Fréttablaðið - 19.07.2008, Page 6
6 19. júlí 2008 LAUGARDAGUR
Glænýr viltur lax
Úrval fi skrétta á grillið
Óbreytt fi skverð frá áramótum
FORNLEIFAR „Þegar skipulagið var
unnið á sínum tíma var gerð úttekt
á svæðinu. Þar á meðal fornleifaút-
tekt eins og ber að gera samkvæmt
lögum,“ segir Lúðvík Geirsson,
bæjarstjóri í Hafnarfirði. Frétta-
blaðið greindi frá því í gær að fær-
anlegum kennslustofum við leik-
skólann Hvamm í Hafnarfirði hefði
líklega verið komið fyrir ofan á
fornleifum. Lúðvík segir að eftir
úttekt hafi stór hluti svæðisins
verið hverfisverndaður og við stað-
setningu skólastofanna hafi þess
verið gætt að fara ekki inn á þau
svæði.
„Þá kemur í ljós eftir að búið er
að koma húsunum þarna fyrir að
það eru óskráðar fornleifar á svæð-
inu. Menn voru grandalausir um að
þarna væru sérstakar minjar. Þetta
er óheppilegt og sýnir okkur að það
hefur ekki verið kláruð fullkomin
úttekt á þessu svæði,“ segir Lúðvík.
Hann segir að tekin hafi verið
ákvörðun um að vinna heildarúttekt
á svæðinu og fleiri svæðum í
bænum. Bærinn starfi nú með sér-
stökum fornleifafræðingi sem muni
hitta forstöðumann Fornleifavernd-
ar á mánudag. „Það er allt jarðrask
búið á svæðinu. Það er að sjálfsögðu
okkar vilji að bæta þetta enda stóð
alltaf til að skila landinu eins og við
tókum við því. Þetta er eitthvað til
að læra af.“ - þeb
Fornleifaúttekt sýndi ekki fornleifarnar við leikskólann Hvamm í Hafnarfirði:
Grandalausir um fornleifar
BÆJARSTJÓRINN Lúðvík segir athugunar-
efni hvort fornleifar við Hvamm verði
grafnar upp og komið í þann búning
sem þær voru, sýnilegar fólki.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
LÖGFRÆÐI Niðurstöður rannsókna dr. Herdísar
Þorgeirsdóttur verða kynntar á ársfundi Forseta
Hæstaréttar Bandaríkjanna og dómstjóra æðstu
dómstóla landsins eftir rúma viku. Rannsóknina
vann hún fyrir Feneyjanefnd
Evrópuráðsins.
„Það er mikill heiður að rann-
sókn íslensks fræðimanns sé kynnt
með þessum hætti og fyrir þessum
hópi,“ segir dr. Herdís Þorgeirs-
dóttir.
Rannsóknin fjallar um getu
fjölmiðla til að sinna lýðræðislegu
hlutverki sínu á þeim markaði og
við þær aðstæður sem þeir starfa
nú. Helstu niðurstöður voru þær
að það sé skylda stjórnvalda að
tryggja ritstjórnarlegt sjálfstæði
fjölmiðla. „Það er eins og Mannréttindadómstóll
Evrópu bendir á háð efnahag og félagslegum
aðstæðum í aðildarríkjum hvernig sú framkvæmd
er tryggð í raun,“ segir Herdís.
Judith Resnik, lagaprófessor við Yale háskólann í
Bandaríkjunum mun kynna niðurstöður Herdísar en
Judith var útnefnd fremsti fræðimaður á sviði
lögfræði árið 2008 af bandarísku lögmannasamtök-
unum.
Herdís Þorgeirsdóttir er með doktorsgráðu í
stjórnskipunarrétti og mannréttindum frá Háskólan-
um í Lundi og er prófessor á Bifröst. - vsp
Rannsókn íslensks lagaprófessors verður kynnt æðstu dómurum Bandaríkjanna:
Segir þetta mikinn heiður
HÆSTARÉTTUR BANDARÍKJANNA Rannsókn Herdísar Þorgeirs-
dóttur verður kynnt á ársfundi Réttarforseta. NORDICPHOTOS/GETTY
HERDÍS
ÞORGEIRSDÓTTIR
DÓMSMÁL Tvítugur Ísfirðingur
var í Héraðsdómi Vestfjarða á
fimmtudag dæmdur í 45 daga
skilorðsbundið fangelsi fyrir
brot gegn valdstjórninni.
Maðurinn var handtekinn
aðfaranótt föstudagsins 15.
febrúar og hótaði í kjölfarið
lögreglumönnum ítrekað lífláti
og líkamsmeiðingum.
Maðurinn hafðist ekkert að til
að fylgja eftir hótunum sínum
gagnvart lögreglumönnunum,
og játaði brot sitt við þingfest-
ingu málsins. Hann var því
dæmdur í 45 daga skilorðsbund-
ið fangelsi.
- þeb
Tvítugur Ísfirðingur dæmdur:
Hótaði lífláti og
meiðingum
SAMFÉLAGSMÁL Samtökin ´78 og
Reykjanesbær hafa gert með sér
samning um fræðslu varðandi
samkynhneigð.
Samningurinn felur í sér að
samtökin verða með fræðslufundi
fyrir fagaðila hjá bænum. Til
fagaðila teljast kennarar, félags-
og námsráðgjafar, sálfræðingar
og fleiri hópar sem sinna
félagslegum stuðningi og ráðgjöf.
Stefnt er að því að bjóða upp á
allt að þrjá fræðslufundi á ári til
ársins 2010.
Markmiðið með fræðslunni er
að fræða viðkomandi starfsstéttir
um samkynhneigð, að því er fram
kemur á heimasíðu Reykjanes-
bæjar. - þeb
Samtökin ´78 gera samning:
Reykjanesbær
fræddur um
samkynhneigð
EFNAHAGSMÁL Íbúðalánasjóði er
heimilað að lána fjármálafyrir-
tækjum fyrir endurfjármögnun
íbúðalána, samkvæmt reglugerð
sem Jóhanna Sigurðardóttir
félags- og tryggingamálaráðherra
undirritaði í gær.
Varið verður allt að þrjátíu
milljörðum króna til lánveitinga í
þessum lánaflokki. Setning
reglugerðarinnar er í samræmi
við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
frá 19. júní síðastliðnum um
aðgerðir til að hleypa lífi í
fasteignamarkaðinn. - gh
Íbúðalánasjóður:
Lánar bönkum
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Ráðherra ætlar í
september að leggja fram lagafrumvarp
um auknar lánsheimildir Íbúðalánasjóðs
til fjármálafyrirtækja. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
MENNTUN „Það er alltaf allra síð-
asti valkostur að taka fórnarlamb-
ið úr skólanum,“ segir Þorlákur
Helgason, framkvæmdastjóri
Olweusar-áætlunarinnar gegn ein-
elti.
Foreldrar Lárusar Stefáns Þrá-
inssonar, ungs
manns sem
svipti sig lífi í
lok síðasta mán-
aðar, hafa stigið
fram og segja
dauða hans fyrst
og fremst mega
rekja til alvar-
legs eineltis
sem Lárus Stef-
án varð fyrir í
grunnskóla. Að
lokum fór svo að Lárus Stefán
skipti um skóla.
Kennari Lárusar Stefáns sagði í
viðtali við Fréttablaðið að svo gæti
farið að eina lausnin á svo erfiðum
eineltismálum væri að fórnar-
lambið skipti um skóla.
„Ef þolandi eineltisins er fluttur
um skóla gefur það til kynna að
gerandinn hafi haft betur,“ segir
Þorlákur og bætir við að til greina
geti komið að flytja gerandann í
refsiskyni. „Það er hins vegar alls
ekki alltaf lausn á málinu því þeir
sem leggja í einelti eru oftast
færir í því og fljótir að finna nýtt
fórnarlamb í nýjum bekk.“
Olweusar-áætlunin leggur
áherslu á að barn segi strax frá ef
það er lagt í einelti og að tekið sé
mjög hratt á vandamálinu áður en
það gengur lengra að sögn Þorláks.
„Við reynum allt til þess að koma í
veg fyrir að stríðni verði að ein-
elti.“
Þorlákur gagnrýnir að ekki vinni
allir skólar eftir skipulagðri einelt-
isáætlun sem sýnt hafi verið fram á
að skili árangri. Til að mynda hafi
einungis einn skóli í Hafnarfirði
tekið Olweusar-verkefnið upp.
„Börn og foreldrar eiga rétt á því
að skólar á Íslandi vinni eftir aðferð
sem sýnt hefur verið fram á að skil-
ar bestum árangri gegn einelti og
börnin séu ekki höfð í tilraunastarf-
semi.“
Þorlákur segir að vitundarvakn-
ingu þurfi meðal þjóðarinnar varð-
andi það hversu alvarlegt vandamál
einelti er. „Eitt barn sem lendir í
einelti er einu barni of mikið.“
Þorlákur segir málefni Lárusar
Stefáns síður en svo einsdæmi.
„Fjöldi unglinga útskrifast eftir ein-
elti í grunnskóla á hverju ári og
mörgum líður illa áfram,“ segir
Þorlákur. „Margir flosna upp úr
framhaldsskóla en í raun veit eng-
inn hvað um þessa krakka verður.“
helgat@frettabladid.is
Fórnarlömb eineltis
ættu ekki að víkja
Fórnarlömb eineltis eiga ekki að skipta um skóla nema allt annað hafi verið
reynt, segir framkvæmdastjóri Olweusar-verkefnisins. Til greina kemur að ger-
andi þurfi að víkja. Einungis einn skóli í Hafnarfirði vinnur eftir verkefninu.
EINELTI Fórnarlömb eineltis ættu ekki að skipta um skóla nema allt annað hafi verið
reynt til að leysa vandamálið.
Auglýsingasími
– Mest lesið
Olweusar-áætlunin byggir á:
• hlýlegum og jákvæðum áhuga
og alúð frá fullorðnum
• ákveðnum römmum vegna óvið-
unandi hegðunar
• stefnufastri beitingu refsinga
sem hvorki eru líkamlegar né
óvinveittar, brjóti nemandi gegn
þeim reglum sem ákveðnar hafa
verið
• að fullorðnir gegni hlutverki yfir-
boðara við vissar aðstæður.
LYKILREGLUR GEGN EINELTI
INNFLYTJENDUR „Auðvitað viljum
við að þeir sem sækja um vinnu
sem lögfræðingar fái réttláta
meðferð á sínum umsóknum,“
segir Eyþóra Kristín Geirsdóttir
formaður stéttarfélags lögfræð-
inga.
Xavier Rodríguez er spænskur
lögfræðingur með tvöfalda
meistaragráðu sem talar góða
íslensku, en var ekki boðaður í
viðtal vegna starfs hjá Umhverfis-
stofnun.
„Við getum ekki brugðist við
máli sem þessu nema hjá okkar
félagsmönnum,“ segir Eyþóra. Til
að vera félagi í stéttarfélaginu þarf
viðkomandi að vinna sem lögfræð-
ingur. Það gerir Xavier ekki. - vsp
Stéttarfélag lögfræðinga:
Fjallar aðeins
um mál félaga
KAMBÓDÍA, AP Kambódía og
Taíland hafa sent nokkur hundruð
hermenn að landamærum
ríkjanna vegna deilna um yfirráð
yfir fornu hindúahofi.
Hofið tilheyrir Kambódíu
samkvæmt dómi Alþjóðadómstóls
frá 1962 en ríkin deila enn um
yfirráðin. Hafa taílenskir
þjóðernissinnar, sem viðurkenna
ekki yfirráð Kambódíumanna,
mótmælt við hofið síðustu daga
eftir að það var sett á heimsminja-
skrá Sameinuðu þjóðanna.
Ráðamenn í báðum ríkum hafa
sagst vilja forðast átök og ætla að
ræða ástandið á mánudag - gh
Kambódía og Taíland:
Deila um hof
PREA VIHEAR Hindúahofið frá 11. öld var
nýlega sett á heimsminjaskrá Samein-
uðu þjóðanna. NORDICPHOTOS/AFP
Styður þú aðgerðir Ásmundar
Jóhannssonar sem veitt hefur
án veiðileyfa?
Já 72,5%
Nei 27,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Er iPod-spilari upptökutæki?
Segðu skoðun þína á vísir.is
ÞORLÁKUR
HELGASON
KJÖRKASSINN