Tíminn - 15.11.1981, Blaðsíða 11

Tíminn - 15.11.1981, Blaðsíða 11
Sunnudagur 15. nóvember 1981 bókamarkaði t Donald Atmater 0 l 'he Penguin Dictionary of SAINTS ftifinnr Donald Attwater: The Penguin Dictionary of Saints Penguin 1981 ■ Hér er skondin bók: dýr- lingatal. Hér eru þeir allir, stórir sem smáir, allir þeir sem unnu hinni einu trú svo mikið gagn að þeir eru nú til- beðnir sjálfir af kaþólikkum — hér er Frans frá Assisi, heilagur Gregórius, Jóhanna af örk, hér eru lika óþekktir dýrlingar nema fyrir hina trú- uðustu eða sérfræðinga —- Homobonus sem helgaði fá- tækum lif sitt þrátt fyrir gribbuganginn i konunni, Apollinaris frá Ravenna sem ekkert er vitað um, Kenelm prins á Englandi sem virðist hafa dáið i orrustu og enginn veit af hverju var gerður að dýrlingi... Hér er samankomið hið furðulegasta galleri af fólki. Ómetanlegt að kynnast þvi, en hvi telst það vera dýr- lingar en ekki til að mynda ... ég? NATHALIE SARRAUTE Nathalie Sarraute: „Fools Say” Calder 1979. ■ Þetta er sjöunda skáldsaga höfundar, Maria Jolas þýðir á ensku. Sarraute fæddist árið 1902 og gaf út sina fyrstu bók árið 1939, eftir striðið var ljóst að hún var i fremstu viglinu franskra rithöfunda. Hún hefur kannað atferli mannsins með penna sinum og sifellt fært sig nær kjarna hans — „hinum innra manni”. Cr þessari bók: Erum við nafli alheimsins, hvert okkar um sig, eða aðeins einn maur af mörgum? Visast er texti Sarrautes mörgum erfiður, en segja mætti sér að það erfiði borgaði sig. 1 bókaverslun Máls og menningar fást, auk „Foolls Say”,margar aðrar af bókum þessarar merku skáld- konu. Hún er litt eða ekki þekkt hérlendis — tækifærið er þó altént fyrir hendi. GRAHAM PKi’FMIÍ’ UluíilÍilNliÍi XSAVS Graham Greene: Collected Essays Penguin 1981 ■ Hinn aldni heiðursmann og húmanist —- Graham Greene — hefur i þetta bindi safnað geysilegum fjölda af ritgerð- um, stuttum og löngum, og er auðvitað ekki ónýtt að kynnast viðhorfum þessa gamla „man of letters” til manna og mál- efna. Flestar ritgerðirnar eru stuttar og skrifaðar i sam- þjöppuðum, lýsandi stil — við- fangsefnin eru til að mynda aðrir rithöfundar: Henry James, B'ielding, Dickens, H.C.Andersen, Mauriac, Walter de la Mare, B’ord Madox B’ord, Somerset Maug- ham, Beatrix Potter etc. etc. Þá segir Greene frá ýmsum karakterum sem á vegi hans hafa orðið: Castro, Philby, Simone Weil... Eða þá hann segir frá atburðum úr lifi sinu, uppvexti, frá rithöfundaferli. Tilvalin bók að glugga i. ^ fi’ r • f • ■ i SL I r~l r1, r 1 <3 OLn'ÁAlY IHfCOLD WARTHRillLfí OF t ilf. ULTIMATI; IXJUBLECROtó JAC K WIi 'ÍCHEZI’Blí Jack Winchester: The Solitary Man Sphere Books 1981 ■ Hugo Harman — hvilikt nafn! — er njósnari. En hverra njósnari er hann? Rússa, Bandarikjamanna, eöa er hann i jafnri þjónustu beggja? Ef satt skal segja er Hugo Hartman stundum i vafa sjálfur... Þar kemur að hann hefur nógaf iðju sinni—kona hans liggur fársjúk á geð- veikrahæli, hann er farinn að elska aðra konu og vill segja upp starfi sinu. Það er hægara sagt gert — hvorugt stórveldið getur án hans verið. Þemað er: Einn maður (með konu i pokahorninu) gegn öllum heiminum. Winchester heldur hvorki betur né verr á spöð- unum en venja er, það má lesa þessa bók sér til ágætrar skemmtunar en siðan er hún fljót að gleymast ef að likum lætur... ERTU (RYKSUGUHUGLEIÐINGUM Viðkomumheimtilþínmeð VD LXAryksugunaog lofumþéraðsannreynastór- kostlega sogeiginleika hennar á teppinu þínu. (Þetta er þér að kostnaðarlausu á stór-Reykjavíkursvæðinu og án skuldbindinga). Hringdu milli 9 og 10 í síma 16995 og pantaðu tíma. Standist VOLTA ryksugan kröfur þínar, þá getum við gengið frá kaupunum á staðnum með eftirfarandi möguleikum A. Góðum staðgreiðsluafslætti. B. 500 kr. útborgun. Siðan 500 kr. á mánuði að viðbættum vöxtum. VOLTA ryksugan er búin eftirfarandi kostum: • 1. Sterk, létt og meðfærileg. • 2. Stór sterk hjól. • 3. Hlífðarlisti á hliðum er verndar húsgögn. • 4. Geysilegum sogkrafti, sem má minnka eftir þörfum. • 5. Inndregin snúra, handhægir rykpokar. • 6. Hægt er að fá teppabankara. • 7. Ryksía, sem siar fráblástur frá ryksug- unni, sérstaklega gott fyrir ofnæmisfólk. • 8. Sterkir fylgihlutir. Árs ábyrgð. Örugg þjónusta. Verð U 225 2.356,- U 235 2.623,- EINAR FARESTVEIT & Bergstaðastræti 10 A Sími 16995 CO. HF VOLTA U 235 er elektrónisk. Sendum í póstkröfu án tilkostnaðar. En ef þú vilt heldur skoða VOLTA ryksuguna i verslun okkar ertu ávallt velkominn. NYLAGNIR VIJGEROIR VIOHAID VERSLUN GLERÁRGATA 26-AKUREYRI • BOX 873-SÍMI259 51 0 VDLXA sænsk úrvalsvara Rodkál ognœnn

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.