Fréttablaðið - 20.10.2008, Blaðsíða 40
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Í dag er mánudagurinn
20. október, 293. dagur ársins.
8.34 13.12 17.49
8.25 12.57 17.28
Nornaveiðar eru sport sem felst í því að finna rosknar
konur sem búa einar og fleygja
þeim í dýflissur og pynta þær til
að játa að þær hafi mök við makt
myrkranna – og brenna þær síðan
á báli.
HÉR loga nógir eldar og við þurf-
um ekki að kveikja fleiri, og
þaðan af síður er ástæða til að
brenna einn né neinn á báli. Hins
vegar er fullkomin ástæða til að
mótmæla því að íslenska þjóðin
skuli hafa verið gerð gjaldþrota
fjárhagslega og siðferðislega og
orðstír hennar troðinn í svaðið.
ÞAÐ er kominn tími til að krefj-
ast þess að þeir umboðsmenn
þjóðarinnar sem ýmist sváfu á
verðinum ellegar slógust í lið
með þeim sem fengu útrás fyrir
græðgi sína með því að gera árás
á eigin þjóð verði látnir axla þá
ábyrgð sem þeir þiggja svo há
laun fyrir að bera. Það er greini-
lega til lítils að eiga dóbermann-
varðhund ef maður þarf svo að
gelta sjálfur, jafnvel þótt dóber-
mann-hundurinn heiti Dabbi og
allir eigi að vera hræddir við
hann.
ÞAÐ góða við að íslenska lýð-
veldið skuli hafa verið lagt í rúst
er að nú getur loksins hafist upp-
byggingarstarf. Við getum byggt
hér upp það þjóðfélag sem okkur
dreymir um og við getum orðið
fyrirmynd annarra þjóða – en
ekki aðhlátursefni. En til þess að
svo megi verða þurfum við að
skipuleggja okkur upp á nýtt og
standa saman um að þeir sem
brugðust okkur svo hrapallega
og bera ábyrgð á því hvernig
komið er komi ekki nálægt því að
byggja upp hið nýja óspillta, rétt-
láta, ráðvanda og ábyrga þjóðfé-
lag sem byggir á frelsi einstakl-
ingsins til þeirra athafna sem
ekki skaða aðra og sameiginlegri
ábyrgð einstaklinganna hver á
öðrum.
EF við ætlum að byggja hér upp
betra þjóðfélag getur fólkið í
landinu engum treyst nema sjálfu
sér fyrir því verki – og allra síst
stjórnmálaflokkunum sem bera
ábyrgð á núverandi ástandi. Ef
við ætlum að byggja hér upp nýtt
þjóðfélag er mál til komið að
íslenska þjóðin vakni af sínum
væra blundi. Það er mál til komið
að Ísland vakni. Núna. Hvort sem
okkur líkar það betur eða verr
eru komnir nýir tímar. Það er á
valdi þjóðarinnar að ákveða hvort
þeir tímar verða betri eða verri
en þeir sem liðnir eru.
Nýir tímar