Fréttablaðið - 19.07.2008, Qupperneq 21
][
Örlygur Ólafsson, sem rak
Súpubarinn í Borgartúni við
góðan orðstír, hefur nú opnað
kaffihús í Leifsbúð í Búðardal.
„Það eru mikil forréttindi að starfa
í þessu fallega húsi þar sem andi
liðinna tíma svífur yfir vötnum.
Auk veitinga- og kaffihúss eru í
húsinu Upplýsingamiðstöð ferða-
manna fyrir Dalasýslu og sýning á
sögu og munum sem tengjast
landafundum Eiríks rauða og Leifs
heppna,“ segir Örlygur Ólafsson
sem rekur kaffihúsið í Leifsbúð.
Húsið er við sjávarsíðuna í Búð-
ardal og segist Örlygur ætla að
leggja áherslu á matarhefð hér-
aðsins. „Ég var strax ákveðinn í að
skapa hér matarmenningu sem
væri samboðin umhverfinu, ekk-
ert yfirdrifið og þungt heldur
frekar fallegt og látlaust,“ útskýr-
ir Örlygur og bætir við: „Við
munum bjóða upp á ljúffenga osta-
bakka og síldarplatta með bjór og
léttvíni á kvöldin en Dalamenn
eru þekktir fyrir ostagerð og má í
því sambandi nefna að Mjólkurbú
Búðardals sér um framleiðslu á
öllum desertostum sem seldir eru
undir vörumerkjum MS.“ Meðal
annarra rétta sem boðið verður
upp á eru matarmiklar súpur og
einnig verður réttur dagsins
framreiddur með úrvali af fersk-
um salötum og meðlæti. Af nógu
er að taka þegar kemur að eftir-
réttum og bakkelsi en hægt er að
renna því niður með gæðakaffi,
tei og kakói. „Ég legg áherslu á að
hafa allt hráefni fyrsta flokks og
starfsemin í húsinu mun vonandi
laða að sér bæði matgæðinga og
menningarvita,“ segir Örlygur
kíminn.
Kaffihúsið verður opið í sumar,
miðvikudaga til sunnudaga, frá
klukkan 11 til 22.
hrefna@frettabladid.is
Matgæðingur í Búðardal
Leifsbúð er fallegt og sögufrægt hús við höfnina og er þekkt sem gamla Kaupfélags-
húsið meðal Dalamanna. Nú hýsir það upplýsingamiðstöð ferðamanna, sögusýningu
og kaffihús. MYND/HELGA H. ÁGÚSTSDÓTTIR
Örlygur leggur sérstakan metnað í
súpugerð í nýja kaffihúsinu í Leifsbúð í
Búðardal.
Vegabréf er hlutur sem má ekki gleyma heima
þegar haldið er af stað út á flugvöll. Ekki gott að vera
komin af stað með ekkert vegabréf.
BÍLALEIGUBÍLAR
SUMARHÚS Í DANMÖRKU
Sumarhús
Útvegum sumarhús í
Danmörku af öllum stærðum
Fjölbreyttar upplýsingar á
www.fylkir.is
LALANDIA - Rødby
Lágmarksleiga 2 dagar.
LALANDIA - Billund
Nýtt frábært orlofshúsahverfi
rétt við Legoland.
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975.- pr. viku.
Innifalið í verði;
ótakmarkaður akstur, allar
tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
( Afgr.gjöld á flugvöllum).
Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7
manna og minibus 9 manna og
rútur með eða án bílstjóra.
Allra síðustu sætin!
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Montreal 6. og 13. júní. Þetta
er einstakt tækifæri til að njóta lífsins í þessari stórkostlega spennandi borg sem
er önnur stærsta borg Kanada. Í borginni mætast gamli og nýi timinn, rík sagan og
iðandi nýbreytnin á einstaklega skemmtilegan hátt. Það er frábært að skoða sig
um, versla og njóta lífsins í Montreal; fallegar byggingar, endalaust úrval verslana
og veitingastaða og mjög hagstætt verðlag. Gríptu tækifærið og smelltu þér til
Montreal og njóttu þess besta sem þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Taktu hjólið með
- settu það á toppinn.
www.stilling.is // stilling@stilling.is
Skeifan 11, 108 Reykjavik | Bíldshöfði 12, 110 Reykjavík | Smiðjuvegur 68, 200 Kópavogur
Dalshraun 13, 220 Hafnarfjörður | Draupnisgata 1, 600 Akureyri
Eyrarvegur 29, 800 Selfoss. | Sími: 520-8000
Allar upplýsingar um er að finna á
vef Stillingar www.stilling.is
THULE ProRide 591
Einfaldar og stílhreinar hjólafestingar.
Auðveldar í notkun.
THULE OutRide 561
Fyrir þá sem eru vanir. Hjólið fest í framgaflinum.