Fréttablaðið - 18.06.2008, Blaðsíða 32
24 18. júní 2008 MIÐVIKUDAGUR
Í miðri bensínkreppunni
eru eflaust einhverjir sem
hugsa sig tvisvar um áður
en þeir leggja í þjóðvegina
á bensínfrekum bifreiðum.
Vespueigendur geta hins
vegar auðveldlega komist
norður í land fyrir lítið fé.
„Ég neita því ekki að ég bar svolít-
inn kvíða í brjósti áður en ég lagði
í hann,“ segir Jóhann V. Norð-
fjörð, framkvæmdastjóri Borgar-
bíós á Akureyri. Hann gerði sér
lítið fyrir og keyrði á vespu frá
Reykjavík til Akureyrar á laugar-
daginn. „Ég komst að því að sá
kvíði var óþarfur,“ segir Jóhann,
sem fékk vespuna afhenta á föstu-
daginn en hún er af gerðinni
Piaggio GTS 250. Vespa Jóhanns
er sú kraftmesta sem seld er hér á
landi og því átti hann ekki í erfið-
leikum með að halda umferðar-
hraða. Það sem stendur upp úr er
þó kostnaðurinn. „Ég borgaði
1.700 kall í bensín og 200 kall í
göngin,“ segir Jóhann, sem til
samanburðar hafði farið tíu ferðir
til Reykjavíkur á stuttum tíma á
Toyota Land cruiser jeppanum
sínum. „Það kostar nánast meira
að borga í göngin fyrir fjölskyldu-
bílinn en bensínið alla leið norður.
Hamborgarinn og nammið í
Staðar skála var dýrara en kostn-
aðurinn við vespuna,“ segir hann.
Jóhann var í um fjórar klukku-
stundir á leiðinni norður, með
stoppi í kjötsúpu á Brú og ham-
borgara í Staðarskála. „Það var
þurrt veður og smá gjóla. Ég er
með stóra framrúðu á Vespunni
þannig að ég var bara í logni. Svo
kemur heitur blástur frá vélinni,“
segir Jóhann. „Svo tengdist maður
náttúrunni svo vel. Ég var að
heyra fuglahljóð meira að segja.“
Jóhann segist glaður mundi
fara hringinn kringum landið á
Vespunni. „Ég myndi biðja um að
fá að fara með hringinn. Ef þú
veist um einhvern sem er að fara,
biddu hann endilega að láta mig
vita því ég ætla með,“ segir
Jóhann, sem stefnir að því að
mæta á vespunni á landsmót
Sniglanna í sumar. Enda Snigill
númer 2.050. „Já, ég er búinn að
vera að segja við félagana að ég
muni mæta þangað. Mér finnst
mótorhjólamenn líka vera byrjað-
ir að viðurkenna þessi hjól. Fyrst
voru allir að segja við mig að ég
gæti allt eins ekið um á Kitchen
Aid hrærivél.“
Áður en Jóhann lagði í hann til
Akureyrar fór hann í Vespukaffi
með hópi fólks á Íslandi sem á
Piaggio-vespur en það var Gunn-
ar Hansson, umboðsaðili vespa á
Íslandi, sem stóð fyrir því. Að því
loknu sendi hann vinum og ætt-
ingjum mynd af sér með skilaboð-
unum. „Er að leggja í hann.“ Við-
brögðin voru að sögn Jóhanns nær
undantekningalaust: „Jói minn,
ertu viss?“ „Áhyggjur þeirra og
kvíði reyndust óþörf, rétt eins og
hjá mér.“
soli@frettabladid.is
Ók á vespu til Akureyrar
VESPUKAFFI Vespueigendur lögðu af stað frá Saltfélaginu á laugardag og var Jóhann
að sjálfsögðu með í för.
„ER AÐ LEGGJA Í HANN.“ Myndin sem
Jóhann sendi vinum og ættingjum áður
en hann keyrði á vespu til Akureyrar.
Helgina 20. til 22. júní verður kvikmyndahátíðin Wild
Sand Film Festival haldin í Toronto, en hátíðin er
sérstök fyrir þær sakir að hún er helst ætluð
teikni myndum. Myndlistarkonan Sara Gunnars dóttir
tekur þátt í keppninni í ár með tónlistarmyndband
sem hún gerði fyrir sænsku söngkonuna Mapei.
Sara útskrifaðist af myndlistarbraut Listaháskóla
Íslands árið 2005 og hefur meðal annars haldið
sýningu í versluninni Belleville, þar sem hún sýndi
handmáluð hjólabretti. Á hátíðinni er keppt í
nokkrum mismunandi flokkum og mun Sara keppa í
einum þeirra. „Ég held ég muni keppa í flokki með
öðrum tónlistarmyndböndum, þó ég hafi sótt um í
flokk ætluðum stuttmyndum,“ segir Sara. Að sumri
loknu hyggur Sara á frekara nám í Kaliforníu þar
sem hún mun leggja stund á tilraunakennda
hreyfimyndateiknun, eða experimental animation
eins og það heitir á ensku. Spurð um hvort hún haldi
að hún eigi eftir að bera sigur úr býtum segir Sara.
„Mig langar að vinna, þannig að ég vona það.“ Þeim,
sem vilja kíkja á myndbandið, er bent á vefsíðuna
www.myspace.com/mapei. - sm
Langar að sigra
TEIKNIMYNDAKEPPNI Sara Gunnarsdóttir tekur þátt í alþjóð-
legri kvikmyndahátíð í Toronto.
Vegglistamenn eru óánægðir með
nýja stefnu borgarinnar í garð
listar sinnar. Starfsmenn á vegum
borgarinnar hafa málað yfir slík
verk, oft í óþökk eiganda lóðarinn-
ar. „Borgin er að rotna eins og hún
er núna, það má alveg gefa henni
smá lit,“ segir Ólafur Guðmunds-
son listamaður en nokkur verka
hans hafa horfið af húsveggjum
síðustu daga. Nokkrir húseigend-
ur hafa sýnt því áhuga að fá hús-
gafla í sinni eigu myndskreytta.
Magnús Leifsson, grafískur
hönnuður, hefur sömu sögu að
segja, „þessi nýja stefna gerir
engan greinarmun á veggjakroti
og veggjalist,“ segir hann. Ólafur
og Magnús segja jafnframt að í
flestum tilvikum séu verkin gerð
með samþykki húseigandans og
því sé ekki um spellvirki að ræða.
„Okkur finnst borgin ganga of
langt í þessu framtaki sínu og
fengum því fund með Jakobi Frí-
manni og tjáðum honum óánægju
okkar,“ segir Magnús.
Þeir félagar vonast til að geta
fundið einhvern milliveg í málinu
í samráði við yfirvöld og draumur-
inn sé að vegglistamenn fái jafn-
vel ákveðin svæði þar sem þeir
geti stundað list sína. „Enn hefur
ekkert komið út úr fundinum með
Jakobi, en við munum skila inn
skýrslu um málið bráðlega og svo
er bara að bíða og sjá,“ segir
Magnús. Annar listamaður, Sara
Riel, sem skreytt hefur nokkra
húsgafla í miðbænum tekur í sama
streng, „Ég hef orðið vör við
óánægju bæði hjá borgarbúum og
listamönnum vegna þessa máls.
Persónulega finnst mér gatan vera
góður vettvangur fyrir list og hún
á að vera sýningastjóralaus,“ segir
hún. - sm
Vegglistamenn vilja frelsi til að mála
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON OG MAGNÚS LEIFSSON Vilja að borgaryfirvöld greini á milli
veggjakrots og vegglistar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
“UNNIN AF NATNI, TÓNLISTIN
FRÁBÆR OG UNDIRSTRIKAR
FIRRINGUNA, OFSÓKNARÆÐIÐ
OG ÓTTANN VIÐ ÞAÐ ÓÞEKKTA”
- S.V., MBL
NÝTT Í BÍÓ! NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
7
12
12
16
10
12
THE HAPPENING kl. 5.45 - 8
THE INCREDIBLE HULK kl. 8 - 10.15
ZOHAN kl. 5.45
SEX AND THE CITY kl. 10
16
12
10
14
CRONICLES OF NARNIA 2 kl. 4 D - 7 D - 10 D
CRONICLES OF NARNIA 2 LÚXUS kl. 4 D - 7 D - 10 D
THE INCREDIBLE HULK DIGITAL kl. 5.30 D - 8 D - 10.30 D
THE HAPPENING kl. 5.50 - 8 - 10.10
ZOHAN kl. 5.30 - 8 - 10.30
HORTON kl. 4 ÍSLENSKT TAL
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
7
16
10
14
12
MEET BILL kl. 5.50 - 8 -10.10
THE HAPPENING kl. 6 - 8 - 10
ZOHAN kl. 5.30 - 8 - 10.30
SEX AND THE CITY kl. 5 - 8 - 11
5%
SÍMI 551 9000
7
10
14
12
7
MEET BILL kl. 5.50 - 8 -10.10
FLAWLESS kl. 8
ZOHAN kl. 5.30 - 8 - 10.30
SEX AND THE CITY kl. 7 - 10
INDIANA JONES 4 kl. 10.20
BRÚÐGUMINN kl. 6 ENSKUR TEXTI
SÍMI 530 1919
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
SELFOSS
DIGITAL
NARNIA 2 kl. 8 - 10:50 7
ZOHAN kl. 8 10
INCREDIBLE HULK kl. 10:20 12
CHRONICLES OF NARNIA 2 kl 8 7
WHAT HEPPENS IN VEGAS kl. 8 L
THE FORBIDDEN KINGDOM kl. 10:10 12
Hörkuspennandi mynd byggð á
sannsögulegu bankaráni þar sem
breski húmorinn er ávallt nærri.
CHRONICLES OF NARNIA 2 kl. 5D - 8D - 11D 7
CHRONICLES OF NARNIA 2 kl. 5 - 8 - 11 VIP
THE BANK JOB kl. 5:30 - 8 - 10:30 16
INCREDIBLE HULK kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
INDIANA JONES 4 kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
SPEED RACER kl. 5 L
FORBIDDEN KINGDOM kl. 8 12
IRON MAN kl. 10:30 12
CHRONICLES OF NARNIA 2 kl. 3D - 6D - 9D 7
THE BANK JOB kl. 6 - 9 16
SEX AND THE CITY kl. 3 - 6 - 9 14
SPEED RACER kl. 3D L
KEFLAVÍK
“ÆVINTÝRAMYND SUMARSINS„
-LEONARD MALTIN, ET
“BESTA SPENNUMYND ÁRSINS„
TED BAEHR, MOVIEGUIDE
MEGAN BASHAM, WORLD MAGAZINE
“STÓRSIGUR. AÐDÁENDUR
BÓKANNA MUNU ELSKA ÞESSA.„
CHRONICLES OF NARNIA 2 kl. 6 - 8 - 10 7
SPEED RACER kl. 5:40 L
- bara lúxus
Sími: 553 2075
NARNIA 2 - DIGITAL kl. 5, 8 og 11 7
THE INCREDIBLE HULK kl. 5, 8 og 10.15 12
SEX AND THE CITY kl. 6 og 9 14
- K.H., DV.- 24 STUNDIR
- V.J.V., Topp5.is / FBL
1/2
- VIGGÓ., 24 STUNDIRM Y N D O G H L J Ó Ð