Fréttablaðið - 02.11.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 02.11.2008, Blaðsíða 4
4 2. nóvember 2008 SUNNUDAGUR Við tvö og barnið okkar Málþing Náttúrulækningafélags Íslands • Aðlögun að foreldrahlutverki • Að verða faðir um fertugt • Látum töfrana haldast Fundarstjóri: Þóra Arnórsdóttir, fréttamaður. Frummælendur: Guðrún Ösp Teodórsdóttir, móðir og hjúkrunarfræðingur. Ingimundur Birnir, faðir og verkfræðingur. Ólafur Grétar Gunnarsson, fjölskylduráðgjafi. Auk frummælenda í pallborði: Anna Valdimarsdóttir, sálfræðingur. Ingólfur Sveinsson, geðlæknir. Allir velkomnir! Frír aðgangur. Berum ábyrgð á eigin heilsu! Málþing haldið í Laugarsal, World Class Laugum 2. Hæð Foreldrum sem líður vel = Gott uppeldi Þriðjudaginn 4. nóvember 2008 kl. 16:30 ÞÝSKALAND Í ítarlegri grein um Davíð Oddsson seðlabankastjóra, sem þýska stórblaðið Frankfurter Allgemeine Zeitung birti í vikunni, segir að óþarfi sé að rekja „mistök fortíðarinnar“ til að fella „fallein- kunn“ („vernichtendes Zeugnis“ á þýsku) yfir ferli hans; til þess dugi að líta á þau mistök sem hann hafi gert í októbermánuði. Blaðið telur að með yfirlýsingum sínum í hinu umtalaða Kastljóssvið- tali 8. október hafi Davíð „stefnt orðspori íslensku þjóðarinnar í voða“. Rakið er hvernig hann hafi fyrst hækkað vexti í 15,5 prósent og þar með „hrakið marga í að taka lán í erlendri mynt,“ síðan lækkað vexti og þar með gefið til kynna að Seðlabankinn hefði gefið baráttu gegn verðbólgu upp á bátinn. Og skammvinn tilraun hans til að festa gengi krónunnar á óraunhæfu gengi er sögð hafa vakið efasemdir um „raunveru- leikaskyn“ seðlabankastjórans. „En það er sama hversu lengi Davíð Oddsson hangir á embætti sínu; valdasvipting hans er frágengið mál,“ skrifar blaðið síðan og skýrir þessa fullyrðingu með því að benda á að við að þiggja milljarða dala neyðarlán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum taki sú stofnun í raun yfir stjórn Seðlabanka Íslands. - aa Þýska dagblaðið Frankfurter Allgemeine Zeitung um seðlabankastjóra: Davíð gefin „falleinkunn“ BRUSSEL, AP Hægt verður að ljúka viðræðum um inngöngu Króatíu í Evrópusambandið á næsta ári. Þetta kemur fram í drögum að skýrslu um stækkunarhorfur ESB, sem AP hefur undir höndum. Skýrslan, sem á að samþykkja í framkvæmda- stjórn ESB í næstu viku, kveður upp úr um að stjórn- völd í Króatíu hafi almennt náð „góðum framförum“ í að uppfylla aðildarskilyrðin á þeim þremur árum sem viðræðurnar hafa staðið yfir. Lokastig þeirra sé nú fram undan. Þegar viðræðurnar hófust árið 2005 var það takmark sett að ljúka þeim fyrir árslok 2009. Olli Rehn, stækkunarmálastjóri ESB, hefur sagt að Króatía verði 28. aðildarríki sambandsins, en Ísland gæti fylgt þar fast á eftir ef aðildarumsókn bærist. - aa Stækkun Evrópusambandsins: Króatíuviðræð- ur á lokastig OLLI REHN FJÖLMIÐLAR Blaðamannafélag Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri stöðu sem upp er komin í fjölmiðlum sem birtist í fjöldauppsögnum og lokun fjölmiðla, að því er fram kemur í ályktun sem félagið sendi frá sér í gær. Blaðamannafélagið fagnar því að menntamálaráðherra ætli að skipa starfshóp til að koma með tillögur til úrbóta og telur félagið augljóst að skoða þurfi sérstaklega stöðu Ríkisútvarps- ins á auglýsingamarkaði. Samkeppnisstaða fjölmiðla hefur verið erfið vegna sterkrar stöðu Ríkisútvarpsins sem hefur haft sig mikið í frammi á auglýsingamarkaði. Í því árferði sem er núna er hætta á því að slík staða geti orðið til þess að einkareknir fjölmiðlar leggist af, segir meðal annars í ályktun félagsins. - kh Stjórn Blaðamannafélagsins: Óttast um afdrif fjölmiðla ALÞINGI Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill leggja af aðstoðarmenn landsbyggðarþing- manna vegna efnahagsástandsins. Þessari skoðun sinni lýsti hún í ræðustól á Alþingi á fimmtudag. „Það þarf að skera alla þá fitu sem við höfum safnað utan á okkur. Í góðærinu höfum við leyft okkur svo margt sem við höfum ekki leyfi til að leyfa okkur lengur. Við skulum bara byrja hérna í þingsalnum,“ sagði Ólöf og hvatti til niðurskurðar í ríkisútgjöldum. Að mati Ólafar á að leggja af aðstoðarmenn- ina, fækka ráð- gjöfum ráðherra, kanna samein- ingu ráðuneyta, athuga launa- kerfi ríkisins, endurskipu- leggja utanríkis- þjónustuna, draga úr óþarfa ferðalögum á vegum ríkisins og síðast en ekki síst; að hraða endurskoðun eftir- launalaganna svokölluðu. „Ef við ætlum að leggja það á þjóðina að borga svo miklar skuldir eigum við að byrja á okkur sjálfum og spara,“ sagði Ólöf. Þingmaður hins stjórnarflokks- ins, Samfylkingarinnar, sté næst- ur í pontu og tók undir orð Ólafar. Árni Páll Árnason hvatti meðal annars til þess að Alþingi afnæmi eftirlaunalögin strax þrátt fyrir að það kynni að baka ríkinu skaða- bótaskyldu. stigur@frettabladid.is Vill byrja að skera fituna í þingsalnum Þingmaður Sjálfstæðisflokks vill leggja af nýlega aðstoðarmenn þingmanna í sparnaðarskyni. Þingmaður Samfylkingar vill afnema eftirlaunalögin strax þrátt fyrir mögulega bótaskyldu. Smásálir geti þá sótt forréttindi sín með dómi. ÓLÖF NORDAL ■ Aðstoðarmenn landsbyggðarþingmanna og formanna stjórnarandstöðu- flokka eru nýjung sem lögfest var í mars á þessu ári. ■ 22 af 25 þingmönnum hafa nýtt sér ákvæðið og ráðið sér aðstoðarmann, þeirra á meðal Ólöf Nordal, sem nú mælir fyrir því að þeir verði settir af. ■ Þeir einu sem ekki hafa ráðið sér aðstoðarmann eru sjálfstæðismennirnir Árni Johnsen og Kjartan Gunnarsson úr Suðurkjördæmi og hinn frjálslyndi Kristinn H. Gunnarsson úr Norðvesturkjördæmi. ■ Aðstoðarmenn þingmanna eru í 33 prósenta starfi og fá fjórðung af þing- fararkaupi fyrir störf sín, eða um 140 þúsund krónur á mánuði. Aðstoðar- menn formanna stjórnarandstöðuflokkanna þriggja fá fullt þingfararkaup, 562 þúsund krónur á mánuði, fyrir fullt starf. ■ Ríkið greiðir aðstoðarmönnunum 22 því rúmlega 52 milljónir á ári fyrir störf sín. ■ Í febrúar skrifaði meirihluti allsherjarnefndar Alþingis undir nefndarálit þar sem sagði að sterk rök hnigju að því að allir þingmenn ættu að hafa aðstoðarmenn, líka þingmenn höfuðborgarsvæðisins. Meðal þeirra sem skrifuðu undir álitið var Ólöf Nordal. AÐSTOÐARMENN KOSTA 52 MILLJÓNIR Á ÁRI Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, telur að afnema eigi hin umdeildu eftirlaunalög hið snarasta. Rætt hefur verið um að ríkið yrði þá hugsanlega skaða- bótaskylt gagnvart þeim einstaklingum sem þegar hafa öðlast eftirlaunaréttinn. Árni telur „að tími lögfræðilegra vangaveltna af þeim toga sé löngu liðinn“ að því er fram kom í andsvari hans við ræðu Ólafar Nordal á þingi á fimmtudag. Árni segir að „það sé einfaldlega rétt að afnema þessi réttindi og leyfa þá þeim sem eru slíkar smásálir að vilja sækja forréttindi sín með dómi að gera það. Þeir verða þá sjálfum sér til skammar og að athlægi en tjón ríkisins verður ekkert meira heldur en það hefði orðið að óbreyttu við að borga þeim þessi réttindi út,“ sagði Árni. „Það er ófært að ætla almenningi í landinu að þola verulega skerðingu eigin lífeyris á næstu árum eins blas- ir nú við en á sama tíma að halda óbreyttu forréttindafyrirkomulagi með æðstu embættismenn ríkisins.“ SMÁSÁLIR HÖFÐI MÁL OG VERÐI SÉR TIL SKAMMAR ÁRNI PÁLL ÁRNASON LÖGREGLUMÁL Maður á þrítugs- aldri sætir nú farbanni vegna gruns um að hann hafi skaðað félaga sinn verulega með hnífi um síðustu helgi. Mennirnir voru staddir í húsi í miðborginni þegar atburðurinn átti sér stað. Ekki er vitað nákvæmlega um tildrög hans annað en það að hnífi var beitt og gekk hann í gegnum hönd þess sem særðist og stóð fastur í hurð í íbúðinni. Lögregla flutti manninn á slysadeild þar sem gert var að sárum hans. Mennirnir eru báðir af erlendum uppruna. -jss Hnífur gegnum hönd: Hnífamaður sætir farbanni Tíu gistu fangageymslur Erill var aðfaranótt laugardagsins hjá lögreglunni í Reykjavík. Alls gistu tíu manns fangageymslur um nóttina og tíu voru teknir fyrir ölvunarakstur. Ekið á gangandi mann Ekið var á gangandi vegfaranda klukk- an hálf sjö á laugardagsmorgun en meiðsl hans voru ekki alvarleg. LÖGREGLUMÁL Greitt úr skammtímasjóði Hlutdeildarskírteinishafar í Kaupþingi Skammtímasjóði fengu í fyrradag greitt úr sjóðnum. Greiðslan nam 75,1 prósenti af eignum sjóðsins miðað við 3. október 2008. Um heildargreiðslu er að ræða. Ákveðið hefur verið að slíta sjóðnum vegna efnahagsástandsins og tilmæla Fjár- málaeftirlitsins. VIÐSKIPTI SVEITARSTJÓRNIR Bæjarstjórn Akraness vill að fiskveiðikvóti verði strax aukinn. „Með hliðsjón af þeirri alvarlegu stöðu sem íslenska þjóðin stendur frammi fyrir nú um stundir, fyrirsjáan- legu atvinnuleysi og þrenginum, hjá bæði fjölskyldum og fyrir- tækjum á næstu misserum,“ segir bæjarstjórnin sem skorar á ríkisstjórnina að auka fiskveiði- heimildir nú þegar og krefst þess að sveitarfélög fái að ráðstafa viðbótaraflanum til vinnslu. „Verður þannig stuðlað að minna atvinnuleysi, auknum útflutningstekjum og meiri umsvifum í þjóðfélaginu.“ - gar Einhugur í bæjarstjórn: Meiri kvóta til að auka umsvif VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 17° 13° 17° 12° 10° 15° 15° 14° 9° 11° 22° 12° 12° 25° 5° 13° 23° 5° 2 6 5 Á MORGUN 8-18 m/s, hvassast V-til og á hálendinu 6 ÞRIÐJUDAGUR 5-15 m/s, hvassast SV-til 9 4 6 2 2 1 10 8 3 10 8 6 10 8 8 10 8 10 18 6 4 46 6 7 6 79 ÚRKOMUSAMT Framundan eru úrkomusamir dagar, aðallega sunnan lands og vestan. Í dag verður þurrt norðan og austan lands fyrir hádegi en uppúr því má búast við slyddu og síðar rigningu. Á morgun verðum við milli lægða, með skúraveðri á vestur- hluta landsins en svo kemur ný lægð upp að landinu með rign- ingu víða um land. Frekar milt í veðri. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur GENGIÐ 31.10.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 207,7121 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 120,05 120,63 194,2 195,14 153,07 153,93 20,555 20,675 17,902 18,008 15,413 15,503 1,2304 1,2376 178,74 179,8 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.