Fréttablaðið - 02.11.2008, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 02.11.2008, Blaðsíða 16
4 FERÐALÖG Heillandi fegurð Hvalfjarðarins Eftir byggingu Hvalfjarðarganga er fjörðurinn kominn úr alfaraleið og orðinn að vinsælli náttúruperlu skamman spöl frá höfuðborginni. Hótel Glymur stendur í kjarri vaxinni hlíðinni ofan við Saurbæj- arkirkju og státar af stórfenglegu útsýni yfir kyrrlátan fjörðinn. Það væsir ekki um gesti þar sem öll herbergi eru sérhönnuð og á tveimur hæðum þar sem öll nútímaþægindi líkt og þráðlaust net og flatskjár eru til staðar. Á hótelinu eru tveir heitir pottar undir berum himni og þar er til- valið að slaka á og horfa á norður- ljósin. Í nóvember og desember eru spennandi gistipakkar í boði. Rökkur og rómantík er yfirskrift glæsilegs sælkerapakka þar sem boðið er upp á gistingu, þriggja rétta kvöldverð og gómsætt morg- unverðarhlaðborð. Krydd og koss- ar er svipaður pakki þar sem tekið er á móti gestum með kanilkaffi og smákökum og hægt er að velja um eina eða tvær nætur ásamt lokkandi matseðli, heitum potti og morgunverði. Að lokum má ekki gleyma jólaborði Glyms sem hreinlega svignar undan kræsing- um, en þar er meðal annars að finna sleðadregið hreindýr, húsa- tóftakæfu, villijurtagrafinn lax, villisveppi og svartfugl ásamt sér- staklega völdum jólavínum. Hótel Glymur, Hvalfirði, sími 430 3100 Dulúð Snæfellsjökuls Hótel Búðir á Snæfellsnesi hefur ávallt verið vinsæll áfangastaður þegar fólk vill flýja skarkala borg- arinnar í töfrandi umhverfið undir Jökli. Margrómað eldhúsið á Hótel Búðum bregst engum í nóvember en þá er slegið upp fimm rétta villibráðarveislu þar sem eldað er úrval af villtu kjöti, þar á meðal héri, svartfugl, hreindýr og gæs eftir kenjum kokksins. Eftir því sem nær dregur jólum verður matseðillinn hátíðlegri og betri stofan komin í jólabúning. Þar er kjörið að dreypa á sérríi við arin- eldinn, slappa af og njóta stemn- ingarinnar. Á Búðum er svo auð- vitað tilvalið að skella sér í góðan göngutúr og njóta náttúrufegurð- arinnar allt um kring, sem er ekki síður heillandi og dulúðug í skammdeginu. Hótel Búðir, Búðum, Snæfellsnesi sími 435 6700 Friður og ró við Rangá Í um tveggja tíma keyrslu frá höfuðborginni er Hótel Rangá, sannkallað sveitahótel í alpastíl við árbakkann. Innandyra er sér- lega hlýlegt en boðið er upp á fal- leg herbergi, mörg með nuddbað- kari, og svo eru heitir pottar á veröndinni. Um þessar mundir er boðið upp á fimm rétta villibráð- arveislu en þar er meðal annars að finna dásamlega rjúpusúpu, reyk- tan lunda með trufflusveppaolíu og fjórar tegundir af villtum fiski KÚRT Í KULDANUM Nóvember er kjörinn mánuður til að eiga rómantískar og afslappaðar stundir fyrir utan bæjarmörkin. Hvernig væri nú að snæða villibráð með elskunni, fara í gönguferð í snjónum eða slaka á saman í heitum potti? Anna Margrét Björns- son fór á stúfana og athugaði hvaða freistingar eru í boði í aðdraganda jólanna. Hótel Rangá Hótel Búðir Framhald á bls. 5 * ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 4 40 19 1 1/ 08 HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ + Bókaðu flug á www.icelandair.is Í Shaftesbury Theatre er sæti fyrir þig. Ítalskur meistarakokkur við Duke Street hefur lagt á borð fyrir þig. Það er beðið eftir þér í Notting Hill. Komdu í borgarferð til London. Lífvörður drottningar hefur æft vaktaskipti síðan á 19. öld og menn skilja ekkert í að þú skulir ekki hafa látið sjá þig enn þá. *Flug aðra leiðina með sköttum.Ferðaávísun gildir M A D R ID B A R C E LO N A PARÍS LONDO N MANCHESTER GLASGOW MÍLANÓ AMSTERDAM MÜNCHEN FRANKFURT BERLÍN KAUPMANNAHÖFN BERGEN GAUTABORG OSLÓ STOKKHÓLMUR HELSINKI HA LI FA X BO ST ON OR LAN DO MINN EAPOL IS – ST. P AUL TOR ONT O NE W YO RK REYKJAVÍK AKUREYRI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.