Fréttablaðið - 19.07.2008, Qupperneq 19
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA SUMAR ATVINNA TILBOÐ HELGIN O.FL.
Margir vildu vera í sporum Ingimars Björns
Davíðssonar starfsmanns Menningarmiðstöðv-
arinnar Listagils á Akureyri þegar hann kaupir
eldsneyti á bílinn sinn.
„Ég er enginn bílakarl,“ tekur Ingimar fram í upp-
hafi spjalls. „Ég vil bara komast frá A til B á nógu
hagkvæman máta og það hefur tekist á þessum bíl í
rúmt ár.“ Ökutækið sem um ræðir er tveggja sæta
blæjubíll sem heitir Smart for two. Eigandinn fræðir
mig um að slíkir bílar séu framleiddir af Chryshler-
samsteypunni og hafi komið fram á sjónarsviðið í
kringum aldamótin. „Þetta var hugmynd sem unnin
var í samstarfi Mercedes og Swatch-úrafyrirtækis-
ins sem gerði „flikk flakk“-barnaúrin. Hugmyndin
var að gera lítinn og sparneytinn nútímaborgarbíl
sem rúmaði tvær manneskjur og kassa af bjór. Það
væri ekkert meira sem þyrfti. Ég var búinn að sjá
þessa bíla erlendis og hreifst strax af þeim. Svo þegar
ég sá þennan á Bifreiðasölunni þá slengdi ég mér á
hann og hann hefur gengið eins og klukka. Hann
gengur fyrir dísilolíu og eyðir svona þremur til fjór-
um lítrum í innanbæjarakstri. Ég kemst af með sex
til sjö þúsund á mánuði í eldsneyti þannig að þetta er
hinn fullkomni kreppubíll.“
Ingimar Björn telur um 20-30 Smart bíla á landinu
og segir þá flutta inn af einstaklingum. „Það er ekk-
ert umboð fyrir þessa bíla hér en bæði Hekla og
Ræsir geta þjónustað þá. Fyrirtækið úti vill ekki selja
þá hér nema sett verði upp Smart-miðstöð,“ upplýsir
hann.
Einu sinni kveðst Ingimar hafa lent í smá vandræð-
um. „Ég var austur á Mývatni þegar sprakk á bílnum
en það fengust engin nógu lítil dekk á Norðurlandi
svo ég varð að fá dekk sent með flugi úr Reykjavík og
láta skutla því austur.“ Vélin í Smartinum er 42 hest-
öfl en hann er svo léttur að Ingimar segir kraftinn
nægja. „Mér hefur að minnsta kosti tekist að láta
Blönduóslögguna taka mig fyrir of hraðan akstur,“
segir hann hlæjandi að lokum.
gun@frettabladid.is
Fullkominn kreppubíll
Ingimar náði að láta Blönduóslögguna taka sig fyrir of hraðan akstur þó Smart-bíllinn sé bara með 42 hestafla vél.
MYND/HEIÐA.IS
FÆRRI Í PÖRTUM
Bílapartasölur eru að verða
ansi fáar eftir í Reykjavík
enda húsnæði dýrt
og eftirspurn eftir
bílapörtum ekki eins
mikil og áður.
BÍLAR 2
SÚPUR Í SVEITINNI
Í Leifsbúð í Búðardal hefur
Örlygur Ólafsson, sem áður
rak Súpubarinn, opnað
kaffihús þar sem meðal
annars má fá matarmiklar
súpur.
FERÐIR 3
STÓRÚTSALAN HAFIN
30%-70% AFSLÁTTUR
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Kverkus ehf. Síðumúli 31
Símar 581 2220, 858 0200 eða 840 0470.
kverkus@kverkus.is www.kverkus.is
00% láni
Erum með sértilboð á tveimur frístundahúsum sem komin
eru til landsins og eru óuppsett. Húsin eru tilbúin að utan
með einangruðum veggjum. Efni í rafmagnsgrind og
milliveggjaefni fylgir. Gerum föst tilboð í sökklavinnu,
uppsetningu og annan frágang.
Stærð 118.7 fm. Hús klætt með jatoba og stáli, gluggar
og hurðir eru úr furu.
Verð kr. 11.600.000,- staðgreiðsluverð.
TILBOÐ KR. 9.800.000,-
Stærð 118.7 fm. hús klætt með jatoba og stáli, gluggar
og hurðir eru úr mahogany.
Verð kr. 12.000.000,- staðgreiðsluverð.
TILBOÐ KR. 10.200.000,-
Starfsmaður verður
í Skorradal
yfir helgina til að
sýna uppsett hús.
Ævar S. 840 0470
Til sölu þrjú vönduð nýleg 21 fm
hús tilbúin til fl utnings.
Tilvalin sem gestahús, v i ihús eða til
ferðaþjónustu. Fulleinangruð og
panelklædd að innan.
Húsin eru í Skorradal Nánari upplýsingar
gefur Ævar í síma 840 0470
Tilboð.