Fréttablaðið - 16.09.2008, Síða 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Fyrir nokkrum árum var ég í gleraugnabúð mikilli í Barce-
lona. Þá var pesetinn enn við lýði,
gengi hagstætt og vöruúrval virt-
ist hið mesta enda voru gleraugu
uppi um alla veggi í þessari stóru
og nýtískulegu verslun. Ég þóttist
því hafa himin höndum tekið.
ÚTLITIÐ varð síðan enn bjartara
þegar falleg kona með nýtískuleg
gleraugu spyr hvort hún geti
aðstoðað kappann. Ég kvað svo
vera því nú vantaði mig ný gler-
augu og þau skyldu vera kringlótt
eins og þau sem ég hafði áður átt.
Eitthvert hik kom á konuna og
taldi ég það stafa af því að hún
væri óvön að eiga við svona ljósa
en vaska víkinga.
EFTIR nokkra stund kemur hún
síðan til mín með fimm gleraugu
sem öll áttu það sameiginlegt að
vera næstum því kringlótt. Ég
sagðist hins vegar ekki vera fyrir
neitt hálfkák svo kringlótt skyldu
þau vera. „Því miður, við eigum
þau bara ekki til,“ segir hún þá.
ÉG leit um háa veggina sem þakt-
ir voru þúsund gleraugum og átti
erfitt með að trúa því að ekki
væru til ein einustu gleraugu
innan um allan þennan aragrúa
sem væru hringlaga. Hún tíndi þá
til nokkur gleraugu og sagði eitt-
hvað á þá leið að þetta væri
„línan“ í ár og því væru kringlótt
gleraugu ekki framleidd lengur.
Ég myndi því sennilega ekki finna
þau heldur í annarri verslun. Ég
fór því úr versluninni syngjandi
lagið um litla kassa á lækjar-
bakka.
FÓLK er fífl, sagði ein aðalpers-
ónan í olíusamráðsmálinu mikla.
Ég tek reyndar ekki undir það en
hitt er víst að fólk er svo önnum
kafið að það lætur fífla sig á alla
kanta og fær því sjaldnast það
sem það vill heldur er því rennt í
heilli hjörð eftir „línum“ sem
framleiðendur og markaðsmenn
koma sér saman um.
VIÐ erum svo upptekin að við
höfum ekki tíma til að tileinka
okkur annað en það aðgengileg-
asta. Hver hefur til dæmis tíma
til að hafa uppi á sérvitrum versl-
unarmanni sem selur kringlótt
gleraugu?
HINS vegar ákvað ég þennan
eftirmiðdag í gleraugnabúðinni í
Barcelona að kaupa mér aldrei
gleraugu sem væru eitthvað í lík-
ingu við þau sem ég geng með
núna. Úr dingalingaling!
Litlir kassar á
lækjarbakka
Í dag er þriðjudagurinn
16. september, 260. dagur ársins.
6.54 13.23 13.49
6.37 13.07 19.35
ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000 ~ FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS
Það er enginn vetur á Kanarí. Golfstraumurinn sér
eyjunum fyrir stöðugri veðursæld - loftið er þurrt og
hitastig stöðugt allt árið um kring. Kanarí hefur lengi
verið vinsælasti vetraráfangastaður Íslendinga og
býður Úrval-Útsýn fleiri gististaði á hverju ári.
Vatnasport, verslunarferðir, diskótek og barir, allt
blómstrar á Gran Canaria og Tenerife, áfangastöðum
okkar í vetur.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn. Verð miðast við að bókað
sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald 2.500 kr. fyrir hvern farþega.
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
Verðdæmi:67.341,- Verðdæmi:86.020,-
Skemmtileg íbúðagisting, skammt frá ströndinni á góðum stað
á Ensku ströndinni. Góður sundlaugargarður með stórri laug
og stórum nuddpotti
Skemmtileg íbúðagisting, skammt frá ströndinni á góðum stað
á Ensku ströndinni. Góður sundlaugargarður með stórri laug
og stórum nuddpotti
m.v. 2 með 1 barn í smáhýsi með 1 svefnherbergi í 1 viku 14.
janúar. Verð á mann m.v. tvo fullorðna í stúdíó í 1 viku: 71.862,-
m.v. 2 með 1 barn í íbúð með 1 svefnherbergi og morgunverði
í 1 viku 14. janúar. Verð á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð með 1
svefnherbergi og morgunverði í 1 viku: 93.664,-
Ódýrustu sætin bókast fyrst!
Paraiso Almendros Barbacán Sol
Vetrarfrí á Kanarí
Þú sérð ekki eftir því
Ég er 100%
endurvinnanleg