Fréttablaðið - 02.11.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 02.11.2008, Blaðsíða 6
6 2. nóvember 2008 SUNNUDAGUR KRINGLUNNI // SMÁRALIND // KEFLAVÍK Í BLEND SUPER SUNNUDAG UR AFSLÁTTUR AF ÖLL UM VÖRUM AÐEINS Í D AG20% HOLLAND, AP Rússneski utanríkis- ráðherrann Sergei Lavrov sagði á fimmtudag að rússnesk yfirvöld væru að rannsaka gögn sem Hollendingar lögðu fram til sönnunar fullyrðinga sinna um að banamein hollensks sjónvarpsmynda- tökumanns, sem lét lífið í átökun- um í Georgíu í ágúst, hefði verið rússnesk klasasprengja. En Lavrov ítrekaði að hann stæði við niðurstöðu rússneskrar rannsóknar sem stangast á við fullyrðingar hollenska utanríkis- ráðuneytisins um að myndatöku- maðurinn Stan Storimans hafi látið lífið með þessum hætti. Rússar hafa neitað að hafa beitt klasasprengjum í hernaði sínum í Georgíu í ágúst. - aa Dauði myndatökumanns: Rússar og Hol- lendingar deila SERGEI LAVROV DÓMSMÁL Maður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að kveikja í jakka annars manns á Kringlukránni. Eigandi jakkans tók skyndilega eftir því að bakið á jakkanum stóð í ljósum logum. Hann náði að klæða sig úr honum, slökkva eldinn og koma þannig í veg fyrir meiðsli. Brennuvargurinn játaði fyrir dómi að hafa kveikt í jakkanum en þvertók fyrir að nokkur hefði verið í honum. Dómnum þótti sýnt að það væri rangt. Mennirnir höfðu leigt íbúð saman um það bil ári fyrr. Ósætti varð á milli þeirra og leiðir skildi, þar til á Kringlukránnni. - jss Jólahlaðborð á Kringlukránni: Kveikti í jakka annars manns VIÐSKIPTI „Commerzbank var eitt um að mótmæla framlengingu á greiðslustöðvun og vildu að Samson eignarhaldsfélag yrði tekið til gjaldþrotaskipta,“ segir Gunnar Sturluson, lögmaður og aðstoðarmaður félagsins, sem er í greiðslustöðvun. Samson, sem er í eigu feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar, átti ríflega 41 prósents hlut í Landsbankanum. Eftir að bankinn fór í þrot fyrir þremur vikum óskaði stjórn Samsonar eftir greiðslustöðvun. Mál Commerz- bank gegn Samsoni var tekið fyrir í héraðsdómi í fyrradag en úrskurðað verður í málinu í næstu viku. - jab Örlög Samsonar ráðast senn: Commerzbank vildi gjaldþrot BJÖRGÓLFSFEÐGAR Þýski bankinn Commerzbank vildi að Straumur, félag Björgólfsfeðga, yrði tekið til gjaldþrota- skipta. DÓMSMÁL Maður um þrítugt hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Honum er gefið að sök að hafa fleygt glerglasi í andlit manns með þeim afleiðingum að glasið brotnaði. Við þetta hlaut fórnarlambið þriggja sentímetra langan skurð á enni og mar á nefi. Atvikið átti sér stað fyrir utan Kaffibarinn í lok síðasta árs. Af hálfu þess sem glasið lenti á er krafist skaðabóta að fjárhæð 624 þúsund krónur. - jss Ríkissaksóknari ákærir mann: Braut glas í andliti manns ALÞINGI Geir H. Haarde forsætis- ráðherra segir að tap Seðlabank- ans vegna fyrirgreiðslu til bank- anna nemi tugum milljarða króna. „Kannski er það um 150 milljarð- ar,“ svaraði Geir fyrirspurn Helga Hjörvar, Samfylkingunni, á Alþingi á föstudag. Tók hann fram að endanlegir útreikningar lægju ekki fyrir. Fyrr á árinu veitti Seðlabankinn bönkunum fyrirgreiðslu um lausa- fé í enn ríkari mæli en áður hafði verið. Sagði Geir það hafa verið gert eftir að mjög ríkar kröfur þar um höfðu verið gerðar. „Þetta var af flestum talið eðlilegt og nauð- synlegt,“ sagði Geir. Fólst fyrir- greiðslan í viðtöku sérstakra tryggingabréfa bankanna. Við þrot þeirra rýrnaði verðmæti bréfanna stórkostlega. Geir sagði ljóst að ríkið verði að leggja Seðlabankanum til nýtt eigið fé en fjárhæðin hafi hvorki verið reiknuð út né ákveðin. Helgi krafðist jafnframt svara um hvort seðlabankastjórarnir þyrftu ekki að axla ábyrgð vegna þess gríðarlega tjóns sem bankinn hefði orðið fyrir. Benti hann á að stjórnendur viðskiptabankanna hefðu þurft að láta af störfum og nýir ráðnir í þeirra stað. Geir taldi svo ekki vera enda væri ekki um að ræða að Seðla- bankinn hefði gert sig sekan um sérstök afglöp. - bþs Tap Seðlabankans vegna fyrirgreiðslu til bankanna verður ekki rakið til afglapa: Tapið nemur tugum milljarða PERSÓNUVERND Fjármálafyrirtæki eiga að láta fólk vita þegar símtöl þess við fyrirtækin eru hljóðrituð. Póst- og fjarskiptastofnun segir undanþágu frá þessari reglu vera ef um sé að ræða fólk frá öðrum fjármálafyrirtækjum og fjárfesta. Einnig gagnvart viðmælendum sem áður hafi undirritað samning eða skilmála þar sem fram komi að símtöl séu hljóðrituð. Almennum neytendum sem ekki séu eins vel upplýstir um starfshætti á fjármálamarkaði skuli hins vegar tilkynna ef símtal er tekið upp. - gar Póst- og fjarskiptastofnun: Fólk fái að vita um hljóðritanir GEIR H. HAARDE HELGI HJÖRVAR EFNAHAGSMÁL Krónan er ónothæf- ur gjaldmiðill til að byggja upp samkeppnishæft efnahagslíf hér á landi. Þar sem Ísland hefur hins vegar engan annan lögeyri verður að notast við hana sem millibils- gjaldmiðil uns það tekst að koma krónunni „í skjól“ í Evrópusam- bandinu og peningamálastefnu Evrópska seðlabankans. Um þetta voru sammála frummælendur sem töluðu á málþingi sem haldið var í Norræna húsinu á fimmtudag undir yfirskriftinni „Framtíð Íslands í samfélagi þjóðanna“. Að málþinginu stóðu Alþjóða- málastofnun Háskóla Íslands, Evr- ópumálasetur Háskólans á Bifröst og viðskiptafræðideild Háskólans í Reykjavík. Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ, rakti í sínu erindi að Ísland væri eina smáríkið í Evrópu sem fyrir alþjóð- legu fjármálakreppuna hefði ekki haft neina samninga um „efna- hagslegt skjól“ af stærri efnahags- einingu, og því væri það engin til- viljun að Ísland væri fyrsta fullvalda ríkið í hinum hnattvædda vestræna heimi sem varð alvar- lega fyrir barðinu á kreppunni. Íslensk stjórnvöld hefðu brugðist í að tryggja Íslandi efnahagslegt skjól ef til alþjóðlegrar kreppu kæmi. Aðalsteinn Leifsson, forstöðu- maður MBA-náms við HR, sagði að þrátt fyrir bágt efnahagsástand, deilur við Breta og fleira sem tína mætti til sem atriði sem ætla mætti að veiktu samningsstöðu Íslands í aðildarviðræðum við Evrópusam- bandið þá væri Ísland, þegar grannt væri skoð- að, í ágætri aðstöðu til að ganga í sam- bandið. Réttur Íslands til þess, samkvæmt lögum ESB, væri ótví- ræður og landið uppfyllti öll aðild- arskilyrðin. Olli Rehn, stækkunar- málastjóri ESB, hefði þar að auki staðfest að Ísland uppfyllti for- sendur til að hægt væri að ljúka aðildarviðræðum á skemmri tíma en samið hefur verið við nokkurt umsóknarríki til þessa. Mikilvæg- asta forsendan fyrir þessu er að hægt væri að ljúka minnst 21 af 35 samningsköflum strax eftir að aðildarviðræður hæfust, vegna þess hve Ísland hefur í gegnum EES, Schengen og annað samstarf við ESB nú þegar lögleitt alla lög- gjöf ESB á viðkomandi sviðum. Eiríkur Bergmann Einarsson, forstöðumaður Evrópufræðaset- urs Háskólans á Bifröst, rakti hvernig „hefðbundin“ leið til að ganga í myntbandalag ESB tæki fjögur ár í framkvæmd. Tæknilega ætti þó að vera hægt að tengja krónuna inn í ERM II-gengiskerfið á fjórum mánuðum, væri til þess pólitískur vilji samningsaðila. Aðalheiður Héðinsdóttir, for- stjóri Kaffitárs, skoraði á íslenska fyrirtækjarekendur að láta fram- vegis ekki bjóða sér annan eins óstöðugleika og þeir hafa búið við á liðnum árum. Aðrir frummælendur voru Katr- ín Ólafsdóttir, lektor í viðskipta- fræði við HR, og Alyson Bailes, gestakennari í alþjóðastjórnmál- um við HÍ. audunn@frettabladid.is Íslenskt efnahagslíf þarfnast skjóls í ESB Sérfræðingar frá þremur háskólum sem töluðu um stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna á málþingi eru sammála um að ógjörningur sé að endurreisa íslenskt efnahagslíf með krónuna sem gjaldmiðil. Það þurfi skjól í Evrópusambandinu. Í SKJÓL Án horfna á að tengjast peningamálastefnu Evrópska seðlabankans á íslenska krónan sér vart viðreisnar von, að mati frummælenda á málþinginu. NORDICPHOTOS/AFP AÐALSTEINN LEIFSSON Telur þú rétt að RÚV verði tekið af auglýsingamarkaði? Já 61,4% Nei 38,6% Telur þú Davíð Oddsson hafa skaðað orðspor Sjálfstæðis- flokksins að undanförnu? Segðu skoðun þína á visir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.