Tíminn - 23.01.1982, Side 3
Laugardagur 23. janúar 1982.
fréttir
„SAMSTAÐA AÐ
NAST UM EFNA-
HAGSAÐGERDIR”
— rætt við Steingrím Hermannsson um
stödu mála hjá ríkisstjórninni
■ „Viðræðum innan stjórnar-
flokkanna um efnahagsráðstaf-
anirer nú að ljúka. Fundir standa
nú yfir aðallega innan ráðuneyta
og i fjármálaráðuneytinu um
niðurskurð þann og sparnað sem
þarf að vera á rikisrekstrinum.
Búið er að koma sér niður á á-
kveðna upphæð sem menn eru nú
að reyna að koma fyrir i f járlaga-
dæminu. Þetta tekst, en það er að
vonum sársaukafullt, og um leið
og menn gæta þess að jafna þetta
yfir alla linuna, þarf þó að tina
eitthvað út úr sem allir geta verið
sammála um að fresta megi.
Einnig verðum við að leggja á-
herslu á að um raunverulegan
sparnaðverði að ræða, aðallega i
rekstri,” sagði Steingrimur Her-
mannsson um þær efnahagsráð-
stafanir, sem veriö er að leggja
siðustu hönd á.
„Að mati okkar framsóknar-
manna hefur þessi áæltun rikis-
stjórnarinnar tekið mjög miklum
breytingum til batnaðar. Að visu
er fyrst og fremst um að ræða
viðnám gegn verðbólgu. Ljóst er
að i lok siðasta árs tók verðbólgan
hraðan sprett upp á við og hefur
verið spáð 55% sem er þó miklu
lægri tala, heldur en spáð var i
upphafi siðasta árs þegar spáð
var 70-80% verðbólgu. Allir aðilar
sem að rikisstjórninni standa eru
sammála um að það verði að
draga úr þessum hraða. Ódýrasta
leiðin er að auka niðurgreiðslurn-
ar á fyrri hluta ársins og lækka
verð gegnum tollalækkanir. Enda
eru niðurgreiðslur á land-
búnaðarafurðum orðnar tiltölu-
lega minni en þær voru nylega.
Þær eru nú um 5.2% af vægi i
framfærsluvisitölunnar en voru i
des. 1978 11%. Með þvi sem nú er
ætlað til viðbótar færist niður-
greiðslan upp i um 9%.
Það sem við viljum skoða betur
er að undirbúa framhaldsaðgerð-
ir siðar á árinu,þvi þetta nær ekki
nógu langV og fá samkomulag
innan rikisstjórnarinnar um
slikar aðgerðir. Með þessum
niðurgreiðslum má ætla að takist
að ná verðbólgunni niður úr þess-
um 55% niður fyrir 40%, ef engin
skakkaföll verða. T.d. engar
grunnkaupshækkanir siðar á ár-
inu eða verðfall á isl. afurðum
erlendis, sem kallar á aðgerðir
sem fara inn i verðbólguna. Þess
vegna viljum við halda áfram
'þeirriendurskoðun á visitölukerf-
inu sem hófst i tið stjórnar Ólafs
Jóhannessonar, þar sem tekið er
tillit til viðskiptakjara bæði sem
plús og minus. Ef viðskiptakjör
batna er grundvöllur til að hækka
laun meira en ef þau versna
verður að draga frá. Þarna er
samt ennþá aðeins tekið tillit til
30% af viðskiptakjörunum,
þannig að ennþá gildir sú gamla
regla að hér hækka laun þegar
kaffi hækkar i Brasiliu. Auðvitað
■ 15 ára piltur kjálkabrotnaði
þegar hann féll niður af þaki
hússins við Hraunteig 28 i
Reykjavik i fyrrakvöld. Fallið
var 12-13 metrar og kom drengur-
inn niður á steinsteyptar
kjallaratröppur hússins.
Lögreglan var kvödd á staðinn
um klukkan 23 i fyrrakvöld. Hafði
þá pilturinn ásamt jafnaldra sin-
um klifrað út um kvistglugga á
þaki hússins og þaðan ætluðu þeir
■ Steingrimur Hermannsson,
sjávarútvegsráðherra.
er ekkert svigrúm til sliks. Þetta
viljum við halda áfram að ræða
við launþega.
Okkur þykir það vægast sagt
vafasamt að mikilvægum fram-
kvæmdum á orkusviðinu er bein-
linis haldið niðri vegna visitöl-
unnar. T.d. eru allar byggðalinur
á erlendum lánum, sem þjóðar-
búið er að kikna undir og ef það er
reiknað inn i raforkuverðið
hækkar visitalan. Þetta eru
mikilvægustu framkvæmdir sem
i hefur verið ráðist á siðustu árum
til að veita öllum landsmönnum
aðgang að orku á viðunandi verði.
Hér er um að ræða hvort al-
menningur vill leggja eitthvað af
mörkum til að borga þessar
mikilvæguframkvæmdireða á að
gera þær allar á erlendum lánum
og safna skuldabagga. Þetta vilj-
um við taka til umræðu. Við erum
ekki að setja neina ófrávikjan-
lega kröfu um ákveðinn frádrátt á
launum. Við viljum einfaldlega fá
þetta rætt og þá erum við sann-
færðir um að aðrir sannfærist um
að þetta er skynsamlegt.
Ljdst er að við náum ekki nægi-
lega mikilli hjöðnun verðbólgu
með þessum niðurgreiðsluað-
gerðum einum. Þvi leggjum við
áherslu á að draga úr kostnaði at-
vinnuveganna, sem kallar á
minni gengislækkanir. Við viljum
lækka launaskatt á útflutningsat-
vinnuvegina og iðnað,
Við viljum einnig lækka að-
stöðugjaldið til samræmis við
fiskvinnslu. En það er ekki hægt
nema ræða fyrst við sveitarfélög-
in.
Jafnframt viljum við leita
nýrra leiða i verðlagsmálum,
sem leitt geta til meira frjáls-
ræðis og jafnvel til vöruverðs-
lækkunar.
Þegar svo menn, eins og t.d.
Ólafur Ragnar, eru að tala um að
það standi á okkur framsóknar-
mönnum að framkvæma efna-
hagsaðgerðir er það aðeins vegna
þess að „pakki” Alþýðubanda-
lagsins náði eingöngu til niður-
félagar á kaðli niður af þakinu.
Kaðallinn slitnaði með þeim af-
leiðingum að drengurinn féll nið-
ur. Pilturinn var siðan fluttur á
slysadeild þar sem gert var að
meiðslum hans.
Körfubill frá slökkviliðinu kom
k vettvang til aðná hinum piltin-
am ni ður. Þetta m ál er nú i ran n-
sókn hjá rannsóknarlögreglu
rikisins.
— Sjó.
greiðslna en engra annarra ráð-
stafana, og þar með aðeins til
hluta þeirra ráðstafana sem gera
þarf ogviðtöldum nauðsynlegt að
skoða alla þessa hluti nánar.
Ég hef ekki orðið var við það
hjá okkar samstarfsaðilum, að
nokkur hafi gert athugasemd við
það. Þó að við höfum lagt áherslu
á þessi atriði er það siður en svo
að samstarfsaðilar okkar hafi
verið þeim mótfallnir. Mönnum
hefur kannski legið misjal'nlega
mikið á i þessu máli.
Allur sá ágreiningur sem
Morgunblaðiðerað gera að fram-
haldsreyfara á sinum siðum er út
i hött. Menn eru að skiptast á
skoðunum og trúnaður rikir á
milli manna um það.
Hvarersvoniðurtalningin i öllu
þessu? Hún er fólgin i þvi að
rikisstjórnin setur sér markmið
um stighjaðnandi verðbólgu, sem
m.a. á að fela i sér að hraði verð-
bólgunnar verði minni i lok árs-
ins.
Það verður að viðurkennast að
byrjunaráfanginn felst fyrst og
fremst i lækkun verðlags.
Það tekur varla að svara þeirri
ásökun að Framsóknarflokkurinn
vilji skerða verðbætur án þess að
nokkuð komi i staðinn. Við höfum
verið hvað harðastir i kaup-
máttarstefnunni og höfum alltaf
sagt að við viljum bæta kaup-
mátt, en ef það er ekki svigrúm i
þjóðfélaginu þá á kaupmáttur
lægri launa að ganga fyrir og ef
samdráttur verður i viðskipta-
kjörum liggur ljóst fyrir að við
getum ekki haldið fullum kaup-
mættiyfiralla linuna. Þess vegna
höldum við þvi fram, að með þvi
að taka ofan af verðbótum og
bæta kaupmáttinn getum við
stjórnað svolitið þessari kaup-
máttarrýrnun sem kann að
verða.
Efnahagsnefndin hefur að
mestu lokið sinum störfum.
Sömuleiðis ráðherranefndin sem
fjallaði um niðurskurðinn og
tekjuöflun og hefur skilað af sér.
Það dæmi er nú komið til ráðu-
neytanna. Ég er t.d. á kafi i þvi
núna fyrir min ráðuneyti að
kanna hvað við getum lagt til
þessara nauðsynlegu mála.
Forsætisráðherra mun skýra
frá nýjum efnahagsráðstöfunum
eftir helgi. Við teljum mikilvægt
að þá verði orðin algjör samstaða
hjá öllum flokkunum. Það
stendur ekkert á okkur fram-
sóknarmönnum, við viljum að-
eins að þessi heildarsamstaða
liggi fyrir og ef það kostar aö taka
málin uppenn einu sinni á mánu-
dag er það alveg sjálfsagt
Við leggjum áherslu á að þær
ráðstafanir sem nú er verið að
gera söuaðeins til að koma i veg
fyrir að verðbólgan æöi upp á við
á næstunni og þegar kemur fram
á árið verður að halda áfram og
undirbúa varanlegri aðgerðir.
Samstaða innan Framsóknar-
flokksins um þær aðgerðir sem nú
er veriðaðundirbúa er góð. Menn
skiptast að sjálfsögðu á skoðun-
um, sumir vilja skera niður fjár-
lögin hér og aðrir þar og er
það eðlilegt, en samstaðan er
mjóg góð innan flokksins.
1 þessu sambandi vil ég segja
að ég er mjög ánægður með sam-
starfið milli stjórnarflokkanna og
ég kippi mér ekkert upp við það
þótt Ólafur Ragnar sé að gefa
eitthvað annað til kynna. Sam-
starfið er gott og hann hefur tekið
allan þátt i þvi lika, blessaður.
Oó
Féll 13 metra
■ Frambjóðendur I prófkjöri framsóknarmanna í Reykjavfk kynntu
sig og sjónarmið sin á almennum fundi á fimmtudagskvöldið, og var
myndin hér aö ofan tekin við þaö tækifæri. Prófkjörið fer fram I dag,
laugardag, og á morgun, sunnudag. Nánari upplýsingar um prófkjörið
er að finna i auglýsingu á baksiðu Helgar-TImans.
Timamynd: Róbert
HEIMSMEISTARAR
í SKÍÐAFIMI
HINGAÐ I
■ Volvo sýningarhópurinn, sem
er heimsmeistari i skiðafimi, er
væntanlegur hingað til lands i
aprilmánuði og mun hann sýna
listir sinar i Bláfjöllum.
í hópnum eru samankomnir
fyrrverandi og núverandi heims-
methafar i skiðafimi sem á
undanförnum árum hafa sýnt
listir si'nar viðsvegar um heim.
APRÍL
A siðastliðnu ári kom skiöafólk-
ið fram rúmlega fimmtiu sinnum
i sjónvarpi i Evrópu, Bandarikj-
unum og Suður Ameriku.
Hópurinn kemur hingað i boði
Flugleiða og Skiðasambands is-
lands en á þessu ári hafa allir
meistararnir auglýsingar frá
Flugleiðum á búningum sinum.
— Sjó.
Áramótaskaupið íHollywood:
„Brjóta öll
möguleg lög”
• ,,Með þessu er verið að brjóta
öll möguieg lög,” sagði Pétur
Guðfinnsson framkvæmdastjóri
Sjónvarpsins þegarTimin spurði
hann hvort veitingahúsinu Holly-
wood væri heimiltað sýna gestum
sinum Skaupið af videospólu. En
samkvæmt áreiðanlegum
heimildum Timans hefur Skaupið
verið sýnt i Hollywood.
„Það er leiðinlegt að heyra að
menn skuli annaðhvort vera
svona vitlausir eða ósvifnir,” hélt
Pétur áfram, „þvi' með þessu
brjóta þeir rétt þeirra sem koma
við sögu við gerð Skaupsins og
einnig Sjónvarpsins sem er fram-
leiðandi þess.”
— En nú seldu þeir ekki aðgang
að Skaupinu sem sliku.
„Nei kannski ekki, en ég geri
ekki ráð fyrir að mönnum sé
heimilt að sýna svona upptökur.
Nema þá i heimahúsum.”
— Hefur Sjónvarpið hugleitt að
kæra veitingahúsið?
,,Það mætti kannski fara að
hugleiða eitthvað slikt,” sagði
Pétur.
Ólafur Laufdal, veitingamaður
iHollywood, sagðist ekki kannast
við að Aramótaskaupið hefði ver-
ið sýnt á veitingastaðnum, ,,en
hafi svo verið þá kippi ég þvi út
við fyrsta tækifæri,” sagði Ólaf-
ur.
— Sjó.
Athugasemd
■ Vegna fréttar Timans i gær,
þarsem haftvareftir AlbertGuð-
mundssyni að enginn blaðamaður
Aiþýðublaðsins hefði talað við
sig, hafði Guðmundur Arni
Stefánsson, blaðamaður Alþýðu-
blaðsins samband við Timann i
gær og bað um birtingu á eftirfar-
andi:
„Fyrir utan hliðardyr samein-
aðs þings,kl. 14.40 miðvikudaginn
20. janúar, átti ég samtal við Al-
bert Guömúndsson, sem birtist
óbreytt á forsiöu Alþýðublaðsins
sl. fimmtudag. Ég kynnti mig
sérstaklega sem blaðamann Al-
þýðublaðsins fyrir Albert. Hvort
Albert hefur skipt um skoðun eöa
ekki, er ekki mál Alþýðublaðs-
ins.”
■ Sýningin „Útivera og iþróttir” var opnuð I Laugardalshöll i gær, og
mun standa fram á sunnudagskvöld. Þar má sjá margskonar búnað
fyrir iþróttir og útiveru. Sérstakar sýningar verða á l-2ja tima íresti,
svo sem tiskusýningar, sýnikennsla um viðhald skiöa og fleira. Myndin
var tekin við opnunina.
Timamynd: Ella