Tíminn - 15.11.1981, Blaðsíða 9

Tíminn - 15.11.1981, Blaðsíða 9
Sunnudagur 15. ndvember 1981 9 menn stundi hjábUöarvinnu. Þó eru til undantekningar. Hinn mikli Philidor var tdnlistar- maður, Anderssen var stærð- fræðikennariog það erEuwe lika. Tarrasch var starfandi læknir og gamli jiígóslavneski stórmeistar- inn Widmar er háskólakennari. Lasker tók doktórspróf i stærð- fræði og hefur alltaf stundað heimspeki og gefið Ut ýmis rit á þvi sviði. Einhvers staðar segist hann vonast eftir þvi að heim- spekiverk hans lifi lengur skák- frægðinni. En svona alvarleg hjábúðar- störf eru sjaldgæf. Vaijulega þurfa menn að einbeita sér að skákinni (jafnvel þótt erfitt sé að lifa af henni, einkum i ellinni), og þeirsem hafa einu sinni lagt þetta fyrir sig i alvöru missa fljótt áhuga á öllu öðru og eru fastir i eitt skipti fyrir öll. Það var að vfsu einu sinni uppi horaður, fátækur og mjög gáfaður ungverskur stórmeistari, Kdisch að nafni. Hann var svo frábær aö i tiu skák einvigi við hinn ódauölega prófessor Anders- son tapaði hann aðeins með ein- um vinningi og siöan vann hann Parísarmótiö 1867, en þar varð nýbakaður heimsmeistari Steinitz annar. Þegarhann átti fri var hann vanur að tefla skák við Rothschild nokkurn i Vin, áhuga- mann sem aftur veitti honum kennslu i' kauphallarbraski. Haf- andi slikan kennara komst Kolisch langt á þvi sviöi. A stutt- um tima breyttist hann i akfatan milljónam æring og barón og tefldi aldra framar á mótum. Þó er hugsanlegt að hann hefði getað unnið heimsmeistaratignina af Steinitz, ef þessi vingjamlegi Rothschild heföi ekki komið hon- um af réttri braut. Þrátt fyrir allt var fjármálabaróninn Klisch alla ævi stuðningsmaöur hins göfuga leiks og stjórnaði stundum mót- um f Vin, þar sem gamlir (og enn horaðir og óskreyttir) skákfélag- ar þurftu aöhorfa upp á hann með gullskreytta istru og gneistandi fingurgull. Undrabarnið Paul Morphy Enn skærari stjörnu en Kolisch entist áhuginn á skákinni aðeins stutta stund. Það var enginn ann- ar en Paul Morphy, mesti skák- snillingur sem uppi hefur verið. En til þess varð sorglegur at- burður. Hann var af auðugri ætt kynblendinga i New Orleans, tefldi aöeins sér til ánægju, hafði fullan styrkleik meistara aðeins þrettán ára gamall (rétt eins og i tónlist og stærðfræöi koma slik undrabörn stundum fram i skák- inni, Capablanca og Reschewsky eru önnur dæmi um slikt. Hann stundaöi taflmennsku i aöeins tvö ár, 1857-58 og vann þá á mótum alla helstu skákmennina, Louis Paulsen, Löwenthal, Boden, Harrwitzog Anderssen, og tók þó aldrei á öllu sinu. Hann vann prófessor Adolf Anderssen frá Breslau i Paris með sjö vinning- um og tveimur töpum, en Anders- sen var talinn helsti skákmaður þeirra tima eftir sigur á Lundúnamótinu 1851. En um leið reyndu ákafir franskir gestgjafar að gera dvölina honum eins skemmtilega og unnt var í borg- inni og þannig smitaðist hann af sárasótt. Við þetta truflaðist hann, sneri aftur til Ameríku, var hylltur sem þjóöhetja, varð þung- lyndur og mannfælinn, snerti aldrei aftur skákmann og dó sinnisveikur 1884. Ef hann hefði haldið heilsu hefði hann án efa getað unnið Steinitz léttilega. Menn fóru að lita á Steinitz sem heimsmeistara eftir að hann haföi unnið prófessor Anderssen (sem var farinn að fullorðnast) með átta vinningum gegn sex í London 1866. Morphy er Mozart skák- taflsins. 1 skákum hans er skin- andi innblástur og hrein fegurð sem hvergi er hægt að finna ann- ars staðar. Steinitz sem var heimsmeistari þangað til að Lasker vann hann 1894 er að öllu leyti andstæða Morphys. Skákir hans eru ólistrænar, hugsunin er þyngslaleg, þar eru bæði stunur og efnishyggja. Hann varð fyrir- mynd annarra með þeirri kenn- ingu að mestu skipti að fá betri peðastöðu fýrir endataflið. Traust kenning en leiðinleg. Það sem hann átti sigra sina að þakka var aö verulegu leyti ótrúlegt úthald og þó var hann fæddur kryppling- ur. Með vindlakassa gat hann setið endalaust yfir flóknum stöðum, þar til andstæðingar með meira hugmyndaflug en veik- byggðari skrokk eins og Zuker- tort og Tschigorin uröu sljóir eða gripu til örþrifaráða i ofboði og innsigluðu þannig örlög sin. Skák og sinnisveiki Steinitz var mikilmenni þó það væri ekki beint hægt að hrifast af honum. Hann náði Morphy, en á heldur dapurlegan hátt, þvi hann dó sinnisveikur, kannski af gremju yfir þvi aö missa heims- meistaratitilinn. Hann var58ára og eignalaus þegar Lasker sigraði hann. Þrátt fyrir aldurinn gafst hann ekki upp og sextugur skoraðihann á heimsmeistarann. Þá fór enn verr fyrir honum og hann dótruflaöurá geöinokkrum árum siöar. Atvinnuskák virðist vera starf þar sem taugakerf iö og heilinn eiga það til aö láta undan. Auk þeirra sem hér hafa veriö nefndir hafa ýmsir tuflast á geði — meöal mikilla meistara G. R. Neumann og Pillsbury — og aðrir i f remstu röð eins og Zukertort og Rubinstein, hafa fengið óbætan- legt taugaáfall þegar á ungum aldri. Slikar geðtruflanir er kannski helst hægt að finna hjá ljóöskáldum, jafn miklar eða meiri. Af þvi er þó kannski ekki hægt að draga þá ályktun aö þessi viðfangsefni séu öllum öðrum erfiðari. Skáldin eiga a.m.k. ómælda leti til þess aö jafna sig með á milli þess að þeir slást við rimorðin. Kannski er það svo að það séu ekki þessi viðfangsefni sem valda heldur það að sá sem erefnii'góðan skákmann eða gott skáld hafi i sér einhvert frækorn brjálseminnar. Og ef eitthvert jafnvægi raskast, getur orðið of mikið af þvi góða. En hvað við- vikur erfiði taflmennskunnar gildir sú regla að maður veröur aldrei þreyttur af þvi að vinna, jafnvel þó þaö kosti óslitið erfiði i marga klukkutima og án annarr- ar hressingar en vonds lofts, kaffigutls og ódýrustu tegundar af sigarettum. En það er ótrúlega þreytandi að tapa, jafnvel þó aö sú athöfn taki aðeins stutta stund. tþróttakappar komast venju- lega á tindinn þetta 25 ára gamlir eöa þar um bil og siðan hallar undan fæti og þeir eldast. En sálin virðist gerö úr styrkara efni en skrokkurinn. Skákmenn ná oft ekki fullum styrk fyrr en um þri- tugt og geta oft haldið þeim styrk mjög lengi. Anderssen var 48 ára þegar Steinitz vann hann. Steinitz var heimsmeistari þangað til hann var 58 ára. Lasker var 52 ára þegar Capablanca vann hann 1921. En Capablanca missti titil- inn 39 ára gamall i hendurnar á Alékin 1927. Alékin var 43 ára þegar Euwe vann hann 1935 og 45 ára vann hann aftur titilinn meö glæsibrag. Þegar Capablanca er vel upplagður er hann vanur að vinna fyrstu verölaun á stórmót- um þó hann sé kominn undir fimmtugt. Að þessu leyti var þó Lasker enn merkilegri þvi aö það er ekki vitaö til þess aö annar maöur hafi haldiö skákstyrk sin- um jafn lengi og hann. Arið 1934, þegar hann var 66 ára varð hann mjög framarlega á stórmóti I Moskvu, varð fyrir ofan Capa- blanca sem hann vann. Og þaö var ekki fyrr en i Nottingham 1936 að hann vann ekki til verðlauna á stórmóti, þótt hann stæði sig ann- ars meö sóma. Næst honum komst kannski Englendingurinn J.H. Blackburne, sem hóf feril sinn tvitugur á Lundúnamótinu 1862 og lauk honum á stór- meistaramótinu I Pétursborg 1914, þar sem hann stóð sig vel og vann feguröarverðlaun i skák við Niemzowitsch. Skák og áfengi Afrek Blackburnes þarna uröu doktor Tarrasch tilefni til vanga- veltna um áhrif vinanda á skák- styrkleika. Hann benti á aö Guns- berg, sem var mikill skákmaöur og aldrei hafði bragöaö vin var orðinn getulitill um sextugt. En Blackburne var miklu betur á sig kominn 72 ára þótt hann hefði alltaf drukkiö viski ómælt. E.t.v. hafði Tarrasch ekki numið lexíu Blackburnes nægilega vel þvi honum fór að hraka töluvert snemma. En almennt er vinandi ekki talinn fara vel við skákiþróttina og það mætti nefna mörg dæmi um þaö. Meöan Eng- lendingurinn Mason var upp á sitt besta óttuðust hann margir, en smám saman kom i ljós að hann var i raun aöeins háskalegur fyrir hádegisverö. Hress og glaður yfir yfirburðum sinum i dagsins skák fékk hann sér svo stórkostlegan hádegisverö að það var ekki erfitt að eiga við hann siöar um daginn. Hann einn náði betri stöðu gegn Zukertort á mótinu i London 1883, þegar Zukertort var á hátindi frægðar sinnar og enginn stóöst honum snúning, ekki einu sinni Steinitz. En Mason varö of glaður, hádegisveröurinn of góður, og þegar Mason ætlaði aö halda taflinu áfram i sæluvimu, vann Zukertort þaö I fáum leikj- um. Zukertort var hálfgerður meinlætamaður og á þeim tima lifði hann einkum á pillum og vindlum. Ég hef aðeins einu sinni séö dæmi þess að alkóhól hafi haft góðáhrif á skák. Það var Labour- donnais sterkasti skákmaöur á sinni tiö. Hann dó 1840. 1 gömlum árgangi af „Illustrated London News”, en i þvi timariti var ein- hver besti skákþáttur I heimin- um, las ég einu sinni bréf frá enskum áhugamanni sem hafði þekkt þennan mikla mann. Hann eyddi lifi sinu á skákkaffihúsum i Parls og London og vann alla sem hann tefldi við. Eftir aðra flösk- una af Chambertin rauövini gaf hann alltaf peö og leik i forgjöf eftir þriðju flöskuna stundum riddara og þá skipti engu máli hversu sterkur og allsgáður mót- leikarinn var. Kaldurog ákveðinn og með glæsilegum leikfléttum innbyrti hann vinninginn. Það er ekki svo auövelt að leika slikt eftir, en Labourdonnais var af gamalli aðalsætt og hafði kannski að langfeögatali æfingu i slikri drykkju. Þaö eru ekki margir meistararnir sem hafa veriö jafn frægir og Labourdonnais og það löngu eftir sinn dag. Hann var hinn siðasti af frönsku meisturun- um. Það var i London árið 1867 að ungur og alveg óþekktur meist- ari, Bird að nafni, tefldi viö Steinitz, sem þá var nýorðinn heimsmeistari. Bird stóö sig stór- vel, fékk fimm vinninga en Steinitz sex, en lenti i illdeilum við Steinitz svo aö hætta varð keppni I miðri skák. Þá lýsti Bird þvi yfir aö Steinitz væri ekki merkilegur karl og visast mundi Morphy gefa honum peö og leik i forgjöf. Steinitz var ókvæða við svo ærumeiöandi yfirlýsingu þannig að þriöji maöurinn blandaði sér i málið, aöeigin mati á sérlega sáttfúsan hátt. Það var hiö mikla skákátrúnaöargoð Eng- lendinga Howard Staunton sem á árunum frá 1840-50 var enn álitinn styrkasti skákmaöur heimsins og sem á þessum tima áleit sig enn vera það, þótt hann vildi reyndar ekki tefla við neinn. Hann lýsti þvi nú yfir að hann tryði ekki á fullyröingu Birds (Staunton gat ekki hrósað Morphy, þvl hann hafði aldrei þoraö að tefla við hann), en aftur á móti efaðist hann ekki um að Labourdonnais hefði getað með góðum árangri gefið Steinitz þá hina sömu f;or- gjöf. Trúlega hefur Steinitz, al- ræmdur rifrildisseggur og fýlu- poki ekki eflst að sáttfýsi viö þessa yfirlýsingu. Þáttur Gyðinganna 1 skák þarf aö nota gáfur (a.m.k. háþróaöa sérgáfu), elju, þrjósku, sveigjanieika i mótbyr og almennt þol, bæði andlegt og likamlegt. Þaö er forvitnilegt aö sjá hvernig Gyðingar hafa skarað fram úr meðal atvinnumanna siðustuöldina: Steinitz, Winawer, Zukertort, Tarrasch, Lasker, Rubinstein, Bernstein, Niemzo- witsch og meðal hinna yngri, Flohr, Fine og Reschewsky, og kannski enn fleiri. Þaö er vist ekki hægt aö segja aö Gyöingarn- ir hópist I skákina vegna þess gullþorsta sem sumir vilja halda fram að einkenni þá. Þó að það sé kannski hægt ab lifa á skákinni heldur auðveldar nú en áöur vegna þess hve skáklistin hefur breiðst út hin siöari ár, er starf skákmannsins þó eitt hinna ótryggustu frá ábatasjónarmiöi. Þar við bætist aö jafnvel frægir skákmenn geta átt von á breytingum til hins verra þegar aldurinn færist yfir eða kraftana þverr af einhverjum ástæðum. Tarrasch oröaði það þannig: „I skák dugar ekki aö vera frægur, maður veröur lika að tefla vel”. Bókmenntamenn geta t.d. lifaö lengi á frægu nafni, löngu eftir aö þeir eru hættir að skrifa nokkuö sem máli skiptir. t skákinni mælast stjörnuhröpin strax og meö stæröfræðilegri nákvæmni meb vinningsstigum og tapstig- um og forn frægð hrekkur skammt úr þvi. A sinu besta skeiði var Rubinstein talinn fremstur allra kappskákmanna, skömmu síðar barst það út ab hann byggi viö sára neyö. Og veslings gamli Lasker, sem alltaf hafði fariö vel meö fé og hafði m.a.s. stundum látið sér detta i hug aö draga sig I hlé eftir langan og strangan feril þarf I ellinni að basla viö að vinna sér inn smá- upphæðir á mótum og I fjöltefl- um. Vei hinum sigruðu! Þetta er gamalt spakmæli sem á jafnt við um skákmeistara, nautabana og hershöföingja. Og við þetta má bæta hinu fornkveöna að þeir sem guöirnir elska deyja ungir. Þó mundi sennilega flestum skák- mönnum finnast öll önnur við- fangsefni óþolandi tilgangslaus og leiðinleg i samanburöi við þær gáfnaorrustur sem þeir eru vanir. Og þeir mundu I lengstu lög reyna að halda i þetta spennandi lif, fremur en aö halla sér að traustum borgaralegum siövenj- um með eftirlaunum og öllu. Vist er að með afrekum slnum veita þeir mörgum hlédrægum aödá- endum hins göfuga leiks hina mestu nautn. eh sneri og stytti

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.