Fréttablaðið - 02.11.2008, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 02.11.2008, Blaðsíða 26
6 FERÐALÖG T íðarfarið í Valparaíso að haustlagi minnir nokkuð á dæmigert íslenskt svikalogn í sjávarþorpum á sumrin. Það er vor í lofti á suðurhveli og sólin skín á bárujárnshúsin á hæðunum frægu sem áunnið hafa chileönsku hafnarborginni gæðastimpil frá UNESCO. En svikalognið dugir til hádegis. Þá fer að blása hressilega og grunlausir ferðamenn sem fóru út á skyrtunni og jakkanum verða illa úti og flýta sér til baka á sinn gististað til þess að ná sér í peysu – og helst tvær. Þannig er vorið í hafnarbæjunum niður við Kyrrahafsströnd Suður-Ameríku. Gangan upp eftir brattri Cerro Bellavista-hæðinni er nokkuð stremb- in, sérstaklega þegar að þarf að ýta barnavagni með bústnu og vel öldu íslensku barni á undan sér. Hvítar pílur vísa okkur í átt að La Sebasti- ana, einu þriggja húsa þjóðskáldsins Pablo Neruda. Á áningarstað bíðum við þess, ásamt örfáum amerískum ferðamönnum með der á höfðinu, að hliðinu verði lokið upp. Loks er komið að opnun og gestirnir fá leyfi til að berja vistarverur skáldsins augum. Ásókn í skoðunarferðir um heimili chileanska þjóðskáldsins á sér eðli- legar skýringar. Pablo Neruda er fyrir heimamönnum það sem Halldór Laxness er fyrir Íslendingum. Þar af leiðandi eru húsin hans þrjú eins konar „Gljúfrasteinar“ Chilebúa. Þó eru þau reyndar um margt enn mark- verðari en heimkynni Laxness vegna þess hversu yfirbragð þeirra er sér- stætt og þá ekki síður innbúin. Neruda hafði mjög ákveðnar skoðanir á því hvernig húsin hans ættu að líta út og var mjög með í ráðum við hönnun þeirra. Sjóferðir og skip eru ráðandi þættir í stílnum og endurspegla aðdá- un skáldsins á hafinu og leiðöngrum um það heimshornanna á milli. Löng leit að óskahúsinu Neruda átti það sameiginlegt með skáldbróður sínum uppi á Gljúfra- steini að vera hallur undir kommún- isma en deila þó ekki beinlínis kjörum með saursvörtum almúganum. Hann var um langt skeið heitbundinn arg- entínskri listakonu, tuttugu árum eldri en hann, sem var af fyrirfólki komin og átti því ekki í erfiðleikum með að leggja til góðan heimanmund. Neruda gat því leyft sér að halda úti þremur húseignum í sama landinu og dvelja í þeim á víxl eftir því hvernig vindar blésu. Valparaíso-húsið, sem lýst er hér að ofan, var reyndar það hús sem hann dvaldist einna minnst í og auk þess það eina sem hann lét ekki reisa sjálfur. Aðdáun skáldsins á hafinu og sjóferðum dró hann að hafnarbænum Valparaíso. Þangað sótti hann burt frá skarkalanum í höfuðborginni Santíago og hafði um nokkurn tíma lýst þeirri ósk sinni við vini sína og velunnara í Valparaíso að þar gæti hann hugsað sér að eiga íverustað. Hann setti fram mjög nákvæmar kröfur um hvernig húsið skyldi vera í sveit sett og hvaða kostum það ætti að vera búið. Leitin að slíkum óskastað reyndist vera þrautin þyngri en bar loks árang- ur þegar á fjörurnar rak húsið sem Neruda nefndi síðar La Sebastiana eftir arkitekt þess. Frá því er frábært útsýni yfir borgina, út á höfnina og yfir Kyrrahafið. Auk þess var það fjarri skarkala miðbæjarins en þó í seilingarfjarlægð. Hús nefnt eftir hjákonu og skringilegt sjóminjasafn Hús Neruda í höfuðborginni Santíago á rætur sínar í ákveðnu leynimakki og flótta. Raunar ekki frá yfirvöldum heldur hinni argentínsku sambýlis- konu. Sú saga er í það minnsta lífseig að Pablo Neruda hafi byggt hús sitt í Santíago til þess að geta varið tíma Í HÚSUM SKÁLDSINS Sigurður Ólafsson skrifar frá Chile Þrjú hús Skáldið var nógu efnað til að eiga þrjú ólík hús í Chile. La Sebastiana Pablo Neruda leitaði lengi að hinu fullkomna húsi. Ásókn í skoðunar- ferðir um heimili chileanska þjóðskáldsins á sér eðlilegar skýringar. Pablo Neruda er fyrir heimamönnum það sem Halldór Laxness er fyrir Íslendingum. með hjákonu sinni sem síðar varð raun- ar hans þriðja frú. Eftir sambandsslit við aðra konu sína og opinberun sam- bands við þá þriðju var húsið nefnt í höfuðið á húsfreyjunni sjálfri, La Chas- cona. La Chascona stendur efst í Bella- vista-hverfinu í Santíago, gömlu og grónu listamannahverfi, og við hlíðar San Cristóbal-útsýnishæðarinnar. Í dag er Neruda-menningarstofnunin þar einnig til húsa og þar fer fram marg- vísleg starfsemi auk hefðbundinnar leiðsagnar um húsakynnin. Óhætt er að fullyrða að langfrægast húsa skáldsins sé þó hið síðastnefnda: Isla Negra á samnefndum stað við sjáv- arsíðuna um það bil 130 kílómetra suður af Valparaíso. Þarna reyndi Neruda að dvelja eins mikið og hann gat meðan hann var ekki að flandrast um allar heimsins grundir, annað hvort í hlut- verki sínu sem skáld eða háttsettur dipl- ómat. Þyki ferðalöngum húsin í Valpara- íso og Santíago og innréttingar þeirra vera algjörlega sér á parti þá má segja að tólfunum kasti fyrst í Isla Negra. Enn og aftur ber húsagerðin svipmót af skipslagi og ýmislegt í arkítektúrnum er gert til þess að auka þau áhrif. Isla Negra minnir meira á skringilegt sjó- minjasafn en nokkuð annað þar sem hvert skúmaskot er yfirfullt af undar- legum munum, allt frá fyrsta flokks handverki og húsmunum til algjörs skrans. Herforingjastjórnin gerði allt sem í hennar valdi stóð til þess að sverta allt sem Neruda tengdist meðan á valda- tíma hennar stóð. Húsin þrjú voru lögð í rúst og þrátt fyrir tilraunir ýmissa bandamanna skáldsins var þeim lítill sómi sýndur árum saman. Eftir að lýð- ræði komst aftur á varð hins vegar ákveðin viðreisn og með aðstoð sterkra bakhjarla tókst að koma vistarverum Neruda í því sem næst upprunalegt horf. Utan um allt voru svo stofnuð fyrr- nefnd menningarsamtök, kennd við skáldið, og sjá þau nú um daglegan rekstur og starfsemi húsanna þriggja og gera það með miklum sóma. Þess vegna er óhætt að mæla með „húsum skáldsins“ við alla áhugamenn um rit- höfundabústaði, skrýtna hluti og sér- stakt byggingarlag.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.