Fréttablaðið - 19.07.2008, Side 51
LAUGARDAGUR 19. júlí 2008 31
VISA-bikar kvenna í fótbolta
Þór/KA-Breiðablik 0-1
0-1 Sandra Sif Magnúsdóttir (5.).
Stjarnan-ÍA 2-1
0-1 Olaitan Yusuif, 1-1 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir,
2-1 Edda María Birgisdóttir.
Fylkir-KR 0-3
0-1 Hrefna Huld Jóhannesdóttir (3.), 0-2 Olga
Færseth (13.), 0-3 Hrefna Huld Jóhannesdóttir
(81.).
Valur-Keflavík 2-0
1-0 Dóra María Lárusdóttir (28.) , 2-0 Margrét
Lára Viðarsdóttir (75.).
ÚRSLIT
Landsbankinn býður 16 ára og yngri á völlinn.
Sækja þarf boðsmiðann í næsta útibú Landsbankans.
Landsbankadeild kvenna
KRþri. 22. júlí
þri. 22. júlí
þri. 22. júlí
þri. 22. júlí
þri. 22. júlí
11. umferð
Þór/KA
HK/Víkingur Valur19:15
19:15
Fjölnir Stjarnan19:15
Afturelding Fylkir19:15
Keflavík 19:15 Breiðablik
Landsbankadeild karla
Valurlau. 19. júlí
sun. 20. júlí
sun. 20. júlí
mán. 21. júlí
mán. 21. júlí
mán. 21. júlí
12. umferð
Keflavík
FH HK19:15
14:00
Breiðablik ÍA19:15
Fram Fylkir19:15
Fjölnir 19:15
Grindavík KR20:00
Þróttur R.
FORMÚLA 1 Bretinn Lewis Hamilt-
on fór enn og aftur á kostum á
æfingum fyrir Þýskalandskapp-
asturinn á Hockenheim brautinn í
gær. Hamilton gerði sér lítið fyrir
og var með besta tímann á báðum
æfingum gærdagsins og hrein-
lega stakk keppinauta sína af á
seinni æfingunni, en Ferrari
ökumennirnir Felipe Massa og
Kimi Raikkönen komu þar næst á
eftir.
„Þetta gekk vel upp hjá okkur
og við lentum ekki í neinum
vandræðum,“ sagði Hamilton sem
reiknar með harðri samkeppni
frá ökumönnum Ferrari um
helgina.
„Mér líður vel og er fullur
sjálfstrausts og við hjá McLaren
höfum alla burði til þess að gera
vel en ég veit að Ferrari öku-
mennirnir eiga eftir að veita
okkur harða samkeppni,“ sagi
Hamilton.
Síðasta æfing og tímataka fyrir
Þýskalandskappaksturinn verða í
dag og þá kemur í ljós hver
verður á ráspól á morgun. - óþ
Formúla 1 á Hockenheim:
Hamilton með
mikla yfirburði
ÁNÆGÐUR Lewis Hamilton hafði fulla
ástæðu til þess að brosa í gær eftir
góðan árangur á æfingum á Hocken-
heim NORDIC PHOTOS/GETTY
GOLF Ástralinn Greg Norman eða
„Hvíti hákarlinn“, eins og hann er
gjarnan kallaður, hélt sínu striki á
öðrum degi á Opna-breska í golfi í
gær. Hinn 53 ára gamli kom
mörgum á óvart með því að leiða
mótið eftir fyrsta keppnisdag
þegar hann lék á 70 höggum en
hann lék aftur á 70 höggum í gær
og er sem stendur í öðru sæti.
Norman getur orðið sá elsti til
þess að vinna á Opna-breska en
hann hefur tvisvar sinnum unnið
það, síðast fyrir 15 árum.
Kóreumaðurinn KJ Choi er
efstur sem stendur á einu höggi
undir pari en hann lék á þremur
höggum undir pari í gær.
Þekktir kylfingar á borð við
Vjay Singh og John Daly náðu
ekki niðurskurðinum í gær. - óþ
Opna-breska í golfi:
Norman heldur
sínu striki
HVÍTI HÁKARLINN Greg Norman er að
leika frábært golf á Opna-breska og er
sem stendur í 2. sæti. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Valsstúlkur eru komnar í
undanúrslit VISA-bikars kvenna
eftir öruggan 2-0 sigur gegn Kefla-
vík. Sigurinn var aldrei í hættu
þrátt fyrir að Valsstúlkur væru
langt frá sínu besta í leiknum.
Fyrri hálfleikur var eign Vals-
kvenna að öllu leiti. Gestirnir frá
Keflavík lágu mjög aftarlega á
vellinum og freistuðu þess að
beita hröðum skyndisóknum. Hálf-
leikurinn fór að mestu fram á vall-
arhelmingi gestana þar sem Vals-
stúlkur voru í stöðugri sókn þar
sem Dóra María Lárusdóttir var
allt í öllu. Allar sóknir Vals fóru
upp hægri kantinn og mikil hætta
skapaðist af fyrirgjöfum Dóru .
Þrátt fyrir mikla yfirburði gekk
heimastúlkum afar illa að brjóta
ísinn. Valstúlkur skoruðu fyrsta
mark leiksins eftir tæpan hálftíma
en þá hafði Dóra María Lárusdótt-
ir brugðið sér yfir á vinstri kant-
inn. Eftir harða sókn barst boltinn
rétt út fyrir vítateig þar sem Dóra
lét skotið vaða, það fór af varnar-
manni og sveif yfir Jelenu í marki
Keflavíkur. Það sem eftir lifði
hálfleiksins var sama staða, linnu-
laus Valssókn sem skilaði þó ekki
marki og staðan í hálfleik því 1-0
fyrir Val.
Framan af seinni hálfleik gerðist
fátt markvert en yfirburðir Vals á
vellinum voru miklir, það var eins
og leikmenn Keflavíkur tryðu því
ekki að þær gætu jafnað. Valsstúlk-
ur óðu í færum en það vantaði bara
að klára þau með góðu skoti. Það
virkaði eins og einbeitingarleysi
væri í gangi hjá Val um tíma. Vals-
stúlkur náðu að bæta við öðru marki
eftir 75 mínútur, eða hálftíma leik
alveg eins og í fyrri hálfleik. Í þetta
skiptið var það Margrét Lára Við-
arsdóttir sem skoraði. Eftir horn-
spyrnu fékk hún boltann á vítateigs-
horninu og lét skotið vaða efst í
markvinkilinn nær, stórglæsilegt
mark þar. Eftir þetta reyndi Kefla-
vík að sækja án þess að það skilaði
neinum færum en Valsstúlkur héldu
sínu og kláruðu leikinn og tryggðu
sér verðskuldað sæti í undanúrslit-
um VISA-bikars kvenna.
Freyr Alexandersson þjálfari var
ekki alls kostar sáttur í leikslok:
„Það er gott að vera kominn í
undanúrslit bikars. Í hreinskilni
var þetta leiðinlegur leikur og
ekkert sem gekk almennilega upp
í okkar leik. Við þjálfararnir
vorum ekki nógu ánægðir með
leik liðsins en erum á móti þeim
mun sáttari með sigur í þessum
leik. Í dag virkaði eins og leik-
menn væru mættir með hálfum
huga til leiks og að það nægði til
sigurs og það segir kannski meira
til um styrkleika liðsins en margt
annað. Kannski klikkaði eitthvað í
undirbúningi fyrir leikinn sem
skýrir frammistöðuna í kvöld en
sigur er sigur og við erum í undan-
úrslitum í bikarnum,“ sagði Freyr
Alexandersson að lokum við
Fréttablaðið.
- rv
Leikið var í 8-liða úrslitum VISA-bikars kvenna í gær þar sem Valur, Stjarnan, Breiðablik og KR komust áfram:
Sigur Valsstúlkna var aldrei í hættu
FÖGNUÐUR Valsstúlkur fagna hér einu af mörkum sínum gegn Keflavík í 8-liða úrslitum VISA-bikarsins á Vodafone-vellinum í
gærkvöld. Valur, Breiðablik, Stjarnan og KR eru komin áfram í undanúrslit keppninnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN