Tíminn - 12.02.1982, Page 12

Tíminn - 12.02.1982, Page 12
20 Föstudagur 12. febrúar 1982. Auglýsing um aðalskoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur í febrúarmánuði 1982 Mánudagur 15. febrúar R—1 til R—500 Þriöjudagur 16. febrúar R—501 til R—1000 Miðvikudagur 17. febrúar R—1001 tii R—1500 Fimmtudagur 18. febrúar R—1501 til R—2000 Föstudagur 19. febrúar R—2001 til R—2500 Mánudagur 22. febrúar R—2501 tii R—3000 Þriðjudagur 23. febrúar R—3001 til R—3500 Miðvikudagur 24. febrúar R—3501 til R—1000 Fimmtudagur 25. febrúar R—4001 til R—4500 Föstudagur 26. febrúar R—4501 til R—5000 Bifreiöaeigendum ber að koma meö bifreiðar sinar til bifreiöaeftirlits ríkisins, Bíldshöfða 8 og veröur skoöun framkvæmd þaralla virka daga kl. 08:00 til 16:00. Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sinar til bifreiðaeftirlits rikisins, Bildshöfða 8 og verður skoðun framkvæmd þar alla virka daga kl. 08:00 til 16:00. Festivagnar, tengivagnar, og farþegabyrgi skulufylgja bifreiðum til skoöunar. Viðskoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram full- gild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi að bifreiða- skattur sé greiddur og vdtrygging fyrir hverja bifreið sé i gildi. Athygli skal vakin á þvi að skráningarnúmer skulu vera vel læsileg. Samkvæmt gildandi reglum skal vera gjaldmælir i leigubifreiðum sem sýnir rétt ökugjald á hverjum tima. A leigubifreiðum til mannl'lutninga, allt að 8 farþegum, skal vera sérstakt merki meö bókstaínum L. Varnræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á auglýstum tima verður hann látinn sæta sektum samkvæmt um- ferðarlögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Biíreiðaeitilitið er lokað á laugar- dögum. í skráningarskirteini skal vera áritun um það að aðalljós bifreiðarinnar hafi verið stillt eftir 31. júli 1981. Lögreglustjórinn i Reykjavik. 10. febrúar 1982. Útboð Tilboð óskast i endurbyggingu á Hafnar- bakka i austurhluta gömlu hafnarinnar i Reykjavik fyrir Ilafnarstjórann i Reykja- vik, fyrir hönd Hafnarstjórnar. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frikirkjuvegi 3 gegn 3 þúsund króna skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 16. mars nk. kl. 11.00 f.h. INNjUtJPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAfc .,7'' Fríkirl«juv*gi 3 — Sími 25800 ■7/' BOÐA TIL kynningarfundar Á HÓTEL BORG laugardaginn 13. febrúar n.k. kl. 14.30 Konur, komið og kynnist uppbyggi- legum og nútímalegum félagsskap. HHHHHHHHHHHHHKynningar- og útbrciðslunefndHHHHHHHHHHHH íþróttir ,,Það kemur íljósídag — hvort ég gerist þjálfari hjá KAM sagði Daninn Jan Larsen ■ Danski handknattleiksþjálf- arinn Jan Larsen var á meðal á- horfenda þegar 1. deildar lið KA i handknattleik fékk Þrótt i heimsókn i iþróttaskemmuna á Akureyri siðast liðið miðviku- dagskvöld. Daninn var þarna kominn til þess að fylgjast með liði KA, en talsverðar likur eru á þvi aö hann verði næsti þjálfari liðsins og taki við þvi næsta sumar. Eftir leikinn ræddum við viö Larsen og spurðum hann um likurnar á þvi að hann tæki viö liðinu. „Það kemur i ljós á morgun eða föstudag hvort ég tek við KA-liðinu. Það á eítir að ræða málin og athuga hvort að saman gengur með okkur og þetta mun allt saman skýrast áður en ég fer héðan.” sagði Larsen sem hefur þjálfað 2. deildarliðið Ribe i Danmörku i vetur en það lið er nú komið i úrslit i 2. deildarkeppninni þar i landi. Við spurðum Larsen hvernig honum hefði fundist það sem hann sá til KA-liðsins. „Það er erfitt að dæma um þetta eftir að hafa séð liðið leika i þessar fáu minútur. Ég sá hinsvegar að þetta er ungt lið og það er greinilegt að i þvi eru margir leikmenn sem geta orðið nokkuð góðireí þeir eru tilbúnir til að leggja hart að sér, en það þarf að gera i handknattleik ef árangur á að nást. Það er ýmislegt sem er ólikt með dönskum og islenskum handknattleik. lslenskir hand- knattleiksmenn leika til dæmis alltaf á sama hraða og það er eitt af þvi sem ég myndi vilja laga hjá KA-liðinu ef það yrði af þvi að ég tæki við þvi, auk þess sem ég myndi koma með einhverjar.taktiskar' breytingar i leik liðsins”. Þá ræddum við einnig við Gisla Bjarnason formann hand- knattleiksdeildar KA og sagði hann okkur að talsverðar likur væru á þvi að samningar myndu takast á milli KA og Larsens. „Það á hinsvegar eftir aö ræða málin” sagði Gisli og þá sjáum við meðal annars hvort við höf- um efni á þvi að ráða við hann, það er ýmislegt sem spilar þarna inn i. En Larsen virðist vera mjög áhugasamur að taka að sér þjálfun KA og ég hef heyrt að hann vilji miklu frekar koma hingað norður til Akureyrar en að vinna við þjálf- un i Reykjavik”. GK-AK/röp-. ■ Tekst Ilanny Shousc að leiða Njarðvikinga til sigurs i leiknum gegn Kram i kvöld? Ung- linga- mót í sundi ■ Unglingameistaramót Is- lands fyrir 16 ára og yngri verður haldið i Sundhöll Reykjavikur um næstu helgi, 13. og 14. febrúar. Þrettán félög frá tiu stöðum hafa tilkynnt þátt- töku i mótinu. Þátttakendur verða frá Akranesi, Borgarnesi, Bolungarvik, Akureyri, Vest- mannaeyjum, Héraðssamb. Skarphéðni, þ.á.m. Selfossi, frá Keflavik, Njarðvikum og Hafnarfirði og frá Reykjavik verða þátttakendur frá sund- félaginu Ægi og sunddeild Ár- manns og sunddeild KR. Sjald- an eða aldrei á seinni árum hafa jafn margir þátttakendur frá jafn mörgum stöðum verið skráðir til þátttöku i sundmóti unglinga. B KR og Stúdentar leika i úr- valsdeildinni i körfuknattleik á sunnudagskvöldið og verður leikurinn i iþróttahúsi Haga- skóla og hefst kl. 20. „Þetta verður baráttuleikur” — segir Hilmar Hafsteinsson þjálfari UMFN sem mætir Fram i kvöld í úrvalsdeildinni ® „Það má kannski orða það svo”sagði Hilmar Hafsteinsson þjálfari Njarðvikurliðsins i körfuknattleik er hann var spurður að þvi hvort leikur þeirra gegn Fram i úrvalsdeild- inni i kvöld væri úrslitaleikur- inn i íslandsmótinu. „Ef að okkur tekst að sigra Framarana þá verður eVfitt að ná okkur. Þvi er ekki að leyna að maður er dálitið ,nervös’ fyrir þennan leik gegn Frömurunum. Þeir unnu okkur með 20 stiga mun i siðasta leik en við erum ákveðn- ir i þvi að hefna þeirra ófara. Þetta verður baráttuleikur og við ætlum okkur að vinna hann og Islandsmótið. Við höfum æft mjög vel undanfarið. Framarar eru erfiðir mótherjar og verða ekki auðunnir. Við höfum tvi- vegis unnið þá og tapað einu sinni fyrir þeim, en ef við vinn- um þá i kvöld þá þarf eitthvað meira en litið að ské til að koma i veg fyrir sigur á Islandsmóti. röp-.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.