Fréttablaðið - 20.10.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 20.10.2008, Blaðsíða 6
6 20. október 2008 MÁNUDAGUR UTANRÍKISMÁL „Við höfum áhyggjur af áliti bresks almennings á Íslendingum,“ segir Ólafur Elíasson, tónlistarmaður og einn aðstandenda aðgerðaáætlunar um bætta ímynd Íslands í Bretlandi. Ólafur segir hópinn algerlega sjálfsprottinn en hann samanstandi af fólki sem lært hefur eða búið í Bretlandi. Hann segir að Íslendingum hafi mistekist að svara árás Gordons Brown og breskra stjórnvalda á ímynd Íslands. Í smíðum sé aðgerðaáætlun í þremur þáttum. Fyrst er ætlunin að safna undirskriftum sem flestra Íslendinga. Þar verður fólki boðið að undirrita ávarp til bresku þjóðarinnar sem líklegt sé til að vekja samúð með málstað Íslands hjá Bretum. Hann segir að félagasam- tök verði virkjuð til að safna undirskriftunum auk þess sem unnið er að uppsetningu vefsíðu. Í annan stað er ætlunin að skrifa greinar í bresk blöð þar sem sjónarmiðum Íslendinga er komið á framfæri. Í þriðja þætti ætlar hópurinn að hvetja Íslendinga til að virkja tengslanet sín í Bretlandi svo koma megi upplýsingum á framfæri. Ólafur segir mikinn hug í fólki. „Þetta er algerlega borgaralegt framtak,“ og bætir við að hann vonist til að almenningur á Íslandi leggi þessu lið með einum eða öðrum hætti. - ovd Sjálfsprottinn hópur vinnur að aðgerðaáætlun um bætta ímynd Íslands í Bretlandi: Ætla að svara árásum Gordons Brown FORSÆTISRÁÐHERRA BRETLANDS Gordon Brown forsætisráðherra og Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, eru átaldir fyrir árásir sínar á ímynd Íslands. UMHVERFISMÁL Fjölmenni sótti vinnufund sem Björk Guðmunds- dóttir tónlistarmaður og aðstand- endur síðunnar náttúra.info boð- uðu til í Háskólanum í Reykjavík í gær. Á fundinum var rætt um framtíðarmöguleika Íslands, hvernig nýsköpun getur komið í stað orkufreks iðnaðar. Þá kynntu fyrirtækin Iceland Spa, Orf líftækni og Geo-Chem starfsemi sína. Björk sagði að hug- myndir Geo-Chem byggðust á nýt- ingu brennisteins sem til félli við Hellisheiðarvirkjun til framleiðslu þörunga. Slíkt verkefni gæti skap- að allt að 400 vel launuð störf fyrir vel menntað fólk. Nýtt lag Bjarkar, Náttúra, var frumflutt á fundin- um en lagið segir hún sérstaklega samið til að hvetja til annarrar afstöðu til náttúruauðlindanna en þeirrar sem er byggð á hömluleysi og hroka. Lagið er selt á vefnum nattura.info - ovd Fjölmenni á fundi Bjarkar: Samdi lag gegn hömluleysi og hroka BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR Náttúra, nýtt lag Bjarkar, var frumflutt í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Varaborgarstjóri dæmdur Liu Zhihua, fyrrverandi aðstoðarborg- arstjóri Pekingborgar, sem hafði yfir- umsjón með byggingarframkvæmd- um vegna Ólympíuleikanna í borginni, hefur verið dæmdur til dauða fyrir spillingu. Fullnustu dómsins verður þó frestað og honum breytt í ævilangt fangelsi eftir tvö ár, ef hinn dæmdi sýnir góða hegðun í varðhaldinu. KÍNA FERÐAMÁL Icelandair sá sig knúið til að leiðrétta fréttaflutning erlendra fjölmiðla, sérstaklega þeirra norrænu, um að matar- skortur væri yfirvofandi á Íslandi. „Ísland er enn á sínum stað,“ hafði sænska viðskiptablaðið Dagens Industri eftir tilkynningu frá fyrirtækinu. Icelandair tók fram að kreditkort og debetkort væru í fullu gildi. „Ferðamenn þurfa ekki heldur að vera hræddir um að svelta,“ sagði í tilkynningunni. - ghs Icelandair bregst við: Enginn þarf að óttast sult ÖRYGGISMÁL Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Thrond Grytting, aðmíráll og yfirmaður heraflans í Norður- Noregi, en undir hann fellur strandgæslan, undirrituðu fyrir skömmu tvíhliða samkomulag um samstarf á sviði strandgæslu, öryggismála, leitar og björgunar. Samkomulagið er á sviði sameiginlegra aðgerða vegna hugsanlegra mengunarslysa, fiskveiðieftirlits, skipta á skipaumferðarupplýsingum, leitar og björgunar á hafinu og ýmissa annarra málefna er tengjast verkefnum á sviði strandgæslu. Er samningurinn sambærilegur þeim sem gerður var við Dani 26. apríl 2007. - shá Samningur við Norðmenn: Samstarf við strandgæslu SAMNINGUR Í HÖFN Georg Lárusson og Thrond Grytting handsala samninginn. MYND/LHG Átt þú fé í peningamarkaðssjóð- um bankanna? JÁ 31,2% NEI 68,8% SPURNING DAGSINS Í DAG: Hefur þú hætt við utanlands- ferð vegna kreppunnar? Segðu skoðun þína á visir.is STJÓRNMÁL Hart var tekist á um Evrópumál á kjördæmisþingi Framsóknarfélaganna í Suður- kjördæmi sem haldið var í Svarts- engi á laugardaginn. Bjarni Harðarson, þingmaður flokksins, lagði þar fram drög að ályktun þar sem allri umræðu um Evrópumál var slegið á frest. Ályktun Bjarna kom í kjölfar þess að Evrópusinnar á þinginu kvört- uðu yfir að hvergi væri minnst á Evr- ópumál í fyrstu drögum. „Ég vildi að kjördæmis- þingið tæki undir með orðum for- mannsins að umræða um Evrópumál væri ekki tímabær,“ segir Bjarni og bætir við að þetta hafi verið hugsað sem traustsyfirlýsing við málflutning Guðna Ágústssonar að undanförnu. Eftir nokkrar umræður fór svo að setningin um frestun Evrópu- umræðunnar var tekin út að til- lögu formannsins. „Ég hef ekki verið hlyntur Evr- ópusambandsaðild en ég er áhugamaður um umræðuna,“ segir Bjarni. Hann telur fráleitt að andstæðingar aðildar vilji nýta sér ástandið til að stöðva alla umræðu um hugsanlega aðild Íslands að sambandinu. „Ég tel jafn fráleitt að menn beiti Fram- sóknarflokknum til framdráttar annarri hvorri skoðuninni. Reynd- ar held ég að það sé mikið af heið- arlegum Evrópusambandssinn- um innan Framsóknarflokksins sem gera sér mjög vel grein fyrir þessu. En það eru þarna, því miður, líka menn sem reyna að nota sér ágreininginn um Evrópu- sambandsmál til að skapa úlfúð og tortryggni í kringum núver- andi forystu.“ Hann segir marga slíka óróa- menn hafa komið inn í flokkinn á allra síðustu árum. „Stundum læt ég mér detta í hug hvort þeir séu að gera þetta vísvitandi til að gera flokknum tjón og ef það er svo þá tel ég að þeim hafi orðið alveg ótrúlega ágengt.“ Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir aðild- arumræður ekki lausn á þeim skammtímavandamálum sem Íslendingar horfist í augu við núna. „Hins vegar finnst mér mjög brýnt að fá botn í umræð- una og það var þess vegna sem ég fór fram með þetta mál,“ segir Birkir Jón og vísar þar til þingsá- lyktunartillögu sinnar um þjóðar- atkvæðagreiðslu um aðildarvið- ræður. „Við munum halda áfram að ræða þessi mál, eins og boðað var á miðstjórnarfundinum í maí,“ segir Birkir Jón. olav@frettabladid.is Óróamenn í Framsókn vinna flokknum tjón Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknar, telur ófært að stöðva umræðu um Evrópusambandsaðild. Hann telur fráleitt að beita flokknum með eða gegn aðild að sambandinu. Óróamenn í flokknum vinni honum vísvitandi tjón. BIRKIR JÓN JÓNSSON BJARNI HARÐARSON Telur óróamenn í Framsóknarflokknum vísvitandi reyna að gera flokknum tjón. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.