Fréttablaðið - 19.07.2008, Síða 54
34 19. júlí 2008 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. vandræði, 6. númer, 8. hamfletta,
9. mælieining, 11. samanburðarteng-
ing, 12. vanvirðing, 14. reiðmaður, 16.
í röð, 17. niður, 18. ennþá, 20. tveir
eins, 21. velta.
LÓÐRÉTT
1. fönn, 3. frá, 4. háll, 5. gæfa, 7.
sútað skinn, 10. hylur, 13. blaður, 15.
sjá eftir, 16. húðpoki, 19. núna.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. basl, 6. nr, 8. flá, 9. júl, 11.
en, 12. ósómi, 14. knapi, 16. hi, 17.
suð, 18. enn, 20. rr, 21. snúa.
LÓÐRÉTT: 1. snjó, 3. af, 4. sleipur, 5.
lán, 7. rúskinn, 10. lón, 13. mas, 15.
iðra, 16. hes, 19. nú.
Hrafnhildur Helgadóttir
Aldur: 21 árs.
Starf: myndlistarnemi og listamað-
ur.
Fjölskylda: Ógift og barnlaus en á
kærasta.
Foreldrar: María Baldursdóttir sem
vinnur hjá Kaupþing Líf og Helgi
Helgason, vinnur hjá Vern Holding.
Búseta: Amsterdam.
Stjörnumerki: Tvíburi
Hrafnhildur opnaði í gær listasýningu í
Gallerí Íbíza Bunker.
„Þetta er misnotkun á laginu,“ segir
Sigmar Vilhjálmsson, betur þekkt-
ur sem Simma-hlutinn af Simma og
Jóa. Í myndskeiði sem gengur um
vefinn youtube.com er farið yfir
sögu FL-Group, ris og fall. Undir
hljómar lagið Er ekki í sambandi í
flutningi Simma og Jóa, en þar er á
ferðinni afbökuð útgáfa lagsins
Verum í sambandi með Sprengju-
höllinni. „Nei þetta myndband er
ekki á okkar vegum. Samsæris-
kenningar eru ekki hluti af því sem
við eyðum tímanum í,“ segir
Simmi.
Textinn er eftir þá Simma og Jóa
sjálfa og fjallar um Hannes Smára-
son. Lagið var samið fyrir rúmu ári
en þá var FL-Group á góðu róli og
gengi bréfa í fyrirtækinu með
hæsta móti. „Við ráðumst ekki á
lítilmagnann. Þarna var Hannes
Smárason aðalmaðurinn og lagið er
ádeila á hans hegðun þegar honum
gekk vel,“ segir Simmi. „Hann var
ríkur og var að mæta síðastur á
tónleika sem FL-Group var að
sponsa og ýmislegt í þeim dúr. Það
fylgir því samfélagsleg ábyrgð að
eiga nóg af peningum. Persónulega
fannst mér Hannes oft haga sér
kjánalega.“ Simmi segir þá Jóa
hafa rætt um notkun lagsins í
myndbandinu og báðir hafi verið
ósáttir við hana, enda vilji þeir ekki
tengja sig við samsæriskenningar.
„Við ræddum hvort við ættum að
taka lagið útaf heimasíðu Bylgunn-
ar en það er ekki rétta leiðin. Lagið
var gert og því verður ekki breytt.“
- shs
Lag Simma og Jóa misnotað
SIMMI OG JÓI Vilja ekki láta tengja sig
við FL-Group myndband. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Hefði ég ekki vaknað fyrir tilvilj-
un á þessum tíma hefði getað kvikn-
að í húsinu,“ segir Ófeigur Björns-
son, gullsmiður á Skólavörðustíg,
sem varð fyrir þeirri óskemmti-
legu upplifun í vikunni að kveikt
var í við hús hans á Skólavörðu-
stígnum á meðan fjölskyldan svaf á
efri hæðinni. Ófeigur stóð svo sann-
arlega undir nafni og kom snarlega
í veg fyrir að eldurinn gæti breiðst
út.
„Þetta gerðist núna aðfaranótt
fimmtudagsins. Ég vaknaði klukk-
an fjögur og þurfti að fara fram á
klósett. Ég fann reykjarlykt og
fann að hún barst utan frá. Þá stóð
blómapotturinn fyrir utan verslun-
ina í ljósum logum,“ útskýrir Ófeig-
ur, sem býr í sama húsi og verslun
hans og listhús eru til húsa og hefur
gert síðastliðin sautján ár. Hann
dreif sig samstundis út og reif pott-
inn niður af veggnum, þar sem
hann hangir í grind. „Grindurnar
eru utan á húsunum með blóma-
pottum til að gleðja borgarana.
Pottarnir eru fóðraðir að innan með
einhverjum hampi sem virðist vera
mjög eldfimur,“ segir Ófeigur.
Hann segir það ekki fara á milli
mála að þarna sé um íkveikju að
ræða. Litlu mátti muna að illa færi,
því hús Ófeigs er timburhús frá
árinu 1881. „Ég er með verslun á
neðri hæðinni, og sýningarsal og
íbúð á efri hæðinni. Það hefði kvikn-
að fyrst í sýningarsalnum, það er
timburloft þarna sem nær aðeins út
yfir götuna og potturinn var undir
því,“ útskýrir Ófeigur. Hann komst
síðar að því að einnig hafði verið
kveikt í blómapotti fyrir utan kaffi-
húsið Mokka þessa sömu nótt, en sá
eldur dó út af sjálfu sér. „Svo sá ég
að á milli mín og Mokka hafði verið
sett veggjakrot neðst á vegginn.
Það hefur verið úðað í gegnum
svona skapalón, og þar stendur
Mermaid. Kannski hafa þetta verið
sömu aðilar,“ segir Ófeigur, sem
tengir íkveikjuna þó ekki á nokk-
urn hátt þeirri neikvæðu umræðu
um miðbæinn sem hefur farið hátt
upp á síðkastið.
„Ég held að þetta sé því ekkert
viðkomandi, og þetta neikvæða
umtal á ekkert við um Skólavörðu-
stíginn. Það er nánast ekkert
veggjakrot hérna og fólk ber virð-
ingu fyrir Skólavörðustígnum.
Þetta hefði getað gerst hvar sem er,
og það er enginn nema einhver
ógæfumaður sem gerir svona,“
segir Ófeigur. Málið er í rannsókn.
sunna@frettabladid.is
ÓFEIGUR BJÖRNSSON: STÓÐ UNDIR NAFNI ÞEGAR KVEIKT VAR Í HÚSINU
Ófeigur gullsmiður kom í
veg fyrir bruna og stórtjón
SÉR Á HÚSINU Íkveikjan hefði getað farið töluvert verr ef Ófeigur hefði ekki vaknað fyrir tilviljun um miðja nótt og þannig getað
komið í veg fyrir útbreiðslu eldsins. Fjölskyldan sefur á efri hæðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Það verður eflaust mikið um ræðuhöld,
glens og gaman, allavega ætla ég að
halda ræðu,“ segir handboltakonan og
sálfræðingurinn Hafrún Kristjánsdótt-
ir, en hún er systir Sigurðar Kára Kristj-
ánssonar lögfræðings og alþingismanns
Sjálfstæðisflokksins.
Sigurður Kári mun ganga að eiga Birnu
Bragadóttur í Dómkirkjunni í Reykja-
vík í dag, en Birna hefur starfað
sem flugfreyja hjá Icelandair
um árabil og stundar MBA-
nám við Háskólann í Reykja-
vík. Parið kynntist árið 2005
í gegnum sameiginlega vini
sem munu einmitt verða í
hlutverki veislustjóra í
Ásmundarsal í dag.
„Rúnar Freyr Gíslason
leikari er einn besti vinur Sig-
urðar Kára og Selma Björns-
dóttir söngkona er ein besta
vinkona Birnu, svo það var
tilvalið að parið tæki að sér veislu-
stjórnina,“ útskýrir Hafrún og
segir mikla leynd hvíla yfir því
hver muni flytja tónlistaratriði
í athöfninni.
„Það er algjört leyndar-
mál hver mun syngja í
kirkjunni. Stefán Hilm-
arsson er góður vinur
Sigurðar Kára svo það
gæti verið hann, en
annars veit enginn
hver eða hverjir það
koma til með að
verða,“ segir
Hafrún að lokum,
spennt fyrir brúð-
kaupinu.
- ag
Sigurður Kári gengur í það heilaga
GIFTA SIG Í DAG Sigurður Kári
Kristjánsson gengur að eiga
Birnu Bragadóttur í Dóm-
kirkjunni í dag, en brúð-
kaupinu verður fagnað
í Ásmundarsal
undir veislustjórn
hjónanna Rúnars
Freys Gíslasonar
leikara og Selmu
Björnsdóttur
söngkonu.
Áður en Lofti Atla Eiríkssyni,
fráfarandi ritstjóra Séð og
heyrt, var gert að hreinsa
til á skrifborði sínu höfðu
yfirboðarar hans hjá
Birtingi lagt fyrir hann
tilboð um að taka
að sér annað starf.
Það sem Loftur
Atli vissi hins
vegar ekki var að
ef hann myndi
ekki þiggja það,
þá yrði reisupass-
anum lyft á loft.
Þrátt fyrir hærri
laun afþakkaði Loftur Atli starf-
ið, enda var það ekki eitthvað sem
kveikti í honum í samanburði við
það að vera ritstjóri Séð og heyrt.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins mun starfið sem Lofti stóð til
boða vera fréttastjórastaða á DV.
Hvort það hafi átt að vera við hlið
Brynjólfs Þórs Guðmundssonar
eða í stað hans fylgir hins vegar
ekki sögunni.
Bryndís Jakobsdóttir, Dísa, er nú
á tónleikaferð um Ísland. Ný plata
hennar hefur fengið afbragðs dóma
en sjálf er hún lítillætið uppmál-
að í viðtali við Föstudagsblað
Fréttablaðsins og segist hafa verið
sannfærð um að platan yrði skotin
í kaf af grimmum krítíkerum. Dísa
nýtur þess að eiga einhvern mesta
foringja íslenska tónlistarbransans
fyrir föður, eða Jakob Frímann
Magnússon, en það er þó ekki
hann sjálfur sem er að vasast í
umboðsmennsku fyrir dóttur sína
þótt fáir væru betur til þess fallnir.
Hins vegar sá Jakob í hendi sér að
ekki dygði einhver veifiskati til þess
og fékk hvorki meira né minna en
eitt stykki bæjarstjóra til verksins,
eða Grím Atlason í Búðardal.
- jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
GANGA.IS
Ungmennafélag Íslands
Við stöndum upp úr
í nýjustu könnun Capacent
Fréttablaðið er með 41% meiri lestur en 24 stundir
og 93% meiri lestur en Morgunblaðið
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fí
to
n/
SÍ
A
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgina, 18–49 ára. Könnun Capacent í febrúar–apríl 2008.
49,72%
36,30%
69,94%
Fréttablaðið
24 stundir
M
orgunblaðið