Fréttablaðið - 18.06.2008, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 18.06.2008, Blaðsíða 40
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur Í dag er miðvikudagurinn 18. júní, 171. dagur ársins. 2.56 13.29 0.03 3.32 13.12 0.58 Þá smælar heimurinn framan í þig Við hjá Toyota erum stolt af því að hafa verið hluti af íslensku samfélagi í hartnær 40 ár og hlökkum til að takast á við verkefni morgundagsins, með bros á vör. :-) www.toyota.is framan í heiminn ÍS L E N S K A S IA .I S T O Y 4 26 76 0 6/ 08 Toyota á Íslandi Nýbýlavegi 2-8 200 Kópavogi Sími: 570-5070 Nokkuð lengi hefur verið móð-ins að kvarta undan tíma- skorti. Þar er ég sjálf engin undan- tekning, byrja yfirleitt að væla yfir þessu hátt og í hljóði strax á morgnana. Er svo á kvöldin enn að dæsa yfir álaginu og þusa yfir öllu því sem ekki náðist að klára og læt stundum verða mitt síðasta verk að gera lista yfir verkefni morg- undagsins. Sem svo næst auðvitað ekki að ljúka frekar en í gær. AF einhverjum ástæðum hefur mér samt tekist í öllum þessum önnum að viða að mér óskaplegri þekkingu um fólk sem ég þekki ekki baun og hef yfirhöfuð lítinn áhuga á. Samt hef ég stundum mótað mér alls kyns skoðanir á þeim, finnst David fagur á meðan hann þegir og Victoria fullmjó og fullmeðvituð. Veit sirkabát hvar á hnettinum þau eiga heima, hvað þau eru að stússast, núverandi barnafjöld og áætlanir um fjöl- skyldustærð. Hvað hann gaf henni í afmælisgjöf síðast. Og hvers vegna. Hvað henni fannst um gjöf- ina. Hvað honum fannst um það sem henni fannst. MEST veit ég þó um hitt ofur- parið, hið svokallaða Brangelina. Nýjustu tíðindi eru þau að með- ganga tvíburanna hefur ekki reynst þeim nokkur fjötur um fót heldur þvert á móti hefur óléttan hreinlega kryddað kynlífið hjá þeim. Þetta var eiginlega það eina sem mig vantaði að vita, allt hitt var komið. STUNDUM hittist svo vel á að saman fara tímamót og tímamóta- uppgötvanir. Hinn 17. júní er ein- mitt tilvalið að fara yfir það sem af er árinu, gera upp málin, kæt- ast yfir hinu góða og kasta því vonda. Svipað og á gamlárskvöld en með því að gera þetta tvisvar á ári verða uppgjörin viðráðanlegri og minni hætta á óþarfa dramatík. Í þetta sinn varð mælirinn af rusl- fréttum fullur, einmitt með upp- lýsingunum um kynlífskryddið og óléttuna. Ef saman væri lagður tíminn sem fer í að sanka að sér bulli, slúðri og einskis verðum fróðleik um annað fólk, innbyrða nýjustu tíðindi af smæstu hreyf- ingum einhverra sem hvorki skipta mann máli né bæta nokkru við eigin hamingju – já, ef mínút- an hér og mínútan þar væri lögð saman, fæst líklega einmitt klukkutíminn sem einatt vantar í sólarhringinn. Hann væri til dæmis hægt að nota í eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi; lesa eitthvað flókið, kitla börnin, lakka táneglurnar eða krydda kyn- lífið. Krydd í kynlífið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.