Fréttablaðið - 02.11.2008, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 02.11.2008, Blaðsíða 14
ÞAÐ HEITASTA Í ... HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ] ferðalög NÓVEMBER 2008 Í HÚSUM SKÁLDSINS Heimili Pablos Neruda heimsótt í Chile HEIMILDARMYNDA- HÁTÍÐ Í KÖBEN Anna María Helgadóttir listakona segir frá uppá- haldsstöðunum sínum + SKÍÐAPARADÍS Á NORÐURLANDI, WARHOL SÝNING Í LONDON OG HEIMILDARMYNDAHÁTÍÐ Í KAUPMANNAHÖFN KÚRT Í KULDANUM VETRARRÓMANTÍK OG VILLIBRÁÐ Á SVEITAHÓTELUM LANDSINS A kureyrarbær er vel kunnur sem paradís fyrir iðkendur vetraríþrótta. Hafist var handa við snjóframleiðslu fyrir brekkur skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli um miðjan október, en stefnt er að því að opna svæðið nú síðar í mánuðinum. Þeir sem áhuga hafa á vetraríþróttum geta því hugsað sér gott til glóðarinnar enda er aðstaða til skíða- og snjóbrettaiðkunar til fyrirmyndar í Hlíðarfjalli. Lista- og menningarlífið á Akureyri hefur verið í mikilli sókn síðustu ár. Þeir sem hyggja á heimsókn norður nú á næst- unni geta skoðað sýninguna Orð Guðs í Listasafninu á Akureyri. Þar sýna verk sín listamennirnir Étienne de France, Steingrímur Eyfjörð, Jeanette Castioni, Ólöf Nordal, Þóra Þórisdóttir og Arnald- ur Máni Finnsson, en öll takast þau á ein- hvern hátt við kristna trú. Ekki má leikhúslíf bæjarins verða út undan í þessarri upptalningu, en Leikfé- lag Akureyrar sýnir um þessar mundir hið geysivinsæla og dularfulla leikrit Músagildruna eftir Agöthu Christie, sem sýnt hefur verið í leikhúsi í Lundúnum óslitið í 56 ár. Það þarf því enginn að láta sér leiðast þegar höfuðstaður Norðurlands er sóttur heim. - vþ 2 FERÐALÖG SNJÓR OG MENNING Það er margt spennandi í boði á Akureyri hvort sem fólk hefur áhuga á útivist eða listum. Bær- inn er því tilvalinn áfangastaður þeirra sem hyggjast fara í vetrarfrí. Nútímalist Þetta verk eftir Étienne de France kallast Síðasta kvöldmáltíðin og er til sýnis í Listasafninu á Akureyri. MYND/LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI Leikfélag Akureyrar Músagildran er líklega vinsæl- asta sakamálaleikrit allra tíma. MYND/LEIKFÉLAG AKUREYRAR UPPÁHALDSVEITINGASTADUR: Fischer á Austurbrú. Hann er látlaus og heiðarlegur ítalskur veitingastaður sem býður upp á frábæran „trattoria“-mat sem er eldaður af David Fischer. Auk þess er hann ódýr. UPPÁHALDSBARINN: Nýir barir eru alltaf að spretta upp og gamlir að loka en uppáhaldsstaðurinn minn til að fá mér drykk í ró og næði er The library bar í Plaza hótelinu. Einstaklega persónulegur og kósí staður og eitt best geymda leyndarmálið í Kaupmannahöfn. SKEMMTILEGASTA HVERFIÐ: Norðurbrú; Blåg- ardsgade, Ravnsborggade, Elmegade. Þetta er eina hverfið í borginni sem aldrei sefur. EKKI MISSA AF: Heimildarmyndahátíðinni CPH:DOX sem er stórkostleg. Alveg nauðsynlegt að sjá hverja einustu mynd og mæta í öll eftirpartíin. Hinn 13. nóvember kemur Kenneth Anger, leikstjóri Hollywood Babylon, Scorpio Rising og Lucifer Rising til að sýna mynd og halda fyrirlestur. Hann segist ætla að deyja í ár og því sennilega síðasta tækifæri til að líta hann augum. HEIMAMAÐURINN ANNA MARÍA HELGADÓTTIR LISTAKONA OG MEÐLIMUR INGEN FRYGT  Kaupmannahöfn Hressandi Fátt er skemmtilegra en að skella sér á skíði í Hlíðarfjalli þegar vel viðrar til þess. BÓKAÐU NÚNA ferðalög kemur út mánaðarlega með sunnudagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjóri Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir Forsíðumynd Hreindýr á vegg á Hótel Búðum. Mynd eftir Silju Magg. Pennar Anna Margrét Björnsson, Vigdís Þormóðsdóttir Ljósmyndir Fréttablaðið, Silja Magg Auglýsingar Benedikt Jónsson benediktj@365.is flugfelag.is Skráðu þig í Netklúbbinn REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR VESTMANNAEYJAR ÍSAFJÖRÐUR VOPNAFJÖRÐUR ÞÓRSHÖFN GRÍMSEY Félagar í Netklúbbnum fá fyrstir upplýsingar um tilboð og nýjungar í tölvupósti. Alltaf ódýrast á netinu www.flugfelag.is M argir nota tíma skammdegis á Íslandi til langferða þegar sumar er hinum megin á hnettinum. En nú þegar slík ferðalög eru enn kostnaðarsamari en ella þýðir ekk- ert að láta það stöðva ímyndunaraflið enda heilmikið hægt að gera á haustin á okkar kalda landi. Þrátt fyrir að birta og ylur sumarsins sé að baki og langir dimmir snjómánuðir framundan er þó eitthvað við skammdegið sem er afskaplega rómantískt. Þegar veður er snarvitlaust utandyra er dásam- legt að hafa það nota- legt með elskunni fyrir framan arineld, njóta góðs matar og víns og hvors ann- ars. Í þessu tölublaði Ferðalaga skoðum við einmitt skemmti- leg sveitahótel sem bjóða upp á falleg herbergi, dýrindis kræsingar og jafn- vel heita potta sem eru auðvitað dásamlegir sérstaklega á þessum árs- tíma. Hvað getur verið betra en að slaka á í heitu vatni undir stjörnubjörtum himni og jafnvel dans- andi norðurljósum? Og þrátt fyrir að þetta kunni að hljóma sem klisja þá mega karlmenn vita það fyrir víst að arineldur, kampavín og sveitarómantík eru svo sannarlega leiðin að hjarta hverrar konu. Svo er auðvitað tilvalið að nota sumarbústaðinn meira þó kalt sé úti. Bjóða fjölskyldu og vinum, elda saman góðan mat og fá sér hressandi gönguferðir í snjónum áður en maður hlýjar sér við eldinn. Hvern- ig væri nú að taka frí frá niðurdrepandi fréttatímum á síbyljunni, banna sjónvarps og útvarpstæki og taka frekar með skemmtileg spil og góðan anda? Slíkar samverustundir með vinum eða fjölskyldu eru ómet- anlegar á þessum síðustu og verstu. Njótið nóvem- bermánaðar! KERTALJÓS OG KÓSÍHEIT Anna Margrét Björnsson skrifar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.