Fréttablaðið - 20.10.2008, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 20.10.2008, Blaðsíða 14
14 20. október 2008 MÁNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 UMRÆÐAN Sigrún Elsa Smáradóttir og Svandís Svavarsdóttir skrifa um REI-málið Nú þurfa allir að leggjast á eitt til að tryggja hagsmuni íslenska ríkisins í þeirri stöðu sem upp er komin. Verja fjöl- skyldurnar í landinu, ná sem hagstæðustum samningum hvað varðar uppgjör á erlendu hlutum bankanna, leita réttar okkar gagnvart Bretum og tryggja að orðspor lands og þjóðar beri ekki varanlegan skaða af. Jafnframt þarf að treysta stoðir íslensks fjármálakerfis þannig að uppbygging til framtíðar í íslensku atvinnulífi standi traustum fótum. Þótt núna sé ekki tíminn til að þrátta er nauðsyn- legt að leiðrétta misskilning þegar hann kemur upp. Hannes Hólmsteinn Gissurarson skýtur því inn í grein sem birtist í Fréttablaðinu 17. október sl. að Hanna Birna Kristjánsdóttir og fimm aðrir borgar- fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi neitað að afhenda Jóni Ásgeiri og viðskiptafélögum hans OR fyrir ári síðan. Hið rétta er að fyrsti meirihluti þessa kjörtíma- bils sprakk við það að allir sjö borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins tilkynntu að þeir ætluðu að selja hlut Orkuveitunnar í hinu sameinaða fyrirtæki. Það hefði þýtt að eigend- ur GGE hefðu getað neytt forkaups- réttar og eignast hið sameinaða félag með tuttugu ára einkaréttar- samningi á erlendum verkefnum OR og ótakmörkuðum aðgangi að þekkingu og starfs- fólki OR. Það var til að afstýra þessum fyrirætlun- um borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem Tjarnar- kvartettinn var myndaður og farsæl þverpólitísk sátt náðist um málið. Þessi tvö mál eiga það sammerkt að stjórnvöld þurfa að líta í eigin barm og til þess að hægt sé að draga lærdóm af því sem aflaga hefur farið er nauðsynlegt að hafa réttar staðreyndir til hliðsjónar. Rangfærslur eyða aðeins mikilvægum tíma og tefja farsæla lausn mála og uppbyggingu til framtíðar. Höfundar eru borgarfulltrúar. Sannleikurinn er góður grunnur SIGRÚN ELSA SMÁRADÓTTIR SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR Evrópa ekki á dagskrá Páll Magnússon, fyrrum varaþingmað- ur Framsóknarflokksins, fer fyrir hópi úr grasrót flokksins sem, án samráðs við forystu flokksins lét nýlega gera könnun um Evrópumál. Í Fréttablaðinu á laugardag sagði Páll ekki nema átján prósent kjósenda innan flokksins vera á móti atkvæðagreiðslu um aðildarvið- ræður og að þeir forystumenn flokks- ins, sem tali gegn þeirri leið tilheyri því miklum minnihluta flokks- manna. Í Fréttablaðinu í gær svaraði Guðni Ágústs- son, formaður Framsókn- arflokksins, þessu með því að segja að hann vildi ekki láta setja sig á neinn bás. Guðni áréttaði það sem hann sagði á Alþingi fyrir skömmu að vegna efnahagsvanda þjóðarinnar væru Evrópumál ekki á dagskrá. En samt … Margir, þar með talið ýmsir framsókn- armenn, vilja hins vegar meina að eitt helsta vandamál Íslendinga um þessar mundir sé smæð hagkerfisins, seðla- bankans og gjaldmiðilsins, krónunnar. Hafa þeir hinir sömu sumir hverjir bent á að væri Ísland aðili að Evrópu- sambandinu hefðu áhrif fjármála- kreppunnar orðið um margt önnur og minni. Íslendingar þurfi nú sem fyrr að reyna að læra af mistökum sínum. Fjármálakreppan á Íslandi flýti því jafnvel fyrir ákvörðunum um hugsan- lega aðild landsins að sambandinu. Stöðugleikinn Í maí samþykkti miðstjórn Framsókn- arflokksins að efna bæri til þjóðarat- kvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið og að því loknu yrði samningur við sambandið borinn undir þjóðaratkvæði. Samþykktin byggði á ræðu formannsins, Guðna, á fundin- um. Í umræðum undanfarna daga og vikur, um vanda íslensku þjóðarinnar, virðast flestir vera sammála um að almennur stöðugleiki sé það sem helst vantar. Það væri þó ekki stöð- ugleiki í málflutningi um Evrópumál? olav@frettabladid.is Maður horfir á Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra standa við hliðina á Geir Haarde og segja að ekki sé tímabært að huga að mannabreytingum í stjórn Seðlabankans, þótt leitun sé á bankastjórum í mannkynssögunni sem jafn rúnir eru öllu trausti, alls staðar. Maður horfir á Ingibjörgu Sólrúnu koma fram og tala um það hvað framboðið til öryggisráðsins hafi skilað þjóðinni miklu. Sem er eins og að segja að 14-2 hafi ekki verið svo slæmt – við höfum nú náð tveimur mörkum, og líka kynnst svo mörgum sóknarmönnum hins liðsins... Maður hugsar: Hvenær ætlar Samfylkingin að hætta að bíða ósigra annarra flokka? Heldur þann versta … Það er eins og flokkurinn sé fastur með báða fætur í gömlu tyggjói sem annað fólk hefur hrækt út úr sér. Það hlýtur að teljast ein af ráðgátum íslenskra stjórnmála hvers vegna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kaus að einbeita kröftum sínum að framboði Halldórs Ásgrímssonar til Öryggisráðsins á meðan þjóðin hefði þurft á gáfum hennar og málafylgju að halda við að knýja fram breytta peningastefnu. Þetta er „heldur-þann-versta-en- næstbesta“-syndrómið sem stjórnmálasagan geymir ýmis dæmi um. Þá velja ráðamenn ekki nærtækasta kostinn – og þann sem þeir eru í rauninni kosnir til að taka – heldur þann fáránlegasta: Þegar Osama Bin Laden var í felum í Pakistan réðst Tony Blair inn í Írak. Þegar Heimskreppan sýndi sitt ljóta greppitrýni réðst Gordon Brown inn í Kaupþing (sem var reyndar bæði lítilmótlegra og áhrifaríkara). Og þegar allt reið á að Íslendingar kæmust á elleftu stundu inn í Evrópusambandið eins og meirhluti þjóðarinnar vill einbeitti leiðtogi Evrópusinna sér að framboði til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Óskandi væri að Samfylkingin biði að minnsta kosti sína eigin ósigra. Og óneitanlega verða áleitnar spurningar um erindi Samfylkingarinnar í íslenskri pólitík þegar ráðherrar hennar virðast fastir í að framfylgja stefnu hins ráðríka minnihluta í Sjálfstæðisflokknum. Varðandi útrás bankanna blöstu við tveir kostir: að stöðva hana eins og Davíð og Ögmundur vildu eða að taka upp evru eins og allir hinir vildu. Hvorugur kosturinn var tekinn heldur látið reka á reiðan- um. Þetta er reiðareksstefnan sem Helgi Hálfdanarson nefndi svo um aðgerðarleysi í málverndunarmál- um. Þetta er Reiðareksstjórnin. Íslenska módelið Davíð Oddsson er sem kunnugt er andvígur útlöndum en kannski var sú einangrunarhyggja ekki það versta heldur fremur sú geggjaða hugmynd sem kom út úr reiðareks- stefnunni að hægt væri að stunda bankabrölt í útlöndum og halda krónunni; láta íslenska ríkið vera bakhjarl umsvifa en fjármálaeftir- litið undir lassez-faire-stjórn. Útkoman var eins og íslensku góðærin hafa verið til þessa, í skrilljónasta veldi. Þegar aldraðir foreldrar, grandvart fólk, skrifuðu upp á óljósan rekstur stórhuga rugludalla með þeim afleiðingum að þau misstu auð og afl og hús eftir að hafa fylgst með umsvifun- um um hríð, svolítið stolt, svolítið skilningsvana („gengur þetta virkilega?“) og svolítið smeyk. Íslenska módelið var flutt út. Og landið orðið kennslugrein víða um heim. Grátlegast reyndist IceSave- innlánaverkefnið. Á heimasíðu Egils Helgasonar er að finna kostulega úrklippu úr viðtali Markaðarins við Sigurjón Árnason bankastjóra þegar IceSave- ævintýrið stóð sem hæst. Þar kallar hann reikningana „tæra snilld“, en eins og kunnugt er var þeim ýtt úr vör þegar alvöru bankar vildu ekki lengur lána íslenskum bönkum fé sem í greininni er að vísu orðað svo á tæpitungu viðskiptalífsins að „aðgengi að fjármálamörkuðum [væri] takmarkandi þáttur í vexti bankanna“. Sigurjón segir sigri hrósandi að lausnin hafi einfald- lega verið sú „að vera ekki svona háður þessum fjármálamörkuðum“ og afla heldur innlána. Þeir bjuggu til netreikning með himinháum innlánsvöxtum, reistu hurðarás í nafni þjóðarinnar. Blaðamaður skrifar: „Ráðgjafar Landsbankans ráðlögðu honum að tengja verkefn- ið eins mikið og hægt væri við Ísland, enda eru Bretar almennt jákvæðir gagnvart Íslandi [...] „Það eina sem ég þarf að gera er að kíkja í lok dags hvað er kominn mikill peningur inn,“ segir Sigurjón hlæjandi, tekur upp símann og segir skömmu síðar: „Það bættust við fimmtíu milljónir punda bara á föstudaginn!“ Segir hann hlæjandi. Og var á meðan að draga okkar góða nafn í svaðið með því að tengja ósköpin við Ísland. Við erum ekki pakk. Og nú reynir á þessa stráka – þetta er enginn tölvuleikur lengur. Þeir geta valið um það hvort þeir haga sér eins og menn og skila þjóðinni verðmætunum eða hvort þeir ætla að liggja á peningunum og breytast í orma; og una því að heita þjóðníðingar meðan Ísland byggist. Því það er óvart alveg satt sem Ólafur Ragnar vitnaði í: Orðstír deyr aldregi … Reiðareksstefnan GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON Í DAG | Ástandið FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson bih@markadurinn.is og Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is G era má ráð fyrir að skatttekjur ríkisins rýrni um sem nemur rúmum 25 milljörðum króna vegna falls Glitn- is, Landsbankans og Kaupþings, samkvæmt útreikn- ingum sem birtir voru í Fréttablaðinu í gær. Upphæðin er gífurleg, enda hefði hún á næsta ári að öllum lík- indum nægt til að standa undir framlagi ríkisins til bæði Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík, Atvinnuleysistryggingasjóðs, Sinfóníuhljómsveitarinnar og Landsbókasafnsins. „Við sjáum nú áhrifin af því að hafa byggt bankana á sandi,“ segir Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, sem bendir á að annaðhvort hefði hér þurft að byggja upp nægilegan gjaldeyrisvarasjóð til að verja bankana, eða taka upp evru. „Hvorugt var gert og þetta er kostnaðurinn.“ Þetta eru samt engin ný sannindi. Bent var á báðar þessar leiðir í meintri „leyniskýrslu“ Willems H. Buiter, prófessors við London School of Economics og eins fremsta sérfræðings Evrópu í pen- ingamálahagfræði. Skýrslan var kynnt völdum hópi hagfræðinga og fulltrúa stjórnvalda í Landsbankanum undir lok júlí síðastliðins. Helsti munurinn á skýrslu Buiters og fyrri skrifum þar sem kom- ist var að sambærilegum niðurstöðum, svo sem hjá Richard Port- es, er hversu afgerandi niðurstaðan var hvað Evrópusambandið varðar og upptöku evru hér. Af þeim sökum var ákveðið að hafa ekki jafnhátt um þessa skýrslu og tilefni kann að hafa verið til. Tími er til kominn að losna undan þessari þrúgandi viðkvæmni sem virðist standa fyrir þrifum vitrænum aðgerðum í gjaldeyr- ismálum þjóðarinnar. Viðkvæmni sem virðist eiga rætur sínar í innanflokksótta stærsta stjórnmálaflokksins um að deildar mein- ingar þar innandyra í gjaldeyrismálum kunni að kljúfa flokkinn. Þessi ótti hefur orðið þjóðinni dýr. Í fréttinni sem vísað er til hér að framan er einungis horft til glataðra skatttekna sem rekja má til bankanna og starfsmanna þeirra. Skaðinn er vitanlega mun meiri og smám saman tekur fólk að finna í auknum mæli á eigin skinni afleiðingar hruns fjármála- fyrirtækjanna. Um leið verður reiðin meiri og krafan um að söku- dólgar verði fundnir og þeim refsað háværari. Margir virðast beina reiði sinni að stjórnendum bankanna og eigendum, sem sagðir eru hafa farið óvarlega í skuldsetningu. Enginn þeirra ber samt ábyrgð á undirmálslánakrísunni, eða skorti íslenskra fjármálafyrirtækja á baklandi. Þá virðist útúrsnúning- ur eða í besta falli barnaskapur falinn í samsæriskenningum um samantekin ráð erlendra seðlabanka um að fella íslenska banka. Af hverju hefðu erlendir seðlabankar átt að treysta íslenska rík- inu nægilega til að lána landinu fleiri hundruð milljarða evra? Hér hefur verið illa haldið á málum og tregðast við að koma á umbótum sem margoft hefur verið bent á. Hafi íslenska útrásin beðið skipbrot þá er Ísland og þrjóskuleg- ur stuðningur við úreltan gjaldmiðil skerið sem á steytti. Nú ríður á að látið verði af þrjósku og viðkvæmni og gripið til hverra þeirra aðgerða sem orðið geta til að byggja aftur upp glatað traust. Ef það þýðir að þiggja þurfi stuðning og ráðgjöf Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins og stefna í framhaldinu á Evrópusambandsaðild og upptöku evru, verður bara að horfast í augu við það. Láta þarf af tregðu við að koma á til framtíðar nauðsynlegum umbótum í gjaldeyrismálum. Skerið sem á steytti ÓLI KRISTJÁN ÁRMANNSSON SKRIFAR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.