Fréttablaðið - 23.06.2008, Blaðsíða 21
fasteignir
23. JÚNÍ 2008
101 Reykjavík fasteignasala hefur til sölu stórt
einbýli með tveimur íbúðum í kjallara sem hægt
er að leigja út.
Um er að ræða 380 fermetra einbýli í Breið-holti, neðst í botnlanga. Húsið er á tveimur hæðum með innbyggðum tvöföldum bílskúr
og fallegu útsýni.
Forstofan er með flísum á gólfi og innbyggðum
skápum. Inni af forstofunni er þvottahús, einnig
með flísum og glugga. Gangur er parkettlagður. Þrjú
rúmgóð svefnherbergi eru með skápum og parketti
á gólfi. Úti af hjónaherberginu er útgengt á svalir
og þaðan niður í garð. Baðherbergið er nýlega upp-
gert með flísum á gólfi og veggjum að hluta, baðkari,
sturtuaðstöðu og glugga.
Eldhúsið er með flísum á gólfi, viðarinnréttingu,
tengi fyrir uppþvottavél og borðkrók. Stofa og borð-
stofa eru báðar með stórum gluggum og parketti á
gólfi. Útgengt er á verönd með heitum potti, skjólg-
irðingu og yfirbyggðu skýli fyrir grill. Lítið hús er í
garðinum fyrir börnin ásamt geymsluskúr. Upptekin
lofthæð er á efri hæð hússins.
Í kjallara eru tvær íbúðir, tveggja og þriggja her-
bergja, sem hægt er að leigja út. Aðkoman að kjall-
araíbúðum er nýlega hellulögð. Garðurinn er falleg-
ur með pöllum og miklum gróðri.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson sölumað-
ur á 101 Reykjavík fasteignasölu í síma 820-8104.
Barnahús og heitur pottur
Húsið er neðst í botnlanga.
EIGNIR ÓSKAST!
Allir þeir sem skrá eignir í sölu hjá okkur
eiga möguleika á að vinna flugferð fyrir tvo til Evrópu.
Ekkert skoðunar- og skráningargjald.
Hafðu samband í síma 511 5005 eða á
www.husin.is
Hlökkum til að heyra frá þér og þjónusta þig.
Dregið verður 3. júlí 2008
HÚSIN Í BORGINNI • Klapparstíg 5 • 101 Reykjavík • Sími 511 5005 • Fax 511 5009 • www.husin.is
Fr
u
m
Telma Róbertsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Mosfellsbæ
Kjarna • Þverholt i 2 • 270 Mosfel l sbær • S . 586 8080 • fax 586 8081
www.fastmos. i s , www.eignamidlun. is • E inar Pál l Kjærnested, löggi ltur fasteignasal i
Einar Páll
Kjærnested,
lögg.fasteignasali
Þorleifur St.
Guðmundsson
lögg.fasteignasali
Hildur
Ólafsdóttir
Egilína S.
Guðgeirsdóttir
Stella Hrönn
Ólafsdóttir
10 ár
í Mosfellsbæ