Fréttablaðið - 16.07.2008, Blaðsíða 1
Freddie og Fannie | Bandarísk
stjórnvöld komu fasteignalána-
sjóðunum Freddie Mac og Fannie
Mae til hjálpar. Stjórnvöld fá
heimild frá þinginu til ótakmark-
aðra kaupa hlutabréfa sjóðanna
auk aðgangs að lánaveitingum
bandaríska seðlabankans. Aðgerð-
in hefur verið mikið gagnrýnd þar
sem sumir telja bréfin óseljanleg.
Skál | Belgíski áfengisframleið-
andinn InBev NV. fékk samþykkt
yfirtökutilboð sitt upp á 52 millj-
arða Bandaríkjadali í bandarísku
ölgerðina Anheuser-Busch. Við
sameininguna verður til stærsti
bjórframleiðandi heims.
Þriðja kynslóðin vinsæl |
iPhone 3G seldist í einni milljón
eintaka fyrstu söluhelgina. Gengi
bréfa í Apple styrktist í kjölfar-
ið. Apple stefnir að því að selja
yfir 10 milljónir síma fyrir árs-
lok 2008.
Banki til sölu | Roskilde Bank
afskrifar 14,7 milljarða króna eftir
að hafa fengið 12 milljarða neyð-
arlán frá danska seðlabankanum.
Eitt af skilyrðum seðlabankans
fyrir láninu er að Roskilde Bank
verði seldur. Bréf bankans hækk-
uðu á ný við opnun markaða í
gær.
Citigroup selur | Citigroup seldi
viðskiptabankastarfsemi sína í
Þýskalandi til franska bankans
CreditMutual Friday. Kaupverðið
var 4,9 milljarðar evra.
126
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 16. júlí 2008 – 29. tölublað – 4. árgangur
8-9
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
„Það er unnið
með Glitni í því
að leysa mál fé-
lagsins,“ segir
Jón Óskar Þór-
hallsson, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs
byggingafyrirtækisins Mest.
Eftir því sem Markaðurinn
kemst næst hefur félagið átt í
miklum vandræðum. Þriðjungi
starfsmanna hefur verið sagt
upp undanfarna mánuði. Nú
munu hátt í 200 manns starfa hjá
félaginu.
Samkvæmt heimildum Mark-
aðarins hefur verið ráðinn sér-
stakur viðskiptaráðgjafi til að
endurskipuleggja rekstur félags-
ins. Eftir því sem næst verður
komist er Glitnir einn stærsti
kröfuhafinn, en margir aðrir eiga
kröfu á félagið.
Engar upplýsingar fást um
skuldastöðu Mest né hvort það
standi í skilum.
Pétur Guðmundsson, stjórnar-
formaður Mest, vildi ekkert tjá
sig um málefni félagsins þegar
Markaðurinn náði tali af honum.
Helsti eigandi Mest er félagið
Agn Holding. - ikh
Glitnir
aðstoðar Mest
Samkvæmt nýrri könnun Sam-
taka atvinnulífsins (SA) á
rekstrarhorfum fyrirtækja hafa
nærri þrjú af hverjum fjórum
aðildar fyrirtækjum ráðist í
hagræðingar aðgerðir á árinu
eða hyggjast gera það. Þá hefur
tæpur helmingur fyrirtækjanna
haldið að sér höndum í ráðn-
ingum frá síðustu áramótum og
hafa ekki áætlanir um frekari
ráðningar fram að áramótum.
Um þriðjungur fyrirtækjanna
hefur þurft að ráðast í uppsagn-
ir eða hyggjast gera það. Sam-
kvæmt könnuninni mun fækka
um 2.500 störf á árinu í þeim
atvinnugreinum sem könnunin
nær. Um þriðjungur fyrirtækj-
anna hefur þurft að glíma við
lánsfjárskort sem hefur helst
birst í vanda við öflun lánsfjár
til daglegs rekstrar og við fjár-
mögnun nýrra verkefna. Van-
skil viðskiptavina hafa gert fyr-
irtækjunum erfiðara fyrir.
„72% svarenda í könnuninni
hafa ekki þurft að glíma við
lánsfjárskort. Lýsir þetta al-
mennum styrk atvinnulífsins
og hversu mörg öflug fyrirtæki
hafa byggst upp á undanförnum
árum,“ segir á vef SA. - ghh
Ár hagræðingar hjá fyrirtækjum
Tíma - og verkskráning
Flotastýring og eftirlit
www.trackwell.com
Úttekt á stöðu
sparisjóðanna
Kaupfélög
nútímans
Íslenskir
milljarðamæringar
Hverjir eiga enn
þá peninga?
Björn Ingi Hrafnsson
viðskiptaritstjóri
„Það verður að gera greinarmun á þess-
ari hugmynd og einhvers konar einhliða
upptöku. Þessi hugmynd Björns gengur
út á tvíhliða samning sem gefur kost á
að Evrópski seðlabankinn verði bakhjarl
íslenska seðlabankans. Nú þurfa ríkis-
stjórnarflokkarnir að bretta upp ermarn-
ar og fara alla leið með þessa hugmynd,“
segir Þór Sigfússon, formaður Samtaka
atvinnulífsins, spurður um evruumræð-
una sem sprottið hefur upp eftir útspil
Björns Bjarnasonar um helgina.
„Ég er kannski fremur bjartsýnn en
einhvern veginn finnst mér að þetta geti
orðið upphafið að víðtækari ráðstöfun-
um og hugmyndavinnu á vettvangi rík-
isstjórnarinnar sem sýni sig strax í byrj-
un haustsins. Markmiðið þarf auðvitað
að vera að auka hagvöxt á næstu árum.
Á aðgerðalistanum þarf að vera endur-
skoðun peningastefnunnar, viðræður við
ESB um tvíhliða samning um evruna, frá-
gangur lána til að styrkja gjaldeyrisforð-
ann, skýr lína um áframhaldandi uppbyggingu orku-
frekra tæknifyrirtækja og breytt rekstrarform orku-
fyrirtækja,“ segir Þór enn fremur.
„Ekkert atvinnulíf þolir hins vegar að vera
í lokuðu lánsfjárkerfi með 20% vexti. Það
þarf að lækka stýrivexti um 3-5% á skömm-
um tíma.“ segir Þór Sigfússon.
Erlendur Hjaltason, formaður Viðskipta-
ráðs, tekur einnig fagnandi hugmyndum
stjórnmálamanna um upptöku evrunnar,
enda segir hann að margsinnis hafi verið
bent á að staða gjaldmiðilsmála hérlendis sé
óviðunandi til lengdar, bæði fyrir íslenskt at-
vinnulíf og fjölskyldur.
„Nýbreytnin nú er að upptaka evru er
hugsuð sem þriðja stoðin í samstarfi Íslands
og ESB, til viðbótar við EES og Schengen, og
fæli þá í sér stuðning ESB við íslenska pen-
ingakerfið. Formlegar viðræður af þessu
tagi fælu í sér ákveðna yfirlýsingu af hálfu
stjórnvalda um íslensku krónuna og peninga-
stefnu Seðlabanka Íslands,“ segir Erlendur.
Hann telur mikilvægt að ýta umræðu
og framtíðarskipan peningamála hérlend-
is áfram og sjálfsagt sé að kanna kosti og
galla þessarar leiðar. „Það er engu síður mitt
mat að á endanum munu Íslendingar standa
frammi fyrir sömu spurningunni og uppi
hefur verið að undanförnu, hvort við höld-
um krónunni og reynum að styrkja peningakerfið eða
hvort við göngum í ESB og tökum upp evru í kjölfar-
ið,“ segir Erlendur Hjaltason.
Vonandi upphafið að
víðtækari ráðstöfunum
Formaður SA vill að ríkisstjórnin fari alla leið með evruhug-
mynd. Formaður VÍ segir valið standa um krónu eða ESB.
ERLENDUR HJALTASON
ÞÓR SIGFÚSSON
Íslenskur
auglýsingamarkaður
Ósanngjörn
staða RÚV