Fréttablaðið - 20.10.2008, Blaðsíða 38
26 20. október 2008 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. drykkur, 6. 999, 8. lærir, 9. málmur,
11. átt, 12. sívinnandi, 14. umstang,
16. snæddi, 17. fæða, 18. grús, 20.
kringum, 21. tigna.
LÓÐRÉTT
1. merki, 3. járnstein, 4. fræðslu, 5.
rjúka, 7. höfuðstöðvar, 10. lúsaegg,
13. nugga, 15. eins, 16. kerald, 19.
tveir eins.
LAUSN
„Ég hlusta bara á Útvarp Sögu.
Það er eiginlega eina útvarps-
stöðin sem ég hlusta á, sérstak-
lega í þessu ástandi eins og það
er núna. Annars eru Megas og
Bubbi í uppáhaldi hjá mér.“
Hermann Ragnarsson múrari.
„Hann er flúinn land. Leigusalinn
minn, W. Ahmed. Tók tryggingar-
féð mitt með sér. Þannig að nú sef
ég bara í sófum vina minna,“
segir Halla Vilhjálmsdóttir, leik-
kona og nú heimilisleysingi í
London.
Fréttablaðið greindi frá rauna-
sögu Höllu sem var borin út úr
íbúð sinni á dögunum. Í ljós kom
að Ahmed þessi hafði ekki greitt
sínar skuldir við hið opinbera og
það bitnaði að sjálfsögðu á Höllu.
Saga hennar og staða er því alltaf
að verða líkari og líkari stöðu
Íslands um þessar mundir.
Ástandið hefur síður en svo batn-
að hjá Höllu því hún hefur auk
þess fengið að vita að hún hafi
fjórtán daga til að losa íbúðina
sína. „Ég þarf þá að vita hvert ég
á að flytja draslið mitt,“ segir
Halla sem tókst þó að taka með
sér „mútur“ til að geta fengið inni
einhvers staðar. „Ég er með rauð-
vín, súkkulaði og annað góðgæti
sem ég get boðið í skiptum fyrir
sófa.“
En Halla veit að hún stendur
ekki ein. Því heimasíðan hennar á
Facebook er stútfull af stuðnings-
yfirlýsingum og hún hefur fengið
ótal sms-sendingar með hlýjum
kveðjum frá vinum og vanda-
mönnum á Íslandi. „Og það er
ekki eins og fólk hafi ekki eitt-
hvað annað við tímann að gera
núna en að vera að hugsa mig.
Þannig að mér þykir mjög vænt
um þann hlýhug.“ - fgg
Leigusali Höllu stunginn af
„Draumalandið er kreppubók en
ekki góðærisbók. Hún fjallar ein-
mitt um þær ákvarðanir sem eru
teknar þegar þjóð lendir í kreppu
eins og þessari,“ segir Andri
Snær Magnason, höfundur bók-
arinnar Draumalandið: Sjálfs-
hjálparbók handa hræddri þjóð.
Bókin seldist gríðarlega vel
þegar hún kom út árið 2006 og
varð einhvers konar biblía nátt-
úruverndarsinna.
En nú hefur Andri og bók hans
verið nefnd í sömu andrá og
útrásin vonda og þannig skrifaði
Egill Helgason meðal annars um
fyrirlestur sem Andri hélt fyrir
bankafólk og sagði það hafa
hlustað agndofa á boðskapinn. Að
þetta hafi verið nákvæmlega það
sem fólk hafi viljað
heyra þá. „Egill var nú
fundarstjóri á þessum
fyrirlestri en hann
hefur greinilega ekki
hlustað nægilega vel.
Því fyrirlesturinn fjall-
aði einmitt um hvað
við ættum að gera
ef bankarnir færu
á hausinn,“ segir
Andri og
bendir á að
þetta hafi
verið
árið
2006.
„Bankarnir urðu tólf sinn-
um stærri en Ísland og
tóku okkur með í fall-
inu. En nú virðist
markmiðið vera að láta
orkukerfið verða
fimmtán sinnum stærra
en Ísland þannig að þetta
er bara hluti af sama
vandamálinu. Ein allsherjarhug-
mynd fyrir eina þjóð.“
Og rithöfundurinn óttast ein-
mitt að þær raddir sem nú eru
teknar að heyrast fái góðan
hljómgrunn í þjóðfélaginu.
„Þegar stóriðjunni var hleypt af
stað var það einmitt í svona
kreppu. Menn notuðu hana til að
réttlæta stóriðju. Staðreyndin er
sú að það verður alltaf niður-
sveifla í hagkerfinu á fimm til tíu
ára fresti og við þurfum að skapa
okkur einhver önnur gildi til að
standast þá freistingu að fara
alltaf út í einhverjar virkjanir.
Árið 2002 átti meðal annars að
fórna Þjórsárverum þegar við
vorum í kreppu,“ segir Andri.
- fgg
Draumalandið engin góðærisbók
LEIGUSALINN HORFINN Halla stendur
uppi slypp og snauð eftir að hafa verið
snuðuð af W. Ahmed, leigusala sínum í
London. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
„Í fyrsta skipti greinir Hörður
[Torfason] ítarlega frá því þegar
hann lenti í að maður reyndi að
drepa hann. Hörður var heppinn
að sleppa lifandi frá morðtilræð-
inu. Ástæðan? Jahh, bara homma-
fóbía. Hommahatur eða hvað á að
kalla þetta,“ segir Ævar Örn Jós-
epsson rithöfundur.
Það stendur mikið til hjá Ævari
Erni. Bók hans um lífshlaup Harð-
ar Torfasonar söngvaskálds er nú
á leið í prentsmiðjuna eftir tveggja
og hálfs árs vinnu. Þá fann rithöf-
undurinn sig knúinn til að rífa
nýja krimma sinn úr höndum
útgefanda síns, Kristjáns Kristj-
ánssonar hjá Uppheimum, til að
umrita bókina í ljósi nýjustu vend-
inga í efnahagsmálum þjóðarinn-
ar. En fyrst að Herði. Þurfti Ævar
ekki að leggjast í rannsóknar-
vinnu, setja upp leðurkaskeiti og
sækja gufuböðin? Ævar lýsir því
yfir að blaðamaður slái sig ekki út
af laginu með svona dólgshætti.
Þetta sé reyndar ágæt spurning.
„Hörður hefur alltaf verið alger-
lega á skjön við allar hommaster-
íótýpur. Þegar hann kom fram á
sínum tíma voru hommar, það er
staðalímyndin, öfuguggar,
skrímsli, slepjuleg ógeð og glæpa-
menn. Ekki ungir, glæsilegir og
vinsælir. Svo sama ár og hann
kemur úr skápnum í tímaritinu
Samúel árið 1975 birt-
ist hin steríótýpan
af hommanum.
Fyrst á íslensk-
um leikhúsfjöl-
um, þegar
Saumastofan
kemur með sinn
Kalla klæðskera. Gargandi kerl-
ingarhommann. Hörður passar
ekki inní það heldur. Gaman að
því. Hann passar ekki í neina
skúffu, ekki þessar hommaskúff-
ur sem voru og eru reyndar enn
útbreiddar,“ segir Ævar. Hann
segir lífshlaup Harðar skraut-
legt, trúbadorinn hefur lent í
einu og öðru og mátt þola ýmis-
legt. Ævar Örn, sem er með
þekktari og betri glæpasagna-
höfundum landsins, segir að
kannski megi finna ákveðna
samsvörun milli þess að skrifa
krimma og segja af lífi Harðar.
Eins og morðtilræðið gefur
til kynna.
Nýi krimmi
Ævars Arnar,
sá fimmti í
seríunni
um Stefán, Katrínu, Árna og
Guðna, sem íslenskir sjónvarps-
áhorfendur þekkja vel úr Svörtum
englum, heitir Land tækifæranna.
Hún er á lokastigi. Útgefandi
Ævars varð síður en svo sáttur við
sinn mann þegar hann tók hana úr
ferlinu og taldi sig þurfa að
umskrifa bókina í ljósi nýjustu
vendinga í efnahagsmálum. „Já,
ég taldi mig þurfa að bregaðst við
því, færa hana nær tímanum enda
drep ég þennan líka fína útrásar-
víking í bókinni. Þetta eru
umfangsmeiri breytingar en
útgefandi minn kærði sig um í
ljósi þess hversu langt er liðið á
haustið. En á móti kemur að ekki
er eins fýsilegt að prenta bækur í
útlöndum og áður var. Eins og til
stóð,“ segir Ævar Örn.
jakob@frettabladid.is
ÆVAR ÖRN JÓSEPSSON: UMRITAÐI KRIMMA VEGNA EFNAHAGSÁSTANDSINS
Hommahatari reyndi
að drepa Hörð Torfason
ÆVAR ÖRN JÓSEPSSON Nýr krimmi hans heitir Land tækifæranna og Ævar taldi sig
þurfa að umrita hana vegna nýjustu vendinga í efnahagsmálum.
HÖRÐUR TORFA-
SON Í nýrri bók sem
byggir á lífshlaupi
trúbadorsins góða
segir Hörður frá því
þegar hann mátti teljast
heppinn að sleppa
lifandi frá morðtil-
raun.
Sóley Tómasdóttir hefur að
undanförnu farið yfir fimm atriði
sænska kvenréttindafrömuðarins
Berit Ås sem notuð eru til
að kúga konur. Eitt af því
sem Berit og Sóley tekur
upp er að gera konur
ósýnilega umræðunni.
Og Sóley ræðst að
þessu sinni ekki á einn
einstakan þátt hjá
ljósvakamiðlunum
heldur tekur heila
útvarpsstöð fyrir.
Hér er um að ræða
dagskrárgerðarfólk
Bylgjunnar sem
birtist í glæsilegri auglýsingu nýver-
ið en þar voru einungis tvær konur
af átján dagskrárgerðarmönnum.
Gunnar Björn Guðmundsson
undirbýr af kappi kvikmynd eftir
hinni vinsælu bók Ólafs
Hauks, Gauragangur. En
Gunnar er ekki múlbund-
inn við skriftir því hann
hefur einnig verið önnum
kafinn við að leikstýra
leikhópi Fljótsdals-
héraðs. Hópurinn
frumsýndi síðan
á laugardaginn
gamanleikinn
Góðverkin kalla
en hann fjallar um
hundrað ára sögu
sjúkrahúss í bænum
Gjaldeyri sem stendur við Ystunöf.
Hinn knái fréttamaður Ríkis-
sjónvarpsins í London, Sveinn
Guðmarsson, lætur sér það ekki
duga að fylgjast með fréttaatinu.
Þegar stund gefst milli stríða leggst
Sveinn í þýðingar en nú er komin
út bók enska kynlífssérfræðingsins
Tracy Cox í þýðingu hans. Bókin
heitir Súperhot Sex en þar er
meðal annars að finna leiðbein-
ingar um flengingar – stroku fyrir
stroku – og sex bestu útikynlífs-
staði allra tíma.
Útgefandi er JPV
forlag sem hefur
verið duglegt við
að senda frá sér
bækur sem fjalla
um kynlíf.
- fgg, jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
KREPPUBÓK Andri Snær segir
Draumalandið síður en svo
vera einhverja góðæris-
bók, heldur eigi hún
einmitt við nú.
LÁRÉTT: 2. kakó, 6. im, 8. les, 9. tin,
11. na, 12. iðinn, 14. stúss, 16. át, 17.
ala, 18. möl, 20. um, 21. aðla.
LÓÐRÉTT: 1. viti, 3. al, 4. kennslu, 5.
ósa, 7. miðstöð, 10. nit, 13. núa, 15.
sama, 16. áma, 19. ll.
Veljum íslenskt
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
250
ÓKEYPIS
KROSSGÁTUR
NÝ GÁTA
Í HVERRI VIKU
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1. 37 milljarðar króna.
2. Frank-Walter Steinmeier.
3. Friðrik Friðriksson.