Tíminn - 12.02.1982, Qupperneq 3
3
FÖstudagur Í2."febrúár Í982.
fréttir
Rýrnunin í Frlhöfninni nam yfir 700 þúsundum í fyrra:
MRF AÐ KOMA TIL FREK
ARI ATHUGUN A ÞESSUM
— segir Ari Sigurdsson, fulltrúi starf smanna
■ „Viö hefðum gjarnan viljaö
reyna þennan samning áfram á
milli okkar starfsmannanna i
Frihöfninni og rikisins, ef allt
hefði verið eðlilegt, þvi hann hefði
getað komið vel út fyrir báða að-
ila, en það var þvi miður ekki allt
eðlilegt, þannig að við sáum okk-
ur ekki fært að endurnýja hann,”
sagði Ari Sigurðsson, fulltrúi
starfsmanna Frihafnarinnar i
samstarfsnefndinni frá þvi á sið-
asta ári.
„Þessi samningur byggöist á
þvi aö ákveöið samstarf væri á
milli rikisvaldsins og starfs-
mannanna, þvi starfsmenn tókuá
sig ansi mikla ábyrgð i sambandi
við meðferð á vörunni, og fengu
borgaða aukavinnu, samkvæmt
þvisem þeirseldu, en þeir þurftu
að borga rýmun Ur eigin vasa, ef
hún fór upp fyrir 0.3% af veltu.
Fulltrúar starfsmanna áttu að
taka þátt i þessum aðgerðum og
sjá um að allt gengi eðlilega fyrir
sig, en það byrjaði strax um ára-
mótin 1980 — 1981, að það var
neytt upp á starfsmenn verk-
stjóra sem þeir sættu sig ekki við,
og töldu óhæfa, vegna fyrri
reynslu, og treystu þeim þvi ekki
til þess að sjá um þetta,” sagöi
Ari.
Ari sagði að undirskriftalistar
hefðu farið af staö hjá starfs-
mönnum, og að þessu fyrirkomu-
lagi hefði verið mótmælt við utan-
rikisráðherra, og stjórnunar-
nefnd Frihafnarinnar, en þau
mótmæli hefðu verið svæfð og
sæst á að unnið yrði samkvæmt
þessu fyrirkomulagi út árið i
fyrra. Ekki hefði tekist betur til
en svo að óánægja starfsmanna
hefði aukist Ut allt árið, og þessir
verkstjórar hefðu reynst á þann
veg sem búisthefði verið við. Þeir
hefðu mismunað mönnum og
jafnvel ofsótt einstaka starfs-
menn.
Ari sagði: ..Vsgna ofrikis verk-
stjóranna var ekki hægt að við-
hafa eftirlit með skilum vara á
milli vörulagers og verslunar, en
slikt eftirlithaföiáður tiðkast, þvi
það auðveldaði að hægt væri að
fylgjast með rýrnun. Enda kom
það i ljós eftir árið,” sagði Ari
„aö rýrnunin reyndist langt fram
yfir það sem vonast hafði veriö
til. Samkvæmt niðurstöðum
bráöabirgðauppgjörs eru það
svimandi upphæðir sem þarna
koma iljós,” en þessar upphæðir
verða starfsmennirnir að borga
af sinum launum. Þessar upp-
hæðir eru það háar, að ég get ekki
imyndað mér annað en að frekari
athugun á þessum lið þurfi til að
koma.”
Samkvæmt heimildum Timans
þá var rýrnunin á sl. ári 1.1% af
veltu P'rihafnarinnar, sem var
um 66 milljónir króna, þannig að
rýrnunin nemur um 720 þúsund-
um króna, sem þykir ótrúlega há
upphæð.
Ari sagði að þessi mikla rýmun
og þaö að verkstjórarnir stóðu
beinlínis f þvi að koma af stað ill-
indum á milli manna, væru
ástæðurnar fyrir þvi að starfs-
mennirnir hefðu ekki viljað end-
urnýja samninginn um rekstur-
inn á F'rihöfninni.
Ari var að þvi spurður hvað
hann ætti við með þvi aö til rann-
sóknar á rýrnuninni þyrfti að
koma:
„Það sem ég á við er það, að
ekki sé nógu vel unnið af hendi
stofnunarinnar, þau verk sem að
þeim snúa, eins og bókhald og
annað. Þetta segi ég af gefnu til-
efni, þvi við endurtalningar þar,
hefurallskonarruglingurkomið i
ljós. Þetta er ákaflega laust i
reipunum og los á öllu af hendi
stjórnenda fyrirtækisins.”
— AB
Verkfall starfsmarma á Kópavogshæli og Kleppsspítala:
rrEngin lausn getur feng-
ist á svo skömmum tíma ”
— segir f jármálaráðherra
■ „Ég tek undir orð Gunnars
Gunnarssonar hjá Starfsmanna-
félagi rikisstofnana, þar sem
hann vekur athygli á þeim ör-
stutta fresti sem gefinn er i þessu
máli, en enginn raunsær maður
getur látið sér detta i hug að ein-
hver raunhæf lausn geti fengist
fram á svo skammri stundu”,
sagði Ragnar Arnalds, fjármála-
ráðherra, þegar Timinn spurði
hann álits á aðgeröum starfs-
manna á Kleppsspitala.
„Ég hef ekki trú á þvi að starfs-
menn láti aðgerðir sinar bitna á
þe.m viðkvæma hópi sjúklinga
sem hér um ræðir”, sagði Ragnar
enn, „þótt hið opinbera sé vissu-
lega ierfiöri stööu, þegar að sjálf-
um heilbrigðismálunum kemur á
þennan hátt”.
Ráöherra sagði að sú staða
kæmi alltaf upp öðru hverju að
einstakir hópar vildu skera sig út
úr og öðlast sjálfstæðan
samningsrétt. 1 þessu dæmi væri
það Sókn sem ætti rétt til aö láta
sitt fólk gegna þessum störfum og
gildandi samningar fyrir hendi
þar um. Rikið hefði og ekki áhuga
á að veikja stöðu samningsaðila
sinna, með þvi að leysa þá upp I
smærri einingar, eins og hér er
verið að gera.
„öll þessi mál verða aö leysast
á vettvangi samningaviðræðna
milli okkar annars vegar og viö-
komandi stéttarfélaga hins veg-
ar”, sagði Ragnar Arnalds.
—AM
„Mikill missir,
ef þetta fólk
kemurekki aftur,”
- segir Lárus Helgason, yfirlæknir
■ „Meðal þessara starfsmanna
er fólk sem starfaö hefur á stofn-
ununum all lengi og notið þjálfun-
ar”, sagöi Lárus Helgason yfir-
læknir á Kleppsspitala þegar viö
spurðum hann um hvaða af-
leiðingar aðgeröir starfsmanna
gætu haft fyrir stofnunina.
„Þetta er traust og gott starfs-
fólk”,sagðihann „og þaðyrðiþvi
mikill missir fyrir okkur ef það
kemur ekki aftur til starfa.
Ekki þarf að fjölyrða um það
ástand sem skapast, þegar svo
margt fólk gengur út af
stifnununum — og ég segi stofn-
ununum, þvi spitalinn er það
dreiföur. Slikt hlýtur aö skapa
mikinn vanda.
Ég vona þvi aö þetta vari ekki
nema stuttan tima. Hjúkrunar-
fræðingaskortur hefur hér verið
viðloðandi lengi og óþarft að taka
fram að ekki bætir þetta úr skák.
Þvi get ég aðeins endurtekið aö ég
vona að fá þetta ágæta fólk sem
fyrst aftur til starfa”.
—AM
M A hádegi I gær gengu ófaglærðir starfsmenn á Kleppsspitala út og hyggjast þeir ekki snúa aftur til
starfa fyrr en þeir hafa fengiö kröfur sinar uppfylltar. „Viö stöndum i þessum aögerðum eins lengi og
við þurfum. Viö mætum ekki til vinnu fyrr en viö fáum fram leiðréttingu”, sögöu tveir viömælendur
Timans fyrir utan Kleppsspítala I gær.
Timamynd —GE.
■ Ilópurinn fjölmennti siöan í tveimur rútum niöur i stjórnarráö, þar sem kröfur starfsmannanna voru
áréttaöar. Hér skundar forystuliö ófaglæröra starfsmanna viö Klepp inn i f jármálaráðuneyti.
Timamynd—GE.
„Styðjum ekki þessar aðgerðir ”
— segir Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, formaður Sóknar
■ „Við stöndum ekki að baki
þessum aögerðum, þvi við erum
með fullgilda samninga fram i
mai og það er ekki verið að brjóta
neina samninga á okkur þarna”,
sagöi Aðalheiður Bjarnfreösdótt-
ir, formaður Starfsmannafélags-
ins Sóknar þegar blaðið ræddi viö
hana i gær um atburöina á
Kleppsspitala.
Aðalheiður sagöi aö áður hefði
verið mikill munur á Sóknarfólki
og BSRB fólki sem vann sömu
störf viö Kleppsspitalann en
félagið heföi sótt á og væri nú svo
komið aö aðeins óverulegur mun-
ur væri á álagi. „Þennan mun
höfum við veriö að semja um leið-
réttingu á við fjármálaráðu-
neytið”, sagði Aöalheiður, „og
þvi óskiljanlegra er aö gripið er
til þessara aögerða á meðan”.
—AM