Fréttablaðið - 30.04.2008, Side 6

Fréttablaðið - 30.04.2008, Side 6
MARKAÐURINN 30. APRÍL 2008 MIÐVIKUDAGUR6 F R É T T A S K Ý R I N G Kaupþing hleypti nýjum innlánsreikningi af stokkunum á netinu í nóvember sl. og hafa viðtökurnar verið mjög góðar, að sögn Jónasar Sigurgeirssonar fram- kvæmdastjóra Samskiptasviðs bankans. „Kaupthing Edge, sem nú hefur verið opnað í átta löndum, gengur mjög vel,“ segir Jónas. „Ljóst er að þetta form inn- lána mun verða mikilvæg stoð í framtíðar- fjármögnun bankans. Ánægjulegt er að sjá að á hverjum degi fáum við fjöld- ann allan af nýjum viðskiptavinum sem eru nú komnir á annað hundrað þúsund,“ bætir hann við. Samkvæmt heimildum Markaðarins eru innlán í Kaupthing Edge-reikningun- um þegar komin yfir eitt hundrað millj- arða íslenskra króna, eða einn milljarð evra. Gert er ráð fyrir að næst verði boðið upp á þennan innlánakost á eyjunni Mön. Innlán yfir eitt hundrað milljarðar króna Björn Ingi Hrafnsson skrifar Gífurlegur vöxtur hefur orðið í innlánum Landsbankans á erlendum mörkuðum að undan förnu. Bankastjórar Landsbankans segja að fjármögnun með innlánum, sér í lagi innlánum einstaklinga, hafi í sögulegu samhengi tryggt bankanum stöðugri fjár- mögnun en lánsfjármarkaðir. Á aðalfundi Landsbankans í fyrri viku kom fram í máli Halldórs J. Kristjánssonar, bankastjóra Landsbankans, að við núverandi aðstæður skipti höfuðmáli að sýna fram á sterka fjárhagsstöðu og styrkja undirstöður bankans, m.a. með þróun nýrra innlánsleiða. HEFÐ FYRIR MIKLUM INNLÁNUM Benti Halldór á að Landsbankinn væri með mest innlán á íslenskum bankamarkaði, þ.e. um 30% markaðshlutdeild og það væri því eðlilegt að leitað væri eftir auknum útlánum erlendis. Stefnt væri að markaðssetningu Icesave-netreiknings í evrum á meginlandi Evrópu á öðrum ársfjórðungi. Sigurjón Þ. Árnason, annar bankastjóra Landsbankans, vill ekki gefa upp í hvaða Evrópu landi Icesave verður opnaður fyrst, en segir að undirbúningur gangi vel og stefnan sé að í lok árs verði boðið upp á slíka innlánsreikninga í fjórum til fimm Evru- löndum. „Icesave hefur gengið afskaplega vel og þessari nýjung hefur verið vel tekið af al- menningi. Í kjölfarið hafa svo fleiri og fleiri aðilar áttað sig á mikilvægi þess að bjóða upp á góða innlánsreikninga. Það segir sína sögu að við erum nú með fleiri viðskipta- menn í Bretlandi eftir eitt og hálft ár en eftir 120 ár á Íslandi, svo það má segja að árangur- inn hafi farið fram úr björtustu vonum,“ bætir Sigurjón við. GRÍÐARLEGA HÖRÐ SAMKEPPNI Í ársskýrslu Landsbankans, sem lögð var fyrir aðalfund bankans í fyrri viku, kom fram að frekari vinna við að stækka og auka fjölbreytni innlánasafnsins. Þar kom einnig fram, að innlán hafi náð yfir 25% af heildarinnlánum viðskiptavina í lok árs 2007. Innlán í Bretlandi og á svæðum þar sem hagstætt skattaumhverfi ríkir námu 61% og innlán í Lúxemborg og Amsterdam 14%. Samtals fjármögnuðu innlán einstakl- inga 70% af heildarútlánum á árinu 2007, samanborið við 34% í lok árs 2005. Sigurjón bendir á, að Icesave, innlána- reikningur Landsbankans í Bretlandi, sem settur var á laggirnar í október 2006, hafi leikið lykil hlutverk í þeirri umbreytingu sem átt hafi sér stað í fjármögnun bank- ans. Fjöldi stofnaðra Icesave reikninga hafi numið 128.000 í lok árs, en á fyrstu mánuð- um þessa árs hafi stöðug aukning orðið í hópi viðskiptavina og heildartalan sé nú komin í 220.000 viðskiptavini, þrátt fyrir mjög harða samkeppni á breskum innlánamarkaði. Samkvæmt heimildum Markaðarins nema eignir inn á þessum reikningum um 6-700 milljörðum króna. EINFALDUR OG ÞÆGILEGUR Í NOTKUN Forsvarsmenn Landsbankans segja að vel- gengni Icesave megi að stórum hluta þakka háum vöxtum sem viðskiptavinir fá tryggða í ákveðinn tíma og aðferðum sem best þjóna viðskiptavinum. Reikningurinn sé jafnframt einfaldur og þægilegur í notkun. „Auglýsinga- og kynningarefni hefur átt sinn þátt í þeim árangri sem náðst hefur við uppbyggingu vörumerkisins og áframhald- andi grósku þess þrátt fyrir gríðarlega sam- keppni á þessum markaði þegar líða tók á árið. Á fjórða ársfjórðungi var vöruúrval- ið aukið en fleiri svokallaðra „easy access“ reikninga hefur nú verið breytt í bundna reikninga,“ segir í ársskýrslu Landsbankans um þessi efni og þar kemur einnig fram, að í árslok hafi 12% af heildarinnlánum verið á fastvaxta reikningum sem bundnir séu frá sex mánuðum til þriggja ára. Fram kom í máli Halldór á aðalfundinum, að vel gangi að laða viðskiptavini Ice save yfir í bundin innlán, frá þremur mánuðum til þriggja ára. Þá sé greinilegt að þróunin á breska sparifjármarkaðnum sé sú að dreifa lægri fjárhæðum á fleiri reikninga, væntan- lega í því skyni að draga úr áhættu. SVAR VIÐ ERFIÐLEIKUM Enginn vafi leikur á að erfiðleikar á lána- mörkuðum hafa hvatt forsvarsmenn bank- anna til þess að leita nýrra fjármögnunar- leiða. Erlendir matsaðilar höfðu bent á að hlutfall innlána mætti auka og í skýrslu Landsbankans kemur fram að aukið inn- streymi innlána hafi orðið til þess að í fyrra hafi dregið verulega úr fjármögnun á lána- mörkuðum. „Íslenskir bankar munu að sjálfssögðu leita leiða til að auka innlán sín á alþjóð- legum mörkuðum í ljósi þess ástands sem ríkir gagnvart fjármögnun fjármálastofnana í dag. Best er að fá sem flesta sparifjáreig- endur í viðskipti með tiltölulega lágar fjár- hæðir hverju sinni. Með því dreifist áhættan hvað best,“ segir Sigurjón enn fremur. Icesave hleypt af stokkum í evrum í næsta mánuði Innlán einstaklinga hafa í sögulegu samhengi tryggt Landsbanka Íslands stöðugri fjármögnun en lánsfjármarkaðir. Samkeppni um sparifé er hörð, en notendum fjölgar og fjölgar og eru nú 220 þúsund talsins með innlán upp á 6-700 milljarða króna. Sótt er fram á nýjum mörkuðum og með nýjum aðferðum. K A U P T H I N G E D G E Í Á T T A L Ö N D U M Hvað er Icesave? Landsbankinn kynnti inn- lánsreikninginn Icesave til sögunnar í Bretlandi í októ- ber árið 2006 og má segja að hann hafi þegar slegið í gegn. Leikur þó enginn vafi á að jafnvel bjartsýn- ustu bankamenn áttu ekki von á þeim fjölda viðskipta- vina sem opnað hafa reikn- ing síðan undir þessu nafni. Í fréttatilkynningu þá sagði að um væri að ræða „sérsniðna sparnaðarleið fyrir breskan markað sem eingöngu er boðið upp á net- inu.“ Icesave varð til í kjölfarið á kaupum Landsbankans á innlánastofnun í Guernsey. Í Bretlandi hefur samstarfs- aðili vegna reikningsins verið Newcastle Building Society, en í reikningum sem nú stendur til að bjóða upp á í evrum, mun bak vinnslan fara fram í höfuðstöðvum Landsbankans í Lúxemborg. Vörumerkið tilheyrir Lands- bankanum en reksturinn er í höndum Heritable Bank, dótturfélags Landsbankans í London. PUND OG EVRUR Íslensku bankarnir bjóða nú upp á inn- lánsreikninga í mörgum löndum Evrópu, þar sem geymdir eru fjármunir sparifjáreigenda upp á allt að 800 milljarða króna. Reikningum þessum fer fjölgandi dag frá degi og sífellt fleiri lönd bætast við.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.