Fréttablaðið - 02.11.2008, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 02.11.2008, Blaðsíða 12
12 2. nóvember 2008 SUNNUDAGUR uantum of Solace er 22. Bond- myndin í þessari langlífustu framhaldsmyndaröð kvik- myndasögunnar. Þetta er í annað sinn sem Daniel Craig leikur James Bond en segja má að hann hafi slegið ræki- lega í gegn í síðustu mynd, Casino Royale. Kom frammistaða hans skemmtilega á óvart því margir höfðu sett spurningarmerki við valið á honum sem njósnara hennar hátignar. Spilaði þar útlitið inn í, því ljóshærður og bláeygður Bond var eitthvað sem íhaldssamir aðdáendur hans höfðu ekki áður fengið að kynnast. Sjálfur í áhættuatriðum Nýja myndin er beint framhald Casino Roy- ale og er söguþráðurinn á þann veg að Bond reynir að stöðva viðskiptajöfurinn Dominic Greene sem ætlar að leggja undir sig miklar vatnsbirgðir í Suður-Ameríku. Á sama tíma reynir okkar maður að hefna þeirra sem drápu kærustu hans, Vesper Lynd, í síðustu mynd. „Ég er mjög ánægður með útkomuna,“ segir hinn viðkunnanlegi Craig um Quant- um of Solace. „Mér finnst Marc Forster [leikstjórinn] hafa staðið sig ótrúlega vel. Mér finnst myndin virka mjög vel bæði sem Bond-mynd og líka sem framhald Casino Royale.“ Craig leggur mikið upp úr raunsæi og reyndi því að leika í sem flestum hasaratrið- um sjálfur, þrátt fyrir áhættuna sem því fylgdi. „Mér fannst það mikilvægt fyrir myndina. Ég vil að áhorfendur verði tilfinn- ingalega tengdir myndinni og detti ekki út á röngum augnablikum,“ segir hann og gefur lítið út á meiðslin sem hann hlaut. „Ég fór í aðgerð [á öxl] sem tengdist gerð beggja Bond-myndanna, en ég meiddist eiginlega ekkert við tökurnar. Ég fékk nokkur spor en það var ekkert sem mátti ekki búast við.“ Bond í ástarsorg Breskir gagnrýnendur, sem venjulega draga ekkert undan þegar Bond er annars vegar, hafa gefið nýju myndinni góða einkunn. Þó hafa þeir sett út á skort á nektarsenum og öllum skemmtilegu vopnunum sem njósnar- inn er vanur að notast við. Craig segist ekki vilja tjá sig sérstaklega um nektarskortinn en segir hann þó hluta af sögunni. „Hann varð ástfanginn í síðustu mynd og lenti síðan í ástarsorg. Það myndi vera í mótsögn við söguþráðinn ef hann stykki upp í rúmið með hverri sem er,“ segir hann. „Þessi mynd er búin og við sjáum til hvort það verður ekki meiri nekt í næstu mynd.“ Bætir hann því við að því miður hafi ekki heldur verið pláss hvorki fyrir vopnin né persónuna Q, sem John Cleese hefur leikið. Í fyrsta sinn í sögu Bond segir hann ekki einkennissetningu sína: „Ég heiti Bond, James Bond“. „Nei, við tókum það upp en það virkaði ekki,“ segir Craig. „Það passaði ekki inn í og var kjánalegt. Þetta leit út eins og við hefðum sett setninguna inn á of með- vitaðan hátt og þannig vil ég ekki hafa það. En ég elska þessa setningu og ég er alls ekki á móti því að hún sé sögð. Í næstu mynd vil ég hafa Martini-setninguna og allar þessar setningar inni því mér finnst að þær eigi að vera í öllum Bond-myndum.“ Breskur í hjarta sínu Craig segir að lagt hafi verið upp með að Quantum of Solace yrði raunsæ og nútíma- leg, en þó með tilvísun í gömlu Bond-mynd- irnar. Hvort Bond sé að verða sífellt alþjóð- legri á kostnað breskra eiginleika hans segir Craig: „Ég er ekki að reyna að leika hann þannig. Í hjarta sínu er hann mjög breskur en hann hefur samt þessa mórölsku stað- festu sem hefur kannski að gera með hvern- ig okkur öllum líður innanbrjósts. Vonandi er hann samt bara hetja sem veit hverjir vondu karlarnir eru og ætlar sér að ná þeim.“ 55 þúsund Íslendingar sáu Casino Royale og kann Craig vel að meta vinsældirnar hér á landi. Hann segist þó ekki átta sig á alþjóð- legum vinsældum Bond. „Í upprunalegu myndunum sem ég horfði á fóru þeir með Bond á staði sem ég hafði ekki séð áður. Við reyndum að gera það líka með þessa mynd þannig að áhorfendur færu í ferðalag um heiminn. Ef myndin höfðar til allrar heims- byggðarinnar er það enn þá betra, enda erum við alltaf að stefna að því.“ Kæstur hákarl á Íslandi Craig heimsótti Ísland í byrjun áratugarins er hann lék Alex West í Lara Croft: Tomb Raider á móti Angelinu Jolie. Tökur fóru fram í Jökulsárlóni og dvaldi Craig á land- inu í um tvær vikur. „Það var alveg ótrúlegt og þetta er einn minnisstæðasti tími lífs míns,“ segir hann og man sérstaklega eftir því er hann stakk upp í sig kæstum hákarli og drakk brennivín á eftir. „Ég hef ekki hug- mynd um af hverju þið borðið hann en ég skil vel þá athöfn að borða hann og drekka síðan á eftir, það var gott,“ segir hann og hlær. „Við skoðuðum jökulinn og ég fór líka í hundasleðaferð. Þetta er stórkostlegur staður, einn sá fallegasti sem ég hef komið á og ég segi það af fullri einlægni.“ Hvetur til sátta Íslendingar og Bretar hafa deilt hart að und- anförnu vegna Icesave-reikninganna og hvetur Craig þjóðirnar til að sættast sem allra fyrst. „Við virðumst alltaf lenda í ein- hvers konar rifrildi á nokkurra ára fresti og ég hef ekki hugmynd um af hverju. Við verð- um að passa betur upp á hvert annað í stað- inn fyrir að fara þessa leið. Ég vona að þetta leysist því þetta snýst allt um peninga og það síðasta sem við ættum að rífast út af eru peningar,“ segir hann. Spurður hvort Bond væri ekki kjörinn til að leysa deil- una segir Craig glottandi út í annað: „Ég veit ekki hvort bókhaldshæfileik- ar hans eru nógu góðir.“ Íslendingar hafa haft horn í síðu Gordons Brown, forsætisráðherra Bretlands, síðan hann nefndi Íslend- inga í sömu andrá og hryðjuverka- menn og Craig kannast vel við málið. „Ég veit ekki hvað ég get sagt. Þetta snýst allt um hvar fólk geymdi pen- ingana sína og fjárfesti. Allur heim- urinn er í sárum þessa dagana vegna þess að fólkið sem sá um peningana gerði mistök. Ég á ekki von á því að þið og Gordon Brown sættist í bráð en … ég veit ekki hvað skal segja. Þetta snýst bara allt um peninga.“ Fjölskyldan mikilvæg Þegar Craig er ekki að elta vondu karlana í bíó reynir hann að slappa eins mikið af og hann getur. „Ég eyði miklum tíma með fjölskyldu og vinum, sem eru mikilvægustu manneskj- urnar í mínu lífi. Ég les líka og horfi á þær bíómyndir sem ég hef misst af. Ég reyni líka að fara í leikhúsið eins mikið og ég get. Ég reyni bara að gera eins venjulega hluti og hægt er og ef ég mögulega get fer ég á staði þar sem fólk er ekkert að spá í James Bond. Það getur verið gott að fara eitthvað út í buskann og ná aðeins andanum.“ Vill fleiri Bond-myndir Næst á dagskrá hjá Craig er frekari kynn- ing á Bond-myndinni auk þess sem kvik- myndin Defiance er væntanleg á næsta ári. „Ég ætla í frí í lok ársins. Ég fór í axlarað- gerð og er að jafna mig. Þannig að ég get ekki unnið núna sem er bara fínt. Það er gott að geta slappað af.“ Spurður hvort hann sé ekki með samning um að gera tvær Bond-myndir til viðbótar segir hann svo vera. Hann segir þó ekkert öruggt þegar kvikmyndabransinn er annars vegar. „Ég myndi endilega vilja gera aðra mynd en ég er raunsær. Við sjáum til hvern- ig þessi gengur en ég myndi endilega vilja leika í fleiri myndum.“ Viltu segja eitthvað að lokum við aðdá- endur þína á Íslandi? „Ég vona að þið njótið mynd- arinnar og fáið „kikk“ út úr henni. Marc For- ster hefur gert frá- bæra hluti, myndin lítur vel út og tón- listin í henni er mögnuð. Leikararnir standa sig líka vel og myndin er mjög spenn- andi. Vonandi skemmtið þið ykkur vel.“ Hetja sem veit hver illmennin eru Nýjasta James Bond-myndin, Quantum of Solace, verður frumsýnd hérlendis 7. nóvember. Freyr Bjarnason spjallaði við Daniel Craig um myndina, kæstan hákarl sem hann prófaði í Jökulsárlóni og hatrammar deilur Breta og Íslendinga. Daniel Craig ólst upp í fótboltaborginni Liverpool og er harður aðdáandi Liverpool sem situr á toppi ensku úrvalsdeildarinn- ar. Átján ár eru liðin síðan liðið var efst í deildinni síðast og krossleggur Craig fingur í von um að stundin sé loksins að renna aftur upp. „Ég er mjög ánægður með gengi þeirra og kannski eigum við möguleika á titlinum í ár. Ég vil samt ekki segja of mikið því ég vil ekki spilla þessu, en við spilum góða knattspyrnu.“ Íslendingar halda flestir með ensku fótboltaliði og viðurkennir Craig að hann hrífist af Arsenal rétt eins og blaða- maður. „Mér finnst Arsene Wenger vera frá- bær stjóri og þeir eru með öflugt lið. Þegar þeir eiga góðan leik spila þeir gullfallegan fótbolta.“ Aðdáandi Liverpool LIVERPOOL Daniel Craig er harður aðdáandi Liverpool og vonast eftir fyrsta deildartitli félagsins í átján ár. 1968 Daniel Craig fæðist 2. mars. 1972 Foreldrar skilja. 1988 Hefur nám við Guildhall-listaskólann í London. 1992 Kvæntist leikkonunni Fionu Loudon – eignast dótturina Ellu. 1994 Skilur við eiginkonu sína. 2001 Leikur í Lara Croft: Tomb Raider og vekur alþjóðlega athygli. 2004 Tilnefndur til Evrópsku kvikmyndaverð- launanna fyrir Layer Cake. 2005 Valinn sjötti Bond sögunnar. 2005 Leikur í Munich í leikstjórn Stevens Spielberg. 2006 Leikur James Bond í fyrsta sinn í Casino Royale. 2006 Kjörinn best klæddi karlinn af tímarit- inu Esquire. 2007 Tilnefndur til Bafta-verðlaunanna fyrir Casino Royale. 2008 Leikur Bond í annað sinn í Quantum of Solace. ➜ DANIEL CRAIG Ég hef ekki hugmynd um af hverju þið borðið hann [hákarl] en ég skil vel þá athöfn að borða hann og drekka síðan á eftir, það var gott DANIEL CRAIG Breski leikarinn Daniel Craig fer með hlutverk James Bond í Quantum of Solace sem verður frumsýnd hérlend- is 7. nóvember.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.