Tíminn - 16.12.1981, Page 10
Miövikudagur 16. desember 1981
10 Wmúm
heimilistíminn ; ^ L Umsjón: B.St. og K.L.
Kostir og
ókostir —
við að vera
einhleyp(ur)
■ Oft er sagt sem svo um þá einhleypu: „Aurá-
ingja hún (hann) hvað það hlýtur að vera einmana-
legt að búa ein(n)!” En það getur lika fylgt þvi
margt gott að búa einn i ró og næði og þurfa ekki
alltaf að taka tillit til annarra. Bresk blaðakona
Philippa Pigache gerir það upp við sjálfa sig í
blaðagrein hvort það sé svo slæmt að vera ein á
báti. Hún gerði lista sem við ætlum að birta hér en
okkur telst svo til, að ókostirnir séu fleiri hjá henni
en kostirnir, en hvort þeir eru eins þungir á metun-
um, skal ósagt látið.
Kostirnir eru:
■ Fallegur hópur af jólasveinabörnum tii aö gera jólaiegt á heimilinu.
Fallegu
jólasveina-
börnin
■ Hægt er að borða kex eða
appelsinur i rúminu án þess að
einhver sé að skipta sér af þvi.
Ekki þarf að loka að sér á
baðinu
...eða þrifa baðkarið eftir ein-
hvern annan
Að þurfa ekki að afsaka sig ef
maöur kemur mjög seint heim,
eða jafnvel — kemur alls ekki
heim...
Að koma ekki að tómri
mjólkurfernu, þegar þú heldur að
nóg mjólk sé til, — eða tómri
flösku inni í barskápnum, eða all-
ur klósett-pappirinn er búinn á
baðinu.
Hægt er að lita hárið og hafa
andlits-maska heilt kvöld án þess
að hugsa um útlitið á meðan.
Fara i megrunarkúr og
hreinsa allt út úr isskápnum.
Koma fram alklædd og puntuð
þegar fara á út að skemmta sér,
en láta ekki horfa á sig meðan
verið er að setja á sig „spariand-
litið”.
Tala lengi og notalega i sim-
ann við elskhugann.
Skemmta sér með þeim fyrr-
nefnda (i siðustu málsgrein) — en
halda sig frá honum (henni) ef
skápið er ekki i lagi einhverra
hluta vegna.
burfa aldrei að vaka eftir þvi
að einhver komi heim.
Láta safnast fyrir i rúminu
hjá þér ýmsa hluti, svo sem blöð,
bækur, ketti o.fl.
Hafa sjálf(ur) blaðið fyrir sig
með morgunverðinum.
Vera i rúminu allan daginn ef
maður á fri, eða vaka alla nóttina
viðaðlesaspennandibók, án þess
að halda vöku fyrir einhverjum.
Ráða sjálfur hvort og hvenær
horft er á sjónvarpið.
Hægt er að halda góðu sam-
bandi við gamla ástvini (vinur)
og jafnvelfara út og skemmta sér
meö þeim, ef svo ber undir, án
þess að meira búi á bak við.
Vera sjálfstæð persóna og
treysta ekki á neinn nema sjálf-
a(n) sig. Ekki vera sifellt að
spyrja aðra ráða.
Hafa það á tilfinningunni að
það geti alltaf eitthvað spennandi
verið á næsta leiti.
Svo eru það ókostirnir:
Enginn er til staðar til að
hjálpa til við rennilásinn á kjóln-
um fyrir hana (eða hnýta þver-
slaufuna fyrir hann)...
...eöa taka kóngulóna sem
allt i einu var komin i baðkarið.
... eða hringja til læknisins ef
þú ert veik(ur) og i vinnuna til að
afsaka þig.
... eða til að ansa i simann,
þegar þú nennir ekki að tala við
neinn.
Uppgötva að sigaretturnar
eru búnar og þú nennir ekki að
fara út i sjoppu.
Enginn er til að hlæja með
þér að einhverju bráðsniðugu
sem þú ert aö lesa.
Þurfa sjálf(ur) að hlýja rúm-
ið alein(n)
Kaupa i matinn handa einum.
Hótelherbergi eru dýrari
fyrir einhleypinga (yfirleitt er
gert ráð fyrir tveim i herbergi)
Heyra að nóttu til einhvern
hávaða sem gæti kannski verið
innbrotsþjófur.
Fá óboðna gesti og hafa eng-
an til að fara út til að kaupa eitt-
hvað til að drekka, eða með kaff-
inu.
Háir simareikningar, þvi að
sá einmana gerir meira að þvi að
hringja i vini en hann gerir sér
grein fyrir, fyrr en sim-
reikningurinn kemur.
Vanta nauösynlega peninga
og eiga ekki blað i ávisanaheft-
inu.
Hella alltaf hálfum tepotti i
vaskinn eða kaffi úr hálfri kaffi-
könnu.
Enginn er til að opna fyrir
rafmagnsmanninum, og þú ert i
baði.
Aö þurfa að biðja um gistingu
hjá kunningjum, ef þú kemur
seintheim oghefur gleymt lyklin-
um að ibúðinni.
Að lenda i ástarævintýrum
með giftum mönnum.
Að kviða fyrir sunnudögum
og hátiðum.
Liggja andvaka um nætur og
hugsa meb beyg til framtiðarinn-
og allt sjálftraust er flogið út i
næturmyrkrið.
I Það má dreifa þeim um allt,
þessum fallegu jólasveinabörn-
um, sem eru búin til úr rauðu filti
eða öðru fallegu þykku efni. Á
myndinni eru jólasveinarnir litlu
úr filti i þremur rauðum og bleik-
um litum,enhjörtun og sokkarnir
eru úr gulu og bláu filti. Hárið er
saumað með gulu ljósbrúnu eða
rauðu garni.
Svona sæt litil jólasveinabörn
eru alls staðar til skrauts, það má
hengja þau i ljósakrónur, festa
nokkur þeirra saman i óróa
hengja þau á jólatréið eða leggja
þau á jólaborðið til skrauts. Það
er einfalt að búa þau til eftir
teikningunni.
Þetta þarf til að búa til jóla-
sveinana:
Filtpjötlur helst i rauðum lit-
um, ullargarn til að sauma hárið
með igulum, brúnum eða rauðum
lit, smáperlur fyrir hnappa og
gott lim til að lima filt.
■ Einn af kostunum viö aö búa ein(n), er aö taka sér góöan tima i baö-
inu og þurfa ekki aö loka aö sér, en hafa góöa músik til aö hlusta á á
meöan, —og svo aö þurfa ekki aö þrifa baöiöeftir einhvern annan.
■ Þarna sést stæröin á jólasveinabörnunum og svo er bara að klippa
nákvæmlega eftir teikningunni og líma saman eins og þar segir.