Fréttablaðið - 20.10.2008, Side 40

Fréttablaðið - 20.10.2008, Side 40
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þráins Bertelssonar Í dag er mánudagurinn 20. október, 293. dagur ársins. 8.34 13.12 17.49 8.25 12.57 17.28 Nornaveiðar eru sport sem felst í því að finna rosknar konur sem búa einar og fleygja þeim í dýflissur og pynta þær til að játa að þær hafi mök við makt myrkranna – og brenna þær síðan á báli. HÉR loga nógir eldar og við þurf- um ekki að kveikja fleiri, og þaðan af síður er ástæða til að brenna einn né neinn á báli. Hins vegar er fullkomin ástæða til að mótmæla því að íslenska þjóðin skuli hafa verið gerð gjaldþrota fjárhagslega og siðferðislega og orðstír hennar troðinn í svaðið. ÞAÐ er kominn tími til að krefj- ast þess að þeir umboðsmenn þjóðarinnar sem ýmist sváfu á verðinum ellegar slógust í lið með þeim sem fengu útrás fyrir græðgi sína með því að gera árás á eigin þjóð verði látnir axla þá ábyrgð sem þeir þiggja svo há laun fyrir að bera. Það er greini- lega til lítils að eiga dóbermann- varðhund ef maður þarf svo að gelta sjálfur, jafnvel þótt dóber- mann-hundurinn heiti Dabbi og allir eigi að vera hræddir við hann. ÞAÐ góða við að íslenska lýð- veldið skuli hafa verið lagt í rúst er að nú getur loksins hafist upp- byggingarstarf. Við getum byggt hér upp það þjóðfélag sem okkur dreymir um og við getum orðið fyrirmynd annarra þjóða – en ekki aðhlátursefni. En til þess að svo megi verða þurfum við að skipuleggja okkur upp á nýtt og standa saman um að þeir sem brugðust okkur svo hrapallega og bera ábyrgð á því hvernig komið er komi ekki nálægt því að byggja upp hið nýja óspillta, rétt- láta, ráðvanda og ábyrga þjóðfé- lag sem byggir á frelsi einstakl- ingsins til þeirra athafna sem ekki skaða aðra og sameiginlegri ábyrgð einstaklinganna hver á öðrum. EF við ætlum að byggja hér upp betra þjóðfélag getur fólkið í landinu engum treyst nema sjálfu sér fyrir því verki – og allra síst stjórnmálaflokkunum sem bera ábyrgð á núverandi ástandi. Ef við ætlum að byggja hér upp nýtt þjóðfélag er mál til komið að íslenska þjóðin vakni af sínum væra blundi. Það er mál til komið að Ísland vakni. Núna. Hvort sem okkur líkar það betur eða verr eru komnir nýir tímar. Það er á valdi þjóðarinnar að ákveða hvort þeir tímar verða betri eða verri en þeir sem liðnir eru. Nýir tímar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.