Fréttablaðið - 07.09.2008, Blaðsíða 42
7. september 2008 SUNNUDAGUR22
Er ypsílon ý eða ekki?
Prófarkalesara vantar til starfa hjá Fréttablaðinu. Umsækjandi
þarf að hafa góða tilfinningu fyrir íslensku máli, vera óskeikull í
stafsetningu og nákvæmur í vinnubrögðum. Um 50% starf er að
ræða og er vinnutími síðdegis, á kvöldin og um helgar.
Fréttablaðið er lifandi og skemmtilegur vinnustaður þar sem lagt
er upp úr góðri samvinnu og ábyrgð hvers og eins.
Umsóknarfrestur er til 12. september næstkomandi. Sótt er um á
vef 365 miðla - http://www.365midlar.is/Um-365/Storf-hja-365
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kolbrún Ingibergsdóttir
framleiðslustjóri á netfanginu kolbrun@frettabladid.is
Ósafl sf., Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200
Ósafl sf. óskar eftir að ráða jarð-, verk- eða tæknifræðing
til starfa vegna vinnu við gerð Óshlíðarganga.
Starfssvið:
• Kortlagning jarðlaga í Óshlíðargöngum.
• Mat á jarðlögum fyrir sprengingar og styrkingar.
• Skýrslugerð til verktaka og verkkaupa.
• Önnur tilfallandi störf er tengjast gerð jarðganga.
Hæfniskröfur:
• Menntun í jarð-, tækni- eða verkfræði.
• Góð kunnátta á AutoCad.
• Góð enskukunnátta.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Annað:
Starfsstöð verður á Bolungarvík á meðan vinna fer fram.
Starfsmanni verður séð fyrir húsnæði á staðnum auk ferða til
og frá heimili.
Umsóknum skal skila um heimasíðu ÍAV fyrir 12. september
2008. Nánari upplýsingar veitir Dagmar Viðarsdóttir,
mannauðsstjóri í síma 530-4200.
Ósafl er félag í eigu ÍAV og
Marti Contractor með um 50
starfsmenn. Ósafl var stofnað
vegna byggingu Óshlíðar-
ganga sem Vegagerðin bauð
út sl. vetur. Einnig sér Ósafl
um gerð snjóflóðavarna á
Bolungarvík.
Kortlagning jarðlaga
Óshlíðargöng
ÚTBOÐ
Snjómokstur og hálkueyðing
2008 - 2011
Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í snjómokstur og
hálkueyðingu á strætisvagnaleiðum og völdum leiðum
í Mosfellsbæ. Um er að ræða 3ja ára samning.
Helstu magntölur eru:
Snjómoks og hálkuvörn m/ vörubíl: 5.000 km á ári
Snjómoks og hálkuvörn m/ vörubíl
tímagjald: 50 tímar á ári
Snjómokstur m/ vinnuvélum: 50 tímar á ári
Útboðsgögn verða afhend í Þjónustuveri
Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
frá og með þriðjudeginum 9. september.
Tilboðum skal skila á sama stað eigi síðar en
þriðjudaginn 23. september kl. 11:00 og verða þau
þá opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
Þjónustustöð Mosfellsbæjar
Viltu selja eða
kaupa fyrirtæki?
Firma Consulting, Þingaseli 10, 109 Reykjavík,
GSM: (+354) 820 8800 og (+354) 896 6665,
Fax: (354) 557 7766, Veffang: firmaconsulting.is
Magnús Hreggviðsson viðskiptafræðingur og lög-
giltur fyrirtækja-, fasteigna- og skipasali. Magnús er
með áratuga reynslu af endurskoðunarstörfum, sem
rekstrarráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali, útgef-
andi, fasteignarekandi, „land-developer“ í Smára-
hvammi og starfandi stjórnarformaður í nokkrum
fyrirtækjum. Er aðalráðgjafi hjá Firma Consulting.
(magnus@firmaconsulting.is)
Firma Consulting (www.firmaconsulting.is) er
ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf við
kaup og sölu millistórra og stórra fyrirtækja.
ÚTBOÐ
Auglýsingasími
– Mest lesið