna feröa, er þó alltaf keyrður í skólann.” — Hvernig fellur þér við bekkj- arfélagana? „Mjög vel, ég á marga ágætis- vini i bekknum.” Fatlaður frá fjögurra ára aldri Næsti viðmælandi unglingasið- unnar erBjörn Harðarson, 14 ára. Hann erfyrst spurður að þvi hve- nærhann hafi byrjað i skólanum. „Þaö var núna i haust, ég var áöur i Fossvogsskóla. Jú, þessi skólier svolitið frábrugðinn.betri finnst mér. Svo kann ég vel við kennarana.” — Hefur þú verið fatlaður lengi? „Ég lenti í bilslysi þeg ar ég var fjögra ára og lá meira og minna á spitala tii 10 ára aldurs.” — Hver eru þin aðaláhugamál? „Ég fylgist með iþróttum, held með Val.” — Hvernig fellur þér við hina krakkana i bekknum? „Mjög vel, þetta eru skemmti- legir og góðir félagar”. — Ætlarðu að halda áfram i skóla að þessum loknum? „Já ætli það ekki.” Ekki litin öðrum augum Að lokum var spjallað aðeins við Oddnýu óttarsdóttur. Hún tók isamastreng og hin,þ.e. að henni fyndist skólinn og kennararnir mjög góðir. Hún hefur frá átta ára aldri verið i Hliðaskóla, var áður i Isaksskóla. Hún er spurð út i fötlun sina. „Ég hefverið fótluð frá fæðingu samt gengur mér vel aö komast um, ef einhver hjálpar mér upp stigana.” — Kanntu vel viö bekkjarfélag- ana? „Já, mjög svo. Ég er ekki litin neinum öðrum augum þótt ég sé fötluð. ” — Gerir fólk það, almennt? „Það kemur fyrir að fólk horfi ansi mikið, en það er allt í lagi, maður venst þvi.” — Hvereru þin aðaláhugamál? „Hestar”, hún hlær, „ég get al- veg farið á hestbak, við eigum þrjá hesta.” — Erþað eitthvað ákveðið sem þig langar að veröa? „Mig langar mest að starfa eitthvaðmeð dýr...Afram iskóla, jú ég býst við þvi.” — Hvernig finnst þér aöstaða fyrir fatlaða almennt? „Hún er að batna, það er eitt sem vist er. Samt skortir enn mikið á.i þessum skóla til dæmis er aðstaðan ekki nógu góð. ” Svo mörg voru þau orö. Þaðer i rauninni fáránlegt að ekki sé meira gert fyrir þennan hóp. Það er f jarskalega óréttlátt að ef ein- hver er fatlaður þá eigi hann um leið minni möguleika en aðrir til dæmis til náms og fleira. Þar á ofan bætist að aðstaöa fatlaðra er vægast sagt léleg og nú eru fatl- aðirað berjast fyrir mannréttind- um, sem hefðu þótt sjálfsögð á miðöldum. Þetta að vera gjald- gengur í þjóðfélaginu. En eins og Oddný sagði, „Að- staðan er að batna.” — h — Oddný óttarsdóttir Björn Haröarson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.