Fréttablaðið - 05.05.2008, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 5. maí 2008
TSALA
SVAR TÆKNI - SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS
Acer Extensa 5220
Intel örgjörvi, 1GB vinnsluminni, 80 GB
harður diskur
Panasonic 8070 sími
Þráðlaus sími frá Panasonic sem dregur 50
til 300 metra
69.900
SÝNINGARVÉLAR
Aðeins eitt stykki af hverri týpu
Acer TravelMate 4502
Intel örgjörvi, 256MB vinnsluminni, 40GB harður diskur.
Tilboð: 29.900
Acer Aspire 3102
AMD örgjörvi, 1GB vinnsluminni, 100GB harður diskur.
Tilboð: 39.900
Acer TravelMate 2424
Intel örgjörvi, 512MB vinnsluminni, 60GB harður diskur.
Tilboð: 39.900
Acer Aspire 3693
Intel örgjörvi, 512MB vinnsluminni, 80GB harður diskur.
Tilboð: 49.900
Acer TravelMate 5103
AMD tveggja kjarna örgjörvi, 1GB vinnsluminni, 120GB
harður diskur.
Tilboð: 59.900
Umsóknarfrestur er til 30. maí
Kynntu þér námið á www.taeknifraedi.is
TÆKNIFRÆÐI VIÐ HR
HAGNÝTT NÁM - FRÁBÆR ATVINNUTÆKIFÆRI
Rafmagnstæknifræði
Rafmagnstæknifræði er spennandi og einkar víðfermt hátæknisvið. Starfssvið rafmagnstæknifræðinga er fjölbreytt, hvort heldur sem
unnið er við hönnunarverkefni, framkvæmdir eða stjórnun og eftirlit.
Vél- og orkutæknifræði
Námið byggist á bóklegum námskeiðum og vinnu nemenda í raunhæfum verkefnum í tengslum við véla- og orkuiðnað, m.a. undir
leiðsögn sérfræðinga úr atvinnulífinu. Starfssvið vél- og orkutæknifræðinga er fjölþætt, s.s. störf við stjórnun, eftirlit, ráðgjöf, hönnun
og þróun.
Byggingartæknifræði
Í byggingartæknifræði er fengist við hönnun mannvirkja og framkvæmdir á borð við húsbyggingar, vegagerð og virkjanir. Flestir
byggingartæknifræðingar starfa sem hönnuðir á verkfræðistofum eða sem stjórnendur byggingarframkvæmda hjá verktaka-
fyrirtækjum eða sveitarfélögum.
Boðið er upp á nám í
HÁTT TIL LOFTS OG VÍTT TIL VEGGJA Nýja flugstöðvarbyggingin í Peking þykir glæsilegt
mannvirki. NORDICPHOTOS/AFP
fullkomnustu í heimi hvað tækni-
hliðina varðar heldur er fullyrt að
hvergi í heimi geti flugfarþegar
átt von á betri upplifun í flugstöð.
Til að mynda er lögð mikil
áhersla á að farangur farþega
skili sér fljótt og vel úr flugvél inn
í bygginguna. Aðeins fimm mínút-
ur eiga að líða frá því flugvél lend-
ir þar til töskurnar eru tiltækar á
færibandi fyrir farþegana.
Vinna við bygginguna hófst árið
2003 og hefur vinnan aðeins tekið
rúm fjögur ár, sem þykir afrek út
af fyrir sig.
Allt hefur gengið snurðulaust
fyrir sig síðan byggingin var
tekin í notkun fyrir aðeins viku.
Engar fréttir hafa borist af vand-
ræðum á borð við þau sem fylgdu
nýju flugstöðvarbyggingunni á
Heathrow í London, sem tekin
var í notkun í vetur. Þar urðu far-
þegar fyrir stöðugum töfum og
flest gekk á afturfótunum lengi
vel.
Vandræði Kínverja í tengslum
við Ólympíuleikana hafa einkum
tengst Ólympíukyndlinum og
ferðalagi hans um heiminn síð-
ustu vikurnar. Honum hafa fylgt
mótmæli hvert sem hann fer, allt
frá því kveikt var á honum í Grikk-
landi í mars síðastliðnum.
Víðtæk mótmæli í Tíbet og harð-
ar aðgerðir kínverska hersins og
lögreglu gegn þeim mótmælum
hafa einnig varpað stórum skugga
á ímynd Ólympíuleikanna. Tugir
ef ekki hundruð manna eru sögð
hafa látið lífið í þeim átökum.
Sjálfir Ólympíuleikarnir nálg-
ast hins vegar jafnt og þétt. Í dag
hefst sala aðgöngumiða á leikana
og ljóst er að kínversk stjórnvöld
leggja enn sem fyrr alla áherslu á
að um þá ríki friður.
Síðan fyrir helgi hefur Ólymp-
íukyndillinn verið í Kína, þar sem
stjórnvöld ætla að gæta þess betur
en önnur ríki að halda öllum mót-
mælendum fjarri. Engar truflanir
verða liðnar sem varpað geta frek-
ari skugga á hina glæstu ímynd
Ólympíuleikanna í Kína.
Kínversk stjórnvöld eru meira
að segja farin að ræða á ný við
fulltrúa Dalai Lama, hins andlega
leiðtoga Tíbetbúa. Í gær voru
fyrstu viðræðurnar og sögðust
Kínverjar bjartsýnir á áframhald-
ið. gudsteinn@frettabladid.is